Dagur - 23.03.1999, Side 5
ÞRIÐJUDA GUR 23. MARS 1999 - S
FRÉTTIR
Kom Svaiifríói í
opna skjöldu
Frá stjórnarfundi kjördæmaráða A-flokkanna í gær. Frá vinstri: Aðalheiður
Alfreðsdóttir, Finnur Birgisson, Heimir Ingimarsson, Ásgeir Magnússon,
Sigríður Stefánsdóttir og Hallgrímur Ingólfsson. - mynd: brink
Langlíklegast aö
SvanfríðiLr Jónas-
dóttir muni leiða
lista SamfylMngar á
Norðurlandi eystra.
Sigbjöm segir fjár-
málin ekki hafa orðið
sér að falli.
Ákvörðun Sigbjörns Gunnars-
sonar, að hætta við þátttöku í al-
þingiskosningunum íyrir Sam-
fylkingu á Norðurlandi eystra,
kom Svanfríði Jónasdóttur þing-
manni í opna skjöldu að hennar
sögn. Hún er nú talin langlíkleg-
ust til að leiða listann þrátt fyrir
að Sigbjörn hafi unnið prófkjör
um miðjan febrúar og samkvæmt
því reynst réttkjörinn forystu-
maður listans. Svanfríður hafn-
aði í 3. sæti prófkjörsins vegna
hólfareglu Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks en hlaut í reynd
næstflest atkvæði í 1. sætið eða
10 færri en Sigbjörn.
MiMl tíðindi
„Að sjálfsögðu íhuga ég af fullri
alvöru að þiggja 1. sætið ef vilji
reynist til þess. Þetta eru hins
vegar mikil tíðindi sem komu
mér í opna skjöldu þegar ég frétti
af þessu fyrst í fjölmiðlum. Eg
þarf að fá ráðrúm til að átta mig
á framhaldinu og heyra í mínu
fólki hér fyrir norðan en auðvit-
að geri ég mér grein fyrir að við
höfum ekki ótakmarkaðan tíma
til að ganga frá framboðsmálun-
um, þannig að ég mun ekki
hugsa málið lengur en nauðsyn-
legt er,“ segir Svanfríður. Hún
segist vonast til að sátt náist um
framhaldið innan Samfylkingar-
innar á Norðurlandi eystra.
Vilja Svanfríði
I gær héldu kjördæmaráðin fund
á Akureyri þar sem ákveðið var
að kjósa uppstillingarnefnd sem
myndi taka ákvörðun um hver
leiddi listann. Niðurstaða þess
fundar var að leita til Svanfríðar
enda virðist full eining um það
bæði hjá Alþýðuflokki og Alþýðu-
bandalagi. Orlygur Hnefill Jóns-
son mun skipa annað sæti listans
fyrir Alþýðubandalagið, eins og
áður en Sigbjörn tók ákvörðun
sína.
Snerist ekki iiin fjármál
Hugtakið Samfylking virðist ekki
eiga allt of vel við þegar þróun
aflsins á Norðurlandi eystra er
skoðuð. Þannig klofnaði Alþýðu-
bandalagið þegar Steingrímur J.
