Vísir - 25.09.1967, Page 2
VISIR . Mánudagur 25. september nm..
VALUR VÁRDIISLANDSJITILINN
ÚR VÍTASPYRNU á.31. mínútu. Hallkell misreiknar skot Reynis, sem lendir uppi viö þverslá.
— og sigurinn yfir Frum 2:0 í gærdug var fyllilega
verðskuldaður — Hermann innsiglaði sigurinn með
marki 8 mín. fyrir leikslok
0 Sex þúsund áhorfendur mættu til aö sjá Austurbæjarliðin Fram og Val
Ieiða saman hesta sína í gær á Laugardalsvellinum. Sannarlega var veðrið
þó ekki þess eðlis, þegar leikúrinn hófst að það væri kræsilegt til útivistar,
en úr veðrinu rættist, þegar líða tók á fyrri hálfleik. — Og knattspyrnan?
Áreiðanlega það bezta, sem 1. deildin hefur sýnt okkur í sumar. Það var
ekki vafi á að hér voru toppliðin á ferð.
0 Valur fór með sigurinn, 2:0 sigur, sem var fyllilega sanngjam eftir tæki-
fæmm og leik liðanna. Valsmenn voru ákveðnari og þeir höfðu það sem dýr-
mætt er í úrslitaleik, leikreynsluna, sem Framarar, nýskriðnir upp úr 2. deild,
hafa ekki.
Þaö létti mörgum Valssinnuðum
á Laugardalsvelli i gær, þegar aö-
eins 2 mín. voru eftir af spennandi
leik Vals og Fram. Ekki aöeins að
Hermann innsiglaði sigur Vals, sem
hér varði íslandsmeistaratitilinn,
sem fclagiö vann í fyrra eftir að
hafa verið án íslandsbikars í 10 ár,
heldur og firrti þetta öllum leiðind-
um, sem kynnu að hafa skapazt
vegna vítaspyrnu, sem Valur skor-
aði Ur í fyrri hálfleik. Sú vítaspyrna
var af mörgum talin óréttlát, en
menn eru orönir því talsvert vanir
hér að dómarar leyfi sér að „færa
brot út fyrir teig“, sem er algjör-
lega óréttmætt, eins tala menn um
að einhver sé ekki I marktækifæri
og því beri ekki að dæma víta-
spyrnu. Hér er ruglað við hand-
knattleik, en fknattspyrnu er það
vítateigslínan ein sem ræður.
Mark Hermanns lauk raunar bar-
áttunni í ár. Hermann, markhæsti
leikmaður 1. deildar, hafði svo sann
arlega átt sinn stóra þátt i þetta
sinn. I fyrri hálfleik höfðu vamar-
menn Fram hvað eftir annað lent í
miklum vandræðum vegna Her-
manns, en boltinn var sem límdur
við fætur hans. 1 einni sókninni
lagði Baldur Scheving hendur á Her
mann að sögn Magnúsar Pétursson-
ar og hrinti honum illa, og voru
línuverðir sammála í þessu. Brotiö
var rétt innan við vítateigslínu úti
í hominu, og réttilega dæmt víti,
sem Reynir Jónsson skoraði örugg-
lega úr. Þetta gerðist á 31. mínútu.
Fyrir þetta og eftir höfðu mörg
tækifæri komið upp við bæði mörk-
in. Fyrst ógnaði Hermann tvívegis,
á sömu nn'nútu, en Grétar Sigurðs-
son er dæmdur rangstæður, þegar
hann fær boltann frá Ágústi, —
falleg sending. Á 34. mín. er Her-
mann í opnu tækifæri en Jóhannes
1 Atlason bjargar á furðulegan hátt,
: — þarna voru víst flestir búnir að
i bóka mark frá Val. Tveim mín. síð-
! ar bjargar Hallkell vel, þegar Ing-
Guðmundur Sveinbjömsson, varaformaður KSÍ, afhendir Valsmönnum
verðlaunapeninga.
fyrst á 10. min. en í bæði skiptin
skaut hann yfir markið. Á 15. mín.
átti Helgi Númason mjög gott skot
eftir að Ólafur Ólafson sótti fram
og gaf fyrir, en Sigurður Dagsson
bjargaði meistaralega í horn.
Fyrsta verulega hættan skapáðist
á 25. mín., þegar Hermann leikur á
Anton miðvörö Fram, en Hallkell
bjargar í hom mjög góðu skotu
Hermanns. Eftir markiö úr víta-
spyrnunni skorar Fram strax mark
Hermann (sést ekki á myndinni) skorar síðara markið, en Hailkell nær ekki til boltans þrátt fyrir tilraunina, Reynir fylgir aö markinu.
var sækir vel, en Hallkell varpaði
sér flötum fyrir. Á 37. mín. óö Helgi
Númason inn að marki og átti
þrumuskot á markið, en enn ver
Sigurður Dagsson stórvel. Hermann
ógnar á 39. mín., en Framarar eru
heppnir, þrátt fyrir lélegt úthlaup
Hallkc'Á 40. mfn. bjargar Sigurð-
ur Dagsson enn meistaralega. Grét-
ar Sigurösson rétt kemur tánni í
skot frá Helga Númasyni og boltinn
viröist greinilega breyta um stefnu
út í öfugt horn miðaö við það, sem
Sigurður gerði ráö fyrir. Það var
eins og Sigurður snérist viö f loft-
inu til aö koma fingrunum í bolt-
ann, sem hrckk upp í þverslá og út,
en þar bjargaöi Valsvörnin. Loks
á 43. mín. lenti markskot Hermanns
í stöng fjær. Boltinn skoppaði til
Ingvars, sem var aðeins 2 metra frá
markinu opnu, — en seinn var hann
aö koma boltanum fyrir sig. Hall-
kell var hins vegar fljótur að láta
sig falla yfir boltann og stóð upp
með hann í fanginu, en ef einhver
hefur einhvern tíma átt að skora
mark, þá var það Ingvar þarna.
í seinni hálfleik hélt sami darr-
aðardansinn áfram. Sigurður Dags-
son byrjaði strax að verja vel, þeg-
ar Helgi Númason komst einn inn
fyrir. Aðeins mínútu síðar ver Sig-
urður geysifallegt skot Helga,
hreinlega ótrúleg markvarzla, en á
8. mín. ógnar Grétar Sigurðsson
með einleik, en þá mistókst Ágústi
nýliða illa, hitti boltann ekki í góöu
færi. Á 12. mínútu á Ingvar gott
skot varið og á 15. mín. veður hann
upp og skýtur af miklu afli í stöng-