Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Síða 5
Jlagur'SbttxmT
Þriðjudagur 15. apríl 1997 - 5
Watson er útlægur frá
íslandi um aldur osr ævi
F R E T T I R
Sea Shepard
Watson á leið í grjótið á sínum tíma, verður honum refsað með hvalkjöti í Noregi? Mynd. s
Málinu gegn honum
er formlega lokið og
útilokað að óskað
verði eftir framsali á
honum til íslands.
Paul Watson, foringi Sea
Shepard, er „persona non
grata“ á íslandi eins og það
er kallað á fagmáli diplómata.
Honum er óleyfilegt að stíga fæti
á íslenska jörð um aldur og ævi.
Watson er í haldi í HoUandi, og
framsals krafist í Noregi.
Af hálfu dómsmálaráðuneyt-
isins var slaufa sett á mál Wat-
sons í fyrra, málinu formlega
lokið með endurkomubanni.
Flestum mun þykja ljóst að
menn Watsons undir stjórn
Coronados nokkurs, sökktu
tveim hvalbátum í Reykjavíkur-
höfn og unnu auk þess mikil
spellvirki í hvalstöðinni í Hval-
firði árið 1986. Grunur hefur
leikið á þátttöku íslendinga í
þessum verkum.
Handtekinn
Paul Watson reyndi að nálgast
íslendinga nokkrum árum eftir
hermdarverkið, sem hann hafði
lýst vera á ábyrgð samtaka
sinna. Þá var hann handtekinn
við komuna til Keflavíkurflug-
vallar og fluttur til yfirheyrslu
og sat eina nótt í Síðumúlafang-
elsi, en síðan fiuttur á flugvöll
og kvaddur. Ætlun hans var að
sitja áróðursfund á Hótel Borg.
í yfirheyrslunum neitaði
Watson að hafa komið nærri
hermdarverkinu og að menn-
irnir sem að því stóðu væru sér
óviðkomandi. Sagðist hann hafa
notfært sér verknaðinn til að
krækja í meira fé til samtak-
anna. Honum var vísað úr landi
þegar ljóst var að engu tauti
yrði við hann komið og mun
ekki fá landvist hér framar.
Kristján heitir á
Hollendinga
„Ég held að af okkar hálfu sé
ekkert hægt að gera. Það er ann-
að mál í Noregi þar sem hann
var á svæðinu þegar skemmdar-
verkin voru unnin, það er sann-
að. Hann var líka skipstjóri og
stjórnaði öllu þegar dallurinn
þeirra keyrði á varðskipið Anda-
nes. Þau málaferli eru alveg eft-
ir. Nú mega Hollendingarnir ekki
klikka á þessu,“ sagði Kristján
Loftsson, forstjóri Hvals hf., við
Dag-Tímann. Fyrirtæki hans
varð fyrir miklu tjóni um árið,
án efa vegna aðgerða sem Sea
Shepard skipulagði.
Á heimasíðu Sea Shepard á
Internetinu segir að Watson
muni ekki sleppa lifandi, verði
hann framseldur til Noregs, slík
sé heiftin í hans garð þar.
„Norskur vinur minn sagði
að Watson fengi tvöfalda pín-
ingu í Noregi, haldið inni í 120
daga - og hvalkjöt í öll mál,“
sagði Kristján Loftsson. -JBP
Akureyri
Rætt um byggðaþróun
Þróun byggðar á íslandi
- þjóðarsátt um fram-
tíðarsýn, er yfirskrift
ráðstefnu um byggðamál sem
haldin verður á Akureyri 22.
og 23. apríl. Ráðstefnan, sem
er öllum opin, er haldin á
vegum landshlutasamtaka
sveitarfélaga, Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og
Byggðastofnunar.
Tuttugu erindi verða flutt á
ráðstefnunni. Þar verður
íjallað um þróun byggðar á
Islandi með áherslu á fram-
tíðarsýn og áhersla lögð á „að
um hana geti náðst víðtæk
sátt, hvort sem það er
byggðastefna, menntastefna
eða landnýtingarstefna.
Áherslan er að fá fram mynd
af byggðarlegri stöðu innan-
lands og einnig stöðu byggðar
almennt á íslandi í framtíð-
inni, nú þegar ungt fólk getur
alveg eins sest að erlendis ef
því bjóðast betri hlutir þar,“
einsog segir í tilkynningu.
Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, flytur ávarp í upp-
hafi ráðstefnu. Meðal ann-
arra erinda má nefna Hólmar
Svansson, deildarstjóra inn-
kaupadeildar SH á Akureyri,
sem flallar um nýja sam-
skiptatækni og möguleika og
takmarkanir hennar. Þor-
steinn Gunnarsson, háskóla-
rektor á Akureyri, Ijallar um
æðri menntastofnanir og mik-
ilvægi nýrra menntunartæki-
færa og forstöðumaður hjá
Eimskip ræðir um stöðu og
hlutverk atvinnufyrirtækja.
