Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Side 6
J[kgur-®farráttt
6 - Þriðjudagur 15. apríl 1997
FRÉTTASKÝRING
Valgerður
Jóhannsdóttir
skrifar
Níu bankastjóra-
stödur og nokkrir
forstjórastólar losna
á næstu misserum.
Tilgátur, plott, makk
og umræður í heitu
pottum landsmanna
sýna að eftir miklu er
að slægjast.
s
næstu misserum losna
eða verða til ýmsar álit-
legar stöður í íslensku
samfélagi. Um er að ræða:
- Þrjár forstjóra- eða fram-
kvæmdastjórastöður í stórum
fyrirtækjum,
- Níu bankastjórastöður, þar
af einn Seðlabankastórastóll.
Oft hefur farið titringur um
kerfið fyrir minna.
Landsvirkjun og
Friðrik?
Halldór Jónatansson, sem verið
hefur forstjóri Landsvirkjunar
frá 1983, lætur af því starfi um
áramótin. Gert er ráð fyrir því í
reglum um stjórn Landsvirkj-
unar að menn hætti við 65 ára
aldur, en Halldór féllst á að
vera til ársloka. Friðrik Sophus-
son, fjármálaráðherra, hefur
ítrekað verið orðaður við for-
stjórastólinn í Landsvirkjun.
Friðrik hefur ekki viljað við
þetta kannast og margir telja
að hann vilji ekki yfirgefa fjár-
málaráðuneytið fyrr en honum
hafi tekist að skila ríkissjóði
hallalausum a.m.k. einu sinni.
Aðrir benda á að svona góður
„stóll“ losni ekki á hverjum degi
og ekki sé að undra að litið sé
til Friðriks, sem hafi m.a. verið
iðnaðarráðherra og þekki vel til
Landsvirkjunar. Halldór Krist-
jánsson, núverandi ráðuneytis-
stjóri iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytisins, hefur einnig ver-
ið nefndur til sögunnar. Hann
nýtur hylli ráðherrans Finns
Ingólfssonar.
Ný stjórn tekur við í Lands-
virkjun í júni og það verður
hennar að fjalla um nýjan for-
stjóra. Svavar Gestsson, Al-
þýðubandalagi, fullyrti einmitt í
umræðum á Alþingi nýlega að
fyrirhugaðar breytingar á skip-
an stjórnar fyrirtæksins, væru
liður í pólitískum hrossakaup-
um stjórnarflokkanna. Þeir ætli
að skipta á milli sín forstjóra-
stólnum og stjórnarformennsk-
unni.
Stefán Ólafsson í
Járnblendið?
Stóll framkvæmdastjóra Járn-
blendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga losnar fljótlega, því Jón
Sigurðsson, sem þar hefur ráð-
ið ríkjum í 20 ár, er að hætta.
Norska fyrirtækið Elkem á nú
meirihluta í Járnblendinu, en
forsvarsmenn þess hafa lýst yfir
að ráðinn verði íslenskur eftir-
maður Jóns. Stefán Ólafsson,
forstöðumaður Félagsvísinda-
stofnunar og stjórnarmaður í
Járnblendinu, er sagður sækj-
ast mjög stíft eftir því að verða
eftirmaður Jóns. Nafn núver-
andi stjórnarformanns, Jóns
Sveinssonar, er einnig nefnt.
Hann er gjörþekkir fyrirtækið
og hefur sterka stöðu í Fram-
sókn. Eini gallinn við þessa
kenningu er að það er talið
frekar ólíklegt að hann vilji
starfið. Annar lítt þekktur
kandidat er einnig nefndur: Jón
Fenger, sonur Hilmars Fenger,
heildsala í Reykjavík.
RÚV plott aftur?
Þá er eitt „brauð" ótalið, en það
er útvarpsstjórinn. Eins og
menn muna var Pétur Guð-
finnsson, framkvæmdastjóri
Sjónvarps, settur útvarpsstjóri í
1 ár, frá og með síðustu ára-
mótum. Ein kenningin er að
stofnuninni verði skipt, eins og
nefnd á vegum menntamála-
ráðherra lagði eitt sinn til, í út-
varp og sjónvarp. Þá er gengið
út frá því að Tómas Ingi Olrich
verði útvarpsstjóri, Bogi
Ágústsson, fréttastjóri verði
sjónvarpsstjóri og Elín Hirst
taki við fréttastjórn.
Bankastjórastólar í
röðum
En það er ekki síst í banka-
stjórastóla sem kenningasmiðir
í heitum pottum dunda sér við
skipa í þessa dagana. Verði
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
hlutafélagavæðingu ríkisbank-
anna tveggja að lögum, eins og
flest bendir til, losna 6 banka-
stjórastöður. Ekki er gert ráð
fyrir því að núverandi banka-
stjórar Búnaðarbanka og
Landsbanka eigi sjálfkrafa rétt
á endurráðningu eins og annað
Feitasti bitinn?
Steingrímur rís úr sæti
innan tíðar, alltaf hefur
verið nóg af áhuga-
mönnum um málefni
Seðlabankans!
starfsfólk. Það er því hugsan-
legt að gerðir verði starfsloka-
samningar við einhverja eða
alla.
