Dagur - 23.03.1999, Blaðsíða 6
6 - ÞRIOJUDAGUR 23. MARS 19 9 9
rD^tr
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstodarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: í.soo kr. Á mánuði
Lausasöluverd: íso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simar augiýsingadeiidar: (REYKJAVfK)663-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang augiýsingadeiidar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6i7i(AKUREYRl) 551 6270 (reykjavík)
NATO á tímaniótimi
í fyrsta lagi
Sérsveitir gráar fyrir járnum ganga hús úr húsi í leit að skæru-
liðum. Skjóta karlmenn sem þeir finna en hrekja konur og
börn út í snjó og kulda vetrarins. Brenna síðan húsin þeirra -
hvert húsið af öðru þar til allt þorpið er orðin ein brunarúst.
Halda þá áfram að næsta þorpi og byija harmleikinn upp á
nýtt. Tugþúsundir flóttamanna neyðast til að horfa á heimili
sín eyðilögð, þorp eftir þorp lagt í rúst. Nei, þetta er ekki gam-
alkunnug lýsing á útrýmingaraðferðum nasista í síðari heims-
styrjöldinni. Þetta eru morðsveitir Slobodans Milosevics að
„hreinsa til“ í Kosovó.
í öðru lagi
Ekkert af þessu kemur á óvart. Um leið og viðræðum um lausn
Kosovó-deilunnar var frestað í Frakklandi fyrir nokkrum vik-
um bárust fréttir af liðssafnaði Milosevics. Öllum, þar á með-
al leiðtogum vestrænna ríkja, var ljóst að ný herferð gegn
Kosovó-Albönum var í uppsiglingu. Það var aðeins spurning
um daga. Samt héldu leiðtogar NATO sig við sama halta
göngulagið. Héldu áfram að tala eins og þeir vissu ekki það,
sem allir aðrir vita, að orð hafa aldrei haft nein áhrif á Milos-
evic frekar en Adolf Hitler. Afleiðingarnar eru þær sömu nú og
þá; mannlegar hörmungar sem hægt var að koma í veg fyrir.
í þriðja lagi
NATO stendur nú á tímamótum. Ekki vegna þess að það á
fimmtíu ára afmæli. Ekki vegna þess að nokkrar austurevr-
ópskar þjóðir hafi gengið til liðs við bandalagið. Nei, NATO
stendur á þeim tímamótum að trúverðugleiki þess er í hættu.
Ef „friðarbandalag" sem lýtur forystu öflugustu stórvelda
heimsins kann engin ráð til að stöðva hermdarverk valdasjúks
lítilmennis á borð við Milosevic, mun það afhjúpa sig frammi
fyrir veröldinni sem ómerkilegt pappírstígrisdýr. Því verður
vart trúað að leiðtogar NATO ætli að gefa bandalaginu slíka
afmælisgjöf.
Elias Snæland Jónsson
Lenín lifir!
Garri hefur Iengi dáðst að fé-
laga Lenín og alltaf verið á leið-
inni að skoða jarðneskar leifar
hans í grafhýsinu í Moskvu. Nú
virðist sem það geti verið orðið
of seint - það var víst í fréttum
um daginn að einhveijir sér-
ffæðingar ætluðu að fara að
gera við kallinn, enda hafði
honum nánast ekkert verið
haldið við frá því hann var
smurður á sínum tíma. En
heiðri Leníns er þó upphaldið
með slíkum bravör hér á Is-
landi þessa dagana að það er
hreint ekki eins aðkallandi að
fara alla leið til Rússíá að votta
honum virðingu sína. Lýðræð-
islegt miðstjórnarvald - eitt af
þessum lenínísku hugtökum
sem urðu heimsfræg á dögum
þriðja alþjóðasambands-
ins en hafa síðan Ient í
gengisfellingum og van-
virðu á þessum síðustu
og verstu tímum - hefur
nú verið vakið til vegs á
ný og Garri vill votta
Lenín virðingu sína með
því einfaldlega að fagna
endurreisn hins Iýðræð-
islega miðstjórnarvalds.
