Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1982, Page 4
4
DV. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST1982.
Hverjir eru nú ad gefa úl
sínar fyrstn skáldsögnr?
— éstaðfestar fréttir af jjólabékamarkaðnum
Hvað skyldu skáldin okkar hafa á
boðstólum þetta haustið? Og hverjir
skyldu vera aö senda frá sér bækur í
fyrsta sinn? Helgarblað DV hefur
fullan hug á að fylgjast með því og
kynna lesendum jafnharöan hvað er
á döfinni. Við byrjum í dag og höld-
um áfram á hverjum laugardegi til
jóla.
Okkur þótti rétt að ræða fyrst við
ungan höfund sem skrifar án þess að _
eiga nokkurn útgefanda vísan. Hann
heitir Ágúst Borgþór Sverrisson.
Vonum viö að lífið eigi eftir að fara
um hann mjúkum höndum og veita
honum skáldfrægð í fyllingu tímans.
Síðan hittum viö að máli Flosa Olafs-
son sem fram aö fertugu hafði trúað
lærifeðrum sínum í menntaskóla
sem héldu því fram að hann skyldi
aldrei reyna að skrifa neitt. En eftir
að hafa haldið úti vikulegum pistlum
í Þjóðviljanum í tíu ár og gefið þá út í
bókum sendir hann frá sér uppgjör
við lífið og tilveruna. Utgefandierlð-
unn.
Blaðamenn, prestur
og fleiri góðir
Það var prýðilegt framtak hjá Al-
menna bókafélaginu að efna til
skáldsagnasamkeppni í fyrra og af-
rakstur hennar kemur á prenti nú
fyrir jólin. Fyrstu verðlaun hlaut
bókin „Riddarar hringstigans” eftir
Einar Má Guömundsson. Er hún
sögð bráðfyndin eins og ljóð hans
(Sendisveinninn er einmana og Er
nokkur á Kórónafótum hér inni?).
Höfum við hlerað aö hún lýsi nýliön-
um bernskuárum höfundar í Breið-
holtinu og hringstiginn kunni aö hafa
verið í ófullgerðri nýbyggingu, þar
sem ungviðið hafði afdrep til að
svala lífsnautnum eins og reykingum
í fyrsta sinn.
Ennfremur hlutu verðlaun kunnur
kennimaöur, séra Bolli Gústavsson í
Laufási, fyrir söguna Vorganga í
vindhræringi og ungur Reykvíking-
ur, Isak Harðarson, fyrir söguna
Þriggja orða nafn.
Enginn þessara höfunda hefursent
f rá sér skáldsögu f yrr.
Hjá Vöku koma einnig fram fyrstu
tilraunir í skáldsagnagerö. Við höf-
um áður sagt frá sögu um stjómar-
ráðsstarfsmann sem Jón Ormur, að-
stoöarmaður forsætisráðherra, send-
ir frá sér. Nú höfum við heyrt aö
fyrrum fréttastjóri Vísis, Sæmundur
Guðvinsson, sem skrifað hefur ótal
blaðagreinar, hafi samiö skáldsögu
sem einnig kemur út hjá Vöku í
haust. Mun hún að einhverju leyti
fjalla um svipuö efni og pistlar hans
um fjölskyldulíf sem birzt hafa í
tímaritinu Líf. Annar fyrrverandi
blaöamaöur á Vísi (síðar á Tíman-
um), niugi Jökulsson, er einnig langt
kominn með skáldsögu fyrir Vöku.
Um hvað skyldu
„Geirfuglarnir" fjalla?
Mál og menning hefur tvær frum-
raunir í skáldsagnagerð á sínum
vegum. önnur er Af mannavöldum
eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur há-
skólakennara. Álfrún hefur að vísu
áður skrifaö doktorsritgerð um forn-
spænska gerö riddarakvæðisins vel-
þekkta Tristan og Isold. En eins og
verða vill um slík skrif munu fáir
hafa lesið það. Af manna völdum
gerist í nútímanum, persónur eru
margvíslegar og sögusviðið ýmist
hérlendis eða erlendis. Skilst okkur
að þetta séu smásögur, tengdar í
eina heild og snúast allar um sama
' efni: vald og valdbeitingu. Undirtitill
bókarinnar er raunar „Tilbrigði um
stef”.
