Vísir - 13.08.1966, Side 5
VÍSIR . Laugardagur 13. ágúst 1966.
morgun útlönd í morgun útlönd. í morgun útlör id í moi •gun útlönd : C morgun útlöíic
‘M; • ■•' ' ’ .
Fréttaritari New York Times
símar frá Bulawayo í Rhodesiu,
eftir að hafa kynnt sér áhrif við-
skiptalegu refsiaðgerðanna með-
al landsmanna, að þær hafi al-
gerlega misheppnazt, og með
þeim hafi ekki náðst sá tilgang-
u: að stofna til svo stcrkrar and-
s rnu í Rhodcsiu, að stjóm
I- -na hvítu manna væri tilneydd
ai. hverfa frá sjálfstæðisyfirlýs-
ingunni. Þetta sé £ stuttu máli
sannleikurinn í málinu níu mán-
uðum eftrr að lýst var yfir sjálf-
stæði landsins.
Fréttaritarinn byggir þetta
ekki á upplýsingum frá stjórninni
heldur á umsögnum jafnt stjórn-
arsinna sem andstæðinga stjórn-
. arinnar, umsögnum kaupsýslu-
manna og bænda, blakkra sem
hvítra.
AÚt bendir til, að meirihluti
Verkamannaflokksins brezka hafi
blindazt af stórkostlegri blekk-
ingu, því að það hafi reynzt kór-
villa að álykta, að efnahagsað-
gerðirnar myndu hafa þau áhrif
smám saman, að hvítir Rhodesiu-
menn yrðu tilleiðanlegri til þess
að falla frá sjálfstæðisyfirlýsing-
unni. Hann segir: Það er ekki
hægt að finna einn einasta
Rhodesiumann, sem heldur að
Ian Smith vilji eöa geti afturkall-
að sjálfstæðisyfirlýsinguna til
þess að ná samkomulagi við Bret
land. Viðhorfið gæti þó breytzt
bætir hann við eftir 2-3 ára réfsi
aðgerðir.
Hann segir það einnig trúlegt
að af innan- og utanríkisstjóm-
málaástæðum ásamt tilliti til
„réttar og réttlætis" verði Wilson
tilneyddur að fylgja óbreyttri
stefnu, en ekki megi gera of lít-
ið úr erfiðleikunum á að fá efna
hagsaðgerðirnar til þess að hafa
stjórnmálaleg áhrif í Rhodesiu.
ÞAR ER UNNIÐ ALLAN
SÓLARHRINGINN.
1 asbestnámu um 80 km vega-
lengd frá Bulawayo söfnuðust
saman miklar birgðir af asbest-
blokkum sl. vetur, þar sem óger-
legt var að selja þær. Nú eru all-
ar birgðir seldar og unnið í nám-
unni og verksmiðjunum allan
sólarhringinn. Rhodesiska járn-
og stálfélagið í Que que, sem er
170 km frá Bulawayo, varð að
loka tveimur eða þremur bræðslu
ofnum í janúar. Þeir vom teknir
aftur í notkun í júlí og er fram-
leiðslan nú orðið svipuö og hún
var fyrir sjálfstæðisyfirlýsinguna
og refsiaögerðirnar. Eigandi stórr
ar sementsverksmiðju í Bula-
wayo segir, að hann geti ekki
aðeins haldið áfram framleiðs-
unni — hann geti líka rekið hana
með gróða og geri og kvaðst vera
óhræddur um horfurnar, að
minnsta kosti í heilt ár til. Iðn-
aðarmenn og kaupsýslumenn eru
yfirleitt á móti sjálfstæðisyfirlýs-
ingunni, en þessi verksmiðjueig-
andi sagði:
— Það er engin neyð og við
myndum þola að þrengja á mitt-
isólinni um nokkur göt.