Sigfússon stofnaði ásamt
nokkrum félögum sínum VG-
framboðið. Kvennalistinn stend-
ur formlega utan Samfylkingar-
innar og róstur innan Alþýðu-
flokksins enda nú með því að
Sigbjörn dregur sig í hlé. Hann
telur að markvissum rógburði
hafi verið beitt gegn sér meðal
„samherja“ og telur eigin fjár-
málastöðu ekki hafa vegið þyngst
í þessu máli öllu. Þannig segir
Sigbjörn að þegar stjórnir kjör-
dæmaráðanna hafi kallað hvern
frambjóðanda á sinn fund, að af-
loknu prófkjörinu, hafi hann
greint frá fjárhagserfiðleikum
sínum þar sem þungar ábyrgðir
hefðu fallið á hann. Enginn
hefði spurt frekar út í þau mál en
honum verið gert ljóst að hann
teldist ekki heppilegur frambjóð-
andi. — BÞ
Ný Strýta
Iþrótta- og tómstundaráð Akur-
eyrarbæjar leggur til við bæjaryf-
irvöld að 16 milljónum króna
verði veitt á næstu fimm árum til
fjögurra verkefna. Um ræðir styrk
til siglingaklúbbsins Nökkva sem
fær fé til að bæta aðstöðu sína við
Höfnersbryggju. Þá fær Golf-
klúbbur Akureyrar styrk til
klæðningar vegarins á félags-
svæðinu. Skotfélag Akureyrar fær
styrk til uppbyggingar á sinni að-
stöðu og í fjórða lagi verður gerð-
ur samningur við Skíðaráð Akur-
eyrar vegna byggingar nýrrar
Strýtu. Það verk verður fjármagn-
að með peningum frá vetrarí-
þróttamiðstöðinni en alls nemur
kostnaður við nýja Strýtu 26
milljónum. Golfklúbburinn,
Nökkvi og Skotveiðifélagið fá
800.000 kr. á ári í fimm ár til
sinna framkvæmda.
Þórarinn B. Jónsson, formaður
Iþrótta- og tómstundaráðs, segir
brýnt að svara kalli þessara aðila.
Sumir hafi beðið lengi eftir fram-
kvæmdafé til úrbóta líkt og for-
ráðamenn Nökkva sem hafi skrif-
ast á við bæjaryfirvöld í 15 ár.
- BÞ
Ný fyrirtæki í fóstur
Fnimkvöðlasetur og
Impra hjá Iðntækni-
stofnun. Hjóna-
handsmiðlun fyrir-
tækja.
Fyrsta Frumkvöðlasetur hérlend-
is hefur verið opnað innan Iðn-
tæknistofnunar. Það er starfrækt
af Impru á upplýsinga- og þjón-
ustusviði. Þar er mögulegt að
fóstra níu ný fyrirtæki sem
byggja á sérstöðu og nýsköpun.
Aðstoð við stofnun fyrirtækjanna
og rekstur þeirra getur verið í allt
að fimm ár.
Séraðstaða
Þetta kom fram á kynningar-
fundi Iðntæknistofnunar þar
sem kynnt var stefna stofnunar-
innar, skipulagsbreytingar og
nýtt skipurit. I Frumkvöðlasetr-
inu hafa fyrirtækin sér skrifstofu
og skrifstofubúnað, sameiginlegt
vinnurými ásamt fundarher-
bergi, setustofu, símaþjónustu
og fleira. Þau greiða leigu fyrir
aðstoðina sem fer stighækkandi
ár frá ári auk þess sem þeim er
gert að greiða fyrir hluta af þeirri
þjónustu sem þau fá. Frum-
kvöðlasetrið er byggt upp á sam-
bærilegan hátt og álíka setur í
Bandaríkjunum og Evrópu.
Stefniunót fyrirtækja
Impra er hinsvegar þjónustumið-
stöð frumkvöðla og fyrirtækja hjá
Iðntæknistofnun. Hlutverk
hennar er m.a. að leiðbeina
frumkvöðlum um mat á við-
skiptahugmyndum, leiðbeina um
stofnun, uppbyggingu og rekstur
fyrirtækja og vera hlekkur í sam-
skiptum einstaklinga, fyrirtækja
og stofnana. Impra starfrækir
einnig alþjóðamiðstöð þar sem
veitt er aðstoð og þjónusta við
tækniyfirfærslu milli íslenskra og
erlendra fyrirtækja og Kynning-
armiðstöð Evrópurannsókna. Al-
þjóðamiðstöðin tekur ennfremur
þátt í stefnumótun fyrirtækja,
sem er eins konar hjóna-
bandsmiðlun fyrirtækja í Evr-
Ópu. - GRH
SARK krefst jafnræðis
Samtök um aðskilnað ríkis og
kirkju (SARK) vilja að fólk utan
trúfélaga og fólk í óskráðum trú-
félögum verði ekki gert að greiða
gjöld hliðstæð sóknargjöldum,
án þess að þurfa eða vilja þá
[rjónustu sem ríkiskirkjan veitir.
