Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.05.1997, Síða 2
Laugardágur XÍ7) 'tíiái'í ty$Y‘-ÍI
H Ú S I N í
B Æ N U M
Freyja Jónsdóttir
skrifar
✓
Arið 1908 fékk Franska
spítalafélagið í Dunkirk
keypta lóð, 12000 ferálnir
úr Félagstúni sem var úr landi
Rauðarár til að byggja á hús
handa Franska konsúlnum.
Landið áttu þeir Jón Jensson og
Hjalti Jónsson sem höfðu áður til-
kynnt bæjarstjórninni að þeir
hyggðust selja úr erfðafestulandi
sínu í Félagstúni.
Upp úr aldamótunum höfðu
Frakkar sent til landsins konsúl
að nafni Brillouin. Á þessum tíma
var mikið um frönsk fiskiskip á
miðunum umhverfls fsland.
Frakkar höfðu reist spítala við
Lindargötu í Reykjavík og á
tveimur öðrum stöðum á landinu.
Eins og gefur að skilja voru þess-
ir spítalar einkum ætlaðir þeirra
mönnum en fslendingar nutu
einnig góðs af.
Brillouin konsúll, fékk húsið
tilhöggvið frá Noregi og lét setja
það niður á kjallara hlöðnum úr
grásteini. Húsið er byggt í
jugendstíl eins og íleiri hús hér á
landi frá þessum tíma. Það er
traustlega byggt og grind þess
gerð af reisverki. Bindingsverk
hússins er fyllt að 1/3 með plönk-
um, klætt báðum megin á bind-
inginn, að utan með láréttri
vatnsklæðningu en að innan með
panel og pappa í milli. Glugga- og
hurðaumbúnaður einfaldur og
stílhreinn. Efri hlutar glugga eru
settir smárúðum. f lýsingu Leifs
Blumenstein segir: „Stigahús ber
allt annan svip en aðrir hlutar
hússins, það ber svip hins þjóð-
lega norska drekastífs og minnir
veggklæðning á stokkhús.“
Grunnflötur hússins er 209
fermetrar og var hliðin sem vísar
að sjónum framhlið. Hurðir voru
út úr veggsvölum að norðanverðu
og tröppur niður, þar yfir voru
lokaðar veggsvalir. Talið er næsta
öruggt að húsið sé frá Strömmens
Trævarefabrik í Austur-Noregi.
Fyrsta brunavirðingin á hús-
inu var gerð 8. september 1909
og fer hér á eftir lýsing virðingar-
manna: „íbúðarús einlyft með
brotnu þaki og tveimur grunn-
kvistum á suðurhlið og veggsvöl-
um (lokuðum uppi og niðri að
norðanverðu). Húsið byggt af
plönkum, klætt utan með pægð-
um 5/4“ borðum með pappa í
milli, það er með helluþaki á
plægðri 5/4 borða súð. Niðri í
húsinu eru sex íbúðarherbergi,
eldhús, búr og fjórir gangar, allt
þiljað og herbergin með striga og
pappa á veggjum og loftum, allt
málað. Þar eru sex ofnar og ein
eldavél. Uppi eru sex íbúðarher-
bergi, baðherbergi, sex fastir
skápar og þrír gangar. í baðher-
berginu er eitt baðker og einn
baðofn. Allt er þiljað og málað
uppi og sumt af herberjunum
með striga og pappír á veggjum
og loftum. Þar eru sex ofnar auk
baðofnsins.
Undir öllu húsinu er kjallari,
Qórar álnir á hæð, með stein-
steypugólfl; hann er hólfaður með
steinskilrúmum í fimm geymslu-
herbergi, þvottahús, straustofu og
einn gang. f þvottahúsinu er
vatnspottur og strauofn í
straustofunni. Um allt húsið eru
vatnsleiðslur. f húsinu eru tvö
vatnsklósett. Rishæð hússins er
átta álnir.
Fyrir vestan húsið á sömu lóð
er hesthús úr bindingi, klætt utan
með borðum, pappa og járni; í því
er loft og plankagólf".
Talsvert íjaðrafok varð hjá
byggingarnefnd vegna byggingar
hesthússins og mun Brillouin
konsúll, hafa byggt það án leyfis.
Eins og gefur að skilja líkaði
nefndinni það stórilla. Af þessu
tilefni var haldinn fundur 2. okto-
ber 1909 hjá byggingarnefnd og
þar einróma samþykkt að krefjast
þess að hesthúsið yrði rifið tafar-
laust, og Brillouin látinn sæta
sektum fyrir byggingu þess.
Einnig minnti bygginganefndin á
að borgarstjóri hefði í bréfi til
stjórnarráðsins kært konsúlinn
fyrir að hafa þrátt fyrir aðvaranir
byggingarnefndar og byggingar-
fulltrúa fullgjört hús sitt án þess
að fá undanþágur þær, sem nauð-
synlegar voru. Einnig heiði hann
kært Brillouin fyrir önnur brot
gegn byggingarsamþykktinni.
Nefndin óskaði eftir því að fá þau
kærumál frágengin áður en vænt-
anleg umsögn frá konsúl J. Brill-
ouin yrði tekin til meðferðar.
Undanþágur þær sem Brilloin
hafði ekki hirt um að sækja um
voru:
„1) Að bitar megi vera nokkrir
í húsinu, 3x9“ í stað 3x6 sem
byggingarsamþykktin mælir fyrir.
2) Að ekki þurfi að hafa milli-
gólf í húsinu neins staðar.
3) Að ekki þurfi að hafa bita
kembda niður í aurstokkana fleiri
en eru, eins og nú er frá húsinu
gengið.“
Einnig kom fram á fundinum
að banna ætti konsúlnum að búa í
íbúðarhúsinu þar til hann hefði
séð fyrir því að gengið væri frá
framantöldum atriðum.
í bréfi frá Stjórnarráðinu þann
12. desember 1909 segir að
ákjósanlegt sé sökum vináttu-
tengsla við Frakkland að við hús-
inu þurfi ekki að hrófla frá því
sem er. Húsið standi afskekkt og
sé að öllu leyti mjög vandað. Und-
ir bréfið skrifar Björn Jónsson
Sjávargata liggur frá norðurhlið Höfða.