Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.03.1997, Síða 11
I
JOagur-'QItmmtt
Þriðjudagur 18. mars 1997 - 23
FINA FRÆGA FOLKIÐ
Bestu vin-
konupukrið
Samkvœmt nýlegri könnun hefur hreska meðalkonanfarið á stefnumót
með 17 körlum, þegar hún hefur náð 25. aldursárl Af þessum 17 hefur að
meðaltali einn orðið alvöru kœrasti Sem sagt kœrastar koma og fara en á
sama tíma hefur konan átt eina Bestu vinkonu - sem fer hvergi
,-s«4
5. Lætur sem hún sjái ekki að þú ert að sofa hjá hálfvita: En
hlær vel og lengi með þér þegar þú ert búin að kasta honum.
Og ef vinkonan er á góðri leið með að næla sér í draumafol-
ann þá myndi hún aldrei, nokkurn tímann, daðra við hann. Sú
sem fyrst spottar fórnarlambið fær veiðileyfíð. Það er líka
stranglega bannað að sofa hjá fyrrum kærasta bestu vinkon-
unnar.
6. Verður ekki sár þótt vinkonan boði forföll á síðustu stundu:
En bara ef það er vegna karlmanns. Þegar svo er þá er ítar-
legrar frásagnar krafist, bæði fyrir og eftir.
Margir karlar kunna illa við sig í návist bestu vinkvenna eiginkvennanna og eru á nálum
þegar hin óralöngu símtöl standa yfir, lafhræddir um að verið sé að ræða leynda galla
hans, og illa haldnir fara þeir að ímynda sér að besta vinkonan sé afsökun fyrir því að
hitta leynilegan elskhuga - og hún sé með í plottinu.
En samkvæmt breskum konum þurfa þeir ekk-
ert að óttast. Þær telja samræður við bestu vin-
konuna ýmist jafnárangursríkar og viðtal
við sálfræðing (en ódýrari) eða mun betri
(80%). Besta vinkonan nefnilega:
1. Bara hlust-
ar: Á allt og ekkert.
2. Ráðleggur bara en predikar ekki:
Besta vinkonan er ekki með neinn
mömmukomplex. Hún veit að stundum
talar hún fyrir daufum eyrum og gerir ekk-
ert veður út af því þótt gengið sé í þveröfuga
att.
3. Slúðrar: Um allt og alla. Og þig. En besta
vinkonan tilkynnir þér umsvifalaust ef einhverj-
ar kjaftasögur eru á ferð um þig og leiðréttir þær ef
hún kemst í tæri við slúðrarann.
4. Verður drukkin: Þá og þegar þú biður um það. Undan-
skildar eru aðeins óléttar vinkonur.
CZötanCífið
Teitur Þorkelsson
skrifar
Lífsþorstinn
Nirvana, lokatakmark búdd-
istans, felur í sér algjört
frelsi frá löngunum jarðh'fsins.
Með andlegri og líkamlegri ög-
un eiga menn að frelsast frá
jarðlífinu og öðlast fullkominn
frið sem hluti af alheimsver-
unni. Kristnir menn hafa lengi
verið með samskonar frelsi frá
jarðneskum löngunum á heilan-
um. Adamantius Origenes,
frægur kristinn fræðimaður frá
Alexandríu, gelti sig til dæmis
sjálfur árið 200 e. Kr. til að
losna við syndsamlegar langan-
ir holdsins og á fjórðu öld varð
kirkjan að banna slíkar sjálf-
geldingar vegna vinsælda. I trú
sinni á yfirvofandi heimsendi og
umbun á himnum fyrir synd-
laust líferni lokaði fólk sig frá
freistingum heimsins og bað
bænir. Allt gekk þetta út á að
slökkva lífsþorstann, losna við
langanir holdsins í kynlífs-
nautnir og jarðnesk gæði.
En af hverju ætti maður að
vilja frelsast frá löngunum sín-
um, eru þær okkur þjáning?
Eru þær ekki frekar lífsþorst-
inn, það sem heldur okkur
gangandi, drífur okkur áfram.
Fær okkur til að vinna, borða
og drekka, syngja, dansa og
elskast. Vera manneskjur, vera
til af tilfinningu, löngun og
krafti. Mikið líst mér betur á
það heldur en að vera einhver
gufa, löngunar- og meðvitund-
arlaus hluti af alheimsverunni.
Allavega í rúminu.
AKUREYRARBÆR
Frá Grunnskólum
Akureyrar
Innritun 6 ára barna sem hefja skólagöngu næsta
haust (fædd 1991), ferfram í grunnskólum bæjarins
miövikudaginn 19. mars og fimmtudaginn 20.
mars nk. kl. 10-12 f.h. og 13-15 e.h.
Innrita má með símtali við viðkomandi skóla.
Á sama tíma þarf að tilkynna flutning eldri nem-
enda milli skólasvæða. Nemendur úr Giljahverfi
og Vestursíðu, sem eiga að fara í 1.-4. bekk skal
innrita í Giljaskóla, en aðra nemendur sem flytjast í
Giljahverfi skal innirta í Glerárskóla.
Símanúmer skólanna:
Barnaskóli Akureyrar 462 4172
Gagnfræðaskóli Akureyrar 462 4241
Glerárskóli 461 2666
Lundarskóli 462 4888
Oddeyrarskóli 462 4999
Síðuskóli 462 2588
Giljaskóli 462 4840
Skólafulltrúi.