Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Side 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Side 9
JDagur-ÍIIímmn Föstudagur 14. janúar 1997 - 9 ÞJÓÐMÁL Hin „óbrúanlega hugmyndafræðilega gjá“ Arni Finnsson skrifar Idág er haldin á Akureyri ráðstefna um náttúrunýt- ingu á norðurslóð. í kynn- ingarbréfi, sem sent var til boðsgesta, er bent á að hags- munir íslendinga felast í því að vinna gegn um- ... hverfismengun og rán- yrkju náttúruauðlinda, sem til Iengri tíma ógn- ar allri b'fsafkomu í norðri ......Síðan er spurt: Eiga íslendingar t.d. samleið með nátt- úruverndarhreyfingum eða er þar um að ræða ________ „óbrúanlega hug- myndafræðilega gjá?“ Dagskrá ráðstefnunnar gefur ekki tilefni til að ætla að svara sé að vænta frá þeirri brún gjárinnar sem undirritaður stendur á, enda er engum frá þeim gjábarmi boðið að kynna sinn málstað. Ekki er þó van- þörf á því eins og fram kemur í áður nefndu kynningarbréfi kemur fram, að forsenda gagn- rýninnar umræðu um umhverf- ismál og sjálfbæra nýtingu nátt- úruauðlinda á norðurslóð ... „er skilningur á hnattrænum breytingum, félagslegum og efnislegum, sem móta framtíð- ar möguleika íslendinga sem þjóðar“. Með hnattrænum breyting- um er átt við varanlegar breyt- ingar í lífríki jarðar, t.d. lofts- lagsbreytingar, jarðvegseyðingu eða mengun sjávar af völdum þrávirkra eiturefna; breytingar sem munu stefna tilvist fisk- veiðiþjóða við Norður-Atlants- haf í hættu. Um árabil hafa samtök á borð við Greenpeace og World Wide Fund for Nature (WWF) Hérlendir ráðamenn hafa hins vegar kinokað sér við að ræða opinberlega málefnalega sam- stöðu íslendinga og alþjóðlegra náttúruverndarsamtaka. átt sér formælendur fáa í opin- berri orðræðu hér á landi. Engu að síður fara markmið þessara samtaka og íslenskra stjórn- valda oftar saman en ekki. Dæmi um það er samþykkt er Umhverfismálastofnunar S.Þ. (UNEP) 7. þ.m. um að hefja skuli milliríkjasamninga til að koma á hnattrænum og laga- lega bindandi sáttmála til að stöðva framleiðslu á og draga úr losun á þrávirkum, lífrænum eiturefnum. Þessi ákvörðun UNEP er sig- ur fyrir Greenpeace, WWF og, ekki síst, ríkisstjórn íslands. Hérlendir ráðamenn hafa hins vegar kinokað sér við að ræða opin- berlega málefna- lega samstöðu ís- lendinga og al- þjóðlegra náttúru- verndarsamtaka. Afstaða stjórn- valda til alþjóð- legra umhverfis- verndarsamtaka markast helst af yfirlýsttmi fjaml- skap sjávarútvegs- ráðherra, ..... og forvera hans í embætti, utanríkis- ráðherra, í garð al- þjóðlegra náttúru- verndar- _____ samtaka. Allt frá því hvalveiðar í vísindaskyni hófust árið 1986 hefur sú stefna ríkt í stjórnarráðinu, að milli íslend- inga og alþjóðlegra náttúru- verndarsamtaka sé óbrúanleg hugmyndafræðileg gjá. _______ Þá þykir góð latína í _ herbúðum L.Í.Ú að út- skúfa þessum samtök- um. Þessi afstaða hefur valdið því að dregist hefur úr hömlu, að hér á landi hæfist nauðsyn- leg umræða um hnatt- rænar breytingar á líf- ríki jarðar. Hver er þá hin óbrú- Hvað verður um hvalina? anlega hugmyndafræðilega gjá milli náttúruverndarhreyfinga og íslenskra stjórnvalda? Nauð- syn lagalega bindandi alþjóð- legra samþykkta um umhverfis- íslensk stjórnvöld eru óðum að átta sig á að ekki gengur að stunda hvalveiðar í trássi við al- þjóðlegar samþykktir. Það gengur heldur ekki að stöðva mengun sjávar nema um það ná- ist lagalega bindandi samþykktir. vernd myndar ekki „óbrúanlega hugmyndafræðilega gjá“. Is- lensk stjórnvöld eru óðum að átta sig á að ekki gengur að stunda hvalveiðar í trássi við alþjóðlegar samþykktir. Það gengur heldur ekki að stöðva