Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1982, Qupperneq 14
14
DV. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST1982.
John Waters kvikmyndaleikstjóri. „Haidið fyrir nefið þegar þið sjáið nafn hans.”
„Maður verður að hafa
gððan smekk iil að
geta notíð þess slænm"
Kvtkmyndaleikstjóriim John Waters er þekktur fyrir
flest annað en tepruskap í myndum sínuin.
Nýjasta mynd hans POLYESTER bókstaflega lyktar
enda er liún í ODORANA
Fýlubombur
Hingað til hefur kvikmyndin ekki
verið sett í samband við lyktarskyn-
ið. Enginn þefar af kvikmynd. En
John Waters, kvikmyndaleikstjóri
frá Baltimore, hefur tekið nýja tækni
í þjónustu sína og bætt nýrri vídd í
kvikmyndir sínar, — en á sinn hátt.
Uppgötvunin nefnist ODORAMA og
virkar hún á eftirfarandi hátt:
Með bíómiðunum fær hver áhorf-
andi spjald með tíu númeruðum ból-
um. Síðan setjast menn í sitt sæti,
horfa á kvikmyndina og bíða þess að
númer birtist á tjaldinu. Þá er klórað
í bólu með samsvarandi númeri og
reynist bólan þá vera það sem kallaö
er í bamaskólum fýlubomba. 1 sam-
ræmi við atburði myndarinnar gýs
upp megn stækja. Svona einfalt er
það nú. Fy rsti þef urinn er kannski af
fölnuðum rósum en það sem á eftir
kemur, — tja — þetta verður maður
bara aö upplif a, hver á eigin ábyrgð.
Oneitanlega hlýtur kvikmynd með
þessum eiginleikum að vera nokkuð
sérstaks eðlis og annað er ekki hægt
að segja uiji kvikmyndir John Wat-
ers sem er í miklnm metum hjá þeim
sem hafa gaman af „underground”-
kvikmyndum og þá sérstaklega
þeim sem innihalda sérstakan og al-
mennan óþverra. Nýjasta kvikmynd
Waters, ODOUAMA-myndin
„POLYESTER”, var frumsýnd á
síðasta ári og fór sigurför um
Evrópu í vetur. Eftir tveggja vikna
sýningar í Bandaríkjunum hafði
Waters grætt milljón dali. „Polyest-
er” lyktar því einnig af peningum.
En hugum nú að söguþræði myndar-
innar:
Polyester
„Polyester er gamanmynd meö
alvariegum undirtóni um harm-
þrungið líf hinnar akfeitu húsmóður,
Francine Fishpaw. Eins og hjá svo
mörgum öðrum er flaskan eina
huggun Francine í þessum Ufsins
táradal. Hún býr í einbýlishúsi í út-
hverfi Baltimore og nytur flestra
lífsinsgæða.
En Francine er misnotuð af gróf-
geröum eiginmanni sínum, Elmer,
sem rekur klámbíó og drekkur pepsi
meö morgunverðinum. Hnýsnir ná-
grannar láta móðganir dyn ja á henni
í sífellu. Aðrir fjölskyldumeðlimir
fyrirlíta Francine. Móðir hennar
niðurlægir hana, sonurinn Dexter
lætur sem hann sjái hana ekki og
dóttirin Lulu svarar henni ávallt raeð
skætingi. Francine á aðeins eina vin-
konu, fyrrverandi hreingerninga-
konu sína, sem erfði milljónir og er
núalvarlega sinnisveik.
„Vertu sœl
grimma veröld"
Smám saman hrynur heimur
Francine. Elmer stingur af með
einkaritaranum og ekur um smá-
íbúðahverfið í hátalarabíl og segir
vafasamar sögur af feitri, skítugri
og drykkfelldri eiginkonu sinni.
Sopunum fjölgar h já Francine. Dext-
er, sem fær útrás í því að stíga af
fullum krafti ofan á tær ókunnugra
kvenna í stórverzlunum, er handtek-
inn sem „hinn alræmdi tátrampari
frá Baltimore”. Lulu æfir go-go-dans
daginn út og inn og dreymir um að
verða ný Farrah Fawcett, en verður
ófrísk af völdum pönkarans Bobo.
En allra verst er þó hið ofurnæma
lyktarskyn Francine, sem gerir
henni lífið óbærilegt. Allt í kringum
hana er ólykt. Ástandið hjá Fishpaw-
fjölskyldunni er orðið svo slæmt að
jafnvel hundur fjölskyldunnar frem-
ur sjálfsmorö, hengir sig í ísskáps-
hurðinni, og kveður með orðunum:
„Vertusæl, grimmaveröld.”
Eina huggun Francine fyrir utan
alkóhólið eru dagdraumar um hinn
myndarlega Todd Tomorrow sem
grfur henni iðulega undir fótinn á
rauðu ljósi. Eitt sinn þegar hún er úti
að aka nemur hún staðar til að virða
fyrir sér hrylHlega útleikið fómar-
lamb umferðarslyss. Skyndilega
birtist Todd Tomorrow og ástin
blossarupp.
í einu vetfangi hverfa öll vanda-
mál. Dexter er látinn laus úr fangels-
inu og fer að mála og móta fætur í
listrænu skyni. Lulu finnur innri frið
í faðmi kirkjunnar.
En stærsta niðurlæging Francine
liggur í leyni. Eitthvað lyktar ekki
sem skyldi hjá Todd Tomorrow. Nú,
hér látum við staðar numiö svo að
lesendur geti spenntir beðið myndar-
innar og getið sér til um örlög Fran-
cine og Fishpaw-fjölskyldunnar.
„Mestu óþverramyndir
í sögu kvikmyndanna"
Með hlutverk Francine fer Divine
og Tab Hunter leikur Todd Tomorrow.
Tab Hunter er þekktur sem „the-
clean-cut-aU-american-good-guy” í
amerískum kvikmyndum og hefur
leikið með stjömum eins og Lana
Tumer, Natalie Wood, Debbie Reyn-
olds, Sophiu Loren og Ritu Hay-
worth. Og leikstjórar hans em ekki
af verri endanum: Joseph Losey,
Raoul Walsh, Tony Richardson og
John Houston. Nú er hann í félags-
skap John Waters og Divine.
John Waters er mjög hreinskilinn
maður:
„Mér era kvikmyndir mikið
alvörumál en ég hef absólút ekkert
að segja. Metnaður minn er að gera
mestu óþverramyndir í sögu kvik-
myndanna.”