Dagur - 10.07.1999, Blaðsíða 2
t 2~ Í.)IU GÁRDAÚtJtt 1Ú l r}tití 1 9$ 9
rDnptr
FRÉTTIR
íslenskir laeknar hafa komist að þeirri niðurstöðu að magasár séu líklega sjúkdómur aldamótakynslóðarinnar og því að deyja út.
Era magasár
að deyja út?
Magasár eru m£klu al-
gengari í íslendingum
fæddum á árunum 1900-
1930 heldur en þeini sem
fæddust bæði fyrr og síð-
ar.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að blæð-
andi magasár og dauðsföll af þeirra
völdum hafa allar götur síðan verið
miklu algengari meðal þeirra íslend-
inga sem fæddust á fyrstu þrem ára-
tugum þessarar aldar, heldur en bæði
meðal þeirra sem fæddust eftir þetta
tímabil og fyrir það. Þessi mjög breyti-
lega tíðni magasára milli fæðingarár-
ganga er talin benda til þess að um-
hverfisþættir snemma ævinnar ákvarði
hvort ætisár komi fram síðar á ævinni.
„Að þessum fæðingarárgöngum gengn-
um fækkar sennilega ætisárum, einnig
meðal aldraðra," segja vísindamenn-
irnir, en hafa þó þann fyrirvara að nýir
umhverfisþættir kunni að breyta þeirri
spá; einkum gigtarlyf, reykingar og
kannski óþekktir þættir.
MiMl þrengsli og lítið hreinlæti
„Ætisár á Islandi Sjúkdómur alda-
mótakynslóðarinnar?" Undir þessari
fyrirsögn segja læknarnir Bjarni Þjóð-
Ieifsson og Hildur Thors á lyflækninga-
deild Landspítalans ásamt norskum
starfsbróður frá rannsókninni í Lækna-
blaðinu (1999; 85) og varpa þar fram
spurningunni: Hvað gerðist á íslandi
upp úr aldamótunum sem skapaði þau
skilyrði að fæðingarárgangamir báru
með sér háa tíðni ætisára í gegn um
ævina'?
Og tilgáta þeirra er sú, að í kjölfar
geysimikilla búferlaflutninga úr sveit-
um landsins í þéttbýli, þegar hreinlæti
var hvað minnst og þrengsli hvað mest,
hafi fleiri börn á Islandi verið útsett
fyrir H. pylori sýkingar og í meira
magni en á öðrum tímum Islandssög-
unnar. Það hafi svo orsakað ætisár í
mörgum þeirra síðar á ævinni. Niður-
stöður sambærilegra erlendra rann-
sókna, m.a. í Noregi, styðja þetta, en
þar í landi fæddust „magasáraárgang-
arnir“ nokkru fyrr.
Úr 14:% upp í 51% á 30 ánun
Á Islandi var fram til aldamóta ríkjandi
bændasamfélag, þar sem hver fjöl-
skylda var meira og minna sjálfstæð
eining. Upp úr aldamótunum hófust
búferlaflutningar úr dreifbýlinu í þeim
mæli að á næstu 30 árum hækkaði
hlutfall íbúa í þéttbýli (200 íbúar eða
fleiri) úr 14% landsmanna f 51%. „Á
þessum árum var húsakostur þröngur
og vant mengað. Banvænar sýkingar
voru mjög algengar en eftir 1920 dró
úr þeim,“ segja greinarhöfundar. Það
hafi þannig verið 20-30 ára tímabil frá
því flutningar úr sveitum hófust þang-
að til húsnæðisþrengsli og hreinlæti
fór að batna í þéttbýlinu. „Þær kyn-
slóðir sem höfðu háa tíðni ætisára voru
einmitt fæddar á þessu árabili. Þetta
skýrir aukna og síðan minnkandi tíðni
ætisára á þessari öld“. — HEI
Stundum er sagt að
útvarpsráð, þ.e.a.s.
meirihlutinn þar
ásamt útvarpsstjóra, ráði fréttamenn og aðra
starfsmenn á fréttastofu Sjónvarpsins eftir
flokksskírteini fremur en hæfileikum. Sjálf-
stæðismenn hafa sagt þvert nei við slíkum full-
yrðingum og samsæriskenningum, oftar en einu
sinni og tvisvar. En það verðtn: líklega erfitt íyr-
ir Magnús Þór Gylfason, fréttamann, að sveija af
sér hláa litinn því pottverjar hafa sannreynt að á
heimasíðu á Netinu yfir notendur netfanga (is-
gatt.is) er Magnús skráður með netfang í Valhöll;
magnus@xd.is. Hreinna og beinna getur það
vart orðiðL.
Amiar fréttamaður er nú að garfa
í málefnum ungra sjálfstæðis-
manna, sem sé Gísli Martcinn
Baldursson. Þannig háttar að
tveir hafa boðið sig fram til for-
manns hjá SUS á þingi sem haldið
verður í ágúst, Jónas Þór
Guðmundsson, lögfræðingur og
varaformaður SUS, og Sigurður Kári
Kristjánsson laganemi. Gísli er nánasti stuðn
ingsmaður Sigurðar Kára ásamt Hannesi
Hólmsteini Gissurarsyni...
