Dagur - 23.03.1999, Page 2
2 -ÞRIDJUDAGUR 23. MARS 1999
ro^tr
FRÉTTIR
Gert er ráð fyrir því að laun 14 og 15 ára unglinga hækki um 3,5% en laun 16 ára ungiinga verði óbreytt frá síðasta sumri.
16 ára imglingiun
fækkar í Vinnuskóla
Laun 16 ára imglinga
hækka ekki. Eðlisbreyt-
ing á viiiim. Ámælisvert
og siðlaust. Laun 14 og
15 ára unglinga hækka
um 3,5%.
„Rökstuðningurinn er m.a. sá að fyrir
nokkrum árum var ákveðið að færa 16
ára unglingana undir Vinnuskólann og
taka þau þar með í fræðslu- og þjálfun-
arprógramm skólans. Laun 14-15 ára
unglinganna höfðu alltaf tekið mið af
því. Við þessa tilfærslu kom í ljós að
það var ansi mikill launamunur á milli
15 ára og 16 ára,“ segir Arnfinnur
Jónsson, skólastjóri Vinnuskóla
Reykjavíkur.
Óbreytt kaup hjá 16 ára unglingum
Borgarráð mun væntanlega afgreiða á
fundi sínum í dag, þriðjudag, tillögu
meirihluta stjórnar Vinnuskólans um
FRÉTTAVIÐTALIÐ
laun unglinga í sumar. Tillagan gerir
ráð fyrir því að laun 14 og 15 ára ung-
linga hækki um 3,5% en laun 16 ára
unglinga verði óbreytt frá síðasta
sumri. Verði tillagan samþykkt verður
tímakaup 14 ára unglinga 218 krónur,
247 krónur hjá 15 ára og 331 króna
hjá 16 ára unglingum. A síðasta sumri
fækkaði 16 ára unglingum um tæplega
100 sem unnu hjá Vinnuskólanum
miðað við sumarið þar á undan. Með
óbreyttu efnahagsástandi telur skóla-
stjórinn ekki ólíklegt að sú þróun haldi
áfram í sumar. Þeir voru rétt um 800 í
fyrra og um 1000 í hvorum aldurs-
flokki 14 og 15 ára.
Ámælisvert
Skiptar skoðanir voru um tillöguna á
stjórnarfundi Vinnuskólans. I bókun
Kjartans Magnússonar fulltrúa minni-
hlutans segir að þessi tillaga sé ámæl-
isverð og algjörlega á skjön við þróun
launa í þjóðfélaginu. I því sambandi
bendir hann á að kaupmáttur lág-
markslauna hafi hækkað um 11,5% frá
sl. sumri, kaupmáttur opinberra starfs-
manna um 7,5% og kaupmáttur á al-
mennum markaði um 6,8%. Þá séu
þetta slæm skilaboð til 16 ára unglinga
og rýrir réttlætiskennd þeirra. Að auki
sé þessi kjararýrnun R-Iistans fjand-
samleg fjölskyldum 16 ára unglinga.
Tillagan sé einnig siðlaus þar sem um-
ræddur hópur nýtur ekki samningsrétt-
ar.
Eðlisbreyting
I bókun meirihlutans kemur fram að
eðlisbreyting hafi átt sér stað á störfum
16 ára unglinga hjá Vinnuskólanum,
eða frá almennri vinnu til starfsnáms.
Þá er m.a. bent á að þrátt fyrir þessa
launafrystingu séu laun 16 ára ungl-
inga hjá Vinnuskólanum 7,8% hærri
en hjá nágrannasveitarfélögum, tæp-
lega 32% hærri en hjá samnings-
bundnum iðnnema á fyrsta ári og 34%
hærri en hjá 15 ára unglingi í Vinnu-
skólanum. — GRH
Það mátti vart tæpara
standa með að niðnrstaða
fengist í framboðsmál
Samfyltóngarinnar á Norð-
urlandi eystra en Wofning-
ur var yfirvofandi. Þannig
hafa pottverjar fullvissu
fyrir því að málsmetandi
kratar í kjördæminu hafi
verið rétt við það að koma fram opinberlega og
krefjast þess að Samfyltóngin legði fram tvo
lista í sínu nafni. Rökin voru þau að með því
væri minni hagsmunum fómað fyrir meiri -
menn fengju kannstó ektó kjördæmakjörinn
mann, en atkvæði beggja lista myndu nýtast
hrcyfingunni til uppbótarsæta...
Meira um Samfyltónguna á
Norðurlandi. í pottinum cr
brotthvarf Sigbjöms af list-
anum nú kallað Pyrrosarsig-
ur flokkseigendanna á
Akurcyri. Ástæðan er sú að
þrátt fyrir að menn hafi feng-
ið því framgengt að fá Sig-
bjöm úr efsta sætinu sé ljóst
að staða Samfyltóngarinnar
sé orðin mjög veik og auk
þess sem afar erfitt sé fyrir Svanfríði Jónasdótt-
ur að taka sætið...
