Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.09.1997, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.09.1997, Blaðsíða 2
14 -Fimmtudagur 4. september 1997 Jlagur-®ímirat UMSJÓN VIGDÍS STEFÁNSDÓTTIR Vantar þig ráð? Viltu spyrja um eitthvað? Vigdís svarar í símann þriðjud. - fimmlud. kl. 9-10f.h. Vantar þig eitthvað? Viltu skipta eða gefa? Flóamarkaðurinn er fyrir þig! Það kostar ekkert að hringja. Sími: 563 1629 Faxnúmer: 551 6270 Tölvupóstfang: vigdis@itn.is Flóamarkaðurinn Niclas hillur og skápar Margrét á töluvert af Niclas hillum, 22 stk. ásamt 3 glerskápum og 5 uppistöðum. Hún vill skipta á þessu og t.d. sjón- varpssófa eða einhverju öðru. Síminn hjá Margréti er 566 7343 eftir kl. 4. Það er upplagt að skipta við aðra á húsgögnum í stað þess að henda þeim. Mynd úr myndasafni DT. Heilsumolar, bflveiki Rannsóknir sýna að íjórir af hverjum tíu finna til ógleði, svima og/eða höfuðverkjar ef þeir reyna að lesa í bifreið eða í strætisvagni. Astæða þess er talin vera hreyfingin sem augað skynjar úr hliðargluggum og kemur úr óeðlilegri aðstöðu þegar höfuðið er beygt fram við lestur. TIl að koma í veg fyrir slík óþægindi hefur Rod Gilian komið með eftirfarandi ráð: 1. Snúðu baki við glugg- anum næst þér. 2. Haltu bókinni eða blaðinu nálægt andlitinu. 3. Notaðu eitthvað tU að loka fyrir útsýnið frá hliðar- gluggum. 4. Haltu höfðinu eins kyrru og þú getur. 5. Sittu í framsæti bifreið- arinnar. Mörgum þykir gott að eyða tímanum á ferðalögum með lestri, en það hentar ekki öllum. Neytendavænt Ódýrír geisladiskar s Kolaportinu, bás E-10, er mikið af geisladiskum. Þar hef ég margsinnis fundið nýja og nýlega geisladiska á allt að 1000 kr. lægra verði en gengur og gerist í búðum. Fyrir þá sem þrífast á tónlist, er þessi bás alveg frábær. Annars eru ódýrustu geisladiskarnir þar fyrir utan yfirleitt í versluninni Tónaflóð, sem er við hliðina á Húsgagnahöllinni. Á báðum þessum stöðum er mikið úrval af öðruvísi tónlist, gömlinn lögum, þýskri, franskri og ítalskri tónlist svo eitthvað sé nefnt. Skólabœkur Eftir að hafa farið á milli sölustaða með táningana til að kaupa skólabækur, virðist Griffill vera með jafnbesta verðið, bæði á no-uðum og nýjum bókum. Eina vandamálið er það að ekki virðast allir skólar hafa viðurkennt Griffil sem bókabúð og því fást ekki allar skólabækurnar þar. Nýja kókómjólkin heitir Jibbí og er í 1/2 I og 1/4 I umbúðum. Nú legund af kókómjólk Nú hefur Sól farið aftur í beina samkeppni við Mjólkursamsöluna með því að framleiða kókómjólk. Sól kaupir undanrennuduft, blandar það þrúgusykri, ávaxtasykri, mjólkurfitu, kakó og ýmsu fleiru og út kemur kókómjólk. í henni er ekki hvítur hreinsaður sykur, sem ætti að vera foreldrum gleðiefni. Ilitaeiningafjöldi er þó svipaður og í hinni kókómjólkinni, en fitan aðeins minni. Kókómjólkin fæst í 1/2 1 umbúðum, sem er þægilegt fyrir þá sem finnst 1/4 1 of h'tið. Frd lesendum... Heimiiisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58, 602 Akure Þverholti 14 Reykjavík. Netfang: ritstjori@dagur.is, Fax: 460 6171 Að geta ekkí útvegað kennara ið eigum að standa með grunnskólunum okkar og gegn