Þá kemur nú fyrsta skáldsaga
Arna Bergmanns blaðamanns og
gagnrýnanda við Þjóðviljann. Hann
hefur áður skrifaö minningar frá
námsárum, Miðvikudagar í Moskvu.
Skáldsagan heitir Geirfuglarnir og
datt okkur strax í hug að hún mundi
fjaila um ákveðinn arm í Sjálfstæðis-
flokknum. Svo mun þó ekki vera, né
heldur mun þetta vera neins konar
fuglafræði, heldur nýstárleg og glúr-
in saga, sögð hefjast í móöurkviði.. .
Hjá Helgafelli mun væntanleg
skáldsaga eftir Jón Ottar Ragnars-
son. Hefur heyrzt aö hún gerist vest-
ur í Bandarikjunum en annars mun
hún enn ekki fullskrifuð. Höfundur-
inn hefur áður sent frá sér bókina
Næring og heilsa um manneldismál.
Iðunn hefur margt á prjónum að
vanda, og þar á meðal skáldsögur
tveggja nýliða. Eru það þeir Anton
Helgi J ónsson og Páll Pálsson.
Anton Helgi vakti á sér athygli
þegar hann varð hlutskarpastur 130
keppenda í smásagnasamkeppni
sem Vikan efndi til í hittiðfyrra.
Fyrsta skáldsaga hans nefnist Vinur
vors og blóma — saga um ástir og ör-
lög. Segir þar frá nokkrum mánuð-
um í lífi ungs manns í Reyk ja vík með
tilheyrandi ástarmálum og öðru.
Páll Pálsson er blaðamaður á
Helgarpósti. Saga hans segir einnig
frá æskunni í Reykjavík en hún heitir
Hallærisplanið. Höfum við hlerað að
hún snúist um líf unglinganna sem
þar halda til á síökvöldum.
Ofangreind upptalning er áreiðan-
lega ekki tæmandi. Fleiri eiga eftir
að bætast í þann hóp sem nú leggur
fyrstu skáldsögu undir dóm gagn-
rýnenda og dóm alþýðu. Og það skal
skýrt tekið fram að þetta spjall er
birt án ábyrgðar, og byggt á því sem
litill fugl hefur hvíslað í eyru manna
héráDV.
Sami fugl kvakaöi eitthvaö um það
að þótt ekki sé nema ein kona í hópi
nýju skáldsagnahöfundanna þá
mundu þrjár konur nú gefa út sín
fyrstu ljóðasöfn. Væru það þær
Norma Samúelsdóttir með ljóðasafn
um hversdagslíf húsmóður í borg
(Mál og menning), Hjördís Einars-
dóttir meö ljóð um hversdagslíf
sveitahúsmóður í Dölunum (Helga-
fell) og Guðrún Svava myndlistar-
kona með ljóðsögu um skilnað sinn
og Þorsteins frá Hamri eftir langt
hjónaband (Iöunn).
ihh
Ágúst Borgþór Sverrisson:
Med bók í smídiim nm
líf meimtaskólanema
— af skólaskáldi
Islendingar eru þekktir fyrir flest
annaö en pennaleti þegar ekki er um
sendibréf að ræöa. En ekki eru
einungis samningsbundnir rithöf-
undar sem fást við skriftir.
I Menntaskólanum í Reykjavík
hafa mörg beztu skáld þjóðarinnar
hafið feril sinn. Og enn þann dag í
dag stinga menntskælingar niður
stílvopni þó líkast til sé færra ung-
skálda þar en í lok sjöunda áratugar-
ins er annar hver maður setti saman
sögur og ljóð. Maður er nefndur
Ágúst Borgþór Sverrisson, 19 ára
menntskælingur. DV hafði spumir af
því að hann sæti viö skriftir.
Blaðamaður DV skundaði á fund
Ágústs Borgþórs og krafði hann
sagna um af hverju hann sæti við
skriftir í stað þess að verja sumrin-
um í að skafra í þ jóðarbúiö.
„Ég er ekki að þessu vegna ein-
hverrar sérstakrar þarfar til að tjá
mig. Það er bara löngun til að búa til
sögur sem er þess valdandi að ég er
að þessu.
