Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Síða 2

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Síða 2
2 - Föstudagur 14. febrúar 1997 Ptgur-®mitmt Akureyri ÚA kaupir 1.200 tonn af þorski frá Lofoten Þrátt fyrir gæftaleysi í Noregi gerum við ráð fyrir að fyrsti farmurinn komi til Akureyrar 24. febrúar með leiguskipi frá Noregi, segir Guðbrandur Sig- urðsson, framkvæmdastjóri. Heiti Potturinn Ipottinum voru menn að segja skemmtisögur af viðskipta- þingi, sem haldið var í gær, m.a. eftir Geir Magnússyni, forstjóra Oiíufélagsins. Hann sagði fulltrú- um á þinginu frá því að til hans hefðu eitt sinn leitaö ungmenni, sem voru að safna styrkjum handa Þjóðarbókhlöðunni. Fyrir milljón krónu styrk bauðst Olíufé- laginu að fá gullskjöld með nafni sínu á vegg í bókhlöðunni góðu. Geir sagðist í tilefni af þessu hafa tekið það saman hversu mikið Oiíufélagið hefði greitt í sérstakan eignaskatt - Þjóðarbókhlöðu- skattinn svokallaða, sem lagður var á „tímabundið" fyrir mörgum árum. Það reyndust litlar 55 millj- ónir og þegar ungmennin komu aftur, sagði Olíufélagsforstjórinn þeim að fyrir þetta verð ætti fyrir- tækið skilið gylltan vegg og Esso merkið á þakið á Þjóðarbókhlöð- una. r Ipottinum á Hótel Loftleiðum segja menn að allir helstu hugsuðir flugsins séu frá Akureyri. Sigurður Aðalsteinsson, Flugfélagi Norðurlands (íslands), Gunnar Þorvaldsson hjá Islandsflugi og Arngrimur Jóhannsson í Atlanta. En hvað um Sigurð Helgason hérna uppi á hæðunum, var spurt. „Jú, hann er ekki í fluginu, hann er í ferða- þjónustu og flugvélasölunni." Ellert B. Schram er formaður Ólympíunefndar íslands. Hjá Alþjóðaólympíunefndinni er hins vegar til þýðing á leiðara í DV merktum Ellerti. Hann fjallaði um alþjóðanefndina í leiðara fyrir rúmum tveimur árum. Þar lýsir hann Samaranch alheimsforseta, núverandi yfirmanni sínum, svo: „Safnar um sig hirð auðsveipra viðhlæjenda og þar ráða geðþótti og duttlungar forsetans mestu ef ekki öllu. Hann ferðast um heim- inn með konunglegri viðhöfn og margar sögur eru sagðar af ríki- dæmi, bruðli og vafasömum af- skiptum Alþjóðaólympíunefndar- innar sem eru í litlu samræmi við sjálfa ólympíuhugsjónina." Þessi fleygu orð í DV eru sögð hafa vakið litia kátínu hjá alþjóðasam- bandinu. En nú getur Ellert sótt að hinum spillta forseta sínum... form Útgerðarfélags Ak- ureyringa hf. um kaup á fiski frá Norður-Noregi hafa í engu breyst þrátt fyrir mótmæli forsvarsmanna sjó- manna í norðurhluta Noregs, sem m.a. hefur mátt lesa í FISKAREN. Þar er því mótmælt að verið sé að selja fisk til Ak- ureyrar á sama tíma og verið sé að leggja niður byggð í nyrstu byggðum Noregs. Kaup íslend- inga á þorski frá Noregi hafa komið inn í viðræður íslenska og norska utanríkisráðherrans um Smuguveiðar í tengslum við heimsókn forseta íslands til Noregs og er formaður heildar- samtaka norska sjávarútvegs- ins, Oddmund Bye, sagður sátt- fúsari en oft áður. Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA, segir að þessi umræða í Noregi hafi ekki mikil áhrif á fiskkaupaáform ÚA þaðan. „Það hefur verið mikið gæftaleysi í Noregi en við ger- um ráð fyrir að fyrsti farmurinn komi 24. febrúar með litlu leiguskipi frá Noregi. Ég vona að við náum um 300 tonnum í hverri ferð skipsins, sem áætl- aðar eru fimm talsins. Þannig Hagnaður af rekstri Bún- aðarbanka íslands nam 516 millj. kr. í fyrra, að teknu tilliti til skatta. Jókst hagnaðurinn á síðasta ári um 63% frá 1995. Góða afkomu má fyrst og fremst rekja til aukinna umsvifa á árinu og minni af- skrifta útlána, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Arðsemi eigin ijár Búnaðar- ættum við að geta keypt um 1.200 tonn og er þetta fram- hald fiskkaupa frá Noregi fyrr á árinu en þá fengum við um 830 tonn til vinnslu frá Finnmörku. bankans var 8,6% á síðasta ári. Vaxtamunur lækkaði og var 4,7%. Niðurstaða efnhagsreikn- ings var 54,2 milljarðar, og er það 13% hækkun milli ára. Eig- ið fé í árslok var 4.184 millj. kr. Framlög á afskriftareikning útlána minnkuðu. AIls voru færðar 405 millj. á afskrifta- reikning útlána, en 508 millj. kr. í hitteðfyrra. Sem hlutfall af Vertíðin við Noreg er mun sunnar nú, eða við Lofoten og lýkur