Dagur - 19.02.1999, Blaðsíða 11

Dagur - 19.02.1999, Blaðsíða 11
^4rr- “Da^tír LÍFIÐ í LANDINU YÖnSTÚDAGÚR"l4. FE BRÚ'a r'1 9 9 9 - 27 MEINHORNIÐ • uPPgjöf sumra fyrir- tækja fyrir syngjandi ung- mennum á öskudaginn, einkum í mið- borg Reykjavík- ur samkvæmt fréttum, er þessum fyrir- tækjum ekki góður vitnis- burður. Fyrir- tæki mörg hver voru sögð hafa lokað dyrum sínum fyrir „ágangi“ ung- mennanna sem vildu syngja og þiggja eitthvað lítilræði að launum. Geta menn ekki skipt um gír einu sinni á ári? • Hvenær ætla íslendingar að læra að aka ekki of nálægt næsta bíl á undan? Hvenær ætla Is- lendingar að læra að gefa steliiuljós áður en beygja er tekin en ekki eftir að það er gert? 1Jlgfflnr FOLKSINS Það dæmist rétt vera JON ÞORLEIFSSON SKRIFAR Síðla nætur 21. september 1997 tók ölóður maður fjaðurhníf úr vasa sínum og særði með honum mann á enni, en þá tók félagi þess særða af honum hníf- inn og sagðist hafa ákveðið að fara með hann á lögreglustöðina úr Hafnarstræti þar sem átökin urðu, en við að hefta för hans og ná blóðugum hníf úr höndum hans særðust tvær konur, önnur lífs- hættulega, og var þeim komið fljótt til lækna. Fyrir þá sök að svifta manninn sem hnífinn átti eign sinni og framkvæmda- frelsi skamman tíma var sökudólgurinn dæmdur í margra mánaða öryggisgæslu og einangrun ásamt geðheilsurannsókn, meðan sá sem hnífstungur hóf gekk frjáls og lét birta við sig blaðaviðtöi, og sagði hann daginn eftir atburðinn að sá sem inni sat hefði tekið sjálfskeiðung upp úr vasa sínum og stungið konurnar með honum, og þó sárin hafi öll reynst vera eftir annan hníf var hann aldrei ákærður, en dæmdir dómar byggðir á hans orðum þó að þau væru ekki rök- studd. Eftir þá réttarmeðferð gaf ríkissak- sóknari út ákæru gegn gæslufanganum fyrir morðtilraunir af ásettu ráði, þó læknir segði hann lausan við árásar- hneigð, var það látið víkja fyrir fullyrð- ingum þess manns sem átti íjaðurhníf- inn og hans kærustu, sem dómar í Hér- aði og Hæstarétti eru mest byggðir á, þar sem sá ákærði var dæmdur í sjö ára fangelsi og síðar í sex ára fangelsi fyrir morðtilraunir af ásettu ráði. Þess væri þörf að kanna þína réttar- meðferð, Guðmundur Guðjónsson yfir- lögregluþjónn, og þitt sýknu- og sakar- mat, Símon Sigvaldason saksóknari, ásamt dómgreind Héraðsdómaranna Péturs Guðgeirssonar, Helga I. Jónsson- ar og Sigurðar T. Magnúsar, og Hæsta- réttardómaranna Péturs Kr. Hafstein, Gunnlaugs Claessen, Haraldar Henrysonar, Hjartar Torfasonar og Hrafns Bragasonar. Óréttlæti í greiðslu fyrir kalda vatnið HANS ARREBOE CLAUSEN HRINGDI Ég er alveg ásáttur með heita vatnið, ég borga það eftir mæli. En það er annað. Ég er einstaklingur, ellilífeyrisþegi, 80 ára gamall. Ég bý í minni íbúð ennþá og borga á annað þúsund krónur í vatns- skatt fyrir kalt vatn. Ég borga tæpar fimmtán þúsund krónur á ári fyrir kalt vatn. Ég hef átt heima í fleiri bæjum og borgum en Reykjavík og Kópavogi. Þeg- ar ég var í Noregi borgaði ég kalda vatn- ið bara eftir mæli. I öllum stærri bæjum í Noregi er borgað eftir mæli. Eins er það í Danmörku, þegar ég var í Odense borgaði ég eftir mæli. Svo er ég Iátinn borga á annað þúsund á mánuði hérna í Kópavogi. Þetta nær ekki nokkurri átt, siðmenntaðar þjóðir haga sér ekki svona. Það er fjölskylda í næsta húsi við mig með svipaða íbúð, þar sem búa sex manns en borga alveg það sama og ég í