Dagur - 23.03.1999, Síða 3
ÞRIDJUDAGUR 23. MARS 1999 - 3
FRÉTTIR
Þetta verdur dýr
kosmngaslagur
ofuðum:
Qtwínnumálm a® iðnþrounarsjéði yrdí a8 «fla þátttafcu otvinnu- >woixi **u»r*>.n<ia »•<» ***
iddifin og ouliavcfí - breytt i<ihjKttufjarmaga»~ Itftinc i'ranntáltnum og *!*''**'? *.
staslrapun í(andinu sjóft, m.a. tjl aftsteSar þráunarstarfcami v.y*.,rVrVy ”.f
wszt
un^u folUí til a& koma
fyrirt«skjum á fót
im raasxy £
' •* y"^ »>*£*• a8 auWa Wynningu á
<í-w,i««iu»xa _____ mogulBÍkum erlendra
i <n«» a.-»tay< **'"’*•' •* ♦' •|:- fiórfeyta hér d londt
Auglýsing framsóknar í Morgunblaðinu um helgina.
Framk væmdastj óri
Framsóknaríloklísins
segir kosningabarátt-
una verða kostnaðar-
sama. VG-menn slógu
saman í auglýsingu og
segjast ætla að spara.
Sainíýlkiiigin opnar
með stórfundi 10.
apríl. Búist við mik-
illi auglýsingaútrás
hjá Sjálfstæðisflokki.
Enda þótt enn séu sex vikur til
kosninga eru kosningaauglýsing-
ar stjórnmálaflokkanna byijaðar
að birtast í dagblöðunum. Fram-
sóknarflokkurinn reið á vaðið
með opnuauglýsingu þar sem
kjörtímabilið er gert upp, Ioforð
og efndir. Síðan birtist í gær heil-
síðu auglýsing frá Vinstrihreyf-
ingunni - grænu framboði, þar
sem starfið fram að kosningum er
auglýst.
Egill Heiðar Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokks-
ins, sagði að í þessari auglýsingu
um helgina hefði liðið kjörtímabil
verið gert upp. Menn gætu líka
litið á þessa auglýsingu sem upp-
haf hinnar formlegu kosninga-
baráttu. í ljósi þess hve dýrt það
er að auglýsa í Ijölmiðum var Eg-
ill Heiðar spurður hvort hann
ætti von á því að sú kosningabar-
átta sem í hönd fer verði dýr?
„Já, ég á von á því að hún geti
orðið dýr. Kosningabaráttan kem-
ur til með að kosta mikla pen-
inga, það gefur auga leið. Hvort
mikið verður um svona stórar
auglýsingar hjá okkur verður bara
að koma í Ijós. Það fer eftir því
hvernig kosningabaráttan þróast
hve mikið þarf að beita þeim,“
sagði Egill Heiðar.
Hann vildi ekki nefna neinar
kostnaðartölur við kosningabar-
áttuna en sagði ljóst að það skipti
milljónum króna.
Slegið saman í auglýsingu
„Við opnuðum kosningaskrifstofu
fyrir rúmri viku og það var eigin-
lega formlegt upphaf kosninga-
baráttunar. Auglýsingin í DV var
bara einn liður í henni. En það
get ég fullyrt að kosningabarátta
okkar verður ekki dýr. Og varð-
andi auglýsinguna voru það
nokkrir einstaklingar sem slógu
saman í hana en ekki framboðið
sem slíkt,“ sagði Ogmundur Jón-
asson, oddviti VG í Reykjavík.
Hann segir fólk í VG ákveðið i
að reka kosningabaráttu sem
verði eins sjálfbær og ódýr og
mögulegt er og svona samskot í
eina auglýsingu talandi dæmi þar
um.
„Við höfum ekki gert neina
kostnaðaráætlun en við munum
stilla öllum útgjöldum mjög í
hóf,“ sagði Ögmundur Jónasson.
Stutt en snörp
„Við ætlum að vera með stutta en
snarpa kosningabaráttu og hefj-
um hana með stórfundi í Há-
skólabíói 10. apríl. Við munum
líka auglýsa í fjölmiðlum og höf-
um gert auglýsinga- og kostnað-
aráætlun og haldið fund um þetta
mál með oddvitum listanna. Við
ætlum ekki að vera með dýra
kosningabaráttu en snarpa,"
sagði Hákon Gunnarsson, kosn-
ingastjóri Samfylkingarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki kynnt neinn kosningastjóra
né opnað kosningaskrifstofu í
Reykjavík. Þar sem ekkert próf-
kjör fór fram hjá flokknum í
Reykjavík á hann auðveldara með
að leita til fyrirtækja um styrki í
kosningabaráttuna heldur en ef
búið hefði verið að leita til þeirra
í prófkjörsbaráttu. Þess vegna er
búist við mjög umfangsmikilli
kosningabaráttu hjá Sjálfstæðis-
flokknum. - S.DÓH
Kristján ÞórJúiiusson bæjarstjóri á
Akureyri.
Lífeyris-
í
reilaiinga
Akureyrarbær er nú í fyrsta skipti
að taka lífeyrisskuldbindingar
bæjarins inn í ársreikninga bæj-
arsjóðs og stofnana hans. Bær-
inn framfylgir með þessu breyt-
ingum sem gerðar hafa verið
varðandi bókhald og reiknings-
skil sveitarfélaga. Aður hafa líf-
eyrisskuldbreytingar Akureyrar-
bæjar ekki verið teknar inn í árs-
reikning sveitarfélagsins.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segir um háar
Ijárhæðir að ræða en vill ekki
upplýsa nákvæmlega að svo
komnu máli af hvaða stærð-
argráðu. „Sum sveitarfélög hafa
teldð þetta upp að undanförnu.
