Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1983, Page 32
32
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. JOU1983.
Andlát
Magnea Ingibjörg Magnúidóttlr lést
29. júni. Hún var fædd á bændabýlinu
Hólmfastskoti í Innra-Njarðvíkur-
hverfi þann 4. júní 1894. Foreldrar
hennar voru Benia Sigríður Ulugadótt-'
ir og Magnús Magnússon. Magnea var
tvígift. Fyrri maður hennar var Bjami
Ámundason en hann lést árið 1935. Þau
eignuðust sjö börn. Seinni maður
Magneu var Ámi Vilhjálmsson, hann
lést órið 1973. Otför Magneu verður
gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Anna Lárusdóttir, Tjamargötu 10B,
lést í Landspítalanum 3. júlí.
Lárus Jónsson fyrrverandi
héraðslæknir er látinn.
Soffía Sigríður Jónsdóttlr frá Bessa-
stöðum, Lynghaga 28 Reykjavik,
andaðist að kvöldi 29. júní sl. í Borgar-
spítalanum.
Guömundur Ólafs verður jarösunginn
frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. júlí
kl. 10.30.
Hjörtur Kristmundsson fyrrv. skóla-
stjóri verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 7. júlí kl.
13.30.
Gunnlaug Gisladóttlr, Háteigsvegi 4,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
í dag, þriöjudaginn 5. júlí, kl. 13.30.
Elnar F. Eyjólfsson frá Vatnsskarðs-
hólum, Mjóuhlíð 10, verður jarösung-
inn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
6. júlikl. 13.30.
Einar Ólafsson frá Geirakoti, Hraun-
bæ 102 Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6.
júh'ki. 15.
Tilkynningar
BESTU BRANDARARNIR
sxop oc söGun ún samuel síoostu m Amn
Saga eftir
Birgi Bragason
og besta skopiö
úr Samúel
Sárútgáfaaf
skopi úr Samúel
Húmoristar og aðrir góöir Islendingar geta nú
farið að njóta lifsins þvi út er komin sérstök
útgáfa af Samúel, full af skopi og
skemmtisögum.
Þetta er samsafn af bestu bröndurunum
sem birst hafa f Samúel frá því blaðið kom
fyrst út fyrir 14 árum. Skop hefur alltaf verið
fastur liður i Samúel. 1 þessari sérútgáfu
Samúels er einnig ein af hinum þekktu
gamansögum Birgis Bragasonar, svo og ljóð
eftir hann. Þá er einnig krossgáta í þessari
sérútgáfu Samúels, að sjálfsögðu splunkuný.
Brandaramir í sérútgáfunni eru 484 talsins.
Sagt er að hláturinn lengi lífið, þannig að ef
gengið er út frá því að það lengist um 5
mínútur við hiáturinn af hverjum brandara í
sérútgáfu Samúels, þá gerir það 40 klukku-
tima. Það er ein vinnuvika og sagan hans
Birgis Bragasonar ætti að geta hjálpað
flestum yfir mánudaginn aö auki.
„Bestu brandararair úr Samúel” verður til
söiu á blaösölustöðum i allt sumar og kostar
eintakið 60 kr.
Landvarðafólag
íslands
Stjóra L.I. fagnar lofsverðu framtaki
lögregluyfirvalda í RangárvaUasýslu er þau
gengust fyrir eftirUtsflugi um óbyggðir
helgina 25.-26. júní í samvinnu við Land-
helgisgæsluna.
Landverðir hafa ítrekað bent á nauðsyn
samhæförar gæslu flugvéla, bUa og staðbund-
innar vörslu með hálendinu. OspUlt íslensk
náttúra er ómetanleg auölínd og ekki seinna
vænna fyrir islensk stjómvöld að reka af sér
slyðruorðið í náttúruvemdarmálum.
Stjóm L.I. viU ennfremur minna á aö kærur
Undvarða vegna ólöglegra hópferða hafa
hingað til fengið að hvUa óáreittar i skúffum l
embættismanna en vonandi er ofannefnt eftir-
Utsflug merki um breytt viöhorf stjómvalda
gagnvart brotum á náttúruverndarlögum.
Stjóm L.I. vill einnig vekja athygU á að
vegalögreglan gæti auðveldlega tekið að sér
hreyfanlega gæslu á hálendinu fengi hún tU
þess jeppa. Fyrir utan eftirUt með hugsanleg-
um náttúruspUlum yrði sUk gæsla til að auka
öryggi þeirra fjölmörgu sem leggja leið sína
um erfiða slóða hálendisins og þeim hættum
sem þar kunna að leynast.
Frá Hafrannsókna-
stofnuninni
Rannsóknaskipið Ami Friðriksson kom 1. júU
úr 12 daga leiðangri á miðin miUi Islands og
Færeyja til könnunar á kohnuhnagöngum og
umhverfisháttum. Sem kunnugt er er
kolmunninn hlýsjávarfiskur af þorskaætt,
sem hrygnir vestur af Bretlandseyjum en
gengur á sumrin norður í haf í ætisleit og þá
oftast hlýsjávarmegin við skilin miUi kalda
og hlýja sjávarins í Norðurhafi.
