Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1982, Side 19
DV. LAUGARDAGUR 28. AGUST1982.
19
Popp
Popp
Popp
Popp
Billy Idol fyrrum liðsmaöur Gener-
ation X hefur nýlega gefið út sina
fyrstu sólóplötu. Hann skírir plötuna
einfaldlega í höfuðið á sjálfum sér og
hefur fengið mjög lofsamlega dóma
fyrir gripinn. Okkur þótti rétt að láta
ykkur vita.
Þetta er hún Alf í Yazoo. Eins og
þið vitið er Yazoo bara dúett og hinn
helmingurinn er Vince Clark, sem
stofnaði Depetche Mode á sinum
tima og samdi öll fyrstu „hit’Mög
þeirra i byrjun. Hann yfirgaf siðan
Depetche Mode þegar honum þótti
umstangiö vegna frægðarinnar vera
orðlð of mikið. Skömmu síðar hitti
hann Alf og þau stofnuðu Yazoo.
Fyrsta platan með laginu Only You
fékk ofsaviðtökur og síðustu vikurn-
ar hefur önnur smáskífan með lag-
inu Don’t Go verið við topp brezka
listans. Alf heitir með réttu
Genevieve Alison Moyet og er fædd
árið 1961. — Af Depetche Mode er
það fréttnæmast að sjötta smáskifan
er nýkomin út, aðallagið heitir Leave
in Silence. önnur breiðskifa þeirra
kemur út með haustinu. Fyrri platan
var framleidd hér á íslandi og hét
Speak&Spell.
Ein af þeim hljómveitum sem hvað
mesta athygli hafa vaklð í Bretiandi
upp á siðkastið heitir Haysi
Fantayzee og hafa mörg og löng við-
töl birzt við meðlimi sveitarinnar i
popppressunni. Ekki skai fullyrt
hvort það er tónlistin eða útlitið sem
orsakað hefur þetta mikla umtal en
altént er klæðaburðurinn á þann veg
að eftirtekt vekur.
| Grýlurnar — Ragga Gfsla.
Allir út á völl:
hefst klukhtm tvö
— og stendur
fram undir
Mesta rokkhátið sem sögur
fera af hórlendis hefst í dag á
Melavellinum og koma þar fram
tugir hljómsveita. Hátiðin hefst
klukkan tvö eftir hádegið og fyrir-
hugað er eð hún standi linnulitið
fram undir miðnœtti ef allt fer
samkvæmt áætlun. Afhenda þarf
tvo græna við innganginn, 200 kr.,
til þess að fá stimpil i lúkuna sem
mun gilda sem eðgöngumiði á há-
tiðina. Allir gestir geta valsað um
eð vild sinni, komið og farið og
komið aftur þegar þeim hentar og
bara veifað hendinni framan i
dyraverði svo stimplunin sjáist.
Fyrir þessari stórhátíö stendur
Hallvarður Þórsson og auðvitað þarf
ekki aö taka þaö fram að Melarokk
er stærsta útihátíð í íslenzku rokki
sem efnt hefur verið til. Mjög hefur
verið vandað til hátíðarinnar og
flestar merkilegustu rokksveitirnar
ætla að mæta til leiks, þó munu gestir
eflaust sakna þess að sjá ekki Egó,
Þursana, Grafik og Stuðmenn.
Purrkur Pillnikk mun troða upp á
Melavellinum í dag og verður það
vísast í síðasta sinn sem hljómsveit-
in lætur í sér heyra. Eins og komiö
hefur fram í fréttum hefur Purrkur-
inn lagt upp laupana en geymir sér
svanasönginn þar til á hátíðinni í
dag. Purrkurinn starfaði í rösklega
ár og eftir hljómsveitina liggja
nokkrar gagnrnerkar plötur ; síðasta
plata Purrksins er að koma út um
þessar mundir og heitir No Time to
Think, fjögurra laga plata tekin upp i
Englandiívor.
Hljómsveitirnar sem taka þátt í
Melarokki eru hartnær tuttugu og
má meðal annars nefna eftirtaldar
(endanlégur listi liggur ekki fyrir
þegar þetta er skrifað).
