Skólablaðið - 01.05.1914, Blaðsíða 2
66
SKÓLABLAÐIÐ
prófi þeirra, t. d. hækka lágmark einkunna. Það k, tni hart niður
á mörgum efnilegum manni, sem af einhverjum a.tæðum hefði
haft lélega undirbúningskenslu. Auk þess eigi ólíklegt, að hækk-
un lágmarks myndi hafa í för með sér hækkun vitnisburða, t. d.
að 5 yrði þá litlu meira virði en 4 nú o. s. frv. Að minsta
kosti er það reynsla sumra kennara, að þeir eru tregari til að
gefa 3 í lærdómsdeildinni (lágtnark 4) en í gagnfræðadeild (lág-
mark 3 V2).
Ekki geðjast mér að tillögunni um að taka stúdentspróf á
Akureyri, en hvorki er það af kala til skólans þar, né af því að
eg efist um, að það geti vakið holla samkepni. En lítum bara
á horfurnar núna og næstu árin. í fyrra tóku 30 neniendur
stúdentspróf, nú eru stúdentaefnin um 20, næsta ár sennilega um
30, þriðja árið 30—35 og fjórða árið (samkvæint aðsókninni
núna að gagnfræðaprófi og með venjulegri viðkomu að norðan)
40—50. Ef taka mætti stúdentspróf f Akureyrarskóla, myndi
sennilega fara þar líkt og hér, flestir halda áfram eftir gagnfræðapróf
að minsta kosti vafahust fleiri en nú. Ef stúdentaviðkoman,
og þar nieð tala embættismannaefna, er áhyggjuefni nú, hvað
myndi þá?
Skólastjórinn kemst svo að orði í grein sinni: »Eg hef
litið svo á að meiri stund beri að leggja á þroskun nemandans
í slíkum skóla sem þessum en kunnáttu hans í hinum ýmsu
fræðigreinum, sem kendar eru eða réttara sagt notaðar eru nem-
andanum til andlegrar þroskunar.« — Þetta er vafalaust rétt, enda
er það tekið fram í reglugerð Mentaskólans, að sameiginlegt
markmið beggja deilda sé að efla sálar- og líkams-þroska nem-
endanna. En engum ætti að dyljast, að fremur á þó ákvæðið
um sálarþroskun við lærdómsdeildina en gagnfræðadeildina, því að
gagnfræðadeildinni er ætlað að »veita hæfilega afmarkaða almenna
mentun* og eigi síst sem grunclvöll undir framhaldsnám (að miklu
leyti í sömu námsgreinum) í lærdómsdeild, en lærdómsdeild á
hins vegar að gera menn fœra um að stunda vísiudanám, ekki
eingöngu búa þá undir framhaldsnám í einstökum greinum
(rmarkmið lærdómsdeildarinnar er að veita nemendum æðri al-
menna rnentun á þeim grundvelli, sem lagður er í gagnfræðadeild
skólans, og gjöra þá færa um að stunda vísindanám við sér-