Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Síða 2
2 - Þriðjudagur 15. apríl 1997
JUtgur-'ðlmmm
Heiti Potturinn
Flugmálaáætlun er til um-
ræðu á Alþingi og í pott-
inum var verið að segja frá
umræðum á kaffistofunni um
þessa framkvæmd. Þá kom
fram sú skýring frá ónefnd-
um þingmanni að Halldóri
Blöndal hafi verið sagt að
það væri ekki hægt að lengja
flugvöllinn nema setja á hann
beygju og frekar en ekkert
hafi ráðherrann látið breikka
völlinn. Jón Kristjánsson var
þarna að fá sér kaffi og orti
að bragði í orðastað Halldórs
Blöndal:
Ekki neinn skeður er skaðinn
það skerðist ei framkvæmdahraðinn.
Ég iínuna tók,
og iegg ekki krók,
en breikka hann bara ístaðinn.
Mikill feginleiki braust út
á ritstjórn Dags-Tím-
ans þegar KA náði bikarnum
á laugardag. Ekki er nóg
með að flestir starfsmenn
séu stuðningsmenn, heldur
var klínt á blaðið í heitri grein
í vetur að slakt gengi liðsins
um hríð væri því að kenna.
Nýja blaðið væri ekki jafn
hollt og gamla Dags- útgáfan
fyrir KA. Vaxandi gengi KA
hefur vakið mikla gleði á
blaðinu og nú spyrja menn
nokkuð roggnir: Hverju reið-
ast goðin nú?
Mikið pat varð í Reykja-
vík á laugardag þegar
smáborgarar og aðrir sem
annt er um að vera „inni“
uppgötvuðu að þeir höfðu
reiknað tískusýninguna í
Flugskýlinu rangt. Flestir
höfðu ætlað þetta prump og
ekki staðfest komu, en þegar
tók að kvisast hvað væri í
gangi tóku menn óspart upp
símann til að boða komu
sína. Tæplega 200 VIP (very
important persons) náðu að
komast inn.
Sjá frásögn á bls. 15.
Fatasöfnun
Gríðarlegar undirtektir hafa verið við fatasöfnun Hjálparstofnunarinnar. Tekið verður áfram við fötum miili kl. 12
og 16 virka daga í Súðarvogi 1, Reykjavík og í Glerárkirkju á Akureyri þar sem þessi mynd var tekin. Ásta Hrönn
Björgvinsdóttir, starfsmaður Hjálparstofnunarinnar, sést hér halda á góðum gjöfum frá góðhjörtuðum Akureyr-
ingum. Mynd: GS
Skemmur og gámar
yfirfyllast af fötum
Söfnun heldur
áfram út apríl.
Tugir þúsunda flóttamanna
í Evrópu og Afríku munu
eftir nokkrar vikur klæðast
fatnaði, sem íslendingar hafa
gefið til Hjálparstofnunar kirkj-
unnar. Fatasöfnun til bágstaddra
í heiminum fór fram úr öllum
vonum um helgina. Örtröð var á
söfnunarstöðum sem auglýstir
voru á Qórum stöðum á landinu.
En reyndin varð sú að miklu víð-
ar var safnað. Menn tóku sig til
og byrjuðu söfnun á eigin vegum
og sendu suður til Reykjavíkur
stórar fatasendingar. Söfnun
heldur áfram út mánuðinn.
Konur í Mývatnssveit töldu
ófært að vera ekki á landakort-
inu í söfnuninni. Þær hófu að
safna um helgina og voru í gær
að senda stóra sendingu suður.
Kvenfélagið á Selfossi og Selfoss-
kirkja tóku höndum saman og
settu á eigin vegum upp mót-
tökustöð fyrir notaðan en heilan
fatnað og skó. Viðbrögðin voru
gríðarlega góð, stór sendiferða-
bíll var væntanlegur í dag til
Reykjavíkur með varninginn.
Víðar komu menn til hjálpar
Hjálparstofnun kirkjunnar og
tóku til að safna að eigin frum-
kvæði. Meðal annars í Stykkis-
hólmi þar sem Vöruflutninga-
miðstöðin tók við fatnaði og flyt-
ur hann frítt til Reykjavíkur.
í Súðarvogi í Reykjavík fylltist
stór skemma um helgina, og bú-
ið að fá aðra í næsta nágrenni. Á
Akureyri safnaðist ótrúlegt
magn af fatnaði og allt að yfir-
fyllast þar, íjórir 20 feta gámar,
hvorki meira né minna.
Páll Stefánsson og Anna Ól-
afsdóttir hjá Hjálparstofnuninni
sögðu í gær að á sumardaginn
fyrsta yrði leitað ásjár lands-
manna við að koma fötunum á
áfangastað. Gíróseðlar verða
sendir til 50 þúsund heimila þar
sem óskað er eftir aðstoð við að
koma fötunum á áfangastaðina.
Framlagið kann líka að verða til
þess að kaupa megi hreinlætis-
vörur, orkukex og skólapakka til
handa flóttafólkinu sem býr við
ömurleg kjör. -JBP
Vestmannaeyjar
Allt ótryggt
Einbýlishús við Skólaveg í
Vestmannaeyjum gjöreyði-
lagðist í eldi í Eyjum í morgun-
sárið á laugardaginn. Eigandinn
vaknaði við reykskynjara í hús-
inu en tókst ekki að brjóta gler í
svefnherberginu sem er á efri
hæð til að komast út. Lögreglu-
þjónn á frívakt, sem var á morg-
unskokki, varð eldsins var. Hann,
ásamt lögregluþjóni sem var að
koma af vakt, fann stiga fyrir til-
viljun við húsið og tókst að brjóta
rúðuna og bjarga manninum úr
brennandi húsinu við illan leik.
