Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Page 10
10 - Þriðjudagur 15. apríl 1997
Ptgur-mmmm
KNATTSPYRNA • England
FA bikarinn
Undanúrslit
Chesterfield-Middlesbrough 3:3
Chelsea-Wimbledon 3:0
Úrvalsdeild
Úrslit
Sheff. Wed.-Newcastle 1:1
Sunderland-Liverpool 1:2
Arsenal-Leicester 2:0
Blackburn-Man. Utd. 2:3
Derby-Aston Villa 2:1
Everton-Tottenham 1:0
Southampton-West Ham 2:0
Staðan
Man. Utd. 33 19 9 5 66:38 66
Arsenal 34 18 9 7 57:28 63
Liverpool 33 18 9 6 56:29 63
Aston Villa 34 16 8 10 43:30 56
Newcastle 32 15 9 8 61:38 54
SheíT. Wed. 33 13 14 6 44:39 53
Chelsea 33 13 10 10 52:50 49
Wimbledon 32 12 10 10 42:40 46
Tottenham 34 12 6 16 40:46 42
Leeds 33 11 9 13 26:34 42
Derby 34 10 12 12 41:51 42
Everton 34 10 10 14 40:49 40
Leicester 33 10 10 13 38:47 40
Blackburn 33 8 13 12 35:35 37
Coventry 34 8 12 14 32:48 36
Southampton 34 8 10 16 45:53 34
WestHam 33 8 10 15 31:43 34
Sunderland 34 8 10 16 31:51 34
Middlesbrough 32 9 9 14 44:52 33
Nottm. Forest 34 6 13 15 29:52 31
* 3 stig dregin af Middlesbrough fyrir
að mæta ekki til leiks
1. deild
Úrsiit
Barnsley-Charlton 4:0
Birmingham-Huddersfield 1:0
Bolton-Oxford 4:0
Norwich-Stoke 2.0
Port Vale-Oldham 3:2
Portsmouth-Tranmere 1:3
QPR-Grimsby 3:0
Reading-Wolves 2:1
Sheff. Utd.-Crystal Palace 3:0
Southend-Bradford 1:1
Swindon-Ipswich 0:4
West Brom-Man. City 1:3
Staðan
Bolton 43
Barnsley 41
Wolves 42
Sheff. Utd. 43
Port Vale 43
Ipswich 42
Norwich 43
Tranmere 42
Portsmouth 42
C. Palace 41
QPR 43
Birmingham 42
Stoke 42
Charlton 42
Man. City 41
Reading 42
West Brom 43
Swindon 43
Oxford 43
Huddersfield 43
Bradford 42
Grimsby 41
Oldham 42
Southend 43
27 12 4 94:50 93
20 13 8 68:45 73
20 9 13 61:47 69
19 11 13 73:51 68
17 15 11 56:50 66
17 13 12 63:49 64
17 11 15 63:63 62
17 11 14 60:51 62
18 8 16 53:48 62
16 12 13 69:44 60
16 12 15 59:57 60
15 13 14 47:47 58
16 10 16 47:53 58
15 10 17 49:60 55
15 9 17 53:53 54
14 12 16 52:59 54
13 14 16 65:70 53
15 8 20 52:67 53
14 9 20 57:65 51
12 13 18 46:60 49
10 12 20 43:68 42
9 12 20 52:75 39
9 12 21 48:62 39
8 15 20 40:76 39
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080
Andy Cole var hetja Manchester United gegn Blackburn þegar hann skor-
aði eitt mark og lagði upp hin tvö í 3:2 sigri meistaranna.
Chesterfíeld
stóð í stóríiðinu
Chelsea komið í úrslit
FA bikarsins -
Man. Utd. enn á toppi
úrvalsdeildarinnar.
Chelsea tryggði sér sæti í
úrslitum FA bikarsins með
sigri á Wimbledon á
sunnudaginn. í hinum undan-
úrslitaleiknum mætti 2. deildar-
bð Chesterfield stórliði Middles-
brough í leik sem lengi verður í
minnum hafður. Chesterfield
komst óvænt í tveggja marka
forustu en Boro náði að jafna
áður en yfir lauk. f framleng-
ingu komst Boro yfir en á síð-
ustu mínútunni jafnaði Jamie
Hewitt fyrir 2. deildarliðið og
tryggði því endurtekningarleik.
í úrvalsdeildinni unnu þrjú
efstu liðin sína leiki.
Mark Hughes var hetja
Chelsea gegn Wimbledon. Hann
skoraði tvö mörk í 3:0 sigri en
ítalski snillingurinn Gianfranco
Zola beitti göldrum þegar hann
skoraði annað mark liðsins.