Þegar hann sagði „við“, átti
hann að sjálfsögðu við 250.000
hvíta menn í Rhodesiu, en mest-
ur hluti 4 milljóna blökku-
mánna í landinu býr utan stóru
bæjanna og þurrkarnir fara
verr með þá en refsiaðgerðirnar.
1 bæjunum hefur eitthvað af
blökkufólki misst atvinnuna í
hendur hvítra, en hvltir verka-
menn í Rhodesiu þurfa ekki frek
ar nú en fyrr að leggja eins
hart að sér og verkamenn á Bret-
landi. Tekjurnar eru góðar og
skattar lágir og enginn hörgull á
innfluttum neyzluvörum. Menn
f
geta fengið keypt allt sem nöfn-
um tjáir að nefna. Þessar inn-
flutningsvörur koma frá Suður-
Afríku og fara um hendur „miðl-
ara“ og þar er það gat, sem
Bretland getur ekki fyllt upp í
án þess að lenda í deilu við Suð-
ur-Afríku.
NÓG BENZÍN
Hér tilheyrir, bætir fréttarit-
arinn við að geta þess til þess
að „Ijúka við myndina" að olíu-
félagið BP (brezka stjórnin á
meirihluta hlutabréfa í félaginu)
gegndi forystuhlutverki til þess
að koma af stað benzínstraumn-
um frá Suður-Afríku og Mosambi-
que. í dag geta Rhodesiumenn
fengið keypt allt það benzín, sem
þeir vilja séu þeir fúsir til að
greiða fyrir það hærra verð en
skömmtunarverð.
Refsiaðgerðirnar bitna að sjálf
sögðu með nokkrum þunga á efna
hag Rhodesiu, en aöallega er frá
líður, en það er alveg þveröfugt
við tilgang Wilsons með þeim. .
heims'
horna
milli
^ Vöruflutningalest hljóp af spor
inu 12.8 nálægt landamærum Aust
urríkis. í NTB-frétt um þetta frá
Bolzano segir að orsökin hafi verið
aö sprengju hefði verið komið fyrir
á brautinni. Þetta er aðeins eitt
hermdarverk af mörgum í séinni
tíð tengt deilunni um Suður-Tyrol.
Þess er getið, að farið sé um braut
ina til eftirlits þama á land amær-
unum á hverjum stundarfjórðungi.
Þýzkumælandi fólk í Suður-Tyrol
er I meiri hættu og krefst þess,
að héraðið verði sameinað Austur-
ríki.
##
Þeir eru litlir hermennnimir *
r
Eg er
hræddur
við allt
og olla
J un
, í loft
* þessa til dæmis, finnst okkur t
t þetta vera drengir á ferming- *
* araldri. Þessir eru frá Norður-1
t Vietnam, stríðsfangar Banda- [
J rikjanna, og er myndin tekin t
t rétt áður en fréttamenn ræddu J
* við þá. Einn þeirra sagði, að t
t þeir heföu allir fengið fyrirskip- J
um að sprengja sjálfa ság J
upp heldur en að láta t
J taka sig til fanga. Hann sagðist J
t vera „hræddur við allt og al!a“ t
J og vildi ekki berjast vegna þess J
t að hann væri veikur og sér J
J stæði á sama hvort hann væri J
t sendur heim eða haidið eftir. ,
J Fangamir eni allir úr sama her J
t fylki. Þeir sögðust hafa farið \
J yfir landamærin hjá N.V. inn í *
t S.V. og fann bandarískur her- ,
J flokkur þá sunnan 17. breiddar- *
t gráðn. t
<&* *
Opið
4 í dag
DILKAKJÖT í HEILUM SKROKKUM, (NIÐURSAGAÐ). —
Nýr hamflettur lundi og svartfugl, og ennfremur salíaður lundi og svartfugl.
Léttsaltaö folaldakjöt. Folaldabuff og gúllas.
KRÓNAN
Léttsaltað dilkakjöt. — Svið.
Mávahlíð 25. Sími 10733.