Dagur - 23.03.1999, Síða 1
Sinkverksmið í a
við Eyj afj ör ðiirn?
Alvarlegar þreifmgar
vid fiimskt stórfyrir-
tæki lun risaverk-
smiðju í grennd Akur-
eyrar. Allt að 500
störf. Tugir milljóna í
uppsetningarkostuað.
Áform eru uppi um sinkverk-
smiðju við Eyjafjörð með allt að
500 stöðugildum. Rafveitustjóri
Rafveitu Akureyrar, Svanbjörn
Sigurðsson, hefur kynnt fyrir
starfsmönnum sínum að finnska
stórfyrirtækið, Outo Kunpu, sé
áhugasamt um að reisa verk-
smiðju á Islandi. Líklegt er að
frumathugun fari fram innan
skamms og ef aðilar ná saman er
hugsanlegt að framleiðsla hefjist
innan fjögurra ára. Sinkið yrði
unnið úr aðfluttum jarðefnum frá
Evrópulöndum.
„Mér fannst ekki hægt að sitja
bara heima og bíða eftir því að
eitthvað kæmi upp í hendurnar á
okkur. Ég þreifaði því fyrir mér
hingað og þangað og komst á slóð
í Finnlandi sem
mér finnst mjög
vænleg. Málið er
komið á spennandi
stig og þessi mögu-
leiki er til alvarlegr-
ar skoðunar," segir
Svanbjörn. Raf-
veitustjóri fór til
Finnlands fyrir
skemmstu og hitti
þar yfirmenn Outo
Kunpu. Árangur
þess fundar verður
væntanlega for-
könnun á aðstæð-
kostnaður við uppsetningu er
mældur í tugum milljarða. „Þetta
er spurning um
stóra fjárfesta á al-
þjóðamælikvarða,"
segir Svanbjörn.
Nauðsynlegt
mótvægi
Leiða má Iíkum að
því að tveir staðir
komi einkum til
greina á Eyjaíjarð-
arsvæðinu, Dysnes
**
r
^ -
£ u
um og í kjölfarið gætu formlegar
viðræður hafist um verkefnið.
Outo Kunpu er alheimsfyrir-
tæki með bækistöðvar i 20-30
löndum. Samsteypan starfar við
margvíslega málmframleiðslu s.s.
króm, stál, kopar, sink og kvika-
silfur. Um þijú ár tæki að byggja
verksmiðjuna hér. Lágmarks árs-
framleiðsla með tilliti til hag-
kvæmni er um 200.000 tonn og
Svanbjörn Sigurðsson: Þessi eða Arskógssandur.
möguleiki er til alvarlegrar Þessi tvö svæði eru
skoðunar. skilgreind sem
svæði fyrir stóriðju
samkvæmt skýrslu iðnaðarráðu-
neytisins og Svanbjörn telur Eyja-
fjörðinn heppilegt svæði fyrir
stóriðju af þessu tagi. „Við þurf-
um mótvægi við höfuðborgar-
svæðið og þetta er mannflesta
byggðin utan suðvesturhornsins.
Þetta myndi kalla á mjög mörg
störf og að því leyti meðal annars,
tel ég Eyjafjörðinn hentugt
svæði."
Ljóst að er að til að þetta geti
orðið þarf frekari virkjunarfram-
kvæmdir á landinu. Sameiginlega
hafa orkufyrirtæki á Akureyri og
Húsavík kannað nýjar orkulindir
að undanförnu en of snemmt er
að segja til um niðurstöður þeirra
vinnu. Hvorki fleiri né færri en
120 MW þarf til að stafrækja fyr-
irtækið sem er til samanburðar
tvöfalt meira en ársframleiðsla
Kröfluvirkjunar.
Ferdamálaráðherra jákvæður
Áhrif stóriðju á landbúnað og
ferðaþjónustu hafa oft verið rædd
og eru menn ekki á eitt sáttir.