Á aðalfundi samtakanna á dög-
unum var harðlega gagnrýnt
hversu erfiðlega gangi fyrir
óskráð trúfélög að öðlast %dður-
kenningu og því mótmælt að
umsóknir um slíkt séu sendar
guðfræðideild Háskólans til um-
sagnar.
I ályktun aðalfundar SARK
segir meðal annars: „Fundurinn
telur að ranglæti ríkistrúar bitni
mest á þeim sem eru utan trúfé-
laga og einnig þeim sem eru í
óskráðum trúfélögum. Þeir
greiða gjöld hliðstæð sóknar-
gjöldum án þess að þurfa eða
vilja þá þjónustu sem ríkiskirkjan
veitir. Þetta fólk var rúmlega 10
þúsund 1. desember 1998 og því
fer ört fjölgandi. Það ræður engu
um hvernig gjöldum þess er var-
ið. Krafan um jafnræði þessa
fólks til jafns við aðra landsmenn
um að ráða hvert gjöld þeirra
renna er krefjandi mannrétt-
indamál." — FÞG
Óskað umsagnar vegna
Akureyrítrvallar
Undirnefnd á vegum skipulagsnefndar Akureyrarbæjar óskaði nýver-
ið eftir því að íþrótta- og tómstundafulltrúi Akureyrarbæjar, Eiríkur
Björn Björgvinsson, legði fram áætlun um framtíð Akureyrarvallar
auk uppbyggingar og endurnýjunar iþróttamannvirkja f samráði við
formenn og framkvæmdastjóra íþróttafélaganna KA, Þórs og UFA.
Auk þess fylgist íþróttabandalag Akureyrar með framvindu mála.
Eiríkur Björn Björgvinsson segir að fyrstu drög að skýrslunni muni
væntanlega liggja fyrir næsta föstudag, 26. mars, en skýrslunni verði
skilað strax eftir páska. Áætlunin verður send til undirnefndarinnar
auk íþrótta- og tómstundaráðs, en fundur þess verður ekki fyrr en 13.
apríl. Fyrr verður innihald skýrslunnar ekki gert opinbert. — GG
Djöflaeyjan í New York
Kvikmyndin Djöflaeyjan í Ieikstjórn Friðriks Þórs
Friðrikssonar, var frumsýnd nýlega í Angelica kvik-
myndahúsinu í New York og hefur fengið jákvæða
dóma. Myndin er í almennri dreifingu og verður á
næstunni sýnd í öllum stærstu borgum Bandaríkj-
anna.
Mörg skíðaslys
Tveir slösuðust á skíðum í Bláljöllum um helgina þar af hryggbrotn-
aði kona eftir samstuð við skíðamann. Mörg alvarleg slys hafa orðið
að undanförnu ekki síst hjá iðkendum skíðabretta. Þar af hafa nokkr-
ir slasast alvarlega að undanförnu skv. frétt Ríkisútvarpsins.
Harpa styrkir áfram
Harpa nf. auglýsir eftir umsóknum um styrki í formi málningar til
verkefna á vegum líknarfélaga, sjálfboðaliða, þjónustufélaga, menn-
ingarsamtaka og annarra er vilja fegra umhverfi sitt. Þetta er í annað
skipti sem Harpa ákveður að úthluta til ýmissa verkefna. I fyrra fengu
13 aðilar alls 2500 lítra af málningu að verðmæti einnar milljónar
króna.
Friðrik Þór
Friðriksson.