Dagur - 23.03.1999, Side 8
8 - ÞRIDJUDAGUR 23. MARS 1999
-D™$«r
ÞRIDJUDAGU R 23. MARS 1999 - 9
FRETTA SKYRING
Fara burt í góðærmu
JOJIAX
DOTTIR
VALGERÐUR
NS-
Undanfarin áx hefur
umtalsverður fjöldi ís-
lendinga flutt af landi
brott og það gerist
þrátt fyrir góðæri til
sjávar og sveita. Kenn-
ingar eru uppi um að
það sé einkum ungt
menntafólk sem fari
til útlanda þar sem
þvi bjóðist betri kjör.
Háskólinn gekkst fyrir viðamiklu
málþingi um helgina um búsetu á
Islandi þar sem lærðir menn og
Ieikir ræddu hinar ýmsu hliðar á
byggðaþróun hér á landi. Undan-
farin misseri hefur mjög verið
rætt um fólksflóttann af lands-
byggðinni til höfuðborgarinnar og
leiðir til þess að sporna gegn því
að landið sporðreisist eins og það
er gjarnan kallað. Fólk flytur hins
vegar ekki bara utan af Iandi til
höfuðborgarinnar heldur fer
einnig í stórum stíl til útlanda
eins og fram kom í erindi Stefáns
Ólafssonar, forstöðumanns Fé-
lagsvísindastofnunar.
Búferlaflutiiingar íslendiuga
til útlanda
Umtalsverður fjöldi fólks hefur
gjarnan flutt til útlanda í kjölfar
efnahagsþrenginga hér á landi.
Fram kom í erindi Stefáns á mál-
þinginu að þetta hefði t.d. gerst
árin 1969 og 1970 eftir hrun síld-
arstofnsins og þrengingar á er-
lendum fiskmörkuðum. Einnig
fluttu margir af landi brott í kjöl-
far kjaraskerðingar 1975 og
1983.
Undanfarna fjóra áratugi hafa
oftast flutt fleiri Islendingar til
útlanda en til landsins á ári
hvetju. Aðeins sex ár af tímabil-
inu frá 1961 til 1998 komu fleiri
íslendingar til landsins en yfir-
gáfu það. Á fjórum árum var það
nokkurn veginn jafnt en á 27 af
37 árum fluttu fleiri íslendingar
úr landi en til Iandsins.
Burt í góðærinu
„Alls hafa tapast rúmlega 14.000
íslendingar til útlanda á tímabil-
inu öllu eða tæplega íbúafjöldi
Akureyrar. Frá 1991 til 1998 hafa
tapast 4.119 Islendingar úr landi
ogmetárið 1.995 fluttu um 1.600
fleiri frá landinu en til þess. A
móti kemur að nærri 3.000 út-
lendingar fluttu til landsins á ár-
unum 1991-1998 og á tímabilinu
öllu frá 1961 hafa 5.690 fleiri út-
lendingar flutt til landsins en frá
því. Þróunin í þessum efnum á
allra síðustu árum virðist eðlis-
ólík fyrri brottflutningshrinum
vegna þess að þær fyrri tengdust
yfirleitt kjaraskerðingartímum en
nú hefur talsvert tapast af íbúum
í góðærinu. Það er svo að hluta til
bætt upp með aðflutningi er-
lendra farandverkamanna,“ sagði
Stefán.
Það er viðtekið áhyggjuefni í umræðunni um búsetuþróun í landinu að straumur fólks liggi suður til Reykjavíkur. Stefán Ólafsson hefur nú kynnt nýjar tölur sem sýna að Ijöldi fólks er á leiðinni til útlanda. - mynd brink.