Athuganir í þessum leiðangri á kolmunna-
slóð austur af Islandi við mjög svo óregluleg
skU heitra og kaldra hafstrauma (hiti 0—7°)
sýndu að eins árs kolmunna (árgangur 1982)
gætti töluvert við góð átuskUyrði í heita
sjónum. Líklega er um meira eða minna
staðbundinn fisk að ræða. Eiginlegur göngu-
fiskur fannst ekki nema i Utlum mæU fyrir
norðaustan Færeyjar eða sunnan og austan
við kalda sjóinn. Sá fiskur gengur vart á
Islandsmið heldur mUdu austar í hafinu.
Virðist þessi niðurstaða vera í samræmi við
óvenju mikla víðáttu kalda sjávarins (Austur-
Islandsstraumur) tU austurs í vor. Aætlað er
að halda þessum rannsóknum á kolmunna-.
slóð næst Islandi áfram á næsta ári.
Leiðangursstjóri á rs. Arna Friðrikssyni
var Sveinn SveUibjömsson en aðrir
leiðangursmenn voru Svend-Aage Malmberg,
Olafur S. Astþórsson og Héðinn Valdimars-
son. Skipstjóri var Kristján Sigurjónsson.
Félag austfirskra
kvenna f Reykjavfk
fer i sitt áriega skemmtiferðalag sunnudag-
ínn 10. júlí. Farið verður á ÞingvöU, HúsafeU
og Borgames. Nánari upplýsingar í síma
33225 Sonja, 34789 Sigrún, og 82387 Sigurbjörg
fyrir föstudag.
Árbók Nemenda-
sambands Sam-
vinnuskólans
Dt er komið níunda bindi af Arbók Nemenda-
sambands Samvinnuskólans. Að þessu sinni
birtast æviágrip 214 manns sem útskrifuðust
úr Samvinnuskólanum 1928, 1938, 1948, 1958,
1968 og 1978. Einnig er í bókinni sagt frá
aðdraganda að og stofnun Nemendasam-
bands Samvinnuskólans en það var stofnað
haustið 1958 og er þvi 25 ára á þessu ári.
Frásögnina ritar Magnea Sigurðardóttir sem
sat í undirbúningsnefnd og var í fyrstu stjóra
en fyrsti formaður Nemendasambandsins var
Sigurvin Einarsson, fyrrv. alþingismaður.
PáU Guðbjartsson skrifar um veru sina í
Samvinnuskólanum sem nemandi hjá Jónasi
Jónssyni og siðar sem kennari hjá sr. Guð-
mundi Sveinssyni. Loks ritar Bjarafriður
Leósdóttir frásögn af veru sinni f skólanum á
strlðsárunum.
Síðan eru f bókinní valdir kaflar úr fundar-
gerðum Skólafélagsins á þessum árum þar
sem koma fram áhugamál og umræðuefni
manna á hver jum tfma.
Otgefandi er, eins og áður segir, Nemenda-
samband Samvinnuskólans, bókin er prentuð
í Leiftri hf. en plötuvinnslu og filmugerð
annaðist Repró. Amarfell sá um bókbandiö.
Þessi bók, ásamt öðrum sem út eru
komnar, fæst i Hamragöröum, félagsheimili
samvinnumanna að Hávallagötu 24 í
Reykjavík.
Ritstjóri Arbókarinnar er Guðmundur R.
Jóhannsson.
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Ef kjarnorkusprenging
yrði yfir dómkirkjunni
Tvennu fylgdist ég með í ríkisf jöl-
miölunum í gær. I morgunsárið
kveikti ég á útvarpinu að venju. A
vetrardagskrá var það Stefán Jón
Hafstein og félagar sem sáu um að
koma manni fram úr rúminu en í
sumar eru það þulirnir. Sannast
sagna fór ég fyrst að meta Stefán Jón
er sumardagskrá gekk í garð. Jón
Múli og félagar virðast ekki búa yfir
þeim léttleika sem einkenndi þætti
Stefáns. Ættjaröarlög og einsöngslög
eru ágæt út af fyrir sig en þau eru
ekki líkleg til að koma svefnpurkun-
um fram úr eða til að koma í veg
fyrir að menn sofni við stýrið á leið
til vinnu. Nóg um það að sinni.
Síöasti liður á dagskrá sjón-
varps í gærkvöldi var myndin Ahrif
kjarnavopna og varnir gegn þeim.
