Dagur - 17.03.2000, Side 13
FÖSTUDAGUR 17. UARS 2000 - 13
ERLENDAR FRÉTTIR
Ný stjóm Stolten-
bergs kynnt í dag
„Ráöherrakapallinn“
er í þann veginn að
ganga upp.
Jens Stoltenberg ætlar að skíra
frá ráðherralista nýjn ríkisstjórn-
arinnar í Noregi í dag, en hann
hefur nú haft eina viku til þess
að mynda nýja stjórn. Kjell
Magne Bondevik, fráfarandi for-
sætisráðherra, lét af völdum í
síðustu viku eftir að stel’na
stjórnarinnar varð undir í at-
kvæðagreiðslu um umhverfismál
á þinginu.
Ríkisstjórn Stoltenbergs verð-
ur minnihlutastjórn, líkt og
stjórn Bondeviks. Verkamanna-
flokkurinn er með 65 þingmenn
af alls 165 á norska þinginu, og
þarf því að reiða sig á stuðning
eða a.m.k. hlutleysi annarra
flokka til þess að geta komið mál-
um í gegnum atkvæðagreiðslu á
þinginu.
Miklar vangaveltur hafa verið í
norskum fjölmiðlum síðustu
daga um það hverja Stoltenberg
hyggst velja til liðs við sig í
stjórninni, en sjálfur hefur Stolt-
enberg að mestu verið þögull
sem gröfin. Hann hefur þó sagt
að „ráðherrakapallinn", eins og
norskir fjölmiðlar kalla giímuna
við að setja saman ríkisstjórnina,
verði að ganga upp í dag, föstu-
dag.
Framan af var talið að Karl
Eirik Schjptt-Pedersen, fyrrver-
andi sjávarútvegsmálaráðherra
Noregs, yrði Ijármálaráðherra í
nýju stjórninni, en hugsanlega
gæti svo farið að Bjorn Tore Go-
Jens Stoltenberg.
dal, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, setjist í stól fjármálaráð-
herra.
Einnig er talið líklegt að Thor-
björn Berntsen verði umhverfis-
ráðherra, en hann hefur áður
gegnt því embætti. Hann er ákaf-
ur umhverfisverndarsinni og
gæti bætt úr þeim skaða sem
orðinn er á ímynd Verkamanna-
flokksins í umhverfismálum eftir
deiluna um gasorkuverið.
Svo virðist sem umhverfismál-
in geti orðið Verkamannaflokkn-
um hvað þyngst í skauti, til að
byrja með að minnsta kosti. Um-
hverfisverndarsinnar hafa lýst
megnri óánægju sinni með það
hvernig flokkurinn tók á
gasorkuverinu, og hafa heitið
harðri baráttu gegn þeirri stefnu
stjórnarinnar að láta reisa verið.
Þá er talið að Hanne Harlem,
systir Gro Harlem Brundtland,
verði dómsmálaráðherra í nýju
stjórninni.
Skýrt var frá því í gær að um
100 manns hafi látið skrá sig í
Verkamannaflokkinn undanfarna
daga, en ósagt var látið hvort ein-
hveijir þeirra séu að gera sér
vonir um ráðherraembætti á veg-
um flokksins.
Stoltenberg hefur sagt að auk
þess að skýra frá ráðherralista
nýju stjórnarinnar í dag, verði
einnig tilkynnt um nýja ráðu-
neytisstjóra í sumum ráðuneyt-
unum.
Heriim í viðbragðsstöðu
Chen Shui-bian, einn þriggja forsetaframbjóðenda sem helst þykja eiga
möguleika.
Spennan inilli Kíii
verja og Taívanbúa
eykst dag frá degi, en
forsetakosningar
verða haldnar í Taív-
an um helgina.
I Taívan verða haldnar forseta-
kosningar nú á sunnudaginn.
Kínverjar hafa ekkert sparað
þrýstinginn á kjósendur í Taívan
um að kjósa nú „rétt“, þ.e. velja
ekki frambjóðanda sem vill Iýsa
yfir sjálfstæði Taivans, og hafa
þeir gengið svo Iangt að hóta
stríði ef niðurstaðan verður þeim
ekld að skapi.
Spennan milli ríkjanna hefur
farið vaxandi dag frá degi, og í
gær var herinn í Taívan settur í
viðbragðsstöðu. Þá hafa Kínverj-
ar varað Bandaríkjamenn við því
að blanda sér inn í deilurnar og
koma í veg fyrir að Taívan sam-
einist Kína. Bæði Bandaríkin og
Japan hvöttu hins vegar báða að-
ila til þess að fara sér varlega og
vera ekki að ögra hvor öðrum að
óþörfu.
Kínverjar líta svo á að Taívan
sé í raun hérað í Kína og vilja
endurheimta það með formleg-
um hætti hið fyrsta. Taívan er
eyja, rétt um það bil 128 km út
af strönd Kína, og tilheyrði Kína
þangað til kommúnistar gerðu
byltingu og gamla stjórnin flúði
þangað fyrir um hálfri öld.
Taívan hefur aldrei formlega
lýst yfir sjálfstæði, og nýtur ekki
viðurkenningar sem sjálfstætt
ríki. Stefna núverandi stjórn-
valda á Taívan er að sameinast
Kína síðar meir, þegar Iýðræðis-
legri stjórnarhættir hafa verið
teknir þar upp. Svo virðist sem
almennt séð séu Taívanir sáttir
við þessa stefnu, þótt sjálfstæðis-
kröfur hafi heyrst og séu jafnvel
á stefnuskrá sumra forsetafram-
bjóðenda.