Lýöræöislegt
miðstj ómarvald
Lýðræðislegt miðstjórnarvald
felst í því að miðstjórn flokks-
ins, og helst bara póliburóið,
ræður öllu sem það vill ráða
um framvindu og afstöðu
flokksins. Samhliða er hins
vegar haft í heiðri lýðræðislegt
ferli þar sem félagar geta látið
sínar skoðanir í Ijósi og hafa
áhrif á framvinduna. En vegna
sögulegra kringumstæðna er
alltaf hætta á að hinn almenni
flokksmaður rétt eins og öreig-
arnir almennt úti í þjóðfélag-
inu hafi „falska stéttarvitund"
eða það sem kallað hefur verið
„false consiousness". Sem sh'k-
ir ganga þeir ómeðvitað erinda
afturhaldsaflanna og borgara-
stéttarinnar og gætu orðið
dragbítur á þróunina þar sem
framleiðsluöflin sprengja af sér
framleiðsluafstæður þjóðfé-
lagsins. Því er vissara að polit-
buróið, og jafnvel bara aðalrit-
arinn einn, taki allar endanleg-
ar ákvarðanir um málin. Þær
ákvarðanir geta verið í sam-
ræmi við hið lýðræðislega ferli
og það gæti líka verið í ósam-
ræmi við það - allt eftir atvik-
um.
Föðurleg leið-
sögn
Þannig má segja að lýðræðis-
Iegt miðstjórnarvald sé Iýðræði
með föðurlegri Ieiðsögn mið-
stjórnarvaldsins, sem
passar upp á að pöpull-
inn fari sér ekki að voða.
Lenín veitti þessa leið-
sögn framan af og svo
tóku aðrir við. En rétt í
þann mund þegar þessi
tegund stjórnmála var
Lenín. að falla í gleymskunnar
dá, Lenín kominn á við-
gerðarverkstæði og
Garri farinn að óttast að Iýð-
ræðislegt miðstjórnarvald
myndi aldrei heyrast aftur
nefnt, er það vakið upp með
fítonskrafti í Norðurlandskjör-
dæmi eystra á íslandi.
Föðurleg leiðsögn pólit-
burósins að sunnan leiddi um
helgina til þess að leiðrétt voru
hin skelfilegu mistök þeirra
sem kusu í prófkjöri flokksins á
sínum tíma að hafa rangan
mann í efsta sæti. Það er ljóst
að Garri mun gera hvað hann
getur til að styðja þennan nýja
lista - þó ekki væri nema bara
til að heiðra minningu Leníns
nú þegar hann gengur í gegn-
um erfiða tíma á viðgerðarverk-
stæðinu. GARRI
JÓHANNES
SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Lýðræði er loðið og teygjanlegt
hugtak. Lýðræðið þykir reyndar
ýmsum svo mikilvægt að þeir
telja ófært að láta lýðinn
ráðskast með það með einum
eða öðrum hætti. Slíkir leggja
því fremur stund á einhverskon-
ar málamyndalýðræði, lýðræði í
orði en ekki á borði og Iýðnum
talin trú um að hann ráði. Ef
hinsvegar lýðurinn ræður „vit-
Iaust“ og fer villur vegar að dómi
hinna sjálfskipuðu eða „lýðræð-
islega“ kjörnu leiðtoga, þá er
snarlega gripið í taumana. •
Ráðamenn vantreysta oftar en
ekki lýðnum og telja almenning
yfirleitt ekki hafa þekkingu eða
vit til að taka „réttar“ ákvarðanir.
Það er m.a. ástæðan fyrir tregðu
þeirra til að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um mikilvæg mál.
Og því að söfnuðum er ekki
lengur treyst til að velja sér
presta að Ieiðtoga lífs síns. En til
að viðhalda þjóðsögunni um lýð-
ræðið fær almenningur stundum
Málamyndalýðræði
að kjósa um áfengisútsölur, til
sveitarstjórna og Alþingis. Og
svo eru auðvitað prófkjör haldin
í nafni Iýðræðis.
Krukkað í leikreglur
Prófkjarafíknustu
flokkar hafa jafnan
gumað mikið af Iýðræð-
isást sinni og fordæmt
þá sem vilja fremur
brúka fámennar upp-
stillingarnefndir við
röðun á framboðslista.
Og tala þá gjarnan um
að flokkseigendur ráði
öllu, en ekki al-
menningur eða hinn
óbreytti flokksmaður. Einkum
hafa þessar raddir verið áberandi
meðal vinstrimanna. En þar á
bæ er reyndar lýðræðisástin
nokkuð blendin þegar grannt er
skoðað.
Samfylkingin á Norðurlandi
eystra blés í lúðra fyrir nokkrum
vikum og boðaði til galopins
prófkjörs og að sjálfsögðu undir
formerkjum hins heilaga lýðræð-
is. En ekki leið á löngu áður en
farið var að krukka í fyrirfram
samþykktar leikreglur prófkjörs-
ins. Allaballar á Akur-
eyri sáu að Húsvíkingur
var sjálfkjörinn í 2. sæti
listans, sem var auðvit-
að óhæft og því var Ak-
ureyringi skutlað inn á
listann eftir að próf-
kjörsfrestur rann út. Og
virtist nú allt í lukkunn-
ar velstandi og lýðræðið
tryggt eftir þessa smá-
vægilegu lagfæringu
leiðtoganna.