Leikmenn Chesterfield jöfn-
uðu á síðustu stundu gegn
Middlesbrough og fögnuðu í
leikslok en voru um leið sárir í
garð dómarans sem gerði af-
drifarík mistök í leiknum og
hafði af þeim sigur. Jamie He-
witt skoraði jöfnunarmarkið
þegar 65 sekúndur voru til loka
framlengingar. Chesterfleld á
því enn möguleika á því að skrá
nafn sitt á spjöld knattspyrnu-
sögunnar og verða fyrsta liðið
utan efstu tveggja deildna
enska boltans til að komast í
úrslitaleik elstu knattspyrnu-
keppninnar í heimi.
Leikmenn Middlesbrough
geta sjálfum sér um kennt
hvernig fór. Þeir komu hroka-
fullir til leiks og ætluðu að fara
létt framhjá peðunum í Chest-
erfleld. En Davíð bauð Golíat
birginn og Chesterfield hafði
yfirhöndina lengst af leiknum.
Fyrri hálfleikur var ekki mjög
markverður ef undan er skilið
rautt spjald sem Vladimir Kind-
er, bakvörður Boro, nældi sér í
með tveimur klaufalegum brot-
um. Fjörið hófst í síðari hálfleik
og Chesterfleld tók verðskuldað
tveggja marka forustu áður en
leikmenn úrvalsdeildarliðsins
vöknuðu til lífsins. Stjörnurnar í
Boro náðu sér loks á strik og
Fabrizio Ravanelli minnkaði
muninn. Chesterfield náði þó
enn inn góðum sóknum og úr
einni slíkri skaut Jonathan Ho-
ward föstu skoti í þverslána og
inn fyrir línuna en boltinn
skoppaði út aftur og dómarinn
dæmdi ekki mark. Skömmu síð-
ar gerði hann önnur afdrifarík
mistök þegar Dyche felldi Jun-
inho rétt utan vítateigslínu en
dómarinn benti á vítapunktinn.
Craig Hignett skoraði úr spyrn-
unni. í framlengingu tók Boro
forustu með marki frá Gianluca
Festa og allt útlit var fyrir að
hann hefði tryggt liðinu sæti í
úrslitaleiknum þar til Hewitt
skaut upp kollinum í lokin og
jafnaði metin á ný.
Öruggt hjá United
Manchester United náði sér aft-
ur á strik eftir að hafa mátt
þola tap gegn Derby og Dort-
mund í síðustu tveimur leikjum.
Meistararnir áttu ekki í miklum
vandræðum með andlaust lið
Blackburn, þó svo að heimaliðið
hafi náð að klóra í bakkann í
lokin. Andy Cole lék á als oddi í
framlínunni, skoraði fyrsta
markið og lagði upp hin tvö fyr-
ir United, sem Paul Scholes og
Eric Cantona skoruðu. Cantona
gat meira að segja leyft sér að
misnota vítaspyrnu í fyrri hálf-
leik.
Arsenal heldur pressu á
Manchester United og lið Leic-
ester var þeim engin fyrirstaða
á Highbury. Gestirnir virtust
hafa hugann við endurtekning-
arleikinn í úrslitum Coca-Cola
bikarsins gegn Middlesbrough á
morgun og Tony Adams og Dav-
id Platt skoruðu mörkin sem
gerðu út um leikinn. Arsenal er
á góðri siglingu og bíður færis á
að næla í toppsætið á ný ef
Manchester United og Liverpool
hiksta.
Liverpool er enn á hælunum
á Manchester United eftir 2:1
sigur á Sunderland á útivelli.
Robbie Fowler og Steve
McManaman skoruðu mörk Li-
verpool í leiknum en Paul Ste-
wart náði að minnka muninn í
síðari hálfleik. Sunderland átti í
fullu tré við Liverpool lengi vel
en eftir að Liverpool hafði kom-
ist yfir var í raun aldrei mikil
hætta á að liðið léti forustuna af
hendi.
HANDBOLTI • Islandsmótið
Jakob gafgullið!
Líklega hefðu ekki margir viljað sjá eftir verðlaunapen-
ingi fyrir sigur á íslandsmóti, en Jakob Jónsson gaf
stuðningsmanni KA-liðsins, Sverri Leóssyni, útgerðar-
manni, gullpening sinn í búningsherbergi KA-manna eftir
leikinn. „Ég hét honum því eftir tapleikinn í Mosfellsbænum
að við mundum taka þetta í fjórum leikjum og vinna bikar-
inn hér heima á laugardegi. Þegar við gerðum það, þá
mundi ég gefa honum gullið," sagði Jakob, sem tiltók að
ástæðan fyrir gjöfinni hefði verið þakklæti fyrir góðan
stuðning Sverris, sem er annar eigandi Súlunnar, við Hand-
knattleiksdeild KA.