Einn frambjóðendanna, Chen
Shui-bian, sem býður fram fyrir
Lýðræðislega framfaraflokkinn,
hefur opinberlega Iýst yfir stuðn-
ingi við sjálfstæði. Asamt honum
njóta tveir aðrir frambjóðendur
mestra vinsælda samkvæmt
skoðanakönnunum, en það eru
þeir Lien Clian, framhjóðandi
Þjóðarflokksins, sem nú farið
hefur með völdin í Taívan í hálfa
öld, og svo James Soong, óháður
frambjóðandi sem nýlega sagði
skilið við Þjóðarflokkinn.
Þetta er í annað sinn sem
frjálsar forsetakosningar eru
haldnar í Taívan.
Vilja sömu skaðabætur og Gyðingar
ÞYSKALAND - Sintar og rómar í Þýskalandi, öðru nafni sígaunar,
krefjast þess að jafn mikið tillit verði tekið til þeirra og Gyðinga þeg-
ar greiddar verða skaðabætur fyrir þrælavinnu á dögum þýsku nas-
istastjórnarinnar og seinni heimsstyrjaldarinnar. Þegar hefur verið
samið um að Gyðingar fái 10 milljónir þýskra marka í skaðabætur, en
það er andvirði rúmlega 360 miiljóna króna. Enn standa þó yfir deil-
ur milli þýskra stjórnvalda og fyrirtækja um það hver hlutdeild ríkis-
ins verður í þessari Ijárhæð. Krafa Gyðinga um skaðabætur komust
aftur á dagskrá þegar þýsku ríkin sameinuðust árið 1991, en þá var
sett ákvæði í sameiningarsáttmálann um að greiða skuli skaðabætur
til fórnarlamba nasistastjónarinnar
Taílendtngar brenna rottuhala
TAÍLAND - I gær hrenndu Taílendingar rottuhölum í milljónalali, en
það var liður f trúarlegri athöfn sem á að veita Iandsmönnum eins
konar syndaaflausn fyrir þann glæp að drepa nagdýrin. Rotturnar
hafa verið drepnar í stórum stíl undanfarið til þess að koma í veg fyr-
ir smitsjúkdóma, en sá galli er á að samkvæmt ríkjandi trúarbrögðum
þar í landi, búddisma, er bannað að drepa rottur. Heilbrigðisráðu-
neytið greiðir hins vegar dálitla upphæð fyrir hverja rottu, sem getur
verið góð búbót fyrir Iandsmenn.
Færeyingar
kynna sjálfstæð-
istillögur
DANMÖRK - Landsstjórnin í
Færeyjum hyggst eiga fundi
með dönskum stjórnvöldum f
dag til þess að kynna fyrir þeim
drög að fullveldissamningi, þar
sem gert er ráð fyrir því að
Færeyjar slfti sambandinu við
Danmörku og verði sjálfstætt
ríki. Þó er gert ráð fyrir að Fær-
eyjar og Danmörk verði með
sama konung, og að sama mynt
verði notuð í báðum ríkjunum.
Fyrirmynd þessarar tillögu er
að verulegu leyti fengin frá
sambandslögum Islands og
Danmerkur frá 1918. Ekki er
þó samstaða um þessa tillögu
meðal Færeyinga, og stjórnarandstöðuflokkarnir eru ósáttir við
hana. Þeir vilja að ríkjasambandi Færeyja og Danmerkur verði ekki
slitið.
Pout Nyrup Rasmussen ætiar að hlus-
ta á fimm fulltrúa færeysku lands-
stjórnarinnar í dag.
Sprengjuefni fundust í bifreið
NORÐUR-IRLAND - Lögreglan á Norður-írlandi fann um það bil
250 kíló af sprengiefni í hifreið, sem stöðvuð var suðvestur af Belfast
á miðvikudag. Þrír menn hafa verið í yfirheyrslum hjá lögreglunni, og
er talið að þeir tengist hryðjuverkahóp kaþólskra sem er andvígur
friðarsamkomulagi á Norður-lrlandi og vopnahléi Irska lýðveldis-
hersins. Flest samtök á Norður-Irlandi, sem hafa haldið uppi vopn-
aðri baráttu þar, hafa í raun haldið vopnahlé þótt ekld sé full sátt um
framkvæmd friðarsamkomulagsins sem gert var fyrir nærri tveimur
árum.
Osama bin
Laden að dauða
kominn?
AFGANISTAN - Sádi-arabíski
hryðjuverkamaðurinn Osama
bin Laden, sem lengi hefur
verið í felum f Afganistan, er
sagður liggja fyrir dauðanum.
Fréttatímaritið Asiaweek segir
að hann sé haldinn nýrnasjúk-
dómi sem sé að draga hann til
dauða. Bandaríkjamenn telja
Osama bin Laden bera ábyrgð
á ýmsum hryðjuverkum, m.a.
sprengjurárásum á bandarísku
sendiráðin í Naíróbí og
Daressalam árið 1998, sem
urðu samtals 263 mönnum að
bana. Talibanastjórnin í
Afganistan hefur ekki viljað
framselja hann til Bandaríkj-
anna.
Osama bin Laden sagður vera al-
varlega veikur.