Dagur - Tíminn Akureyri - 15.04.1997, Page 11
(®agur-'©itmm
Þriöjudagur 15. apríl 1997 -11
HANDBOLTI
KA-UMFA 24:22
KA-heimilið, 4. leikur liðanna
um fslandsmeistaratitilinn.
Gangur leiksins: 1:0, 3:4, 7:5,
(9:9), 11:9, 16:12, 18:16,
22:18, 23:22, 24:22.
Mörk KA: Róbert J. Duranona
11/1, Jakob Jónsson 3, Jó-
hann G. Jóhannsson 3, Leó
Örn Þorleifsson 2, Björgvin
Björgvinsson 2, Sergei Ziza 2,
Alfreð Gíslason 1.
Varin skot: Guðmundur Arn-
ar Jónsson 14.
Mörk UMFA: Gunnar Andrés-
son 6, Páll Þórólfsson 5, Ingi-
mundur Helgason 4/4, Jón A.
Finnsson 2, Sigurjón Bjarna-
son 2, Alex Trufan 1, Bjarki
Sigurðsson 1, Porkell Guð-
brandsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 14.
Dómarar: Gunnar Viðarsson
og Sigurgeir Sveinsson. Góðir.
Áhorfendur: Troðfullt hús.
HANDBOLTI • KA íslandsmeistari
Róbert Julian Duranona úr KA og Þorkell Guðbrandsson úr Aftureldingu
áttust oft við á laugardaginn.
HANDBOLTI • Úrslitakeppnin
KA-menn innbyrtu
guttið á heimavelli
KA-menn innbyrtu fs-
landsmeistararatitilinn
með sigri á Aftureldingu,
24:22, í fjórða leik liðanna um
íslandsmeistaratitilinn á laug-
ardaginn.
Það var ljóst þegar á upp-
hafsmínútunum að KA-menn
ætluðu ekki að gefa gestunum
tækifæri á oddaleik í Mosfells-
bænum. Varnarleikur KA var
mjög sterkur allan leikinn og
það var aðeins Gunnar Andrés-
son sem var fundvís á smug-
urnar í vörninni og hann náði
að halda leiknum jöfnum með
miklu einstaklingsframtaki í
sóknarleiknum. í KA-liðinu bar
sem oftar langmest á Duran-
ona, sem afgreiddi boltann fjór-
um sinnum í net Aftureldingar í
hálfleiknum, upp úr aukaköst-
um.
Jafnt var í leikhlénu, 9:9, en
eftir að KA-menn skoruðu tvö
fyrstu mörk hálfleiksins og
náðu stuttu síðar íjögurra
marka forskoti, hefur líklega
enginn áhorfenda í KA- heimil-
inu trúað öðru en að KA-menn
innbyrtu sigurinn. Pað gerðu
þeir, Afturelding náði reyndar
að minnka muninn niður í eitt
mark undir lokin, en Akureyr-
Árni Stefánsson, Alfreð Gíslason og Róbert Julian Duranona fagna fyrsta
íslandsmeistaratitli KA í handknattleik á laugardaginn. Mynd: jhf
„Gífuriega
stoltur af
þessuliði“
ingar héldu áfram að keyra á
fullu í sóknarleiknum, í stað
þess að reyna að tefla og það
gaf góða raun.
Róbert Julian sýndi frábæra
takta í sóknarleiknum, en að
öðru leyti má segja að um jafn-
an dag hafi verið að ræða hjá
leikmönnum liðsins.
Gunnar var yfirburðamaður í
liði Aftureldingar, en Bjarki Sig-
urðsson og Einar Gunnar Sig-
urðsson voru svipur hjá sjón,
miðað við það sem þeir gera
best. Bjarki hefur átt í erfiðum
meiðslum og var einnig vel gætt
af Björgvini Björgvinssyni.
Við erum búnir að leggja
mikið á okkur æskuvin-
irnir til að byggja upp
gott lið og ná þessu. Þessi titill
er það sem gefið hefur mér
hvað mest á ferlinum. Ég er gíf-
urlega stoltur af þessu liði og
vona að Akureyringar séu það
líka,“ sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari KA, eftir að lið hans
hafði tryggt sér íslandsmeist-
aratitilinn.
„Þeir voru margir sem gáfu
ekki mikið fyrir okkur fyrir ein-
um og hálfum mánuði. Þá vor-
um við búnir að missa af deild-
armeistaratitlinum og ég mat
stöðuna þannig að rétt væri að
keyra liðið í stífari æfingar. Fyr-
ir leikinn gegn ÍBV heima var
ég þess vegna með tvær erfiðar
æfingar, síðustu tvo dagana fyr-
ir leik. Ég vonaðist til þess að
þrátt fyrir ellefu marka tap í
Eyjum þá mundum við taka þá
á heimavelli á stoltinu, þó við
værum dauðþreyttir. Það gekk
reyndar ekki eftir, útkoman var
níu marka tap og þeir voru
margir sem gáfu ekki mikið fyr-
ir okkur þá. Það skipti okkur
hins vegar ekki höfuðmáli hvort
við yrðum í öðru eða íjórða sæti
í deildarkeppninni, við þyrftum
hvort eð er fyrr eða síðar að
vinna útileik í úrslitakeppninni.
