Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 8

Dagur - 21.11.1998, Blaðsíða 8
8- LAVGARDAGUR 21. OKTÓBER 1998 LAVGARDAGUR 21. OKTÓBER 1998 - 9 FRÉTTASKÝRING L Háspeima á flokksþiiigi SIGUKDÓR SIGURDÖRS- SON SKRIFAR Varaío rma ims slag ur inn á flokksþingi Fra ms ókiiaríl okksins, sem liófst í gær, er í al- gleymingi og loft lævi- blandið. Ofugt við aðra stjórnmálaflokka hér á landi hafa afar sjaldan verið hörð átök, hvað þá barátta eins og hún getur orðið grimmust í pólit- ík, um formennsku og varafor- mennsku í Framsóknarflokknum. Vanalega hefur verið búið að undirbúa allt þegar kemur að flokksþinginu. Þannig var það þegar Eysteinn Jónsson tók við formennskunni af Hermanni Jónassyni, þegar Olafur Jóhann- esson tók við af Eysteini, Stein- grímur Hermannsson af Ólafi og Halldór Asgrímsson af Stein- grími. Og varaformennskan varð aldrei að átakamáli. Það er kannski til marks um nýja og breytta tíma, að nú þegar Guðmundur Bjarnason lætur af varaformennsku í flokknum, takast tveir ungir stjórnmála- menn á um varaformennskuna í flokknum og af mikilli hörku. Þetta eru þau Finnur Ingólfsson 44 ára og Siv Friðleifsdóttir 36 ára. Undanfarnar vikur hafa stuðningsmenn þeirra beggja unnið grimmt að atkvæðasmölun meðal flokksþingsfulltrúa. Maður fann það þegar flokks- þing Framsóknarflokksins hófst í gærmorgun á Hótel Sögu að and- rúmsloftið var rafmagnað. Það var svo mikil spenna í Ioftinu vegna þessa, að segja má að stór hluti þingstarfa hafi farið inn um annað eyrað og út um hitt hjá flestum þingfulltrúum. I öllum hornum og hliðarsölum voru tveir eða fleiri þingfulltrúar að stinga saman neljum, „að plotta," eins og það er kallað á máli stjórn- málamanna. Og þetta „plott“ á eftir að aukast í dag og fyrrihluta dags á morgun en þá fer kosning- in fram. Hægt er að kjósa „utan- kjörstaða'1 í dag fyrir þá þingfull- trúa sem snúa heim í kvöld eða snemma á morgun. ímynd eða innihald Eg hef enn engan hitt sem spáir Siv Friðleifsdóttur sigri. Fyrir svo sem viku síðan töldu flestir sem rætt var við um varaformanns- kjörið að Finnur myndi sigra, hljóta 60% atkvæða en Siv 40%. Þeir voru Iíka til sem töldu að Finnur myndi sigra með meiri mun. Eftir að hafa rætt við tugi þingfulltrúa á flokksþinginu í gær Kópavogsbær fe I. ? Í?: ' X- I I' f' 'A:Ƨ Þessi tvö bítast um varaformannsstól Framsóknarflokksins, Siv Friðleifsdóttir og Finnur Ingólfsson. Kosið verður á morgun og er loft lævi blandið. Stuðningsmenn beggja hafa undanfarnar vikur unnið ötullega að atkvæðasmölun meðal þingfuiitrúa Framsóknarflokksins. Lausar stöður við leikskóla Arnarsmári v/Arnarsmára, sími: 564 5380 Staða matráðs. Arnarsmári er nýr leikskóli í Smárahverfi. f starfinu er lögð áhersla á frumkvæði, vináttu og gleði. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Brynja Björk Kristjánsdóttir. Marbakki v/Marbakkabraut, sími 564 1112 Staða leikskólakennara með deildarstjórn. Á Marbakka er unnið eftir hugmyndafræði sem kennd er við Reggio Emilía, þar sem áhersla er lögð á skapandi starf og skap- andi hugsun. Upplýsingar gefa leikskólastjórar, Svana Kristinsdóttir og Þórdís G. Magnúsdóttir. Dalur v/Funalind, sími: 554 5740. 100% staða leikskólakennara Dalur er nýr leikskóli í Lindahverfi. ( starfinu er lögð sérstök áher- sla á samskipti og unnið með hugtökin virðingu, ábyrgð og sjálf- stæði. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Sóley Gyða Jörundsdóttir. Fagrabrekka v/Fögrubrekku, sími 554 2560. 