Talið er að kviknað hafi í út frá
sjónvarpi. Allt innanstokks er
ónýtt og var allt ótryggt. ÞoGu
ísafjörður
Átta teknir
Lögreglan á ísafirði gerði tals-
vert magn fíkniefna upptækt
þegar leit var gerð í húsi í bæn-
um á laugardag. Alls fundust um
130 grömm af hassi, 11 grömm
af amfetamíni, tæplega 7 grömm
af maríjuana og um 100 kanna-
bisplöntur voru í ræktun í húsinu
undir þar til gerðum gróður-
lömpum.
Óskað var eftir gæsluvarð-
haldsúrskurði yflr einum hinna
handteknu en því var hafnað og
var öllum sleppt á sunnudag. At-
hygli vakti að einn hinna hand-
teknu var 72 ára gamall.
Hafnarfjörður
Sjópróf enn
óákveðin
Sjópróf vegna Hauks SF, 17
tonna eikarbáts, sem fórst
suður af Hornarfirði á fóstudags-
kvöld, hafa enn ekki verið
ákveðin. Báturinn sökk rétt eftir
að þriðji og síðsti áhafnarmeð-
limur komst í gúmmíbjörgunar-
bát. Skipverjar á Hafborgu SF
sem var í um 4ra mflna fjarlægð
heyrðu neyðarkall og komu skip-
brotsmönnunum til bjargar.
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Of hægt farið í sameiningarmálum
Jóhanna Sigurðardóttir
formaður Þjóðvaka
Menn fara sér of hœgt í samein-
ingunni á vinstri vœng stjórnmál-
anna, að mati formanns Þjóð-
vaka. Ekki sjálfgejið að Jóhanna
fari fram fyrir Alþýðuflokkinn, ef
ekkert verður úr samfylkingunni.
„Ef svo slysalega tekst til að ekkert
verði úr sameiginlegu framboði félags-
hyggjuflokkanna, er lang líklegast að
ég mæli með því að Þjóðvaki bjóði
fram aftur. Það eru ýmsir möguleikar í
stöðunni og þá yrði ég bara að vega
það og meta, eftir því hvernig málin
þróast á kjörtímabilinu. En það er
langt því frá sjálfgefíð að ég gangi til
liðs við Alþýðuflokkinn."
- Þú sagðir í viðtali við Útvarpið um
helgina. að það gœti allt eins verið að
þú gengir til liðs við Alþýðubandalag-
ið. Hvers vegna?
„Það hafa orðið verulega jákvæðar
breytingar á flokknum undir stjórn
Margrétar Frímannsdóttur, en það sem
hefur vantað er helst að hún hafi fylgt
þeim nægjanlega eftir og að hún hafi
tekið af skarið í þessum sameiningar-
málum. En það er Iykilatriði í mínum
huga hversu mikil alvara flokknum
hefur verið í sameiningarmálunum. Ég
geng ekki til liðs við Alþýðubandalagið
ef það liggur fyrir að það hafi staðið í
veginum.“
- Þið hafið þrýst mjög á Kvenna-
listakonur að ganga til liðs við þing-
flokk Jafnaðarmanna, ekki rétt?
„Jú og mér finnst Kvennalistinn
deigur að þora ekki að taka áhættuna
og þess vegna eru þær í þessari tilvist-
arkreppu. í þeirra sporum myndi ég
láta slag standa og prófa að ganga til
liðs við þingflokk Jafnaðarmanna. Fyr-
ir því eru mörg og gild rök, m.a. þau
að þá yrðu konur í meirihluta í þing-
flokknum í haust í fyrsta sinn í stjórn-
málasögunni.“
- Er komið eitthvert örvœntingar-
hljóð í sameiningarumrœðuna?
„Undanfarnar vikur hefur verið
nokkur biðstaða eða bakslag í þessu
öllu saman. Mér finnst menn ekki átta
sig nægjanlega vel á því að stundaglas-
ið er að falla á okkur. Ef menn hafa
ekki hreyft sig meira eða rætt af alvöru
um pólitíkina í þessu, þá standa þeir
frammi fyrir því í haust að farið verður
að huga að sveitarstjórnarkosningum
og sameining á landsvísu fer þá í
ákveðna biðstöðu. Þegar menn svo
taka málið upp aftur eftir sveitar-
stjórnarkosningar að ári, er mjög lítill
tími til stefnu fram að þingkosningum.
Þess vegna vil ég að menn fari að ræða
pólitíkina í þessu af alvöru. Menn eru
alltaf að ræða það sem sameinar, en
fara ekki í það sem ágreiningur er um
eða hvernig við viljum formfesta þessa
sameiningu. Menn koma sér alltaf hjá
því að ræða það. Síðan á það við um
báða A-flokkana að þegar þeir fá sjálf-
ir byr í skoðanakönnunum, þá verða
þeir sjálfumglaðir og segja „Nú get
ég-“
- Yrði það ekki algjört rothögg á
þessa sameiningarumrœðu alla, ef
ekki tekst að fylkja flokkunum saman í
nœstu kosningum?
„Jú og niðurlæging fyrir flokkana.
Þeir eru allir búnir að tala um þetta
árum saman. Og flokkur eða flokkar
sem verða uppvísir að því að standa í
vegi fyrir sameiningu munu gjalda
þess í næstu kosningum." -vj