Jakob var ekki í byrjunarliði KA, en reyndist liðinu drjúg-
ur, sérstaklega í síðari hálfleiknum. „Alfreð sagði við mig í
dag: Viltu byrja inná? Ég svaraði því til að hann yrði að ráða
því sjálfur, hann hefði tekið sínar ákvarðanir sjálfur hingað
til og ég ætlaði ekki að byrja á því að taka ákvarðanir fyrir
hann núna. Hann vildi prófa Heiðmar til að byrja með og
mér fannst það alveg rétt hjá honum. Það skiptir mig ekki
máli hver skorar mörkin ef dæmið gengur upp,“ sagði Jak-
ob, sem sagðist reikna með að hafa leikið sinn síðasta leik á
laugardaginn. „Það er erfitt að hætta á stundu sem þessari,
en það þarf eitthvað mikið að gerast til að óg verði áfram,“
sagði Jakob, sem líklega mun flytjast vestur til Isaíjarðar.
Endapunkturinn
hjá fyririiðanum
Við náðum góðri vörn í síðustu tveimur leikjum og það
er nú einu sinni þannig í öllum boltagreinum, að það
lið sem spilar betri vörn stendur yfirleitt upp sem sig-
urvegari," sagði Erlingur Kristjánsson, fyrirliði KA, sem
hampaði fslandsmeistarabikar í annað sinn, því hann var
fyrirliði knattspyrnuliðs KA sem varð meistari 1989.
„Ég held að þetta teljist ágætur endapunktur á meðan
maður er standandi í báðar fætur og tiltölulega heill heilsu
og nýbúinn að vinna íslandsmeistaratitil, sem er það sem
allir stefna að. Fyrstu árin sem ég var í þessu þvældumst
við á milli fyrstu og annarrar deildar, en svo hefur leiðin
heldur betur legið uppávið enda er umgjörðin allt önnur og
mikið meira í þetta lagt. Við vorum langbestir, nánast allan
veturinn í fyrra, fyrir utan úrslitakeppnina, þá voru Valsar-
ar einfaldlega bestir. Þessi vetur heíur verið allt öðruvísi,
menn voru mjög upp og niður í allan vetur. Við vorum að
spila illa rétt fyrir úrslitakeppnina og reyndum þá að gera
eitthvað í okkar málum. Við náðum síðan að berja okkur
saman í úrslitakeppninni, ég veit ekki hvort það var reynsl-
an, það var bara einhver stemmning og andi sem kom upp í
hópnum," sagði Erlingur, sem leikið hefur 502 leiki með KA
og á kannski eftir að bæta tveimur til viðbótar í safnið.
Knattspyrnuleikir hans urðu eitthvað á ijórða hundraðið,
þannig að hann hefur leikið á níunda hundrað leiki fyrir KA
í handknattleik og knattspyrnu.
Langþráður draumur
Síðasta tímabil var alveg einstakt, við unnum bæði deild
og bikar og lentum síðan í úrslitaleikjum gegn Val.
Núna náðum við að klára þetta eftir að vera búnir að
vera í úrslitum þrjú ár í röð. Þetta var langþráður draumur
sem loks rættist í dag,“ sagði Leó Örn Þorleifsson, línumað-
urinn knái úr KA.
„Aukaköstin hjá
Duranona áttu stér-
an þátt í sigri KA“
Þeir spiluðu mjög sterkan varnarleik og við áttum á
brattann að sækja allan leikinn. Við erum með lykil-
menn sem eru ekki alveg heilir, menn eins og Bjarka,
Sigga Sveins og Einar Gunnar og við megum ekki við því á
móti svona góðu liði eins og KA að hafa þessa menn ekki á
fullu. Þetta eru ámóta lið, en sigur KA var sanngjarn, lið
sem vinnur svona keppni 3-1 er einfaldlega betra,“ sagði
Páll Þórólfsson, leikmaður Aftureldingar.
„Ástæðan fyrir því að við lékum varnarleikinn aftarlega
var sú að sumir eiga erfitt með að þola mikla keyrslu. Ég vil
ekki segja að vörnin hafi ekki skilað sínu, en aukaköstin hjá
Duranona áttu stóran þátt í sigri KA, maður skilur eiginlega
ekki hvernig þetta er hægt í leikjum um meistaratitil. Það
var óneitanlega slæmt þegar fríköstin eru orðin álíka hættu-
leg og vítaköst. En þó við séum gráti næst núna, þá vöknum
við á morgun og byrjum að íhuga næsta vetur. Þetta er í
fyrsta sinn sem ég spila um svona stóra dollu og ég á ýmis-
legt ólært. Þetta er þolinmæðisvinna, en það er mín skoðun
að Afturelding getur farið stolt úr vetrinum,“ sagði Páll.