Uppáskriftalýðræði?
En þetta var falsvon. Því heimsk-
ur lýðurinn kaus ekki í samræmi
við vilja flokkseigenda, lýðurinn
kaus vitlausan mann til forystu!
Sigbjörn Gunnarsson, krata sem
hefur staðið sig vel sem sveitar-
stjóri í Mývatnssveit og þótti
dugandi þingmaður á Alþingi á
sínum tíma. Sigbjöm hefur hins-
vegar lent í fjárhagskröggum
vegna uppáskrifta, eins og svo
margir Islendingar. Og virðist
raunar nauðsynlegt að fá slíkan
mann á þing, m.a. til að vinna að
því að afnema það siðleysi og
ábyrgðarleysi sem felst í uppá-
skriftakerfi lánastofnana.
Enginn minntist reyndar á
fjárhagskröggur Sigbjörns í kosn-
ingabaráttunni, einfaldlega
vegna þess að hann átti ekki að
vinna prófkjörið og.því óþarfi að
eyða á hann púðri. En eftir próf-
kjörið fóru hin ,föstu skotin að
dynja á sigurvegaranum. Og nú
hefur honum verið bolað af list-
anum.
Lýðræðið er, eins og áður
sagði, alltof mikilvægt til að láta
lýðinn ráðskast með það. Og eins
gott að Olafur Ragnar Grímsson
var ekki í verulegum uppáskrifta-
vandræðum þegar hann var kjör-
inn forseti Islands.
Sigbjörn Gunnars-
son.
SÐBttfei
svaurað
Hviida áhrifhefurbrott-
hvatf Sigbjöms Gunn-
arssonar aflista Sam-
fylkingarinnar á Noiður-
landi eystra?
(Frambjóðendur á Norður-
landi eystra spurðir)
Valgerður Sverrisdóttir
1. sæti á lista FramsóknarJMtks.
„Það er erfitt að
átta sig á því, en
þetta er afar sér-
kennilegt mál
þar sem Sig-
björn Gunnars-
son sigraði í
prófkjöri fylk-
ingarinnar og nú er búið að
hrekja hann út af listanum. Um
framhaldið hef ég ekki mikið að
segja á þessari stundu."
Örlygur Hnefill Jónsson
2. sæti á lista Samjylkingar.
„Eg veit ekki
hver þessi áhrif
nákvæmlega
verða og vil ekki
draga fram
neinar niður-
stöður í þessu
máli, það er
uppstillinganefndar og kjördæm-
isráða að gera. Það kemur mér
hinsvegar ekki á óvart að Sig-
björn bakki út úr þessu, það voru
búnir að vera erfiðleikar í far-
vatninu og með þessari ákvörðun
sinni tel ég að Sigbjörn hafi ver-
ið að höggva á hnútinn sem
myndast hafði.“
Halldór Blöndal
1. sæti á lista Sjálfstæðisjlokks.
„Við Sigbjörn
Gunnarsson
unnum vel sam-
an meðan hann
átti sæti á Al-
þingi og einnig
hef ég átt gott
samstarf við
hann sem sveitarstjóra í Mý-
vatnssveit - og um hann hef ég
ekki nema gott eitt að segja. Um
það sem gerst hefur að undan-
förnu innan Samfylkingarinnar
hef ég ekki heyrt annað en sögu-
sagnir, en það er ljóst að þeir
flokkar sem að henni standa eru
mikið breyttir frá því sem áður
var. Innan Alþýðuflokksins nýtur
Sigbjörns trausts einsog niður-
stöður prófkjörsins á dögunum
sýndu og það er ljóst að þessu
brotthvarfi hans nú munu fylgja
sárindi. Það er líka Ijóst að Svan-
fríður Jónasdóttir á ekki þær ræt-
ur í Alþýðuflokknum sem Sig-
björn á.“
Arni Steinar Jóhannsson
2. sæti á lista VG á Norðurlatidi
„Ég held að
mjög erfitt sé að
gera sér grein
fyrir því og ég
upplifi mikið los
á fólki vegna
þessara Sam-
fylkingarmála
þannig að ég tel að fylgið geti í
raun farið hvert sem er úr því
sem komið er.“
eystra.