Það er ljóst að dæmið gekk upp,
við vorum uppi á réttum thna,“
sagði Alfreð. Hann sagði viður-
eignina við Aftureldingu hafa
verið eríiða, sérstaklega fram-
an af.
„Okkur tókst að leysa varn-
arleikinn hjá þeim betur með
hverjum leiknum, en að lokum
misstu þeir kraftinn og trúna til
að spila þessa vörn og bökkuðu
aftur. Þessi síðasti leikur var
samt erfiður, við hreyfðum okk-
ur ekki nógu mikið í sóknar-
leiknum framan af, en síðan fór
þetta að smella saman og bolt-
inn fékk að ganga betur á milli
manna. Við höfðum svolítið sál-
rænt tak á þeim, við vorum allt-
af með forystuna og þeir voru
undir þeirri pressu að mega
ekki klikka mikið,“ sagði Alfreð.
Patrekur fékk
heimþrá
Patrekur Jóhannesson, fyrr-
um liðsmaður KA og leik-
maður með Essen, fylgdist
grannt með gangi mála á
laugardaginn og hlustaði á
síðustu mínútur leiksins í
gegn um síma frá Þýska-
landi. Hann var síðan einn
margra sem sendu Hand-
knattleiksdeild KA heilla-
óskaskeyti eftir leikinn. „Ég
var hálfstressaður að hlusta
á lýsinguna og þetta er lík-
lega í eina skiptið sem ég
hef fengið heimþrá, frá því
að ég flutti til Þýskalands,"
sagði Patrekur.
Bjarki sprautaður
Það fór ekki mikið fyrir
Bjarka Sigurðssyni, aðal-
skyttu Aftureldingar, á laug-
ardaginn. Bjarki hefur átt
við meiðsl að stríða í hæl og
nára og var sprautaður fyr-
ir leikinn og í leikhléinu til
þess að hann gæti spilað.
Uppselt á föstudag
Óhætt er að segja að for-
sala á leikinn á laugardag-
inn hafi gengið með mikl-
um ágætum. Miðar á leik-
inn voru seldir í Bókval í
göngugötunni á Akureyri
og mynduðust þar langar
biðraðir, þrátt fyrir að full-
orðinsmiðarnir væru seldir
300 krónum dýrari en
venjulega. Miðarnir klár-
uðust síðan klukkan 14
þann sama dag, en nokkrir
miðar fóru svo óvænt í sölu
síðustu klukkustundina
fyrir leik þegar Handknatt-
leiksdeild Aftureldingar
skilaði af sér sextíu mið-
um, af þeim 200 sem þeir
fengu til sölu.
Guðjón Þórðar í
KA-klefanum
Einn þeirra sem mætti í
búningsklefa KA til að óska
Akureyrarliðinu til ham-
ingju var Guðjón Þórðarson,
knattspyrnuþjálfari. Guðjón
Íijálfaði KA þegar liðið varð
slandsmeistari 1989 og
hefur haldið vin- og kunn-
ingskap við marga KA-
menn allar götur síðan þá.
HANDBOLTI
Einar líklega áfram
F
I lest bendir til þess að Einar
Þorvarðarson verði áfram
þjálfari Aftureldingar. „Við
munum ræða við hann í vikunni
og væntum þess að hann verði
þjálfari áfram," sagði Jóhann
Guðjónsson, formaður Hand-
knattleiksdeildar UMFA.
Ljóst er að litlar sem engar
breytingar verða á leikmanna-
hópi liðsins, þar sem nær allir
leikmenn félagsins eiga enn eft-
ir 1-2 ár af samningum sínum.
Jóhann sagði að það væri
stefna stjórnarinnar að leik-
menn væru á öllum tímum
samningsbundnir félaginu, það
væri eina leiðin til að halda
leikmönnum eftir úrskurðinn í
„Bosman- málinu“.
AKUREYRARBÆR
Atvinnudeild Akureyrar
Atvinnudeild Akureyrar vekur athygli á úthlutun
styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði árið 1997
til átaksverkefna á vegum sveitarfélaga.
Styrkirnir eru ætlaðir til sérstakra verkefna sem mið-
ast að því að fjölga atvinnutækifærum við sem
flestra hæfi. Til verkefnanna má aðeins ráða ein-
staklinga sem eru skráðir atvinnuleitendur og hafa
bótarétt. Fyrirtæki og félagasamtök geta sótt um
styrk til átaksverkefna. Þá geta einstaklingar sem
eru atvinnulausir sótt um styrk til þess að vinna að
eigin viðskiptahugmynd. Verkefnin mega ekki vera í
samkeppni við annan atvinnurekstur.
Umsóknir skulu berast skrifstofu Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs fyrir 1. maí 1997. Akureyrarbær hefur
milligöngu um afgreiðslu umsókna. Reglur Atvinnu-
leysistryggingasjóðs um úthlutun styrkja og eyðu-
blöð vegna þeirra eru á skrifstofu Vinnumiðlunar Ak-
ureyrar að Glerárgötu 26.