mengun sjáv- ar nema um það náist lagalega bindandi sam- þykktir. Svarið við spurningunni felst e.t.v. í því að íslenskum stjórnvöldum ber skylda til að leita þess sem sameinar, ekki þess sem sundrar. Sú skylda er gagnkvæm. Möðruvellir Það verður að borga sig að vinna F”P^i«n Guðlaugur Þór jpV - J Þórðarson formaður SUS í fyrsta lagi Tekjuskattskerfi okkar íslend- inga er komið í ógöngur. Gagn- rýnisröddum fjölgar og flestir gera sér ljóst að við óbreytt ástand verður ekki unað lengur. Stjórnmálamenn segjast skilja vandann og viðurkenna að end- urbóta sé þörf. En þar við situr. Gagnrýnin beinist einkum að sífellt hækkandi jaðarsköttum. Samanburður við önnur lönd innan OECD sýnir að jaðar- skattar hér á landi eru með því allra hæsta sem þekkist. En hvað er átt við með háum jað- arsköttum? Það þýðir einfald- lega það að ávinningur af því að auka tekjur verður sáralítill þegar tekið er tillit til þess hve stór hluti tekjuaukans fer í skatta og að tekjutengdar bæt- ur lækka jafnframt. Stöðugt hækkandi greiðsluhlutfall, raunlækkun persónuafsláttar og stórauknar tekjutengingar á ýmsum sviðum leiða til þess að stór hópur fólks sér engan til- gang í því lengur að auka tekj- ur sínar. Þvert á móti má finna mörg dæmi um að aukin vinna lækki ráðstöfunartekjur fólks. Viðleitni fólks til að finna sér svarta vinnu verður sterkari en ella. í öðru lagi Eftirfarandi staðreyndir um þróun staðgreiðslukerfisins frá árinu 1988 segja allt sem segja þarf: Skatthlutfallið hefur hækkað úr 35,2% í 41,98. Að auki hefur verið tekinn upp sérstakur 5% hátekjuskattur. Ef skattleysis- mörk einstaklings hefðu fylgt verðlagsbreytingum væri þau nú kr. 77.151 en miðast nú við kr .60.902. Tekjutenging ýmissa bóta og greiðslna hefur ýmist verið tek- in upp eða stóraukin. Þar má nefna: Barnabætur (barnabóta- auka), vaxtabætur, húsaleigu- bætur, ellilífeyri, afborganir af lánum LÍN. Þessar breytingar hafa leitt til þess að skattbyrði Viðleitni fólks til að finna sér svarta vinnu verður sterkari en ella. hjóna með tvö börn sem hafa 3 milljónir í árslaun 1997 er nú A.M.K 70% hærri en ef ákvæði skattalaganna frá 1988 hefðu fengið að standa óbreytt. (Með- altekjur hjóna 1995 voru 2,867 þús. kr. skv. Fréttabréfi Þjóð- hagsstofnunar nr. 5/1996) í þriðja lagi Það er alveg Ijóst að tekju- skattsgreiðendur þessa lands eru að mjög stórum hluta ungt fólk sem eru að stofna fjöl- skyldu og koma undir sig fótun- um. Til dæmis kom það í ljós í athugun fjármálaráðuneytisins árið 1994 að 60% af þeim sem greiddu þennan svokallaða há- tekjuskatt voru undir 40 ára aldri. Ungt fólk á íslandi í dag er mjög kröftug kynslóð. Mjög áberandi í atvinnulífinu og menningarlífinu, fer ótroðnar slóðir í hvoru tveggja. Við sjá- um unga stjórnendur í stórum fyrirtækjum. Við sjáum nýjum fyrirtækjum stjórnað og í eigu ungs fólks sem er að gera góða hluti bæði hérlendis og erlend- is. Sú kynslóð sem nú er að hasla sér völl hefur ekki upplif- að það að fá húsnæðislánin eða námslánin sín gefins og það má færa full rök fyrir því að hún sé að borga fyrir syndir feðranna. Einmitt þess vegna er þeim mun meiri ástæða til þess að gefa henni tækifæri á að bjarga sér. Núverandi tekjuskattskerfi gefur ekki þá möguleika og er nú svo komið að fólki finnst sjálfsagt að svíkja undan því sé þess einhver kostur. Lítilsháttar lagfæringar á kerfinu eru ekki til neins. Á því verður að vera algjör uppstokkun með það að markmiði að einfalda skattkerf- ið og leyfa fólki að njóta ávaxta erfiðis síns. ÞAÐ VERÐUR AÐ BORGA SIG AÐ VINNA í ÞESSU LANDI!

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.