Vísir - 19.07.1967, Blaðsíða 2
V í SIR . Miðvikudagur 19. júlí 1967.
.v.v.v.v.v.v.v.v.%v.v-v.v.v-%v.v.v.v-v.v.v.vBv.v.v.v.v.,.,.%v.,.,.,.,.v.,.v.v.,.v.B.,.B.v,.v.,.,.,.vi,ivv
Tveir yfir 7 metra í langstökki í gær
Jón Þ. kom á óvart og vann Valbjörn með
7.02 — Guðmundur Hermannsson 17,62
— Þorsteinn L55.1
J6n Þ. Ólafsson viröist sífellt
vera að mlða að tugþrautar-
þátttöku með góöum árangri.
1 gær bætti hann sig stórlega
í langstökki, — stökk 7.02 metra
en Valbjöm Þorláksson bætti
sig einnig, stökk 7.00 metra, en
nokkur meðvindur var aö visu í
þessari grein, þó ekki mikill.
Þetta gerðist í Bikarkeppni FRÍ,
Reykjavíkurriðlinum, en tvö fé-
lög, sem flest stig hljóta fara
í úrslitin 19. og 20. ágúst n. k.
Eins og staðan er eftir fyrri
dag er greinilegt aö KR og ÍR
munu fara í úrslitin úr þessum
riðli, en ÍR leiðir keppnina eft-
ir fyrri dag meö 70 stig, KR
er með 65 stig og Ármann með
44 stig.
Af ýmsum afrekum mótsins í
gær má nefna kúluvarp Guð-
mundar Hermannssonar, sem
varpaði þrisvar yfir 17 metrana,
lengst 17.62 metra og var þó
aldrei fyllilega ánægður. náði,»
kúlunni ekki nægilega vel fram »■
á fingurna. Erlendur Valdimars||.
son varpaði 14.89 metra og .J
Amar Guðmundsson 14.77. I>
í 200 metra hlaupinu vakti V
Jón Þ. Ólafsson einnig athygli, .J
varð annar á 23.9 sek. á eftirj.
Ólafi Guðmundssyni, sem fékk «J
23.0 sek. meðan Erlendur Valdi
marsson sigraði í hástökki í
fjarveru Jóns og færði iR stig-
in. Erlendur stökk 1.80, Val-
björn og Sigurður Lárusson
1.75 metra.
Þorsteinn Þorsteinsson vann
800 metra hlaupiö á 1.55.1, en
Halldór Guðbjörnsson, sem
keppti sem gestur (aðeins einn
þátttakandi frá hverju félagi),
fékk 1.56.2 og Þórarinn Amórs-
son 1.59.9. Sveit KR vann örugg
an sigur í 4x100 metra hlaupi
3. deildar keppnin:
á 45.8 sek. en enginn þátttak-
andi var í 3000 metra hlaupinu.
Spjótkastið vann Valbjöm Þor-
láksson á 55.06 metrum, Sig-
mundur Hermundsson kastaði
52.58 en Skúli Ámason, sem var
gestur, kastaöi 49.11 metra, sem
mun vera sveinamet með karla-
spjóti og mjög góöur árangur
hjá svo ungum manni.
í kvennagreinunum náði Krist
in Jónsdóttir úr Kópavogi at-
hyglisverðum tíma í 100 metra
Framh á bls. 13
Tekst FH að sigra
Dómarinn fœrði
punktinn fram á
— og sýndi svo ekki varb um villzt oð
enn einu sinni í
útihandholta ?
íslandsmótið í handknattleik
kvenna og karla hefst í Hafnar-
firði n. k. föstudagskvöld og verð-
ur nú í fyrsta sinn leiklð hér á
landi á asfaltvelli, en þaö er mjög
algengt erlendis. Mótið mun fara
fram fyrir framan Lækjarskólann
í Hafnarfirði, en þar hefur völlur
verið settur upp á hinni svokölluðu
skólamöl.
