Dagur - 16.07.1998, Blaðsíða 10
■ 10 - )f IM ht T V DA g\j^R 16.JÚL' í" l's' 9 8
FRÉTTIR
Stefnt að sáttafimdi
Margrétar og Steingnms
Margir alþýðubanila
lagsmenu viima nú að
því að reyna að ná
sáttum í flokkmun.
Kjordæmisráð flokks-
ins á Norðurlandi
eystra stefnir á að ná
þeim Margréti Frí-
mannsdóttur og Stein-
grími J. Sigfússyni
saman á sáttafund í
næstu viku.
„Stjórn kjördæmisráðsins átti
langan og góðan fund með Stein-
grími J. Sigfússyni, þingmanni
okkar, þar sem farið var yfir mál-
in og hann gerði grein fyrir sinni
hlið málsins. I framhaldi af því
ætlum við að halda fund með
Margréti Frimannsdóttur, for-
manni flokksins, um helgina.
Síðan stefnum við að fundi með
þeim saman í næstu viku. Þau
hafa ekki hist síðan þessi ósköp
dundu á eftir Iandsfundinn. Við
teljum alveg nauðsynlegt að þau
hittist og ræði málin, það er alger
forsenda þess að hægt sé að ná
einhveijum sáttum," sagði Aðal-
steinn Baldursson, formaður
eystra, í samtali við Dag í gær.
Á fleiri vígstöövum
Dagur hefur upplýsingar um að
víðar í Alþýðubandalaginu er ver-
ið að vinna að sáttatilraunum.
Bæði þingmenn flokksins sem og
stjórnendur félaga og almennir
flokksmenn eru að vinna að því
að ná sáttum í flokknum.
Það er ekki síst ótti við að
framboð Sverris Hermannssonar
og hans manna muni ná til óá-
nægðra alþýðubandalagsmanna
vegna þess að málflutningur
Sverris í kvótamálinu á svo sterk-
kjördæmisráðs Alþýðubandalags- an hljómgrunn orðið meðal þjóð-
ins í Norðurlandskjördæmi arinnar og hann nær út yfir
Félagar Margrétar Frímannsdóttur
og Steingríms J. Sigfússonar í Al-
þýðubandalaginu vilja fá þau sam-
an á fund til að reyna að sætta
stríðandi fyikingar vinstri manna.
flokksbönd, sem rekur fólk í Al-
þýðubandalaginu til að ná sátt-
um innan flokksins.
Þá hefur það vakið mikla at-
hygli að Steingrímur J. Sigfússon
hefur engum dyrum lokað hvað
varðar hugsanlegar sættir. Aðal-
steinn Baldursson benti á að á
fundinum með Steingrími á
þriðjudaginn hafi hann engum
dyrum Iokað frekar en fyrr.
Þegar Aðalsteinn var beðinn
um að meta árangur fundarins
vildi hann ekki tjá sig um það
sem þar fór fram. Hann benti þó
á að fundurinn hafi staðið í tvo
og hálfan tíma og það segði
kannski sína sögu. -S.DÓR.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf.,
Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG
bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17.
Ertu sammála fagblöðunum?
Suzuki Crand Vitara hefur þá sjaldgœfu eiginleika, að geta raun-
verulega sameinað í einum bíl hinn hefðbundna lipra fjölskyldubíl
í bcejarumferðinni og jeppann án þess að sprengja kaupgetuna.
Ökuþór
... fcer„Óskarsverðlaun":
Fyrir þcegindi og ánœgjulegan akstur ásamt góðum utanvega-
eiginleikum og lágum rekstrarkostnaði fær Suzuki Crand Vitara
titilinn „Bestu 4X4 kaupin undir 200.000 SEK"
Motor (Svíþjóð)
Með Grand Vitara hefur Suzuki komiðfram með nýja kynslóð
jeppa sem er greinilega ,,fullorðnari" en sú á undan.
Auto Zeitung (Þýskaland)
2.5 V6 vélin... er áreynslulaus og öflug lágum snúning og hún
feykir Grand áfram á hraða sem kemur á óvart.
Car (Bretland)
Okkur finnst hann vera réttur kosturfyrir kaupendur sem hugsa
um verð, útlit, og vilja njóta lífsins.
Truckworld online (Bandaríkin)
frá 2.179.000 kr.