Þaó vakti athygli pottverja sein
horfðu á myndir af farþegum
Atlantaflugvélarinnar sem fékk
ináfinn í skrúfuna bíða á flugvcll-
inum í Keflavík, að þar var
Þorsteinn Þorsteinsson simdlaug-
arvörður á Akureyri. Þorsteinn er
frægur fyrir að spá í veður út frá
hegðxm fugla og er fuglaveðurspá hans lesin í
svæðisútvarpi Norðurlands alla mánudaga. Nú
velta menn því fyrir sér fyrir hvers konar veðri
það sé þegar mávur flýgur inn í hringiðu
þotuhreyfils halda helst að það hljóti að boða
Þorsteinn
Þorsteinsson.
Gísli
Marteinn
Baldursson.
FR É T TA VIÐTALIÐ
Eiríkur
Brynjólfsson
talsmadur kennara íReykjavík, sem
sagt hafa upp stöifum
Ljóst þykirað skólastarfí
Reykjavík verói meira og
minna í molum í haust vegna
uppsagna kennara. Leiðbein-
endurfást ekki í stað þeirra
250 kennara sem sagt hafa
upp stöifum.
Nú rödr taugastríð í keimaradeilunni
- Er alger kyrrstaða í kennaradeilunni eða
glittir einhvers staðar í lausn?
„Því miður er staðan algerlega óbreytt.
Það hefur ekkert nýtt gerst og við okkur er
ekkert talað. Hinar 250 uppsagnir kennara
hjá skólum borgarinnar eru í fullu gildi og
aðeins 11 hafa dregið uppsagnir sínar til
baka og þarf af eru tveir sem sóttu um
launalaust leyfi til að kenna í nágranna-
sveitarfélögum.
- Það er ekkert annað en laun sem deil-
an snýst um eða hvað?
„Við teljum að það sé verið að auka á okk-
ur vinnu með auknu foreldrasamstarfi, með
skólanámskrá sem verið er að smíða í hveij-
um skóla og síðan leggur nýja námskráin
aukna vinnu á okkur. Þetta eru rökin fyrir
launakröfum okkar sem eru 230 þúsund
krónur á ári, sem við settum fram í vetur er
leið. Síðan kom upp hugmynd um tilrauna-
samning milli Reykjavíkurborgar og skóla í
Reykjavík en hún fór út um þúfur. Reykja-
víkurborg krafðist þess að alíur kennsluaf-
sláttur yrði þurrkaður út. Menn fá kennslu-
afslátt eftir 15 ára starf og eftir 55 ára aldur
og 60 ára aldur. Á móti var boðin kaup-
hækkun en þessi hugmynd var algerlega
slegin af.“
- Hvað eru kennarar við grunnskólana í
Reykjavík niargir?
„Fastráðnir kennarar eru um 1100 en
1400 allt í allt. I 14 skólum sagði enginn
upp en í 25 skólum hafa kennarar sagt upp
og það er alveg frá einum eða tveimur og
uppí á milli 20 til 30. Og aðeins 33 hafa sótt
um þessar 250 stöður sem auglýstar hafa
verið, þar af um helmingur leiðbeinendur
og sumir hafa sótt um fleiri en eina stöðu."
- Borgarstjóri hefur sagt að ef kennarar
sækja ekki um störfin þá verði leiðbein-
endur ráðnir í þeirra stað. Liggja þeir á
lausu?
„Nei, því fer fjarri að leiðbeinendur liggi á
lausu og auk þess hlýtur maður að spyrja
um metnað borgaryfirvalda. Er ekki Reykja-
vík menningarborg árið 2000 og er ekki
menntun hluti af menningunni?“
- Það hefur ekki gerst að kennarar út á
landi sæki um stöðumar í Reykjavík, því
þar hafa til þessa færri komist að en vilja?
„Við höfum ekki orðið vör við það. Við
höfum meira að segja dæmi um það að
kennari sem sótti um stöðu í einum skóla
borgarinnar spurði hvort staðan hefði losn-
að af öðrum orsökum en uppsögn kennara
og þegar honum var sagt að svo væri sótti
hann um.“
- Veistu hvort margir af þessum 250
kennurum sem sögðu upp hafa sótt um
stöður út á landi?
„Það veit ég ekki um. Menn sögðu upp
hver á sínum forsendum. Sumir eiga þá von
að komast aftur í vinnuna sína í borginni í
haust vegna þess að það er alveg ljóst að
skólastarf í borginni fer ekki í gang nema
kennarar séu til staðar.“
- Skortur á kennurum hefur lengi verið
til staðar og þá helst á landsbyggðinni. Er
það vegna launamála eða útskrifast offáir
kennarar frá Kennaraháskólanum?
„Ég þykist viss um að um launaspursmál
sé að ræða. Það eru til nógu margir kennar-
ar í landinu og ef þeir vildu allir vinna við
kennslu kæmust færri að en vilja. En því má
heldur ekki gleyma í þessu sambandi að
kennsla er gríðarlega erfitt starf.“
- Aá lokum Eiríkur, hvert verður næsta
skrefið í þessari deilu?
„Við metum það svo að taugastríð sé í
gangi. Og þegar svo er þá er það spurningin
hvor aðilinn gugnar á undan og við ætlum
okkur ekki að gugna. Nú tekur við bið og
eftir bið leika menn biðleik í skák.“
- S.DÓR