henni þar um miðjan apr- flmánuð," sagði Guðbrandur Sigurðsson. GG meðalstöðu efnahagsreiknings var framlagið 0,79%. Útlán í lok síðasta árs voru 39.811 milljón- ir og jukust um 17% frá fyrra ári - á sama tíma og meðal aukning banka og sparisjóða er um 11%. í árslok var hlutdeild bankans í heildarútlánum og markaðsbréfaeign innlánsstofn- ana 19,7%. -sbs. Listasafn Ólafur skipaður Menntamálaráðherra hefur skipað Ólaf Kvaran, list- fræðing, forstöðumann Lista- safns íslands til næstu fimm ára. Skipunin gildir frá 1. mars. Umsóknarfrestur um stöðuna rann út þann 1. febrúar og sóttu níu um. -sbs Jafningjafræðsla Námsmenn gegn vímu Fyrsta mars verður helgaður baráttu námsmanna gegn vímuefnum. Jafningjafræðsla framhaldsskólanna hefur nú starfað í nær eitt ár og staðið fyrir um 6000 „samtölum" eða fundum um vímuefni. Frekara starf verður kynnt á næstunni, þar sem ekki er ætlunin að gefa eftir í baráttunni. Akureyri Náttúrunýting á norðurslóð Idag verður málþing á Akur- eyri um náttúrunýtingu á norðurslóð. Þingið er á vegum umhverfisráðuneytisins og Samvinnunefndar um norður- málefni. Fjölmörg erindi verða flutt og umræður. Klukkan 9 ávarpar Guðmundur Bjarnason ráðstefnugesti. Síðan verða er- indi Haraldar Bessasonar um líf Vilhjálms Stefánssonar og Páls Skúlasonar um siðfræði og nýt- ingu náttúrunnar. Klukkan 10.30 heíjast erindi um al- þjóðasamstarf af ýmsu tagi. Eft- ir hádegi má geta nokkurra er- inda og umræðna um hvalveið- ar. Ráðstefnan er á Hótel KEA og hefst kl. 9, hún stendur til kl. 17.30 og er öllum opin. Búnðarbankinn Stóraukinn hagnaður ;fréttaviðtalið Oftúlkaðar blaðafréttir Karl Steinar Valsson afbrotafrœðingur hjá Lögreglunni í Reykjavík Á málþingi um ofbeldi meðal ungs fólks sem Ungmenna- deild Reykjavíkurdeildar RKÍ og Nordklúbburinn standa fyrir í dag, mun Karl Steinar rœða um „Þróun ofbeldis á höfuðborgarsvœðinu Karl er menntaður afbrotafræðingur frá háskóla í Kaliforníu, en starfaði um 10 ára skeið í Reykjavíkurlögreglunni. „Þetta ástand hefur alla vega gerst svakalegra í íjölmiðlunum, umijöllun þeirra spilar vissulega inn í. En í sjálfu sér verðum við ekki varir við miklar breytingar. Eitt og eitt mál sker sig úr.“ - Þannig að mynd fjölmiðla af ástandinu er ekki kórrétt mynd af ís- lenskum æskulýð? „Nei, þetta er alls ekki rétt mynd, og sem betur fer öðru nær. Grundvallar- atriðið er þetta: Við sjáum ekki neina aukningu á ofbeldisverkum sem ung- hngar fremja. Það koma upp örfá mál á hverju ári sem vekja athygli, og kannski eðilegt að slíkt fái umfjöllun, en mér finnst þetta allt oftúlkað. Það eru aðeins örfáir sem standa bak við meirihluta þessara brota.“ - Hvernig flokkast líkamsmeiðing- ar milli aldurshópa í skýrslum lög- reglunnar í Reykjavík? „Ég hef að vísu ekki samantekt um síðasta ár. En ungt fólk yngra en 18 ára hefur framið um 20% líkamsmeið- inga. Meirihluti slíkra verka hafa því verið unnin af eldra fólki en 18 ára. Aldurshópurinn 18 til 24 ára er þungamiðjuhópur, ábyrgur fyrir um það bil helmingi slíkra afbrota." - En eftir 24 ára aldurinn mildast fólkið kannski og lœtur af líkams- meiðingum? „Ekki virðist það svo, helmingur lík- amsmeiðinga er af völdum þeirra sem eldri eru en 24 ára. Dómsmálaráð- herra er að leggja fram skýrslu á Al- þingi um heimilisofbeldi og þar er komið inn á margt sem varðar þessi mál og sýnir þetta.“ - En hvernig er ástandið utan höf- uðborgarsvœðisins? „Það hefur komið fram að það er mjög svipað ástand úti á landi varð- andi líkamsmeiðingar. En umíjöllun blaða er að langmestu leyti um tilvik sem gerst hafa á höfuðborgarsvæð- inu.“ - Kemur þetta ofbeldi ungs fólksfrá heimilum þess, vegna uppeldis þess? „Það er engin algild regla til um það, en okkur sýnist frekar að ofbeldi sé að færast inn á heimilin, það er frekar að sjá þróun í þá átt.“ - Þáttur vímuefna af ýmsu tagi hlýtur að vera stór þegar líkams- meiðingar verða? „Það er ákveðin einföld lausn að vísa í áfengisneyslu eða ástand. En það er auðvitað engin spurning að í vel- flestum tilvikum slagsmála, sem við höfum afskipti af, þá er það út af fólki sem er undir áfengisáhrifum, eða í vímuefnum.“ -JBP

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.