Sigbjörn
Gunnarsson.
í pottinum var mitóð rætt
um augfysingu framsókn-
amianna um helgina og
sýndist sitt hverjum. Fáir í
pottinum eru hissa á að
Framsókn skuli fara af stað
með auglýsingar þctta
snemma, og mörgiun þykir
hugmyndin góð. Hins veg-
ar mæla fáir með útliti auglýsingarinnar, sem
einn pottverji sagði minna sig á auglýsingu fyrir
krakkahamborgara, slík sé lita- og leturgerða-
gleðin...
Sigurjón
Hjartarson
marfuðsstjóri Sparisjóds Reykjavík-
ur og nágrentiis
SPRON hejurkynntglæ-
nýja útgáfu afkrítarkorti -
veltukort, sem gefur lands-
mönnum enn einaauðvelda
leið til að kaupa og borga
seinna.
Eim eitt krítarkortið
- Hvað er sérstakt við þetta krítarkort?
„Það er óvenjulegt að því leyti að þetta er
veltukort (Mastercard) og þú ræður hvað þú
borgar mikið mánaðarlega, þ.e. umfram
ákveðið lágmark, án þess að gera nokkum
sérstakan samning eða þvi um líkt. Lág-
marksgreiðsla um mánaðamót er 5.000 kr.
eða 5% af úttekt, auk vaxta. Onnur nýjung
er sú, að það er ekkert stofngjald eða árgjald
af kortinu og þú þarft ekki ábyrgðarmenn
eða tryggingar til að fá veltukort. Þetta eru
reyndar tvö kort, annars vegar almennt kort
með 300.000 kr. úttektarheimild og hins
vegar gullkort með 600.000 kr. úttektar-
heimild. Þessi kort hafa lengi verið mjög
vinsæl erlendis, sérstaklega vestanhafs."
- Búist þið við góðum viðtökum?
„Þetta var fyrst auglýst í morgun og þá tvo
klukkutíma sem liðnir eru síðan við opnuð-
um hefur síminn ekki stoppað, svo áhuginn
virðist sannarlega mikill nú strax í byrjun.
Því miður þá höfum við ekki annað öllum
sem hringja.”
- Sjú menn þarna kannski enn eina
auðvelda leið til að sökkva sér í skuldir?
„Við veljum korthafa þannig að það verð-
ur eingöngu fólk sem við treystum alveg -
fólk sem kann að fara með sín fjármál. Þetta
er aukin þjónusta af okkar hálfu við okkar
viðskiptavini. Öllum verður þó fijálst að
sækja um þetta kort, óháð því hver við-
skiptabanki þeirra er, ef þeir uppfylla skil-
yrði til þess. Þeir þurfa að fara í gegnum
ákveðið mat, þar sem við veljum úr þá sem
eiga að geta ráðið við þetta lánaform og við
treystum fullkomlega. Þeir sem virðast ekki
ráða við sín fjármál fá ekki veltukort."
- Verður ekki erfitt að komast í gegnum
SPRON-ndlaraugað?
„Jú, nokkuð. Við biðjum fólk um þrjá síð-
ustu Iaunaseðla og förum síðan í gegnum
heildarskuldir viðkomandi og metum þann-
ig hversu greiðslugeta þess er mikil. Til að
fá gullkortið verður fólk að uppfylla nokkuð
strangari skilyrði, t.d. að eiga fasteign."
- Varlafyrir unglinga?
„Nei, alveg Ijóst að þetta mun ekki fara
mjög lágt í aldri. Þetta kort er fyrst og
fremst hugsað fyrir fólk sem búið er að
koma undir sig fótunum.“
- Ef kortið er alltaf með skuld verða þá
ekki allar úttektir vaxtareiknaðar?
„Það eru engir vextir á úttektum í 45
daga, fremur en á hinum krítarkortunum.
En það sem stendur lengur er á vöxtum.
Vextirnir eru 15,9% á almenna kortinu og
13,45% á gullkortinu. Kortið sjálft er frítt
utan hvað við tökum 195 kr. úttektargjald
og 11 kr. færslugjald. Uttektartímabilið er
frá 18. til 17. hvers mánaðar.”
- Er ekki venjan erlendis að fólk notar
þessi kort sem eins konar yfirdrátt?
„Jú, það er venjan. Það er algengt að fólk
hafi þetta sem aukakort í veskinu og notar
það gjarnan ef það kaupir einhveija dýrari
hluti, sófasett eða tölvu t.d. og dreifir þann-
ig kaupverðinu. En kortinu er ekki ætlað að
koma í stað yfirdráttarheimilda, heldur en
hér um viðbótarþjónustu að ræða.“
- Mun þetta ekki þýða harða samliQppni
fyrir Visa?
„Það er alveg ljóst að þetta er viðbót inn á
þennan markað og við búumst við því að
það verði heilmikil samkeppni í þessu. Þetta
Fellur vel inn í þann pakka sem fyrir er og
hefði átt að vera komið fyrir Iöngu síðan."
- HEl