Vísir - 22.06.1959, Síða 12

Vísir - 22.06.1959, Síða 12
Kkkert bUð er ódýrara ( áskrift en Tialr. LátiS kann færa yður fréttir ®g annaS iMtrarefni kehn — án fyrirhafnar aí ySar hálfu. Sími 1-16-6«. «18It Mánudaginn 22. júní 1959 Munið, að þeir, sem gerast áskrifendar Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá bUSU ékeypis til mánaðamóta. Simi 1-16-60. CjÓ * %% Minnisblað um loforð og „efndir“ vinstri stjórnarinnar. LOFORÐ. í dag rifjum við upp stærsta loforð vinstri stjórnarinnar. „Það er betra aS vanta brauS en haía ber í landi,“ sagði Hermann Jónasson við ísienzku þjóðina í útvarps umræðum fyrir siðustu kosningar og á grundvelli þess, að Island yrði varnarlaust, var vinstri stjórnin mynduð. „EFNDIR“ Það er gæfa þjóðarinnar, að vinstri stjórnin sveik þetta loforð eins og öll önnur. Vinstri stjórnin reyndi ekki og þorði ekfei að reka herinn burt. Eitt er víst, að í kosningunum n.k. sunnudag mun þjóðin ekki gefa vinstri flokkunum annað tækifæri til að ieika sér með fjöregg íslendinga. Kjörorðið er: Aldrei aftur vinsftri sftjórn Óvenju tíðar þokur í V estmannaeyjum. Gulllrorgarinenn fengu 1900 kr. á 5*/% klst. Frá fréttaritara Vísis. Vestm.eyjiun í morgun. Hér var svarta þoka í morg- un svo ekki sást nema nokkra metra. Þokur liafa verið hér tíðar undanfarið og er það ó- venjulegt fyrirbæri hér í Eyj- Kltl. Vegna storma og dimmviðris !hafa veiðar yfirleitt gengið illa. Gullborgin hefur ekki getað farið aftur út og ekkert fengið síðan fyrir helgi, að hún fékk 270 tunnur í einu kasti hérna við hafnargarðinn. Hér er mikil mannekla og Benoný gekk erfiðlega að skrapa saman mannskap um daginn til að reyna við síldina á Víkinni. Honum tókst þó að lokum að fá nógu marga og þeir þurftu ekki að iðrast þess. Það tók ekki nema 5% klukku stund frá því að báturinn var leystur þar til síldin var kom- in á land og hluturinn varð 1900 krónur. Að lokinni biskupsvígslu í gær var þessi hópmynd tekin í garði Alþingishússins af biskupunum og konum þeirra, erlendum gestum og prestum landsins. Milljónir manna í Kína treysta flóðgarða. Mesta flóðahætta á þessari öld yfirvofandi. Mesta flóðahætta á heilli öld vofir yfir í Kína og stórborgir eins og Canton í hættu og víð- áttumikil slétt landsvæði munu fara í kaf, ef ekki tekst að; treysta flóðgarða svo að þeir haldi fljótunum í viðjum. Einna mest hætta vofir yfir í suðurhluta Kwantungfylkis, en raunar hafa geipilegar úr- komur þegar valdið flóðum, mann- og eignatjóni víða í landinu. I fregnum frá Peking seg- ir, að milljónir manna vinni dag og nótt að því að treysta flóðgarða. Fólk í hundrað- þúsunda tali kann að eiga líf sitt undir því, að það takist. Tvær „brauð“- sneiðar. Hermann við valdatöku. Takið þið nú mark á mér, manninum sem hatar auð. Ég vil engan hafa her heldur skal oss vanta brauð. Og svo nokkru seinna: Tómur kassinn Eysteins er, ekki gott að líða nauð. Því er betra að hafa her heldur en að vanta brauð. P. Humarveiðarnar ganga erfið- lega og kenna menn aðallega um slæmu veðri. Afli rekneta- bátanna er líka minni en var um daginn. Fimdur Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í kvöld. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag- anna í Hafnarfirði efnir til al- menns kjósendafundar í Hafn- arfjarðarbíói í kvöld kl. 8.30. Ræður flytja formaður Sjálf- stæðisflokksins Ólafur Thors og frambjóðandi Sjálfstæðisflokks- ins í Hafnarfirði, Matthías Á. Mathiesen. Auk þess verða flutt nokkur stutt ávörp. Áður en fundurinn hefst leik- ur hljómsveit Karls Billich létt lög, en að fundinum loknum syngja þau Þuríður Pálsdóttir og Guðmundur Jónsson. Talið er, að flóðahættan muni ná hámarki á morgun eða í seinasta lagi um miðbik vik- unnar. Yfir 400 ferhyrningsmílur lands í Kína eru undir vatni og hætt við, að hrísgrjónauppsker- an á þessu mikla landflæmi sé eyðilögð. Sækist jafnt og þétt með stíflugerðina. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk árdegis í dag hefur verið unnið dag og nótt að stíflugerðinn við Efrafall og sækist jafnt og þétt við það starf, en- ekki verður sagt fyrir á þessu stigi hve- nær verkinu verður lokið. Vatnsyfirborðið á Þing- vallavatni hefur verið að lækka jafnt og þétt og nálg- ast það nú, að það lækki ekki meira. Stjcrnmálaiim- ræðum útvarpað. ■ Utvarpáð verður stjórnmála- umræðum annað kvöld og mið- vikudagskvöld af tilefni AI- þingiskosninganna sem í hönd fara. Umræðurnar hefjast að loknum fréttalestri kl. tíu mín- útur 5Tfir 8 bæði kvöldin. Ein umferð, 45 mínútur er til handa hver’jum framboðsflokki og röð flokkanna annað kvöld verður þessi: Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Framsókn- arflokkur, Alþýðubandalag og Þjóðvarnarflokkur. Dagskrár- lok eru um miðnætti. Á miðvikudag er röð flokk- anna þessi: Alþýðubandalag, Sjálfstæðisflokkur, Þjóðvarn- arflokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur. IViissti nóft og bát. í gær vildi það óhapp til, að mb. Aðalbjörg frá Höfða- kaupstað missti nót og bát á leið á miðin frá heimahöfn. Hin töpuðu veiðarfæri og bátur munu hafa verið tryggð hjá Tryggingamið- stöðinni h.f. ÓSum styttist tíminn til kosninga. Eru því að verða siðustu forvöð að senda áskorunarseðlana. Fjáröflimarnefnd Sjálfstæðisflokksins Morgunblaðshúsinu. Þessi mynd var tekin í gær af Herra Sigurbjörn Einarsson er Ásmundur Guðmundsson. biskupunum og konum þeirra. til vinstri, en til hægri herra (Ljósm. Vigf. Sigurgeirsson).

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.