Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.04.1997, Blaðsíða 15

Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.04.1997, Blaðsíða 15
JDctgur-tEttrrám Fimmtudagur 10. apríl 1997 - 27 AHUGAVIRT UTVARP • SJONVARP Berfætti framkvæmdastjórmn Fyrri frumsýningarmynd föstu- dagskvöldsins á Stöð 2 heitir Berfætti framkvæmdastjórinn eða The Barefoot Executive. Hér er á ferðinni endurgerð gamansamrar og vinsællar bandarískrar kvikmyndar með sama nafni frá 1971 en þar lék Kurt Russell eitt aðalhlutverkanna. Leikstjóri nú er Susan Seidelman og aðalhlutverkin eru í höndum þeirra Jason London, Eddie Albert, Chris Elliott og Juliu Sweeney. Við kynn- umst náunga að nafni Billy Murdock en sá starfar sem sendisveinn í ónefndu fyrirtæki og virðist ganga fremur hægt að klífa metorðastigann. Billy er samt ýmsum gáfum gæddur og býr meðal annars yfir töluverðri vitneskju um sjónvarp ásamt því að hafa ríka sköpunarhæfileika. Tæki- færin í lífinu láta þó enn á sér standa og það er ekki fyrr en simpansinn Archie verður á vegi hans að hlutirnir fara að gerast. FJOLMIÐLARYNI Endurtekið efni Þeir voru eflaust margir sem fögnuðu þeim áfanga í sjón- varpsmálum landsmanna þegar Stöð 2 lengdi hjá sér dagskrána með því að hefja útsendingar á hádegi alla virka daga. Síðan þá hefur stöðin bætt um betur og geta áhorfendur tekið þátt í líkamsrækt kl. níu á morgn- anna. Það hefur hinsvegar pirrað margan áskrifandann að bíómyndir sem sýnd- ar eru um miðjan dag eru oft á tíðum einnig á dagskrá á kvöldin. Þessar endursýningar eiga eflaust að koma til móts við þá ijölmörgu sem ekki eiga þess kost að horfa á dagskrána á daginn, en fyrr má nú rota en dauðr- ota. Það er kannski að rætast það sem haft var á orði á sínum tíma að dag- skráin hefði aðeins verið lengd til að fá rými fyrir endursýnt efni og ekkert annað. Ljótt ef satt er. Þótt mikið sé af annars góðu efni á stöðinni hefur það sætt gagnrýni hversu mikið rými allskyns auglýsing- ar fá í dagskránni. Nú er svo komið að það eru ekki aðeins hefðbundnar auglýsingar sem taka tíma frá öðrum dagskrárliðum heldur einnig dag- skrárauglýsingar. f þeim efnum er ekki aðeins verið að auglýsa einstaka þætti heldur einnig vörur og þjónustu frá þeim fyrirtækjum sem styrkja fjár- hagslega gerð eða sýningu viðkom- andi þáttar. Auglýsingatímarnir geta þvx orðið ansi margfaldir í roðinu, sem er miður. UPPAHALDS UTVARPS- OG SJÓNVARPSEFNIÐ Ari og Sveinn eru framtíðarmenn“ Þegar menn eru komnir á minn aldur - svona rétt rúmlega þrí- tugir - eru það fréttir í ljósvak- anum sem þeir helst fylgjast með. Ég reyni að ná öllum fréttatímum sem ég mögulega get. En reyndar eru stöðvarn- ar orðnar svo margar, að ég er farinn að missa heildaryf- irsýn yfir hvaða efni er hvar í boði. A það jafnt við fréttir og annað efni,“ segir Hermann Sæmundsson, deildarsér- fræðingur í félagsmálaráðu- neytinu. „Það eru helst breskir sakamálaþættir sem ég reyni að ná. En kannski er það nú svo sígilt eftirlætisefni í sjón- varpi að ekki tekur að nefna það. Síð- an hef ég afar gaman af dönskum gamanþáttum. Eftir Ijögurra ára námsdvöl þekki ég hinn hárfína danska húmor harla vel og finnst hann afar heillandi. - Síðan finnst mér á góðum stundum gaman að setjast niður og horfa á barnaefnið með