Viðskipti
Sj óvá-Almennar
kaupa Ábyrgð
íþróttir
15 milljóna tap á rekstri
fímleikafélagsins Gerplu
Samningar hafa tekist um
kaup Sjóvár-Almennra hf.
á eignarhlut Ansvars, vá-
tryggingafélagi bindindismanna
í Svíþjóð, á tryggingafélaginu
Ábyrgð hf. Fyrir áttu Sjóvá-Al-
mennar 49% hlutafjár í Ábyrgð,
en eiga það nú að fullu. Starf-
semi félagsins verður óbreytt
fyrst um sinn, en gert er ráð
fyrir sameiningu félaganna síð-
ar á árinu.
Sjóvá-Almennar eignuðust
fyrst eignarhlut í Ábyrgð hf. ár-
ið 1991 og hefur á síðustu ár-
um annast ýmsa þjónustu við
félagið. - Síðasta ár var eitt hið
besta í tæplega 40 ára starfi
Ábyrgðar hf. Heildariðgjöld
voru um 340 millj. kr., hagnað-
ur af rekstri um 27 millj. kr. og
eigið fé var í árslok um 128
millj. kr. Iljá félaginu starfa um
þessar mundir sjö fastir starfs-
menn og kemur ekki til upp-
sagna þeirra þrátt fyrir kaup
Sjóvá-Almennra.
-sbs.
„Alvarlegt stjórnleysi,
óreiða og sukk,“ segja
gagnrýnendur Gerplu
sem hefur sótt um
styrk Kópavogsbæjar.
Stjórn eins öflugasta
fþróttafélags Kópavogs,
Iþróttafélagsins Gerplu, er
harðlega gagnrýnd fyrir „alvar-
legt stjórnleysi, óreiðu og sukk“
í rekstri félagsins. Ljóst er að
innan félagsins er ótti um að til
gjaldþrots félagsins kunni að
koma. Rekstrarhalli undanfar-
inna ára er sagður um 15 millj-
ónir króna, jafnvel meiri. Krist-
ján Erlendsson, formaður
Gerplu, er ósammála gagnrýn-
endum stjórnarinnar. Aðalfundi
hefur verið frestað í tvígang, en
verður haldinn innan skamms
að sögn Kristjáns.
„Eins og mörg önnur félög
hefur þetta félag átt í íjárhags-
erfiðleikum undanfarin ár. Við
erum núna að fara yfir þetta
með bænum, hvernig brugðist
verður við til frambúðar. En ég
get fullyrt að í rekstrinum hefur
ekki verið um að ræða sukk,“
sagði Kristján Erlendsson.
Kristján sagði að fimleika-
íþróttin væri dýr íþrótt, þar eð
þar væri hver þjálfari með litla
hópa, einkum í áhaldafimleikum.
„Við höfum staðið frammi
fyrir þeirn vanda að láta æf-
ingagjöld barnanna standa
undir þjálfarakostnaði. Því er
það mikilvægt að fá inn gjöldin,
en það hefur reynst erfitt og
ýmsar ástæður fyrir því. Við
höfum fram til þessa valið þá
leið að láta ákvarðanir foreldr-
anna um að greiða ekki æfinga-
gjöld bitna ekki á krökkunum.
Við getum hreinlega ekki staðið
frammi fyrir því að segja við 7
ára barn að pabbi borgi ekki
æfingagjöldin og barnið megi
ekki æfa hjá okkur. Það er and-
stætt eðli íþróttanna. Kannski
verðum við að snúa frá þessari
stefnu," sagði Kristján í gær.
Kristján Erlendsson sagði að
hann vissi af hópi innan félags-
Gerpla á hausnum?
ins sem væri að blása upp
vandamálin. En stjórnin væri
ákveðin í að ráðast gegn vand-
anum og Gerpla yrði hér eftir
sem hingað til sterkt félag í fim-
leikum. Kristján sagði það frá-
leitt að íþróttalegur árangur
Gerplu hefði dalað. Þar væru
sveiflur í kvennaflokki, en
strákarnir stæðu sig þeim mun
betur. -JBP
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
Sími 462 6900
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, 3.
hæð, Akureyri, föstudaginn 18. apríl
1997 kl. 10, á eftirfarandi eignum:
Hafnarstræti 100, A-hl.-401, Akur-
eyri, þingl. eig. Geymslusvæðið
ehf., gerðarbeiðendur Akureyrar-
bær, Byggingarsjóður ríkisins, hús-
bréfad. og Samvinnusjóður íslands.
Hafnarstræti 100, hluti af lóð, Akur-
eyri (45,44 fm.), þingl. eig.
Geymslusvæðið ehf., gerðarbeið-
andi Akureyrarbær.
Hrísalundur 20j, Akureyri, þingl.
eig. Ingigerður Einarsdóttir, gerðar-
beiðandi Búnaðarbanki íslands.
Skeið, eignarhl. Svarfaðardals-
hreppi, þingl. eig. Þóra Vordís Hall-
dórsdóttir, gerðarbeiðandi Greiðslu-
miðlun Visa Island.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
14. aprll 1997.