Það verða engar nýjar skuldbind-
ingar til þótt þetta sé gert. Þær
verða hins vegar taldar fram,“
segir Kristján Þór.
Lífeyrisskuldbindingar Iúta
öðrum lögmálum en venjuleg
skuldabréf, þar sem þau greiðast
á miklu lengri tíma auk þess sem
óvissuþættirnir eru margir. - BÞ
Meðferðarheimili
í Rockville
Kristilegt lflmarfélag
fær maimvirkiii end-
urgjaldslaust í tvö ár.
Pláss fyrir 150-200
áfengis- og fflmiefna-
neytendur. Stört skref
í meðferð.
Kristilega líknarfélagið Byrgið
hefur fengið öll manntárkin í
Rockville á Sandgerðisheiði end-
urgjaldslaust til tveggja ára. Þar
er ætlunin að reka meðferðar-
heimili fyrir 150-200 áfengis- og
fíkniefnaneytendur en öll mann-
virkin eru talin vera um 3 þús-
und fermetrar að stærð. Búist er
við að meðferðarheimilið geti
tekið til starfa í sumar.
Vannýtt mannvirki
Halldór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra undirritaði í gær tvo
samninga vegna þessa máls.
Annarsvegar við bandaríska her-
inn á Miðnesheiði og hinsvegar
samning á milli ráðuneytisins og
Byrgisins. Ráðherrann lýsti yfir
ánægju sinni yfir því að Byrgið
skyldi ætla að nýta mannvirkin í
Rockville fyrir meðferðarheimili
sem mundi nýtast öllu þjóðfélag-
inu. Hann gat þess einnig að það
hefði m.a. verið fyrir tilstilli
Hjálmars Arnasonar þingmanns
að þetta mál varð að
veruleika. Ellert Ei-
ríksson bæjarstjóri í
Reykjanesbæ lýsti
einnig yfir ánægju
sinni með samninginn
og þá starfsemi sem
framundan væri í
Rockville. Þar hefur
Herinn ekki starfrækt
ratsjárstöð síðan 1997.
Stórt skref
Guðmundur Jónsson
hjá Byrginu sagði að
með þessum samningi
væri stigið stórt skref í meðferð-
arúrræðum fyrir áfengis- og
fíkniefnaneytendur. Hann segir
að starfsemi félagsins sé að
mestu leyti fjármögnuð með
gjafjnildi einstaldinga og fyrir-
tækja. Það rekur meðferðar-
heimili við Hvaleyrarbraut og
Vesturgötu í Hafnarfirði og ein-
nig í Hlíðardalsskóla í Ölfusi.
- GRM
Óháða framboðið á fullu
Áhugamannahópurinn um auð-
lindir í almannaþágu, sem hefur
undanfarið verið að skoða mögu-
leikann á óháðu framboði í R-
kjördæmunum og Dagur skýrði
frá sl. laugardag, heldur sínu
striki. Einn úr hópnum, sem rætt
við í gær, sagði að unnið væri
áfram að undirbúningi fram-
boðs. Menn vildu fá að sjá kosn-
ingastefnuskrá allra stjórnmála-
flokkanna áður en frekari
ákv'arðanir verða teknar.
Þess má geta að lögum sam-
kvæmt þarf ekki að skila fram-
boðslistum fyrr en 15 dögum fyr-
ir kjördag. Búist er við að þetta
óháða framboð verði ekki kynnt
fyrr en á síðustu stundu, ef af því
verður. Þar með þyrftu aðstand-
endur þess ekki að standa í
margra vikna kosningabaráttu.
- S.DÓR
Portúgalinn látinn
Portúgalski sjómaðurinn, sem varð fórnarlamb freoneitrunar um
borð í skipi í Hafnarfjarðarhöfn í síðustu viku, lést á gjörgæsludeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur um helgina.
Kristín Halldórsdóttir leiði listaim
Vinstrihreyfingin - grænt framboð mun
á fundi í kv'öld ganga frá framboðslista
sínum í Reykjaneskjördæmi. Uppstill-
ingarnefnd leggur til að Kristín Hall-
dórsdóttir, núverandi þingkona Kvenna-
listans, skipi efsta sæti hans. Þá leggur
uppstillingarnefndin til að Sigtry'ggur
Jónsson, sálfræðingur í Bessastaða-
hreppi skipi 2. sætið, Sigmundur
Hjaltason, bóndi að Kiðafelli í Kjós, það
3. og Guðbjörg Sveinsdóttir hjúkrunar-
fræðingur það 4. Hún starfar um þessar
mundir út í Kosovo. - S.DÓR
Skattskráin dregst
Skattskráin svokallaða, endanleg niðurstaða álagningarskrár eftir
meðferð kærumála, mun ekki liggja frammi almenningi til skoðunar
í mars eins og verið hefur um árabil.
Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda stafar þetta af því að Iögað-
ilar fengu frest á framtalsskilum í tengslum við skattbreytingarnar á
síðasta ári. Meðferð á kærum hefur um leið dregist og nú er talið að
skattskráin sjái ekki dagsins Ijós fyrr en næsta haust. - FÞG
Leidrétting
I helgarblaði Dags v'ar farið rangt með sæti tveggja frambjóðenda
Samfylkingar á Reykjanesi. Sigríður Jóhannesdóttir og Þórunn
Sveinbjarnardóttir voru í 3. og 4. sæti í prófkjörinu en ekki 4. og 5.
sæti eins og mishermt var. Beðist er velvirðingar á þessu.
VU w sh*v* »>v'i >
IHSvÞÍUl