Dagur - Tíminn Akureyri - 05.07.1997, Blaðsíða 2
I
Laugardagur 5. júlí 1997 - II
HÚSIN í BÆNUM
^Oagur-tHmTmrt
Freyja Jónsdóttir
skrifar
1888, Árni Jakobsson, fæddur
20. mars 1891, Aðalsteinn
Jónsson, fæddur 1891 og
Ágúst Sigurgeirsson, fæddur 4.
apríl 1882, allir fæddir í
Skútustaðasókn.
í nokkur ár átti Benedikt
l>órarinsson Fensali og rak þar
verslun.
Árið 1924 flutti Júlíus Hav-
steen sýslumaður með fjöl-
skyldu sína í húsið, eftir að
hafa keypt það af dánarbúi
Benedikts Þórarinssonar. Eftir
það var húsið kallað Sýslu-
mannshús.
Þar var síðan aðsetur sýslu-
mannsembættisins á meðan
Júlíus Havsteen gegndi því og
um leið embætti bæjarfógetans
eftir að það kom til sögunnar
1949.
Jóhannes Júlíus Havsteen
fæddist á Akureyri 13. júlí
1886, sonur Jakobs Valdimars,
etazráðs og kaupmanns Hav-
steen og Thoru Emilíu Maríu,
dóttur Jóhannesar stórkaup-
manns Schwenn í Kaup-
mannahöfn. Hann varð cand.
juris frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 18. júní 1912. Mánuði
síðar var hann orðinn bæjarfó-
getafulltrúi á Akureyri. Þar
næst settur sýslumaður Eyflrð-
inga og bæjarfógeti á Akureyri
1913 til 1914. Síðan yfírdóms-
lögmaður á Akureyri til 1920
og jafnframt lögreglustjóri á
Siglufirði. Frá 27. desember
1919 var hann settur sýslu-
maður í Eyjafjarðarsýslu og
bæjarfógeti á Akureyri til 1.
janúar 1920. Skipaður sýslu-
maður í Þingeyjarsýslum 27.
september 1920. Tóic við emb-
ættinu 1. apríl 1921 og gegndi
því til 1. júní 1956. Jafnframt
bæjarfógeti frá 13. desember
1949. Hann andaðist í Reykja-
vík 1960.
Kona Júlíusar var Þórunn
Jónsdóttir, fædd 10. ágúst
1888, í Hafnarfirði, Þórarins-
sonar, skólastjóra í Flensborg
og síðar fræðslumálastjóra og
fyrri konu hans Guðrúnar Jó-
hönnur Láru, Pétursdóttur
Havsteens, amtmanns á
Möðruvöllum. Hún þótti ein-
stök kona, hjálpsöm og skiln-
ingsrík. Til hennar leitaði fólk
gjarnan með vandamál sín og
sagt er að hún hafi kunnað
ráð við öllu. Ilún lést fyrir ald-
ur fram 28. mars 1939 og var
þeim sem til hennar þekktu
harmdauði.
Samkvæmt manntali 1930
búa í húsinu: Jóhannes Júlíus
Havsteen sýsliunaður, Þórunn
Havsteen kona hans, og börn
þeirra: Ragnheiður Lára, Jak-
ob Valdimar, Jóhann Henning,
Jón Kristinn, Þóra Emilía Mar-
ía, Soffía Guðrún, Þórunn
Kristjana og Hannes Þórður.
Þegar þetta manntal var tekið
búa einnig í húsinu: Jóhann
Henning Havsteen, skrifari og
matsmaður, bróðir sýslu-
mannsins, fæddur 10. mars
1888 á Akureyri, Sigríður
Pálína Jónsdóttir þerna, fædd
24. mars 1913 á Húsavík og
Svava Halldórsdóttir þerna,
fædd 23. ágúst á Húsavík.
Þá leigðu einnig í húsinu
Jóhann ísfeld Ólason, móðir
hans Guðrún og systir hennar
Sigurlaug, en heimilisfaðirinn
Óli var þá látinn. Síðan stækk-
aði sú fjölskylda því Jóhann
tók saman við Ólínu Sigtryggs-
dóttur og eignuðust þau dótt-
urina Guðrúnu Karólínu. Fjöl-
skyldan leigði í sýslumanns-
húsinu allt fram á vordaga
1940 að Jóhann keypti húsið
Hjarðarholt syðst í bænum.
