Skólablaðið - 01.04.1914, Side 7
SKÖLABLAÐIÐ
55
Loks vil eg beina þeirri spurningu til greinarhöf. í
hverju nemendum héðan sé ábótavant eða hvort það sé
nokkurnveginn jafnt í öllum greinum?
Eg legg mikla áherslu á að fá þessari spurningu svarað,
því það getur verið oss hér hin besta leiðbeining.
Eg hef aldrei látið mér detta í hug að nemendum héð-
an væru eigi meira og minna ,,ábótavant“, en eg get ekki
neitað því, að eg hef þóst hafa ástæðu til að ætla, að þeir
væru yfirleitt ekki ver að sér, en gagnfræðanemendur í
Reykjavík, eins og þeir gerast svona upp og ofan. — þessi
ætlun mín hefur styrkst við það, að þeir norðanpiltar, sem
þegar hafa útskrifast úr lærdómsdeildinni hafa fyllilega staðið
sunnanpiltum á sporði og ekki fleiri af þeim týnst úr lest
að tiltölu. Enn er eigi nema um þrjá árganga að ræða og
af þeim hafa 13 norðanmenn tekið stúdentspróf. Hafa þeir
allir fengið yfir meðaleinkunn, — einn ágætiseinkunn, —
að einum einasta undanteknum, sem var bláfátækur og varð
að vinna fyrir sér að vetrinum. — Auk þess hafa tveir
lokið stúdentsprófi með góðri einkunn að tveim árum liðn-
um eftir að þeir fóru héðan.
þetta hefur glatt mig innilega, því mér er ant um að
lærisveinar mínir reynist vel í hvívetna, hvort heldur er við
nám eða annað, en auðvitað væri ósanngjarnt að ætlast til
þess að þeir reyndust allir jafnvel. þegar sambandið komst
* á milli skólanna, bjóst eg við að þeir einir gengju í lær-
dómsdeildina héðan,sem námfúsir væru og hefóu hér náð góðri
einkunn, en út af þessu hefur því miður brugðið. Mundi
eg ekkert hafa á móti því að eigi ættu aðrir aðgang að
lærdómsdeildinni próflaust, en þeir sem útskrifast hefðu
héðan með góðri einkunn og væru eigi afleitir í neinni
námsgrein. þeir, sem hafa svo lítinn áhuga á námi eða eru
svo treggáfaðir, að þeir hafa eigi náð sæmilegri einkunn hér
við gagnfræðapróf, eiga ekkert erindi upp í lærdómsdeild-
ina. Er eigi að búast við því, að þeir vinni sér þar mikið
gagn né skólanum sóma. Hið sama gildir auðvitað um nem-
endur gagnfræðadeildarinnar í Reykjavík.
Að endingu skal eg geta þess, að mér er ekkert sárt