100% staða leikskólakennara og afleysingastaða í Fögrubrekku er m.a. unnið eftir valkerfi sem myndar ramma um frjálsa leikinn. Ennfremur veitir leikskólafulltrúi, Sesselja Hauksdóttir, upplýsingar í síma 554 1988. Vakin er athygli á því að fáist ekki leikskólakennarar í stöðurnar verðar ráðnir aðrir með uppeldismenntun eða leiðbeinendur, ófag- lærðir starfsmenn í stöðurnar. Starfsmannastjóri. er Ijóst að þetta hefur breyst. Að vísu spá enn allir Finni sigri en flestir telja nú að munurinn verði lítill. Sumir sögðu að örfá prósent myndu skilja þau að, aðrir sögðu að Finnur myndi sigra 55:45. Mér var bent á af mönnum sem þekkja vel til innan Framsóknar- flokksins að Finnur hafi unnið mun skipulegar að atkvæðasmöl- un en Siv að undanförnu. Hann hafi virkjað her manns til að vinna fyrir sig á meðan Siv hafi að mestu unnið ein að sínu máli. Þingfulltrúar bentu margir á að þegar valið stæði á milli Sivjar og Finns stæði valið í raun á milli ímyndar og innihalds. Þeir bentu á að Siv væri ung og hefði aðeins setið rúm þrjú á á Alþingi. Hún væri glæsileg kona og efnilegur pólitíkus en hún væri sem vara- formannskandidat fyrst og fremst ímynd og í raun góð ímynd. Hún þyrfti ekki að standa ábyrg frammi fyrir flokksþinginu eða kjósendum og leggja verk sín í dóm þeirra eins og Finnur Ing- ólfsson verður að gera sem ráð- herra. Finnur hefur mun meiri póli- tíska reynslu en Siv. Hann hefur verið ráðherra í tveimur mjög erf- iðum ráðuneytum þetta kjörtíma- bil. Verk hans eru vissulega um- deild hjá þjóðinni en eigi að síður hefur hann ekki verið að fram- kvæma neitt annað en þá stefnu sem Framsóknarflokkurinn hefur mótað á þeim sviðum sem ráð- herradómur hans nær yfir. Menn segja að hann sé því ekki ímynd heldur innihald. Ef flokksþingið hafnar honum sem varafor- manni, þá sé það í raun að hafna mótaðri stefnu Framsóknar- flokksins í, virkjunarmálum, stór- iðjumálum og viðskiptamálum, málaflokkunum sem Finnur hef- ur stýrt. Það væri því að vissu marki höfnun á æðstu stjórn flokksins, þar á meðal sjálfum formanninum sem hefur mest allra manna mótað stefnu flokks- ins. Og það gæti gerst hjá sumum þingfulltrúum. Steingrímur Her- mannsson, fyrrverandi formaður flokksins, gagnrýndi núverandi forystu á dögunum. Hann sagði flokkinn hafa færst til hægri og væri hann orðinn hallur undir frjálshyggjuna en félagshyggjan á undanhaldi. Steingrimur er alls ekki einn um þessa skoðun í Framsóknarflokknum. Þeir eru margir sem telja sig til Hnstri við núverandi forystu og þeir geta hugsanlega gefið forystunni gula spjaldið með því að kjósa Finn ekki. Þetta viðurkenndu margir stuðningsmanna Finns í samtali við Dag og höfðu af þessu nokkurn beyg. Fiiinur leggur allt imdir Það er almenn skoðun meðal flokksþingsfulltrúa að ef Siv nær ekki kjöri en fær meira en 20% atkvæða geti hún vel við unað. Hún hafi í raun engu tapað, standi upprétt eftir og geti reynt aftur seinna. Hennar tími til að krefjast eins af æðstu embættum flokksins sé tæpast kominn. Hins vegar eru allir sammála um að það hafi verið snjallt hjá henni, upp á framtíðina að gera, að gefa kost á sér. Með því minni hún á sig og framkvæmi liðskönnun. Ef hún sigri sé það einstakt afrek vegna ungs aldurs hennar og að hún er að glíma við ráðherra. Sif Friðleifsdóttir og hennar stuðningsfólk bendir á að það sé betri ímynd á forystu flokksins að Halldór Asgrímsson væri með unga konu sem varaformann sér við hlið, heldur en að tveir „kall- ar“ eins og þeir segja, leiði flokk- inn. Stuðningsfólk hennar bendir líka á að þar sem hún sé ung en þó með all mikla reynslu í pólitík muni hún koma með ferskan blæ inn í forystu flokksins. Fyrir Finn Ingólfsson, og raun- ar forystu flokksins líka, skiptir þetta allt miklu meira máli. Nokkrir þingfulltrúar fullyrtu að ef Finnur nær ekki kjöri sem varaformaður muni hann „geng- isfalla" eins og þeir komust að orði. Þeir fullyrtu að