Júlíus Havsteen beitti sér fyrir
framfaramálum í héraði sínu,
meðal annars uppsetningu
vatnsveitu og hafnargerð á
Húsavík. Einnig var hann
lengst af formaður hafnar-
nefndar Húsavíkur og stóð fyr-
ir byggingu sfldarverksmiðju
þar á staðnum. Var kjörinn af
alþingi í stjórn Sfldarverk-
smiðja ríkisins. Hann vann
mikið að ritstörfum og eftir
hann eru til bækur og greinar
um landhelgismál Islands,
einnig leikrit, ævintýrabækur
og þýðingar eins og Mobý Dick
eftir Herman Melville.
Mjög gestkvæmt var á
heimili sýslumannshjónanna
og segir Hannes Þ. Hafstein
svo frá í bók sinni “Á vaktinni”
(birt með leyfi hans).
“Áður en pabbi og mamma
fluttu í Fensali, árið áður en
ég fæddist, var Hótel Húsavík
rekið í húsinu. Má segja að
það hafi áfram gegnt hálf-
gerðu hótelhlutverki eftir að
fjölskyldan flutti þangað og
víst er að mörg hótelin hefðu
verið fullsæmd af þeirri að-
sókn og gestagangi sem var
hjá okkur. En ekki var fólki
seldur beini eða gisting heldur
tekið á móti því með opnum
örmum og jafnan dregið fram
það besta'til var”.
Húsið var stórt og sem fyrr
greinir kjallari, tvær hæðir og
ris. Sum herbergi hússins
höfðu nafn eins og Tryggva-
skáli, þar hafði leigt maður að
nafni Tryggvi, Bláaherbergi
sem var blámálað, og Landa-
kot en það herbergi fékk nafn-
giftina eftir að landi var
geymdur þar. Landi sem fund-
ist hafði var gerður upptækur
og geymdur sem sönnunar-
gagn bak við innsiglaðar dyr
Landakots.
Aðahnngangur hússins vissi
að höfninni og var pallur fyrir
framan hann. Þegar gengið
var inn var fyrst komið í litla
forstofu og úr henni var geng-
ið inn á skrifstofu sýslumanns-
ins, “suðurkontórinn”.
Hinumegin við ganginn var
sýsluskrifstofan, “norður-
kontórinn”. Tvær aðrar stórar
stofur voru á hæðinni: setu-
stofa, “dagligestuen” og borð-
stofa í austurenda hússins.
Eldhúsið var í norðurhlutan-
um og einnig Tryggvaskáli,
herbergi sem var notað fyrir
geymslu. Á milli Tryggvaskála
og eldhússins var rými eða
“skúrinn”; þar var bakdyra-
inngangur. Úr eldhúsinu lá
stigi niður í kjallara og einnig
stigi upp á efri hæðina. Annar
stigi úr forstofu við aðalinn-
gang lá einnig upp á efri hæð-
ina.
Á annarri hæð voru þrjú
stór svefnherbergi sunnan-
megin í húsinu. Eitt var hjóna-
herbergið með útsýni yfir
höfnina. Hin tvö herbergin
höfðu börnin. í norður og
austurendanum var svefnher-
bergi Jóhanns, sýsluskrifara,
bróður sýslumans. Þeim
megin var einnig íbúð Jóhanns
Ólasonar og fjölskyldu.
Á efsta lofti í Bláaherberg-
inu sváfu systkinin þegar
gestagangur var sem mestur,
því ekkert þótti sjálfsagðara
en ganga úr rúmi fyrir nætur-
gestum og sennilega spenn-
andi að fá að sofa uppi í ris-
inu. Á miðju háaloftinu var
þurrkloft og stæðileg taurulla
sem þvotturinn var sléttaður í.
Þessi rulla er enn á sínum
stað. í austurenda rissins var
Landakot.