Þátttaka er með mesta móti aö
þessu sinni bæöi i karla og kvenna-
flokki. Öll 1. deildarliöin í karla-
flokki hafa tilkynnt þátttöku í mót-
inu og auk þess ÍR, sem leikur í 2.
deild.
í kvennaflokki keppa Ármann,
Breiðablik, iBK, Valur, Fram, ÍBV
og KR. Eru því sjö lið í kvenna-
flokki og jafnmörg í karlaflokki.
Vegna hinnar miklu þátttöku hefur
veriö ákveöið að keppt verði í
tveim riðlum I hvorum flokki og
hefur verið dregið í riðla.
I karlaflokki leika saman í A-
j riðli: FH, ÍR, KR og Víkingur. —
í I B-riðli: Valur, Haukar og Fram.
; I kvennaflokki í A-riðli: Ármann,
Breiðablik, ÍBK og Valur. — I
B-riöli: Fram, ÍBV og KR.
Fyrstu leikirnir verða n.k. föstu-
; dag, sem fyrr segir og hefst keppn-
I in kl. 20. Þá fara fram þrír leikir
í karlaflokki og keppa fyrst FH og
ÍR og síðan Valur og Haukar, en
j dómári leikjanna verður Karl
Jóhannsson.
Kvenfólkiö byrjar svo að keppa
föstudaginn 28. júli en þá fara
fram þrír leikir í þeim flokki óg
einn i karlaflokki. Mótið stendur
til 17. ágúst en þá verða leiknir
úrslitaleikir í kvenna og karla-
flokki.
dómarar eru ekki óskeikulir
S.l. sunnudag fór fram í Sand-
gerði leikur i IH-deiId. Leiddu þar
saman hesta sína Reynir frá Sand
gerði og HSH (Snæfelllngar), og
sigruðu hinir fyrmefndu með 2:0,
sem gefur þó ekki fyllilega rétta
j mynd af gangi leiksins. 4:0 væri
nær sannl, en Reynismenn mis-
notuðu mjög illa marktækifærin.
HSH-ingar byrjuðu leikinn að vísu
vel og þiörmuðu nokkuð að Reynis
vörninni fyrstu fimm mínúturnar,
en þar með var líka draumurinn
búinn. Eftir bað réðu Reynismenn
lögum og lofum á vellinum, allt
þar til að vinstri bakvörður varð
að yfirgefa völlinn vegna meiösla,
í seinni hálfleik. Gegn tíu Reynis-
mönnum tóku HSH-ingar svolítinn
fjörkipp, en tókst ekki að rétta
hlut sínn, en þá var staðan orðin
2:0. Reyni í vil. Fyrra markið skor
aði Jonnart Vest um miðjan fyrri
hálfleik, á snotran hátt. Hann vipp
aði kncttinum laglega vfir varnar-
ieikmann og skoraði með óverjandi
skoti. Annað mark Reynis kom Iitlu
síðar. I-Iöröur Jóhannsson útherji,
gaf góða sendingu fyrtr markið,
sem Halldór Aspar afgreiddi við-
stöðulaust í netið.
Reynismönnum tókst nú að hefna
harma sinna frá fyrri viðureign
þessara aðila, enda var allt annar
og betri svipur yfir liðinu en ver-
ið hefur í sumar. Vörnin var mjög
traust og lokaði hverri smugu það
vel að HSH-ingar fengu ekki eitt
einasta gott marktækifæri allan
leikinn. Sérstaka athygli vakti þar
leikur Óskars Gunnarssonar, mið-
varðar. Á honum brotnuðu öll upp-
hlaup sem komu fram miðiuna og
skallaöryggi hans er mikið.