ef Finnur næði ekki kjöri væri annar þing- manna flokksins í Reykjavík þar með fallinn. Hann leggi í raun pólitíska framtíð sína undir. Margir sögðust ætla að kjósa Finn vegna þess að hann hafi ver- ið að framkvæma atvinnustefnu, viðskiptastefnu og virkjanastefnu Framsóknarflokksins. Það sé ver- ið að dæma hana með því að kjósa hann ekki varaformann. Þeir hinir sömu sögðu undir öðrum kringumstæðum hefðu getað hugsað sér að kjósa Siv. Menn benda líka á að í æðstu stjórn flokksins séu nú 4 konur og 2 karlar. Ef Siv verði kjörin sé Halldór Asgrímsson eini karlmað- urinn í æðstu stjórn flokksins. Það sé varla jafnvægi í því. Loks benda stuðningsmenn Finns á að hann hafi staðið sig vel, bæði sem þing- maður og ráðherra. Hinar hatrömu árásir stjórnarandstæð- inga á hann sýni það hvað best. Hann sé einfaldlega hæfasti mað- urinn sem flokkurinn á í varafor- mannsembættið og að hann sé hæfasti arftaki Halldórs í for- mennskuna. Svona tala stuðning- menn Finns. Stenunnmgsalda Enda þótt menn spái almennt Finni sigri, þótt hann verði ef til vill naumur, Hðurkenndu allir að ákveðin stemmning gæti myndast á flokksþinginu sem enginn sæi nú fyrir og engin gæti sagt til um hvert myndi stefna. Konur sem rætt var við vildu ekki kannast við að í gangi væri neitt sem héti „kvennabandalag“ til stuðnings Siv. Þær sögðu að vísu að yngri konur myndu eflaust flestar styðja hana. Það er í raun þekkt fyrirbæri þegar stemmningsöldur rísa á flokksþingum stjórnmálaflokka eða líkum samkomum. Þegar slíkt gerist slitna öll flokksbönd eða ákvarðanir sem áður hafi verið samið um. Ef þetta gerist á flokks- þingi Framsóknarflokksins getur allt gerst. Þora ekki að spá En hvað segja frambjóðendurnir sjálfir um stöðuna? „Eg tel afar erfitt að meta stöð- una í varaformannskjörinu. Það er stór hópur fólks sem hefur ekkert gefið upp hvort okkar það ætlar að kjósa og því þori ég engu að spá. Það eru tveir góðir einstaklingar að bjóða sig fram og það verður án vafa erfitt fyrir marga að velja," sagði Siv Friðleifsdóttir í samtali við Dag á flokksþinginu í gær. Hún var spurð hvort hún liti á það sem höfnun á henni til for- ystustarfa ef hún næði ekki kjöri? „Við viljum bæði ná þessu emb- ætti og teljum okkur bæði vera mjög hæfa fulltrúa flokksins sem varaformenn. En þegar tveir góðir einstaklingar bjóða sig fram þá verður annar hvor undir, hjá því verður ekki komist en það er í sjál- fu sér ekki höfnun," sagði Siv Friðleifsdóttir. „Eg met stöðuna þannig að hún sé mjög tvísýn og að um hörku keppni verði að ræða. Þess vegna þori ég engu að spá, við verðum bara að bíða og sjá hvað setur,“ sagði Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra í gær. Réttmdaskrá þegnaima Framsóknarflokkur- iim vill veita næstu ríkisstjóm forystu og stefnir að því að fá til þess styrk í kosning- imuin í vor. „Markmið allra stjórnmálaflokka er að ná sterkri stöðu, hafa áhrif og veita ríkisstjórn forystu. Það verður markmið okkar framsókn- armanna héðan í frá sem hingað til. I samræmi við þetta stefnir Framsóknarflokkurinn að því að fá styrk til að veita nýrri ríkis- stjórn forystu," sagði Halldór As- grímsson, formaður Framsóknar- flokksins, í ræðu sinni á flokks- þinginu sem sett var í gær. YÍirskrift flokksþingsins er „Vertu með á miðjunni" og með því er verið að vísa til þeirra breytinga sem orðið hafi á pólit- ísku landslagi á undanförnum árum. „Flokkar sem starfað hafa til hægri og vinstri leita nú inn á miðju stjórnmálanna. I því felst að sjálfsögðu mikilvæg viður- kenning á grundvallarsjónarmið- um framsóknarmanna. En í þessu felst einnig töluverð áhæt- ta því ekki er hægt að treysta fyr- irheitum stjórnmálamanna og flokka þegar