vatnsskatt. Þetta nær ekki nokkurri átt. Bæjarstjórnin í Kópavogi segir síðan að Reykjavík hafi hækkað gjaldið svo mikið en þeir hafa bara ágætlega upp úr þessu sjálfir. Ég er búinn að búa í Kópavogi síðan 1950 og þegar ég byggði þá lögðum við sjálfir alla vatnslögn og skólplögn en svo þegar farið var að stækka aðallagnirnar þá urðum við að borga holræsagjald og borgum það enn. Ég hef borgað það í tugi ára en Reykvíkingar hoppa upp eins og kengúrur þegar á að fara að láta þá borga. Þetta nær ekki nokkurri átt. Strandgötu 31, 600, Akureyri Þverholti 14,105 Reykjavík Sími umsjónarmanns lesendasíðu: 460 6122 Netfang: ritstjori@dagur.is Símbréf: 460 6171/551 6270 Óskað er eftir að bréf til blaðsins séu að jafnaði hálf til ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200 tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt til að stytta lengri bréf. Bréfastef KATRIN ARNADÓTTIR SKRIFAR Bréf, bréf, bréf! Bréf og aft- ur bréf! Mig varðar ekki’ um aðra. Ég hef það sem ég hef. Þetta var í útvarpinu allan daginn í gær. Það er ekkert lítill hópur, sem skattalækkun fær. Flýtið ykkur að hringja svo þið fáið skattafslátt. Fáist ekki’ um hina, sem vantar stórt og smátt. Ekki vera að hugsa um bræðurna sem borga. Þeir barma sér og kvarta sem kunna ekki að dorga. Hæ, hæ og hó! Enn þá hef ég ekki nóg! Bréf, bréf, bréf! Bréf og aftur bréf! Mig varðar ekki' um aðra. Ég hef það sem ég hef. Hringdu strax var þulið um Þorláksmessu ogjólin. Þetta’ er svei mér skemmtilegt og bráðum hækkar sólin. Ekki vera að hugsa um alla þessa menn sem áttu leið til prestanna ég held þeir tóri enn. Hæ, hæ og hó! Og enn hef ég ekki nóg! Út, út, út! Út og aftur út! Aurarnir mínir skulu fara breiða veginn út! Mundu þetta: I útlöndum bestu færðu bréfin. Búmannshugsun var mér fyrir iöngu sfðan gefin. Út, út, út, út! Strax með auðinn út! VEÐUR Veðrið í dag... Noröan og norðvestan stormur eða rok og snjókoma eða skafrenningur um norðanvert landið, hægari og él með vesturströndinni en úrkomulitið suðaustanlands. Harðnandi frost. Hiti 5 til 9 stig Blönduós Akureyri i w, mn rua eau ggn Man Þri Miö Ftm FöS 1-au rviari kii iviio j. .K^Vl í í W / / ; . .^_sV 1 V \ í 1 Þri Mið Egilsstaðir Bolungarvík .(9- I 1...B...aJg.B Mán Þri Mið Rm Fðs Þri Miö Reykjavík fyfylfyfyVV ; ^ÉlfyU í f Í///Z Kirkjubæjarklaustur C) mrr -15 ; 5^ -10 o- C) mm 1 - V-— /i\ / \/\/ ' -5 -5- ■ l: vv/1 \/ -0 -10- M 1,- ■ r- , Rm Fös rus uiu ividii í i Stykkishólmur Þri Mið Rm Fös Mán Þrt r .fyfy^fy \ { i Stórhöfði CcL I ■■ ■ I ■ ■ mSL. Flm Fös Mán Þri fy::K\ U f f /. Flm Fðs ^ \fy VEÐURST0FA f ÍSLANDS Veðurspárit Þri Mið f ._/■ 18. 2.1999 Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi. Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst. Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði er táknaður með skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s. Þríhyrningur táknar 25 m/s. • V Dæmi: • táknar norðvestanátt, 7.5 m/s. Færð á vegiun Hálka er á HeHisheiði og í Þrengslum. Ófært er á Bröttubrekku. Á Norður og Norðausturlandihefur snjóað nokkuð mikið en helstu vegir eru færir, þó er þungfært á Kísilvegi. Skafrenningur er á Möðrudalsöræfum. Ofært er til Borgarfjaróar eystri og Breiðdalsheiði er ófær. Að öðru leiti er aHgóð vetrarfærð á vegum landsins. SEXTIU OG SEX NORÐUR rv •

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.