Hreyfanlegra fólk
Stefán segist ekki hafa skýr svör
við því hvað valdi því að umtals-
verður hópur Islendinga flytjist
úr landi þótt mikil uppsveifla sé í
efnahagslífinu. Ymsir hafi bent á
að ungt menntafólk sé að verða
mun hreyfanlegra en áður var og
hafi Vesturlönd öll undir þegar
það velji sér búsetu. „Eg get ekki
staðfest að það sé að gerast af því
ég hef ekki nákvæmar upplýsing-
ar um hvaða þjóðfélagshópar
þetta eru sem eru að fara. Það var
smábylgja af fiskvinnslufólki sem
fór til Danmerkur í kringum
1995 en það er bara hluti af
þessu. Það eru allar líkur til þess
að þama sé í umtalsverðum mæli
um að ræða ungt fólk og ekki
hvað síst menntafólk. Það er mín
tilgáta en ég get ekki sannað hana
á þessu stigi,“ segir Stefán.
Hann segir að ef til vili sé hér
um of stutt tímabil að ræða til
þess að hægt sé að draga mjög
miklar ályktanir af því. Sérstaða
síðustu ára í samanburði við fyrri
hrinur af brottflutningi frá land-
inu sé hins vegar mjög athyglis-
verð. „Fyrri brottflutningshrinur
eru yfirleitt tengdar efnahags- og
kjaraþrengingum hér heima og
hafa komið árinu eftir að harðn-
aði á dalnum"
Anægðir með lífið
Stefán segir að þegar Islendingar
séu spurðir almennt segist þeir
ánægðir með lífið og hamingju-
samir, en þegar spurt sé um
hversu ánægt fólk sé með fjár-
hagsafkomu sína sé talsvert ann-
að uppi á teningnum. „Við stönd-
um verr að því leyti gagnvart ná-
grannaríkjunum," segir hann.
íslendingar sem lokið hafa há-
skólanámi eru mjög óánægðir
með fjárhagsafkomu sfna miðað
við það sem gerist meðal sam-
bærilegra hópa í öðrum ríkjum
OECD, samkvæmt gögnum Fé-
lagsvísindstofnunar. íslendingar
eru óánægðastir allra ásamt
Frökkum í þessu tilliti. Þegar bor-
in eru saman svör fólks sem lokið
hefur skyldunámi eða minna
koma íslendingar betur út. Þar
eru þeir rétt fyrir ofan meðaltal.
Stefán segir að sér þyki veruleg
ógnun fólgin í þessum niðurstöð-
um. Langskólagengið fólk „virðist
vera óánægðara hér á landi með
fjárhagsafkomuna heldur en sam-
bærilegir þjóðfélagshópar í flest-
um nágrannalandanna. Og þegar
það fer saman að það fólk er
hreyfanlegra en aðrir liggur í
kortunum að við stöndum veik
hvað snertir þáð að halda í þetta
fólk sem á að byggja upp allt sem
á að gerast í framtíðarþjóðfélag-
Hlutur hátælcniimar lítill
Það hefur verið mikil gróska í
ýmsum hátæknigreinum, eins og
t.d. hugbúnaðariðnaði og fyrir-
tæki sem byggja á þekkingu og
hugviti, eins og t.d. Islensk erfða-
greining, Marel og fleiri, verið að
gera það gott. Ymsir hafa talið að
tilkoma fyrirtækja af þessu tagi
hafi orðið til að stöðva atgervis-
flótta úr landinu og jafnvel orðið
til að kalla íslendinga búsetta í
útlöndum heim í stórum stíl. Töl-
ur Stefáns um brottflutning sýna
hins vegar að svo er ekki.
