Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1982, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 28. AGUST1982.
9
Eigmmenn Marilyn, DiMaggio, Miller: Hún fórnaði fram sínum tvisvar á altari hjónabandsins.
um að fóma frama sínum á altari
heimilisins og gerast húsmóðir, þar til
hún að síðustu ályktaði sem svo að
þetta hlutverk ætti alls ekki við hana. 1
bamæsku hafði hún aldrei kynnzt öðm
en útivinnandi konum sem aldrei höfðu
tíma til aö úthugsa matseöla kvölds-
ins. Löngunin til að verða hin full-
komna húsmóðir entist ekki lengi og
seinni maður hennar, Joe DiMaggio,
kunni ekki að meta eiginkonu sem ekki
gat einbeitt sér að húsmóðurhlutverk-
inu.
Bæði hjónabönd hennar enduðu
fremur skyndilega, en þó ekki án
sektarkenndar. Gloria Steinem segir
að Marilyn hafi kennt sjálfri sér um
það sem úrskeiðis fór í stað þess að
gagnrýna kynhlutverkaskiptinguna í
samfélaginu, og draga slíka hluti að
einhverju leyti til ábyrgðar fyrir það
sem gerðist. Allt varð óhamingju henn-
ar að vopni. Hún var haldin hugmynd-
um um kvenleika sem voru í algjöru
ósamræmi við hennar eigin raunveru-
leika.
Kar/menn voru
kennarar hennar
Þriðja hjónaband hennar, með
menntamanninum Arthur Miller, má
eflaust að nokkru leyti rekja til löng-
unar hennar til raunverulegrar viður-
kenningar. Gæti hún ekki öðlast viður-
kenningu sjálf og hjálparlaust, gat hún
þó alltaf — eins og Steinem bendir á —
notað hinu sígildu aðferð kvenna til aö
svala metnaði sínum: með því að gift-
ast manni sem var virtur fy rir það sem
hún mat mest: Það að vera mikill lista-
maður.
Karlmenn höföu verið kennarar
hennar allt frá upphafi. Ævisögur sem
skrifaðar hafa verið um hana frá
freudískum sjónarhóli eyða löngu máli
i ævilanga leit hennar að föður til að
vega uppföðurlausa barnæsku.
Þóttist hún ef til vill hafa fundið
föður í Miller? Hún lagði bókstaflega
allt undir í þessu hjónabandi: Hún
Marilyn Monroe lézt í ágúst árið 1962.
snerist til gyðingatrúar, lagði sig í
mikla áhættu þegar Miller lenti í rétt-
arhöldum óamerísku nefndarinnar á
tímum McCarthy-ofsóknanna, lék hús-
móður mánuðum saman. Á mynd sem
tekin var af þeim á brúðkaupsafmæli
þeirra skrifaði hún: „Hope, hope,
hope” (Vona, vona, vona).
Arið 1961, eftir fimm ára sambúð,
lauk h jónabandinu loks með skilnaði.
Við hvað ert
þúhrædd?
Við tók tími einmanaleika. I viðtali
viö enskan blaöamann sagði Marilyn:
,JÉg spyr sjálfa mig við hvað ég sé
eiginlega hrædd. Eg veit að ég hef
hæfileika, ég veit að ég get Ieikið. Þú
þarft bara að halda áfram Marilyn.
Mér finnst sem ég sé að reyna að
smjaðra fyrir fólki þegar ég er að
segja því það sem það vill heyra. Það
gerir mighrædda.”
Það sem eftir stendur er ekki leikur
hennar, né öll hennar vinna, heldur
líkami hennar.
Við æfingar á siðustu mynd sinni,
Something’s Got To Give, lék hún í
fyrsta sinn allsnakin, þrátt fyrir það að
enginn heföi beðið hana um þaö.
Tveimur mánuðum fyrir dauða
hennar sat hún fyrir hjá ljósmyndar-
anum Bert Stern, það er að segja hún
eiginlega ,,lá” fyrir. Hún var klædd í
hálsfesti og armband og vafin í teppi.
Eftir nokkra sopa af Dom Perignon fór
teppið lönd og leið. Það er eins og hún
vildi sanna fyrir sjálfri sér að það væri
eitthvað við hana sem væri eins og það
átti að vera, að þó hún væri þrjátiu og
sex ára, væri líkami hennar enn fagur.
Um annað var hún ekki viss. En viss-
an um fegurð líkama síns dugði ekki til
aðlifaaf. EGsneri.
Snoghoj Folkehojskole er en
nordisk folkehojskole,
hvor du udover nordiske emner
bl.a. kan vælge mellem mange tilbud indenfor:
musik, litteratur, vævning, keramik,
samfundsforhold, psykologi m.m.
Du vil mode mange elever fra de ovrige
nordiske lande,
og vi tager pá studietur i Norden.
Kursustider:
2. nov. - 24. april
eller
4. januar - 24. april
Skriv efter vor nye skoleplan
SNOGH0J
NORDISK FOLKEH0JSKOLE
DK 7000 Fredericia
FYRSTA FLOKKS FRÁ FÖNIX
Sérstakt
! kynningarveró
i
hrærivélar
j Heimsþekktar vesturþýskar úrvalsvélar á góðu
i verði. Hérlendis fékkst stærri gerðin einkum
j fyrr á árum, og hefur reynst nær óslítandi
! vinnuþjarkur. Nú hefur Fönix fengið umboðið
, og býður bæði ...
< «. .
j PAUL MIXI - afkastamikla vinnuþjarkinn j
fyrir stóru heimilin - og j
| PAUL KUMIC - lipra dugnaðarforkinn
fyrir smærri heimilin.
I Báðar eru fjölhæfar: Hræra, þeyta, hnoða, kurla, I
j mauka, blanda, hrista, hakka, móta, mala, rífa,
J sneiða, skilja, pressa - og fara létt með það'
í ,
Frabær hönnun, fyrir augað, þægindin og endinguna:
Þú þeytir t.d. eða hrærir á fullu, án þess að upp
úr slettist eða hveiti sogist inn x mótorinn.
A=onix
Hátúni 6a
Sími 24420
HANN ER KOMINN
AFTUR
Veröið er lægra,
en á nokkrum öðrum bíl
Á GREIÐSLUKJÖRUM
SEM EKKI HAFA ÞEKKST
HÉR Á LANDI
ÞEIR SEM HUGSA
KAUPA TRABANT
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
H Ingvar Helgason
Sýningarsalurinn v/Rauöageröi
Sími 33560