Framlínan var óheppin með skot-
in og tvívegis mátti hinn efnilegi
leikmaður, Róbert Magnússon, bíta
1 þaö súra epli, að brenna af á
markteig. Jonnart Vest barðist eins
og ljón allan leikinn og var óefað
dugmesti 'maður liðsins. Halldór
Aspar, nýgræðingurinn í framlínu
Reynis, virðist betur eiga þar
heima heldur en í vörninni.
Með HSH-liðinu ieika þeir Hörð-
ur Felixson, sem áður lék meö
Tveir danskir
fimleikaflokknr
Tveir danskir fimleikaflokkar,
kvennaflokkur og karlaflokkur,
sýna listir sínar í Háskólabíói
næstkomandi fimmtudag og
föstudag. Hér er um að ræða
tvo af beztu sýningarflokkum
Dana í fimleikum, kvennafl. frá
Frederiksborg, karlaflokk frá
Præsto. I kvennaflokknum eru
16 stúlkur og í karlaflokknum
14 piltar. Stúlkurnar sýna jazz-
ballett og rythmiska leikfimi
og staðæfingar með boltum og
stöfum.
Piltarnir sýna bæði dýnu-
stökk og áhaldaleikfimi, og er
talið að þetta sé einn allra bezti
sýningarflokkur, sem sézt hefur
hérlendis. Sýningaratriði eru 6,
og koma flokkarnir inn til skipt-
is. Öll sýningaratriði fara fram
við píanóundirleik, og eru tvelr
píanóleikarar meö flokkunum.
Þessir sýningarflokkar komu
hingað til lands á vegum Ung-
mennasambands Eyjafjaröar og
hafa sýnt á Norðurlandi undan-
farið viö geysilega hrifningu.
Forystumenn í íþróttamálum
nyrðra telja þetta einhverjar
fjölbreyttustu og glæsilegustu
fimleikasýningar, sem sézt hafa
hér á landi.
Hér gefst sem sagt kostur á
að sjá úrvals fimleika, og er
þess að vænta, að borgarbúar
látl þetta tækifærl ekkl ónotaö
tll að sjá það bezta af þessari
fögru og skemmtilegu íþrótt.
Hér í Reykjavík sýna flokk-
arnir á vegum Glímufélagsins
Ármanns, og lýkur heimsókn
þeirra hér á Iandi með þessum
sýningum.
Sýningin á fimmtudag hefst
kl. 9 síðdegis, en á föstudag kl.
23.15. Aðgöngumiðar eru seldir
í bókaverzlunum Lárusar Blönd-
dal og í Háskólabíói.
víta-
völlinn
Val og nafni hans Guðmundsson,
sem var í eina tíð miðvörður Þrótt-
ar. Þótt mesti Ijóminn sé nú farinn
af þessum leikmönnum, þá sýndu
þeir að lengi getur lifað í gömlum
glæðum og eru þeir liðinu mikill
styrkur. Traustasti leikmaður liðs-
ins er hins vegar miðvörðurinn
Guömundur Bjarnason.
Dómari var Ragnar Magnússon
og slapp hann sæmilega frá leikn-
um, en framkoma hans fyrir leik
vakti mikla fúrðu. Ekki er nema
góðra gjalda vert og skylda
hvers dómara að athuga knött,
mörk og markalínur Ieikvallar, en
krefjist hann einhverra brevtinga,
verður dómari að vera viss um
réttmæti þeirra. Ekki er nóg að
,,klofa“ um völlinn og segja aö eitt
og annað sé ranglega mælt og
rjúka til og færa vítapunkt fram á
völlinn, eins og Ragnar gerði. Ef
hann er svo tortrygginn á mæl-
ingakunnáttu þeirra Sandgerðinga
ætti hann að hafa með sér mæl-
ingamann næst, því að í ljós kom,
viö nánari mælingu eftir leikinn að
„klofi“ Ragnars er ekki áð treysta.
Vítapunkturinn var upphaflega á
réttum stað eða 11 metra frá marki,
en 12 þegar Ragnar var búinn að
færa hann. — emm.