Sverrir Hermannsson, einn
þriggja bankastjóra Landsbank-
ans, er nýorðinn 67 ára og því
kominn á aldur. Hann má hins
vegar vinna til sjötugs og það
eru enn eftir 3 ár af ráðningar-
samningi hans. Þrálátur orð-
rómur um að Björgvin Vil-
mundarson sé að hætta fæst
ekki staðfestur, hann er aðeins
63 ára. Halldór Guðbjarnarson
er 51 árs, nýbúinn að gera
ráðningarsamning til 5 ára og
ólíklegt talið að Framsóknar-
menn taki í mál að hann verði
látinn víkja. Engar sögur fara
af því að bankastjórar Búnað-
arbankans vilja hætta og þeir
eiga nokkur ár eftir í ellilífeyr-
inn. Stefán Pálsson er 62 ára,
Jón Adolf Guðjónsson 58 ára og
Sólon Sigurðsson, 55 ára. Hér
er því kominn upp áhugaverð
staða þar sem kunna að ráðast
örlög margra manna!
Yfirvofandi hrossakaup
Gunnlaugur Sigmundsson,
Framsóknarflokki, Pétur Blön-
dal, Sjáífstæðisflokki og fleiri
stjórnarliðar hafa sagt að það
sé fáránlegt að leggja upp með
3 bankastjóra í Landsbanka og
Búnaðarbanka, þegar þeim
verður breytt í hlutafélög.
Stjórnarandstæðingar í efna-
hags- og viðskiptanefnd
hermdu þetta upp á þá og lögðu
til að frumvarpinu yrði breytt
og kveðið á um það að í nýju
hlutafélagabönkunum yrði bara
einn bankastjóri. Var reyndar
rætt í nefndinni hvort ekki væri
rétt að gera samskonar breyt-
ingu á Seðlabankanum. Sam-
kvæmt heimildum Dags-Tímans
reyndu stjórnarliðar að fá ráð-
herra til að fallast á þetta, varð
ekkert ágengt og tillagan því
felld. Af því þykjast menn mega
ráða að stjórnarflokkarnir ætli
að gera, eða séu þegar búnir að
gera, einhver „hrossakaup" um
þessar stöður.
Hver fær
Fjárfestingabanka?
Fjárfestingabankinn hf. á
einnig að verða til um áramótin
og sömuleiðis stöndugur Ný-
sköpunarsjóður. Þeir verða til
við sameiningu Fiskveiðasjóðs,
Iðnlánasjóðs og Iðnþróunar-
sjóðs og þar eru núna við
stjórnvölinn þeir Már Elísson,
Bragi Hannesson og Þorvarður
Alfonsson. Már verður 69 ára í
haust, Bragi 65 ára í desember
á þessu ári og Þorvarður 66 ára
í sumar. Það er því talið afar
ólíklegt að einhverjum þeirra
þriggja verði falið að stýra nýj-
um fjárfestingabanka.
Og svo Steingrímur
Þetta eru alls 8 bankastjóra-
stöður, ef forstjóri Nýsköpunar-
sjóðs er talinn með. Við þetta
bætist svo að Steingrímur Her-
mannsson, einn þriggja banka-
stjóra Seðlabankans, verður
sjötugur á næsta ári og þar
losnar einn stóhnn enn.
Friðrik aftur, Kjartan
og Guðmundur Bjarna?
Friðrik Sophusson hefur verið
orðaður við bankastjórastól,
ekki síður en Landsvirkjun,
nafn Þórarins Viðars Þórarins-
sonar, framkvæmdastjóra VSÍ,
hefur einnig verið nefnt, sem og
Þorsteins ðlafssonar, sem var
hjá norræna íjárfestingabank-
anum og efnahagsráðgjafi
Steingríms Hermannsonar í
eina tíð. Það er einnig vinsælt
viðfangsefni kenningasmiða í
pólitískri refskák að reyna að
koma Þorsteini Pálssyni úr rík-
isstjórninni og hann hefur verið
nefndur í þessari bankaandrá.
Þorsteinn hefur hins vegar
þvertekið fyrir það sjálfur að
neitt slíkt sé á döfinni. Kjartan
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, þykir öllu
sennilegri kandidat. Fullyrt er
að hann geti fengið banka-
stjórastól í Landsbankanum ef
hann kæri sig um hann. Sumir
vilja hins vegar meina að Kjart-
an sækist ekki eftir banka-
stjórastöðu, honum líki ágæt-
lega að vera formaður banka-
ráðs Landsbankans og fastlega
er gert ráð fyrir að hann verði
stjórnarformaður í VÍS, nú eftir
kaup bankans á helmingshlut í
því. Þá komst nýlega á kreik sú
saga að Guðmundur Bjarnason,
umhverfisráðherra, gæti vel
hugsað sér að hætta í pólitík-
inni og verða bankastjóri eða
forstjóri í góðu fyrirtæki. Þessu
á að fylgja uppstokkun í ráð-
herraliði Framsóknarflokksins
og Jóhannes Geir Sigurgeirsson
aftur inn á þing.