verkin tala öðru máli,“ sagði Halldór ræðu sinni í gær. Arðiirn í framtíðiimi Fyrir flokksþinginu liggja drög að ályktun um sjávarútvegsmál þar sem lagt er til að hluta af kvóta- aukningu næstu ára verði haldið eftir og ríkisvaldið leigi hann á kvótaþingi. Einnig er talað um að skattleggja hagnað af sölu veiði- heimilda þegar útgerðarmenn hætta í greininni. Búist er \dð að tekist verði á um þessa ályktun á þinginu og margir biðu spenntir eftir að heyra hver væri afstaða formannsins. Það kom hins veg- ar ekki skýrt fram í ræðu hans. Halldór sagði m.a.: „Að mínu mati þurfum við fyrst og fremst að beina athyglinni að þeim arði sem við njótum síðar þegar við höfum byggt fiskistofnana enn betur upp. Eg sagði í ræðu á flokksþingi fyrir 2 árum að það kæmi til álita að taka hluta af auknum veiðiheimildum og selja þær á þeim sama markaði og úvegsmenn versla á. Auðvitað kemur líka til greina að úthluta einhverjum hluta af auknum aflaheimildum í framtíðinni með öðrum hætti en nú er en við megum aldrei fórna þeim árangri sem við höfum náð og rústa grundvöll byggðanna úti um allt land.“ Græn framsóknarviðhorf Það eru einnig skiptar skoðanir meðal framsóknarmanna um hve langt eigi að ganga í virkjanamál- um. Halldór lagði áherslu á að atvinnuppbygging og umhverfis- vernd væru ekki andstæður. „Framsóknarmenn hafa ævinlega haldið því fram að samhengi sé milli æskilegrar nýtingar auð- linda og skynsamlegrar náttúru- verndar. Græn viðhorf eru Fram- sóknarviðhorf. Þennan arf viljum \ið vernda og virða. En búseta í landinu og batnandi hagur al- þýðunnar byggist á skynsamlegri nýtingu auðlindanna. Þessi sam- eiginlegu sjónarmið, þessi heild- arsýn, eiga að ráða ferðinni í orkumálum og iðnþróun." Næsta flokksþing Framsóknar- manna verður árið 2000 og Hall- dóri varð tíðrætt um viðfangsefni næstu aldar. Þar nefndi hann m.a. að upplýsingabyltingin og þróun þekkingarsamfélagsins kæmi til með að móta efnhag og samkeppnisstöðu þjóða og fræðslu og menntamálin yrðu því að vera í öndvegi á næstu árum. Hann sagði einnig að baráttan við eiturlyfjavandann hlyti að verða forgangsverk, ekki bara hér á landi heldur í nánu samstarfi þjóða heirns." Við stofnuðum varnarbandalag til að berjast gegn einræði og hnignun. Varn- arbandalag framtíðarinnar þarf í auknum mæli að beita sér gegn hryðjuverkum, glæpum og ræn- ingjum æskunnar sem eiturlyfja- salarnir eru,“ sagði Halldór. Vcrkefni á nýrri öld „Það er verðugt viðfangsefni nýrrar aldar að ráðast í að semja sérstaka „Réttindaskrá þjóðfé- Iagsþegnanna.“ Þar væri reynt að skilgreina hvað það er sem þegn- ar Iandsins eiga kröfu á af hálfu almannavaldsins, bæði ríkis og sveitarfélaga og stofnanna þeirra. Þetta er vandasamt verk- efni, en það er hlutverk stjórn- málamannanna í víðtæku sam- ráði við almannasamtök að skil- greina sem best rétt einstaklinga og fjölskyldna við ólíkar aðstæð- ur í þjóðfélaginu,“ sagði Halldór. Hann vék einnig að evrópsku samstarfi og sagði þá: „Til að taka af allan vafa er ég ekki þeirr- ar skoðunar að Islendingar eigi nú að sækja um aðild að E\TÓpu- sambandinu." Hins vegar er „ekkert því til fyrirstöðu að \ið Iátum fara fram viðamikla athug- un á því með hverjum hætti slfkt gæti gerst og hvað væri viðun- andi fyrir Islendinga. Slík könn- un er nauðsynlegur þáttur í metnaðarfullu starfi Islands við að meta framtíðarmöguleika þjóðarinnar. Asættanleg lausn af okkar hálfu gæti falist í því að um hafsvæðin í Norður-Atlants- hafi verði settar sérstakar reglur og sérstök stefna mótuð sem væri óháð sameiginlegri yfir- stjórn Evrópusambandsins," sagði formaður Framsóknar- flokksins í ræðu sinni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.