einkavæddum flokkunarstöðvum, sem viðhaldi misskiptingunni, dæmi og útskúfi. Ekki tókst að út- vega öllum börnum á Akureyri kennara á þessu hausti. Sum þeirra barna, sem eru að mœta í skólann ífyrsta sinn, hafa engan kennara. Fengu bréf um þetta frá skólanum sínum. Hvað á að kalla þessa frammi- stöðu bæjarins í skólamálum? Ég veit að þetta stafar ekki af viljaleysi þess fólks, sem ná- lægt mannaráðningum kemur, en hvað ætlar bæjarstjórnin að berja höfði sínu lengi við stein láglaunastefnunnar? Bæjar- stjórnin hefur ekki haft kjark til þess að taka grundvallaratr- iði skólastarfsins, launastefn- una, í sínar hendur. Hún hefur ekki þorað að bjóða samtökum kennara til viðræðna um nýja launastefnu. Það er eins og bæjarstjórn Akureyrar hafi ekki skilið, að grunnskólar bæj- arins eru undir stjórn bæjarins og á ábyrgð bæjarstjórnar. Grunnskólar Akureyrar voru ekki fluttir til postula láglauna- stefnunnar hjá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga. Sveitarfélög verða að velja og hafna, rétt eins og allir aðrir. Ríkisstjórnin mun ekki marka þeim svo mikla tekjustofna, að þeir sem vilja reisa „stjórnand- anum mikla“ fleiri minnismerki eða halda úti fótboltaliði með aðkeyptum leikmönnum, gætu ekki beðið um meira. Skylda að útvega kennara Það er ekki hægt að ætla bæjar- stjórn Akureyrar að eyða kröft- um sínum í að sannfæra bæjar- stjórnarmenn vítt og breitt um landið að það eigi að reka al- mennilegan grunnskóla. Það mál verður bæjarstjórnin að gera upp við kjósendur sína. Bæjarstjórn Akureyrar getur ekki varpað frá sér ábyrgðinni á því að börnin hafa ekki kenn- ara. Það er ábyrgðarleysi að láta eitthvert apparat á borð við Samband íslenskra sveitarfé- laga, sem ekkert beint umboð hefur frá kjósendum, marka launastefnuna. Sú stefna birtist okkur í orðsendingunum til ný- nema um að skóhnn hafi engan kennara handa þeim. Sveitarfé- lög hafa mörg hver gætt hags- muna verktakabransans og keppnisíþrótta vel, jafnvel grunnskólinn hefur fengið ein- hverja mola af þeim góðgjörð- um, t.d. leikfimihús með að- stöðu fyrir 800 áhorfendur, tvö- falt fleiri en nemendur viðkom- andi skóla. Alls ekki er þó ætl- unin, að þessi meinta góðvild birtist því hugsjónafólki, sem enn þraukar í grunnskólum landsins. Hækkið launin! Ennþá verra er að láta íhalds- öflum samfélagsins eftir, að gera grunnskóla okkar að víg- velli í stríði þeirra gegn þeirri hugsjón lýðræðis og jöfnuðar, sem grunnskólinn byggist á. Við eigum að standa með grunnskólunum okkar og gegn einkavæddum ílokkunarstöðv- um, sem viðhaldi misskipting- unni, dæmi og útskúfi. Stjórn- málamenn hafa hingað til ekki viljað kannast við ábyrgð sína á verkfallsátökum í skólum. Ábyrgðin er þeirra, grunnskóla- kennarar eru ekki að fara fram á neitt sem ekki er hægt að verða við. Það á að leiðrétta óréttlætið og bera þá gjörð und- ir kjósendur. Verði laun grunnskólakenn- ara ekki hækkuð þannig að friður skapist um starfið í grunnskólum og kennarar fáist til starfa, þjónaði flutningur grunnskólans frá ríki til sveitar- félaga engum tilgangi. Þorlákur Axel Jónsson. i

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.