Fræbbblarnir, Grýlurnar, Purrkur
Pillnikk, Tappi Tíkarrass, Þeyr,
Þrumuvagninn, BARA-flokkurinn,
Lola, Q4U, K.O.S., Bandóðir (hljóm-
sveit með Herbert Guðmundssyni
stórpoppara hér fyrr á árum; með
honum eru Rúnar og Mike úr Bodies
og Ásgeir trommari Purrksins),
Ekki, De Thorvaldsens Trio Band,
Pungo & Daisy, Vonbrigði, Refles,
Stockfield Big Nose Band, Kvöld-
verður frá Nesi, Sonus Futurae og
Sokkabandið (kvennahljómsveit frá
Isafiröi!).
Á hátíðinni verður veitingasala,
kaffistofa, markaður og ýmislegt
fleira. Ovæntar uppákomur munu
setja sinn svip á hátíðina og kynnt
verður efni af nýlegum hljómplötum.
Allirútá völl! -Gsal.
Dezy’s Midnight Runners er nú
aftur komin í sviðsljósið eftir öldudal
sem varði í næstum tvö ár. Eins og
ykkur rekur eflaust minni til fékk
hljómsveitin góðan byr í upphafi
ferils sins og lagið Geno um hetjuna
Geno Washington þaut rakleitt á
topp brezka listans. Tónlist Dexy’s
þótti fersk og sérstök, sólkennd með
afbrigðum og ýmsir gamlir Motown-
aðdáendur fylltust gleði þegar
Dexy’s þeyttu lúðra sina óspart í
fjörlegum söngvum. Foringi Dexy’s,
Kevin Rowland, neitaði frá upphafi
að tala við brezku biöðin og lét sér
nægja auglýsingasíður til þess að
koma tilkynningum á milli hljóm-
sveitarinnar og aðdáenda. En svo
sprakk Dexy’s á limminu og klofnaði
í tvennt. Kevin hélt nafninu og heim-
ingi liðs en hinir stofnuðu nýja hljóm-
sveit að nafni Beureo. Síðustu
misserin hefur verið hljótt um báðar
sveitirnar en Dexy’s þó alltaf gefið út
smáskifur annað veifið þó árangur-
inn hafi ekki verið beysinn—unz þar
kom að lagið „Come On Eileen” var
þrykkt á plast. Það lag hefur nú
verið á toppi brezka listans um hrið
og nýja stóra platan frá Dexy’s, Mid-
night Rummers, fengið frábærar við-
tökur. Hún heitir Too-Ray-Ay og ætti
að vera komin i búðir fijótlega.
Ný sólóplata frá Steve Winwood,
Talking Back to the Night, er nýkom-
in út. Af hennl er tekið á smáskifu
lagið Still in the Game. — Haircut 100
er búin að gefa út nýja smáskifu,
Nobody’s Fool. — Hljómsveit að
nafni Everything But Girl hefur
gefið út gömlu djassperluna Night
And Day eftir Coie Porter á smáskifu
og hlotið einróma lof fyrir útsetningu
sína á laginu. — Lene Lovich, sem
var nafntoguð söngkona og laga-
smiður fyrir hálfu öðru ári, lætur nú
loks í sér heyra á nýjan leik. Hún hef-
ur samið söngleik um Mata Hari.
— Fyrsta stúdíópiata Bad
Company um þriggja ára skeið er
'komin út og heitir Rough Diaminds.
— Ný smáskífa Soft Celi What, lagið
er eftir H.B Barnum, þann er hingað
kom fyrir allmörgum árum og
sýslaði eitthvað með islenzku
Change.
Þeyr.
þeíía
Allt er nú í óvissu um framtíö
Pretenders eftir lát James Honey-
man-Scott í sumar. Hann fannst sem
kunnugt er látinn í íbúð sinni og
dánarorsökin var ofneyzla kókains.
Framtið Pretenders var þegar orðin
óviss fyrir lát James þvi bassa-
leikarinn Pete Farndon hafði nokkr-
um dögum áður sagt skilið við hljóm-
sveitina og borið við tónlistarágrein-
ingi. t hljómsveitinni eru þá eftir
Cbrissie Hynde og Martin Chambers
— en hvað þau hyggjast fyrir liggur
semsé ekki á lausu.