Leiða má Iíkum að því að ef ráð-
herra ferðamála, Halldór Blöndal,
situr áfram, muni hann ekld setja
sig gegn verksmiðjunni. Svan-
björn segir að Halldór fylgist vel
með framvindu þessa máls og
einnig hefur bæjarstjóranum á
Akureyri verið sagt frá hugmynd-
inni. Svanbjörn segist hins vegar
hafa unnið einn að verkefninu og
án samstarfs við opinbera aðila
líkt og iðnaðarráðuneytið. — BÞ
Vilja sjukra-
flugvél til
Akureyrar
Nýstofnað Félag íslenskra lands-
byggðarlækna skorar á yfirvöld
heilbrigðismála að koma sem
fyrst á úrbótum í sjúkraflutning-
um með flugvélum. Félagið telur
að fá verði öfluga flugvél með
jafnþrýstibúnaði sem yrði sér-
staklega útbúin til sjúkraflutn-
inga. Félagið telur að þessi flug-
vél yrði best staðsett á Akureyri.
Félagið segir að núverandi fyr-
irkomulag sjúkraflugs á Islandi
hafi gengið sér til húðar og þörf
sé á stórátaki til þess að bæta
þennan nauðsynlega þátt heil-
brigðisþjónustunnar og tryggja
að hann sé til staðar þegar á þarf
að halda. Jafnframt að staðsetn-
ing sjúkraflugvélar á Akureyri
hafi marga kosti, m.a. styttri
vegalengdir á helstu sjúkraflug-
velli og styttri viðbragðstíma.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
myndi eflast sem bráðasjúkrahús
með auknum verkefnum.
Feðginin voru broshýr sem renndu sér niður svonefnda Jólasveinabrekku á Akureyri þegar Ijósmyndara Dags bar
að garði. Nægur snjór er norðan heiða þótt örlítil hláka í gær hafi aðeins slegið á snjómagnið. - mynd: brink
Stjórnendur nýja verslunarrisans
komu saman í gær í tilefni tíma-
mótanna. - mynd: teitur
Risa
samnini
verslana
Stjórnir Kaupfélags Árnesinga,
Nóatúns og 11-11 hafa sam-
þykkt að sameinast og mynda
keðju 33 verslana á höfuðborgar-
svæðinu og Suðurlandi frá byrj-
un maí. Félagið mun einnig reka
kjötvinnslu og skipaverslun og
verður nýja keðjan hin næst-
stærsta í verslun á landinu með
áætlaða 9 milljarða króna veltu.
Eftir sem áður munu búðir hins
nýja félags reknar undir nöfnum
Nóatúns, KÁ og 11-11.
Samsteypan nefnist Kaupás og
verður undir stjórn Þorsteins
Pálssonar. Hann segir skrefið
opna ný sóknarfæri og mikilvægt
sé að mæta vaxandi samkeppni í
verslunarrekstri. Einar Orn Jóns-
son, framkvæmdastjóri Nóatúns,
verður stjórnarformaður Kaup-
áss. Hann segir samrunann eðli-
legt framhald á samstarfi Nóa-
túns og KA.
Starfsmöimum ekki fækkað
Ekki er gert ráð fyrir fækkun
starfsfólks vegna samruna fyrir-
tækjanna en starfsmenn eru nú
um 850 í 500 stöðugildum. Setja
á félagið á almennan hlutabréfa-
markað og verður það skráð á
Verðbréfaþingi Islands. Islands-
banki mun sjá um sölu hluta-
bréfa.
Velta Nóatúns varð 4,4 millj-
arðar í fyrra. KÁ velti 2,7 millj-
örðum og 11-11 einum milljarði.
Þessar 33 búðir skiptast þannig
að KÁ rekur 12 þeirra, Nóatún 9
en 12 búðir eru undir merkjum
11-11.
Forystumenn hafa kynnt Sam-
keppnisstofnun og Neytenda-
samtökunum samrunann. „Þetta
skapar jafnframt fleiri tækifæri
við önnur félög í verslun,“ segir
Einar Orn Jónsson, stjórnarfor-
maður Kaupáss. — BÞ
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI - SÍMI 462 3524
wamowm exrmss
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100