Undanfarin ár hef ég unnið á
sumrin í rólegri vinnu og á lágu
kaupi En ég byrjaði að dunda mér viö1
skriftir fyrir nokkrum árum með
heldur litlum árangri. I vetur hef ég
skrifað svolitið meira, allt frá smá-
sögum til dagbókar. Og þá fékk ég
hugmynd að skáldsögu. Þegar ég
varð mér út um helgarvinnu ákvað
ég að eyða sumrinu í það að vinna úr
þessari hugmynd.”
Hvenær ertu bezt upplagður? Ertu
í 9—5 vinnu við söguna? Færðu inn-
blástur eða er þetta tómt púl?
„I upphafi reyndi ég að vinna
reglulega, þ.e.a.s. aö vakna á
morgnana og skrifa nokkra tíma á
dag. En ég gafst upp á því. Ég komst
að því aö það er vonlaust að skrifa á
morgnana. Mér gefst mun betur að
vinna á kvöldin, jafnvel langt fram á
nótt. Mér finnst ég vera mun
skarpari á kvöldin. En með inspír-
eringu. Það er allur gangur á því.
Stundum geng ég með hálfmótaðar
hugmyndir í kollinum lengi án þess
að koma þeim frá mér. Stundum
strita ég við að koma einhverju frá
mér og tekst það eftir mikið puð. Og
stundum kemur andinn yfir mann og
maður ryður öllu út úr sér á engri
stundu.”
— Það er ekki seinna vænna að
spyr ja þig um hvað sagan f jalli?
„Þetta er öðrum þræði skemmti-
saga. Ekkert beinlínis nýtt. Sagan
gerist á tveimur dögum að vorlagi.
Aðalpersónan er menntaskólanemi
sem hefur nýlokið vorprófum. Það
má segja að þarna séu 3 persónulýs-
ingar. Lýst ferð þriggja kunningja á
skemmtistað, næturskemmtun
þeirra og þynnkunni daginn eftir.
Stór hluti sögunnar eru endur-
minningar og alls kyns pælingar
söguhetjunnar. Og þetta efni er ekki
sett fram á hefðbundinn hátt. Sagan
er ekki að öllu leyti epísk. ”
— Hvenær fékkst þú áhuga á bók-
menntum? Manstu eftir því hvað var
fyrsta verkið sem hafði einhver áhrif
áþig?
„Ofvitinn. Ég las hana þegar ég
var 13—14 ára en almennilegar bók-
menntir fór ég ekki að lesa fyrr en
nokkrum árum síðar, t.d. Laxness
(sér í lagi hrifinn af honum um og — Ensvoviðvíkjumafturaðbók-
fyrir heimsstyrjöld) og svo Þór- inni sem þú ert með í smiðum. Þú ert
berg.” menntaskólanemi eins og sögu-
Agúst Borgþór Sverrisson, alias Messias frá Eiði
hetjan, er bókin sjálfsævisöguleg?
,jlún er ekki um sjálfan mig
heldur útfrá sjálfum mér. Það má
finna drætti af sjálfum mér í sögu-
hetjunni og eins má finna ýmislegt í
fari vina minna í öörum persónum
sögunnar.
En eins og ég sagði áðan, hlutimir
eru ekki teknir með öllu alvarlega og
reynt aö hafa húmorískan blæ yfir
öllu.”
— Heldur þú að það sé mikið um
efnileg ung skáld á vorum dögum?
„Það er mikið af frambærilegum
ungum skáldum en ég sé ekki neina
snillinga þar á meöal. Fátt af
nútímabókmenntum yfirleitt er
mjög gott en mikiö er af frambæri-
legum bókmenntum. Af yngri skáld-
um íslenzkum er ég hrifnastur af
Einari Kárasyni. Af því sem hefur
verið gefið út síðastliðinn áratug vil
ég nefna Tómas Jónsson metsölubók
eftir Guðberg Bergsson en annars er
ég ekki hrifinn af Guöbergi. Ljóð-
skáld? Hannes Pétursson er mitt
uppáhaldsljóðskáld af þeim sem eru
ennáfullu.”
— Ertu að hugsa um að gerast rit-
höfundur að ævistarfi?
„Ég veit það ekki enn en það er
freistandi. Við skulum segja að ég
stefni leynt og ljóst að því.”
— Ertu farinn að leita að útgef-
anda?
„Nei, ég geri það ekki fyrr en ég er
alveg búinn. Og það verður ekki í
bráð. Ég ætla að taka langan tíma í
þetta. Ég vil hafa hana góða áður en
éggefhanaút.”
-ás.