„Auðvitað er það fagnaðarefni
að hugbúnaðariðnaðinum hefur
gengið vel. Utflutningstekjur af
hugbúnaði hafa verið að aukast
umtalsvert og íslensk erfðagrein-
ing er auðvitað bráðmyndarlegt
og mikilvægt nýmæli hér. Hins
vegar þegar maður lítur á stærri
myndina og spyr um hlutfall
starfa á Islandi í hátæknigreinum
og um heildarútflutningstekjur af
hátæknigreinum og ber það sam-
an við önnur OECD lönd er Is-
land mjög neðarlega á blaði. Þó
að við séum að fara í rétta átt og
það sé gróska í hugbúnaðar- og
tölvuiðnaði, upplýsingaþjónustu
og líftækni, á það við um ná-
grannalöndin líka. Það er alls
staðar mikill uppgangur r öllu
sem tengist tölvu. Það er verið að
netvæða skosku hálöndin. I
gömlum handverkskofum í
skosku fjöllunum eru tölvumenn
að nema land og auglýsingahönn-
uðir og hugbúnaðargeiramenn
eru farnir að hreiðra um sig þar
og stunda sín viðskipti þaðan.
Þetta er að gerast hér líka en ég
hef ekki séð neitt sem hefur sann-
fært mig um að þetta sé að gerast
jafnhratt hér og í nágrannalönd-
unum. Að minnsta kosti er hluti
hátæknigreina hvers konar mjög
Iítill á íslandi samanborið við ná-
grannalöndin. Nýjustu tölur frá
OECD sýna það.“
Framtíðin í þekkingarMskap
Stefán segir að það séu flestir
sammála um það á Vesturlöndum
að þekkingarbúskapur hvers konar
verði uppspretta nýrra atvinnu-
tækifæra og nýrrar verðmætasköp-
unar í framtíðinni. „Þess vegna
verður menntafólk mikilvægt f
framtíðinni og þess vegna er svo
hættulegt ef okkur tekst ekki að
hafa samkeppnishæf skilyrði fyrir
slíkt fólk hér. Það er margt sem
gengur ágætlega hér en þetta
framlag mitt var kannski hugsað
sem viðvörunarljós og áeggjan um
að það þurfí að ganga lengra í
þessa átt.”
Eigum möguleika
Og Stefán er ekki hræddur um að
ísland verði endilega undir í þess-
ari samkeppni.
„Eg hef nú þrátt fyrir allt mikla
trú á að ísland eigi möguleika. I
upplýsingasamfélagi framtíðarinn-
ar þarf ekki allt að byggjast á
stærðarhagkvæmni. Þetta byggir
ekki á risafyrirtækjum eða stórum
samsteypum. Litlar einingar eiga
alla möguleika í þessum heimi
tölvuþjóðfélagsins og upplýsinga-
hagkerfisins. Það er kannski ein-
mitt í því sem bjartar vonir Islands
liggja á þessu sviði. Island hefur
einnig margt að bjóða í lífsgæðum
og við eigum tvímælalaust tæki-
færi. Það væri rangt að halda öðru
fram. Eins og staðan er í dag er
hins vegar verulegur skortur á
menntuðu fólki hér á landi á þess-
um vaxtarsviðum. Það er ýmsu
verulega áfátt í menntakerfinu hér
til þess að innleiða þetta og ná upp
gæðastaðli. Við eigum heilmildð
verk fyrir hendi til að halda okkar
stöðu og bæta hana.“
FRETTIR
Afleit
eyjar
Með kaupmn Skiuu-
eyjar og Þingeyjar á
meirihluta í Borgey
verður til félag með
10.378 þorskígildis-
touna kvóta.
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæk-
ið Borgey á Hornafirði var rekið
með tapi á síðasta ári. 317 millj-
óna króna tap var af reglulegri
starfsemi á árinu 1998. Oreglu-
legar tekjur eru einkum vegna
sölu allra hlutabréfa Borgeyjar í
fiskimjölsverksmiðjunni Oslandi
en með sölu hlutabréfanna
hverfur samstæðureikningur fé-
Iagsins. Þessar óreglulegu tekjur
gera það að verkum að tap fé-
lagsins á árinu 1998 nam 183
milljónum króna.
I áætlun félagsins fyrir fyrstu
sex mánuði ársins var gert ráð
fyrir að afkoma af reglulegri
starfsemi yrði tap sem næmi 27
milljónum króna. Niðurstaðan
var tap sem nam 44 milljónum
króna sem var 17 milljónum
króna meira en ráð var fyrir gert.