sonum mín- um tveimur, Sæmundi, 5 ára, og Helga Grími, 2ja ára,“ seg- ir Hermann - sem bætir því við að hann hafi alltaf gaman af sjónvarpsefni af lands- byggðinni - ekki síst af heima- slóðum sínum í Skagafirði. Aðspurður um sína eftir- lætis ljósvíkinga nefnir Her- mann Sæmundsson góðvini sína tvo, þá Svein Helgason, fréttamann á Útvarpinu og Ara Sigvaldason, tíðindamann RÚV í Kaupmannahöfn. „Þeir eru báðir afar færir og eru framtíðarmenn í íslenskri ljölmiðlun," segir Hermann. -sbs N V A R P I Ð 16.20 Þingsjá 16.45 Leiðarljós (615) (Guiding Light) Banda- rískur myndaflokkur. 17.30 Fréttir 17.35 Auglýsingatími - Sjónvarpskringlan 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Höfri og vinir hans (15:26) 18.25 Ungur uppfinningamaöur (10:13) (Dext- er's Laboratory) Bandariskur teikni- myndaflokkur. 18.55 Fjör á Ijölbraut (7:39) ( 19.50 Veöur 20.00 Fréttir 20.35 Happ í hendi 20.40 Dagsljós 21.15 Kavanagh lögmaöur: Efnispiltar (Kavanagh Q.C.: Men of Substance) Bresk sakamálamynd frá 1995 um lög- manninn snjalla, James Kavanagh, sem í þetta skiptið tekur aö sér að sækja mál gegn heróínsmyglurum. 22.35 Þagnarskylda (La regle du silence) Frönsk bíómynd frá 1994. Ungur prestur kemur til að þjóna í heimabæ sínum og hefur heimkoma hans afdrifarikar afleið- ingar I för með sér. Aöalhlutverk leika Tcheki Karyo, Clementine Clari og Vanessa Wagner. 00.00 Ráögátur (3:6) (The X-Files IV) Ný syrpa í bandariskum myndafiokki um tvo starfsmenn Alríkislögreglunnar sem reyna að varpa Ijósi á dularfull mál. Aö- alhlutverk leika David Duchovny og Gilli- an Anderson. Þýðandi: Gunnar Þor- steinsson. Atriði í þættinum kunna að vekja óhug barna. Endursýndur þáttur frá fimmtudegi. 00.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok S T O Ð 2 09.00 09.15 13.00 14.50 15.10 15.35 16.00 16.25 16.50 17.15 17.40 18.00 18.05 19.00 20.00 Línurnar í lag (12:60) Sjónvarpsmarkaöurinn 1941 Gamanmynd eftir Steven Spiel- berg sem gerist í lok seinni heimsstyrj- aldarinnar. Mikil ringulreið rikir í Kaliforn- íu þegar fréttist að Japanir hafi í hyggju að gera innrás. Sjónvarpsmarkaöurinn Út í loftiö NBA-tilþrif Kóngulóarmaöurinn Steinþursar Magöalena Glæstar vonir Línurnar í lag Fréttir islenski listinn 19 20 Lois og Clark (21:22) (Lois and Clark) 20.55 Berfætti framkvæmdastjórinn (The Barefoot Executive) Sjá kynningu 22.40 Litla Vegas (Little Vegas) Gamansöm bíómynd um íbúa lítils eyðimerkurbæjar sem búa flestir hverjir í hjólhýsum, eru efnalitlir og eiga það sameiginlegt að vita engan veginn hvert þeir stefna. Þetta er furðulegur samtíningur af fólki sem leitar aö sjálfu sér og lætur hverjum degi nægja sína þjáningu. En margt breytist þegar vafasamir aðilar með tengsl viö mafíuna ákveða að breyta þessum útnára t nýja spilavítisparadís. Aöalhlutverk: Anthony John Denison, Catherine O’Hara, Jerry Stiller og Mich- ael Nouri. Leikstjóri: Perry Lang. 1990. 00.15 1941 Sjá umfjöllun að ofan. 02.10 Dagskrárlok • »ÝN 17.00 Spítalalíf (MASH) 17.30 íþróttavlðburöir í Asíu 18.00 Körfubolti um víða veröld 18.30 Taumlaus tónlist 19.15 TÍtalski boltinn Viðureign AC-Milan og Juventus úr 26. umferð. 