Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.01.1997, Qupperneq 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 14.01.1997, Qupperneq 4
4 - Þriðjudagur 14. janúar 1997 Jkgur-®mrám FRÉTTIR f Austurland Þingeyjarsýslur Sameíningu fjögurra sveitar- félaga á Héraði miðar vel Stefnt að kynningu í sveitarfélögunum um mánaðamótin mars/apríl og kosn- ingu meðal íbúa um sameiningu á haust- mánuðum Um alllangan tíma hafa staðið yfir viðræður milli sveitarstjórna Hjalta- staðahrepps, Eiðahrepps, Egils- staðabæjar og Vallarhrepps um sameiningu þessara ijögurra sveitarfélaga og hefur þeim nokkuð miðað áleiðis. Bæjar- stjórn Egilsstaðabæjar er sam- mála um að hraða beri vinnu sameiningarnefndar þannig að kynning í sveitarfélögunum fari fram í lok marsmánaðar eða í byrjun aprílmánaðar. Gangi það eftir eru sterkar líkur á að al- Sýslumaðurinn á Akureyri Hafnarstræti 107,600 Akureyri Sími 462 6900 Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, 3. hæö, Akureyri, föstudaginn 17. janúar 1997 kl. 10, á eftirfarandi eignum: Hrísar, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Sveinbjörn Halldórsson, gerðar- beiðendur Byggðastofnun og Eyja- fjarðarsveit. Öldutún 1, Grímsey, þingl. eig. Sig- fús Jóhannesson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri. Egiisstaðir. menn atkvæðagreiðsla um sam- eininguna fari fram á þessu ári, iíklega í haust. í þessum fjórum sveitarfélögum búa um 2000 manns. Síðar kunna fleiri sveit- arfélög að koma inn í umræð- una, m.a. Seyðisfjörður sem þegar er í samstarfl við sveitar- félög á Héraði um rekstur skíðasvæða. Skipaður hefur verið starfs- hópur til að móta frekar tilhög- un á rekstri skóla í sameinuðu sveitarfélagi og sitja í henni af hálfu EgUsstaðabæjar, Helgi Halldórsson bæjarstjóri og Björn Vigfússon bæjarfulltrúi. Eiðahreppur og Hjaltastaða- hreppur reka grunnskóla á Eið- um, Egilsstaðabær á Egilsstöð- um en Vallarhreppur er í samrekstri um grunnskóla á Hallormsstað með syðstu hreppunum, Skriðdalshreppi og Fljótsdalshreppi sem auk Fella- hrepps hafa ekki viljað koma inn í sameiningarviðræðurnar. Ekki eru þó líkur á að grunn- skólunum fækki, til þess eru vegalengdir taldar of miklar, en reynt verður að ná fram auk- inni hagkvæmni og skifvirkni með sameiginlegum rekstri skólanna. Tíu sveitarfélög á ofanverð- um Austfjörðum auk Borgar- fjarðar eystra hafa sameinast um heilsugæslu sem er ein stærsta landfræðilega „komm- úna“ á íslandi. Sveitarfélögin hafa einnig annað samstarf, m.a. sameiginlega öldrunar- nefnd, reka saman elli- og dval- arheimili, oddvitarnir halda reglulega samráðsfundi svo raunar er löngu síðan búið að stíga fyrstu skrefín á Fljótsdals- héraði í sameiningarátt. GG Austurland Sýslumaðurinn á Akureyri, 13. janúar 1997. Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð ‘1 5 a» 5 0 8.282.152 2. pS»5 f 105.710 3 4 af 5 115 9.510 4. 3af5 4.009 630 Samtals: 12.535.732 'fppfýslngar um vinningstölur fást einnig I símsvara 568-1511 eða Grænu númeri 800-6511 og i textavarpi á siðu 451. Sameining rædd á Austljörðum Sameining Neskaupstaðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar myndar félagslega öflugt sveitarfélag. Rl áðgjafarfyrirtækið Rekst- ur & ráðgjöf hf. í Reykja- /vík vinnur að hags- kvæmnisathugun á því að þrjú Atvinna ■ Atvinna ■ Atvinna Laugarborg - Húsvörður Staða húsvarðar í félagsheimilinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit er laus til umsóknar nú þegar. Umsóknum skal skilað skriflega til Bennýar Jóhanns- dóttur, Víðigerði II, fyrir 1. febrúar nk. Sími 463 1152. Hússtjórnin. af stærstu sveitarfélögum Aust- urlands, Neskaupstaður, Eski- fjörður og Reyðarfjörður, sam- einist. Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri í Neskaupstað, segir að athuguninni eigi að vera lok- ið í lok marsmánaðar en einnig liggi fyrir drög að svæðisbund- inni byggðaáætlun sem Byggða- stofnun hefur samið. Hún er til skoðunar hjá sveitarstjórnun- „Sameining gefur möguleika á eflingu þjónustu, hagræðingu í rekstri og betri nýt- ingu fjármagns," seg- ir Guðmundur Bjarna- son, bæjarstjóri á Neskaupstað. um þremur og eiga þær að hafa skilað athugasemdum um hana fyrir lok janúarmánaðar. Þann 4. febrúar nk. munu svo full- skipaðar sveitarstjórnirnar funda með stjórn Byggðastofn- unnar um skýrsluna og þar verður hún staðfest í endan- legri mynd. Guðmundur Bjarnason segir að mikill vilji sé til þess að með- al allra sveitarstjórnanna að sveitarfélögin sameinist, það ráðist þó að sjálfsögðu nokkuð af niðurstöðu úttektar Reksturs & ráðgjafar hf. „Helsti hagur sameiningar Neskaupstaðar, Eskiijarðar og Reyðarfjarðar er myndum stærri einingar með ibúaíjölda upp á 3.500 manns. Slrkt sveit- arfélag er mun öflugra, fólags- lega. Hægt verður að efla þjón- ustuna og hagræða í rekstri og nýta fjármagnið betur, m.a. það íjármagn sem fer til félags- málastofnunar og tæknideildar. Grunnskólunum mun ekki fækka en yfirstjórn þeirra verð- ur sameiginleg og það verður einnig hagkvæmara að hafa sameiginlega yfirstjórn hafn- anna,“ segir Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri. GG Óvenjumikið af mávum Vetrarfuglatalning fór fram á 10 svæðum í Þing- eyjarsýslum, frá Reykja- dal og norður í Núpasveit. Talið var á tímabilinu 28. desember til 5. janúar síðasthðinn. Alls tóku tólf menn þátt í talning- unni við þokkaleg veðurskilyrði, hiti um frostmark við ströndina en vægt frost inn til landsins. Talningamenn sáu 42 tegundir fugla, sem er meira en nokkru sinni fyrr á þessum svæðum. Vepjur sáust á tveimur taln- ingasvæðum og er það í fyrsta sinn sem tegundin kemur fram í vetrartalningum hér. Aðrar sjaldgæfar tegundir voru; grá- gæs, urtönd, gargönd, grafönd, æðarkóngur og ísmávur. Þá var Qöldi æðarfugla í meira lagi og annar eins ijöldi máva hefur sjaldan sést, en þó bar svo við nú að þeir eru dreifðir mjög víða um svæðið, ólíkt því sem oft hefur verið að stærstur hlut- inn hefur haldið sig við Húsa- víkurhöfn. Vegna tíðarfarsins sem hefur verið nokkuð gott sá- ust fáir svartfuglar en þeir sjást helst við land eftir vond veður. Heildarfjöldi talinna fugla að þessu sinni var 10.831 fugl. GKJ Akureyrf Bæjarmála- punktar • Bæjarráð fjallaði á fundi 9. janúar um fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 18. desem- ber sl. þar sem lagt er fram bréf frá forstöðumanni Skíða- staða, ívari Sigmundssyni, til bæjarráðs, þar sem hann lýsir sig ósammála samþykkt íþrótta- og tómstundaráðs og telur að Skíðastaðir eigi að njóta tekna af lyftukortum til SRA. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið þessa dagana. • Atvinnumálaskrifstofa bæjar- ins hefur spurst fyrir um hvort vænta megi styrks úr bæjarsjóði vegna greiðslu mismunar launa og atvinnuleysisbóta við átaks- verkefni Gilfélagsins við ketil- húsið í Grófargili. Mismunurinn gæti numið 800 þúsund krón- um. Meirihluti bæjarráðs leggst gegn erindinu en Sigríður Stef- ánsdóttir (G) lét bóka að af- staða hennar kæmi fram á fundi bæjarstjórnar. • Umsókn félagsmálastjóra um ráðningu fagmenntaðs ráðgjafa á atvinnudeild í tilraunaskyni til ársloka 1997 var lögð fram ný- verið. Heimilt verður að nýta allt að 1.200 þúsund krónur af fjárveitingu til átaksverkefna í þessu skyni en óskað var eftir 1.750 þúsund króna fjárveit- ingu. • Grýtubakkahreppur óskaði eftir því skömmu fyrir jól að fyrirhugað sambýli aldraðra á Grenivík verði tekið sem hluti af öldrunarþjónustu Akureyrar og að vistunarpláss á Grenivík verði hluti af þeim plássum sem eru á Eyjafjarðarsvæðinu. Bæj- arráð sér sér ekki fært að verða við erindinu. GG

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.