I rekstraráætlun félagsins fyrir
allt árið 1998 var gert ráð fyrir
45 milljóna króna hagnaði. For-
sendur áætlunarinnar á síðari
hluta ársins brustu þar sem síld-
veiðarnar brugðust nær algjör-
lega, en síldarverkun er burðarás
í starfsemi félagsins á haustmán-
uðum. Hráefni til saltfisk-
vinnslu var einnig mun minna
en gert var ráð fyrir. Nettóskuld-
ir félagsins nema 1,4 milljörðum
króna og hafa aukist um 52
milljónir króna milli ára. Tölu-
vert gekk á eigið fé félagsins en
eiginfjárhlutfallið er nú 11 pró-
sent, var 17 prósent.
Árið 1998 var annað árið í röð
þar sem erfiðleikar voru með
hráefnisöflun. Helst var það
aflabrestur í síldveiðum, lítil
þorskveiði utan vertíðar, mikill
samdráttur í veiðum á flatfiski,
auk þess sem verkfall sjómanna
afkoma Borg-
á Homafírði
hafði veruleg áhrif á hráefnisöfl-
unina í upphafi árs. Efnahags-
hrunið í Rússlandi dró einnig
verulega úr tekjumöguleikum fé-
Iagsins en framleiðsla á síld og
loðnu fyrir þann markað var eng-
in á haustmánuðum. I Iok janú-
armánaðar sl. keyptu Skinney og
Þinganes um 58 prósent hluta-
fjár í Borgey af KASK, Horna-
fjarðarbæ og Lífeyrissjóði Aust-
urlands í þeim tilgangi að sam-
eina félögin sem verður frá síð-
ustu áramótum en sameiginlega
voru þau með um 34 prósent af
allri loðnufrystingu í landinu.
Með sameiningunni verður til
félag með 10.378 þorskígildis-
tonna kvóta borið saman við um
4.375 þorskígildistonna kvóta
Borgeyjar og skipastóllinn 8 skip
en búast má við að eitthvað
fækki í honum í hagræðingar-
skyni. — GG
o
pin samkeppni
um gerð kvikmyndahandrits
um Menntaskólann í Reykjavík
Hinn 3. maí 1996 var stofnsettur Afmælis-
sjóður Nemendasambands Menntaskólans
í Reykjavík, í tilefni af 150 ára afmæli skól-
ans, í því skyni að láta gera heimildarkvik-
mynd um skólann og nemendur hans.
Talsvert fé hefur safnast til verkefnisins og
mikið er til af skrifuðu efni og myndum, en
nú vantar hugarflugið til að gera úr þessu
kvikmynd, sem í senn er skemmtileg og
góð heimild um skólann.
Hér er um að ræða kærkomið tækifæri
fyrir þá, sem standa að hinni öru þróun
kvikmyndalistar á íslandi.
Samkeppnisskilmálarnir eru þessir:
1. Samkeppnin er öllum opin.
2. Hæfileg lengd myndarinnar 45 til 60
mínútur.
3. Efni myndarinnar þarf aö spanna öll 150
ár skólans.
4. Gera þarf skil eftirfarandi megin þáttum:
a) Hlutverk og þýðing skólans í þróun
samfélagsins.
b) Líf nemenda innan og utan skólans.
Þátttakendur skulu fyrst skila inn á einni
örk, A4, með höfundarnafni, hvaða tökum
þeir hyggjast taka verkefnið (verkefnislýs-
ing), en einnig eigin nafni í sérstöku með-
fylgjandi lokuðu umslagi.
Þátttakendur hafa nokkrar vikur til að
Ijúka verkefnislýsingu sinni og skulu
hafa skilað henni eigi síðar en hinn 1.
apríl 1999 til
Inga R. Helgasonar
F.h. Afmælissjóðsnefndar
Hagamel 10
107 Reykjavík.