Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Page 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Page 7
|Oagur-'(ÍJbmrm Þriðjudagur 15. apríl 1997 - 7 ERLENDAR FRÉTTIR ísrael Benjamin Netanyahu: Reynir að friða Palestínumenn. Þriggja ára frestur Forsætisráðherra ísraels segir að fyrstu nýbyggingarnar í Jerúsalem muni ekki rísa fyrr en um aldamót. Fyrstu íbúðarhúsin, sem ísraelsmenn hafa sam- þykkt að verði reist fyrir Japan Hver var að tala um krabbamein? Tölurnar tala sínu máli. Að meðaltali virðast þeir Jap- anir, sem urðu fyrir geislavirkni í kjarnorkuárásmn Bandaríkja- manna, ætla að lifa lengur en jafnaldrar þeirra sem ekki lentu í þeim hremmingum. Að vísu gilda þessar tölur ekki um þá sem staddir voru næst miðpunkti sprengjanna og urðu fyrir mestu geislavirkn- inni, enda hafa þeir látist í stór- um stíl af völdum krabbameins, heldur einungis þá sem voru í nokkurri ijarlægð - en fengu engu að síður nokkurt magn af geislavirkni. Eftir því sem fjarlægðin verð- ur meiri frá miðpunkti sprengj- unnar þá lækkar dánartíðnin þangað til hún fer niður fyrir meðal dánartíðni í Japan. Þetta gengur þvert á það almenna álit að geislavirkni, jafnvel í afar litlum mæli, sé mjög krabba- meinsvaldandi og fátt sé í raun hættulegra heilsu fólks. Reyndar hafa ýmsar tilraunir verið gerðar til þess að útskýra þetta, en engu að síður er vax- andi umræða um það hvort þessar tölur bendi til þess að geislavirkni í litlum mæli sé e.t.v. ekki jafn hættuleg og talið hefur verið. Japanir eru þarna ekki eins- dæmi. Svipaðar tölur eru til um aðra hópa sem orðið hafa fyrir geislavirkni í litlum mæli, ekki síst frá Bandarfkjunum. Krabbameinstíðni meðal þess- ara hópa er ekki hærri en al- mennt í þjóðfélaginu, og svo undarlegt sem það er: stundum jafnvel lægri. gyðinga í austurhluta Jerúsal- em, verða ekki byggð fyrr en að þrem árum liðnum, að sögn Benjamins Netanyahu forsætis- ráðherra. Telur hann að þetta ætti að gefa ísraelsmönnum og Palestínumönnum nægilega langan frest til þess að semja um endanlega friðarskilmála áður en hinar umdeildu bygg- ingarframkvæmdir hcfjast. Þrátt fyrir það sagði Net- anyahu að áfram yrði haldið framkvæmdum við vegagerð og við að slétta úr jarðvegi til und- irbúnings sjálfum byggingar- framkvæmdunum. Með því að segja að húsbyggingarnar heíj- ist ekki fyrr en árið 2000 virðist sem Netanyahu sé ekki síst að freista þess að bjóða Jasser Arafat upp á leið til þess að fallast á framkvæmdimar án þess að stofna stöðu sinni í hættu meðal Palestínumanna og annarra Araba. Undirbúningsframkvæmdun- um miðar að sögn mjög hratt og ætti þeim að geta verið lokið eft- ir um hálft ár. Þá verður í sjálfu sér því ekkert til fyrirstöðu að framkvæmdir við byggingarnar sjálfar hefjist. Þegar fyrstu undirbúnings- framkvæmdirnar hófust í síð- asta mánuði brutust út átök sem stofnuðu friðarferhnu í hættu. Palestínumenn hættu þátttöku í öryggissamvinnu með ísrael, auk þess sem öllum samningaviðræðum var hætt. Aðalfundur Aðalfundur Krýsuvíkursamtakanna verður haldinn mánudaginn 21. apríl kl. 20 í Menningarmiðstöð- inni Gerðubergi, 2. hæð. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Allir félagar Krýsuvíkursamtakanna eru hvattir til að mæta. Stjórnin. Vinafundur eldri borgara veröur í Glerárkirkju n.k. fimmtud. 17. apríl? kl. 15. Gestur fundarins veröur Jónína Elísabet Þorsteinsdóttir, guöfræðingur, og kynnir hún námskeiðið „Gullnu árin“. Barnakór Glerárkirkju syngur. Upplestur og kaffiveitingar. Sóknarprestur. Framkvæmdastjóri óskast Um er að ræða hlutastarf. Einnig vantar afgreiðslufólk í vaktavinnu. Skriflegar umsóknir leggist inn á afgreiðslu B.S.O. ehf. fyrir 22. apríl. Bifreiðastöð Oddeyrar, Akureyri. LANDGRÆÐSLA Á TÍMAMÓTUM Ráðstefna í tilefni af 90 ára afmæli Landgræðslu ríkisins og til kynningar á nýrri landgræösluáætlun Dagskrá ráðstefnunnar er sem hér segir: Setning 10:00 Ávarp • Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri 10:10 Ávarp • Forseti íslands, Ólafur Fiagnar Grímsson 10:20 Ávarp • Guðmundur Bjarnason, landbúnaðarráðherra Landgræðslustarfið wm- 10:30 Landgræðsla í 90 ár • Sveinn Runólfsson, landgræðslusfjóri Astand landsins 10:50 11:10 11:40 12:00 12:10 Gróðurfar og landkostir fyrr og nú • Hörður Kristinsson, Náttúrufræðistofnun Jarðvegsrof á íslandi • Ólafur Amalds, Rannsóknastofnun landbúnaðarins Ástand og uppbygging vistkerfa • Ása L. Aradóttir, Skógrækt ríkisins Fyrirspurnir og umræður Matarhlé IV Ný landgræðsluáætlun Sveinn Runólfsson, 13:00 Markmið, leiðir og helstu verkefni landgræóslustjóri Rannsóknir og þróun í landgræðslu • Þorsteinn Tómasson, forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins Upplýsingaöfiun og áætlanagerð • Sigmar Metúsalemsson, Landgræðsla nkisins Tengsl við atmenning • Guðojn Lára Pálmadáöir, Landgræðsla rikishs Lanchýling og lanchotendur* Bjami Maronsson, Landgraeðsla rikisins 14:29 Fyrirspurnir og umræður 15:00 Kaffihlé Vörslumenn landsins 15:20 15:30 15:40 15:50 Undirskrift yfirlýsingar um.uppgraeðsluátak Akureyrarbæjar, LandgræðslunnarogOLIS áGlerárdal Bændur* Böðvar Jónsson, Gautlöndum Skólamir og æskan • Þorvaldur Öm Ámason, Fjölbrautaskóli Suðumesja Áhugafólk • Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri ( Grýtubakkahreppi Sjalfbær þroun 16:00 16:15 16:35 Alþjóðleg viðhorf-hvað gera aðrar þjóðir? • Ketill Sigurjónsson, Landgræðsla ríkisins Vemdun landkosta-siðferðileg viðhorf »Andrés Amalds, Landgraeðsla ríkisins Fyrirspurnir og umræður 17:00 Ráðstefnuslit • Björn Sigurbjörnsson, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu Móttaka í boði landbúnaðarráðherra. Ráðstefnustjórar: Haraldur Bessason, fynv. rektor Háskólans á Akureyri Sigurveig Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi íslandsbanka Aðgangur er ókeypis og öllum er heimil þátttaka Skráning í síma 462 7733 LANDGRÆÐSLAN Landbúnaðarróðuneytið Háskólinn á Akureyri l JL

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.