í bók Hannesar Þ. Hafstein
“Á vaktinni”, segir frá því að í
norðausturhorni kjallara húss-
ins hafi verið Qós þar sem
tvær kýr voru á básum. Önnur
þeirra var Skjalda sem sýslu-
mannshjónin áttu og höfðu
komið með frá Akureyri. Hin
kýrin var Rauðka sem Jóhann
Óla og fjölskylda áttu. Við hlið-
ina á fjósinu var lítil hænsna-
stía. Dyr fyrir kýr og fiðurfé
voru á austurhlið kjallarans og
þar var einnig gæsakofinn. Að
norðanverðu fyrir miðju húsi
var kolageymsla og á henni
lúga þar sem kolunum var
mokað inn, en þau voru borin
í fötum að ofnunum. í afstúk-
uðu rými í norðvesturhorni
kjallarans var heyið fyrir kýrn-
ar geymt. í kjallaranum var
einnig svarðargeymsla, þvotta-
hús með stórum steyptum
þvottapotti, vinnurými og tvö
búr þar sem matarforði heim-
ilanna var geymdur. Fyrst var
aðeins eitt klósett í húsinu í
kjallaranum, en fljótlega var
útbúin hreinlætisaðstaða á
annari hæðinni.
Hannes Þ. Hafstein segir
svo frá í bók sinni (birt með
leyfi hans). “Pabbi og mamma
lögðu mikið upp úr snyrti-
mennsku og góðri umgengni,
jafnt innanhúss sem utan.
Sunnanvert við húsið, í aflíð-
andi hallanum að Búðaránni
var garðurinn okkar.
Vestast í honum var létt
grasflöt en blómagarður upp
við húsið með skeljasandi og
stígum og grasivöxnum könt-
um á beðum sem snyrta þurfti
reglulega. Síðan tók við lítill
matjurtagarður og rabarbara-
beð á lóðarmörkunum, en
rabarbari var mikð notaður í
grauta og sultur. Austast í
blómagarðinum var sólbaðs-
krókur vegna veikinda minna.
Garðurinn var ríki mömmu og
hún sinnti honum af mikilli
natni og fylgdist ég oft með því
þegar hún var að vinna í hon-
um.” Þá má ekki heldur
gleyma Sýslumannslautinni
sem var vestan við húsið og
var leikvangur systkinanna og
vina þeirra og Hannes greinir
frá í bók sinni.
Umdæmi sýslumanns Þing-
eyinga var stórt, náði frá Eyja-
firði austur á Langanes. Á
hverju ári fór sýslumaðurinn
þingferðir um allt embættið og
ferðaðist á hestum og voru
þessar ferðir bæði langar og
erfiðar.
Eftir að vegir komu til sög-
unnar ók Jóhann Óla sýslu-
manninum í glæsivagni sínum,
í embættisferðum hans á þá
staði í umdæminu sem vegir
voru að.
Júlíus Havsteen var sýsl-
ungum sínum ástkært yfirvald
og var kvaddur með söknuði
þegar hann hætti störfum eftir
giftusamlegan embættisferil.
Hann seldi ríkinu húsið sem
embættisbústað.
Hjónin Þuríður Sigurjóns-
dóttir og Þormóður Jónsson
kaupa efri hæðina 1959, og
Margrét Schiöth og Árni Sig-
fússon neðri hæðina 1969.
Ekki er vitað með vissu af
hverju húsið fékk nafnið
Fensalir og af sumum talið að
það hafi verið fyrsta nafn
hússins. í fyrstu íbúaskrám er
það nefnt Hótel Húsavík. En
árið 1920 er húsið nefnt
Fensalir.
Núna eiga Sýslumannshúsið
hjónin Páll Þór Jónsson og
Dóra Vilhelmsdóttir og reka
þar myndarlegt gistiheimili.
Þau hafa sýnt húsinu mikla
virðingu og ræktarsemi og
segja að í húsinu sé góður
andi.
f tímans rás hefur margt
breyst og ekki eru lengur kýr á
básum né fiðurfénaður í kjall-
ara hússins enda allur bú-
skapur aflagður löngu áður en
Júlíus Havsteen fór þaðan.
En Búðaráin sem rennur
meðfram garði Sýslumanns-
hússins heldur sínu striki og
við mjúkan nið hennar sofna
gestir Gistiheimisins Árbóls.
Heimildir Skjalasafn Húsavíkur, Þjóð-
skjalasafn og Á vaktinni, bók Hannes-
ar I>. Hafstein.
Sýslumannshjónin á Húsavík með börnum sínum. Myndin var tekin á silfurbrúðkaupsdegi þeirra 12. júlí 1937. F.v.: Þóra, Hannes, Jóhann, Þórunn
Jónsdóttir Havsteen, Jón Kristinn, Júlíus Havsteen, Ragnheiður, Þórunn, Soffía og Jakob.