21.00 Sannur meistarl - Saga Ray Mancini. (Heart of a Champion: The Ray Mancini Story). Á árunum fyrir síöari heimsstyrj- öldina var Lenny Mancini í hóp fremstu boxara heims. Stíll hans þótti einstakur og andstæðingar hans í hringnum áttu í vök að verjast. Hann fékk þó aldrei tæk- ifæri til að keppa um heimsmeistaratitil- inn því stríðiö skall á. Löngu seinna tók sonur hans, Ray, upp þráðinn og fór aö stunda hnefaleika með góöum árangri og fékk brátt sama gælunafn og pabbinn hafði eða Boom Boom. Og ekki leiö á löngu þar til sonurinn fékk tækifæriö sem gekk fööur hans úr greipum, tæki- færiö til að berjast um heimsmeistaratit- ilinn í boxi. Leikstjóri er Richard Mich- aels en í helstu hlutverkum eru Robert Blake, Dough McKeon, Mariclare Cost- ello og Curtis Conaway. 22.30 Undirheimar Miami (e) (Miami Vice) 23.20 Kæra Dollý (e) (Dolly Dearest) Óhugnan- leg hrollvekja um yfirnáttúrulega atburöi. Fjölskylda ein kaupir niðurnídda verk- smiöju í Mexíkó. Við hliðina á verksmiðj- unni er forn grafreitur. Brátt fara óhugn- anlegir og óútskýranlegir atburöir aö ger- ast. Leikstjóri: Maria Lease. 1991. Stranglega bönnuð börnum. 00.50 Spítalalíf (e) (MASH) 01.15 Dagskrárlok © RIKISÚTVARPIÐ 12.00 Fréttayfirlit á hádegi. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veöurfregnir. 12.50 Auölind. 12.57 Dánarfregnir og auglýsingar. 13.05 Heimsmenning á hjara veraldar. 14.00 Fréttir. 14.03 Útvarpssagan, Kaldaljós 14.30 Miödegistónar. 15.00 Fréttir. 15.03 ísskápur meö öörum. 15.53 Dagbók. 16.00 Fréttir. 16.05 Fimm fjórðu. 17.00 Fréttir. 17.03 Víösjá. 18.00 Fréttir. 18.30 Lesiö fyrir þjóöina: Úr æfisögu síra Jóns Steingrímssonar. 18.45 Ljóö dagsins. 18.48 Dánarfregnir og auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar og veöurfregnir. 19.40 Saltfiskur meö sultu. 20.40 Náttúruhamfarir og mannlíf. Þáttaröö um samfélagsþróun í skugga náttúru- hamfara. Fyrsti þáttur. 21.15 Norrænt. Af músík og manneskjum á Norðurlöndum. 22.00 Fréttir. 22.10 Veðurfregnir. 22.15 Orö kvöldsins: 22.20 Tónlist á síðkvöldi. 23.00 Kvöldgestir. Þáttur Jónasar Jónassonar. 24.00 Fréttir. 00.10 Rmm fjóröu. 01.00 Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. Veðurspá. BYLGJAN A S 2 12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu Stöövar 2 12.00 og Bylgjunnar 12.20 12.10 Gullmolar Bylgjunnar í hádeglnu 12.45 13.00 íþróttafréttir 14.03 13.10 Gulli Helga - hress aö vanda 16.00 16.00 Þjóöbrautin Síðdegisþáttur á Bylgjunni í 16.05 umsjá Snorra Más Skúlasonar, Skúla 17.00 Helgasonar og Guörúnar Gunnarsdóttur. 18.00 Fréttir kl. 17.00. 18.03 18.00 Gullmolar 19.00 19.00 19 20 19.32 20.00 Kvölddagskrá Bylgjunnar 20.00 22.00 Fjólublátt Ijós við barinn Tónlistarþáttur 20.30 í umsjón Ivars Guðmundssonar 21.00 01.00 Ragnar Páll Ólafsson og góö tónlist 22.00 03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar Aö lokinni 22.10 dagskrá Stöðvar 2 samtengjast rásir 24.00 Stöðvar 2 og Bylgjunnar. 00.10 Fréttayfirlit og veöur. Hádegisfréttir. Hvítir máfar. Brot úr degi. Fréttir. Dagskrá: Fréttir. Dagskrá heldur áfram. Fréttir. Þjóöarsálin. Kvöldfréttir. Milli steins og sleggju. Sjónvarpsfréttir. Föstudagsstuö. Rokkland. (Endurflutt frá sunnudegi.) Fréttir. Blanda. Umsjón: Andrea Jónsdóttir. Fréttir. Næturvakt Rásar 2 til kl. 2.00. Um- sjón: Ævar Örn Jósepsson.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.