Það er óhætt að segja það hreint út:;
þessi mynd var einhver áhrifamesta
heimildarmynd sem ég hef augum
litið. Sem dæmi var tekið hvað gerð-
ist ef kjamorkusprengja springi ofan
við St. Paul dómkirkjuna í Lundún-
um og því næst lýst áhrifum og þær.
varnir sem breska stjórnin hefur
lagt til prófaðar. Og vitaskuld kom
það í ljós að varnir eru haldlitlar og
afleiöingar sprengjunnar geigvæn-
legar.
Það fór fyrir mér eins og eflaust
mörgum. Að bera saman
eyðilegginguna ef kjarnorku-
sprengju yrði varpað á Island.
Osjálfrátt skipti ég á St. Paul og
dómkirkjunni í huganum og kalt
vatn rann milli skinns og hörunds.
Allir innan 9 kílómetra svæðis frá
sprengingunni létust samstundis.
Það þýðir að ef kjamorkusprengja
væri sprengd yfir miðri Reykjavík
yrði e.t.v. enginn í borginni til frá-
sagnar.
Hvert einasta mannsbarn er
skyldugt til að hugleiða þær stað-.
reyndir sem komu fram í þættinum.
Arnl Snævarr.
Ályktun frá framkvæmda-
nefnd Kvennaframboðsins
f Reykjavík
Vegna komu Bush, varaforseta Banda-
ríkjanna, hingaö til lands vill Kvennafram-
boðið í Reykjavík nota tækifærið og vekja at-
hygli á því þjóðarmorði sem nú á sér stað í
einu nágrannalanda Bandaríkjanna, E1
Salvador.
Sem dæmi um þaö ástand sem ríkir í land-
inu í dag má nefna að á degi hverjum finnast
um það bil 50 lík á götum bæja og borga. Allt
hefur þetta fólk verið fjarlægt með valdi af
heimilum sfnum að næturlagi á meðan út-
göngubann stendur yfir. Flestir bera merki
um pyndingar, margir eru hálshöggnir, aðrir
brenndir með eldi eða kemískum efnum.
Mörg lík eru aflimuð. Karlmenn eru vanaðir
og konum er nauðgað áður en þau eru drepin.
Núna býr yfir 1/5 hluti þjóðarinnar í flótta-
mannabúðum i nágrannalöndunum. Af þeim
eru um 70% böm undir 14 ára aldri.
Um 70% allra baraa í landinu undir þriggja
ára aldri deyja úr næringarskorti.
Þetta ástand er á ábyrgð stjórnarinnar í E1
Salvador og á sér stað í skjóli efnahagslegs og
hemaðarlegs stuðnings Bandaríkjastjómar.
Um þessar mundir undirbýr Bandaríkja-
stjóm enn aukinn stuðning við stjómina.
Þetta er vert að hafa í huga þegar Bush sest á
rökstóla með íslenskum ráðamönnum. Við
hljótum því að krefjast þess af islenskum
stjómvöldum að þau mótmæli stuðningi
Bandaríkjastjómar við mannréttindabrotin f
E1 Salvador.
Norræna húsið og
félag dönskukennara
með f yrirlestur
„Er helmsmyndln hrynur,” kunnur danskur
fyrirlesarl f jallar um þættl úr menningarsögu
Vesturlanda.
Vagn Andersen, lektor frá kennarahá-
skólanum í Kaupmannahöfn, er nú staddur
hér á landi að tilhlutan félags dönskukennara
og gistir í Norræna húsinu. Hann er vinsæll
fyrirlesari um bókmenntir og menningar-
sögu.
Miðvlkudaginn 6. júlf nk. kl. 20.30 mun hann
halda fyrirlestur í Norræna húsinu með tón-
dæmum og litskyggnum. Þar fjallar hann um
þau menningarlegu hvörf sem urðu á Vestur-
löndum i byrjun 17. aldar og ber þær saman
við umbyltingu þá sem nú á sér stað á Vestur-
löndum. Fyrirlesturinn neöiir hann „Er
helmsmyndin hrynur”.
Andlegur stuðningur
við heilbrigðisstóttir
Fáar stéttir þurfa eins að takast á við trúar-
leg vandamál og þeir er annast sjúka. Heil-
brigðisstéttir fá þó yfirleitt enga þjálfun i að mæta
þessum þörfum sjúklinganna og hafa ýmsir leitað
eftir stuðningi til þess.
Kristilegt félag heilbrigöisstétta var stofn-
að árið 1978 til þess að vinna að þessum mál-
um og er það aöili aö alþjóðlegri hreyfingu
Intemational Hospital Christian Fellowship.
Gestafyrirlesari.
Stjórnandl þessarar hreyfingar, Frands
Grim, dvelst hériendis næstu daga ásamt
konu sinni Erasmiu og munu þau halda f jölda
funda fyrir fólk úr heilbrigðisstéttum auk
þess sem þau munu veita einstaklingsviðtöl
um trúarlegt starf á sjúkrahúsum.
Francis Grim gistir nú Island i fjórða sinn
en hann stofnaöi þessa hreyfingu, sem hefur
náö fótfestu i flestum löndum heims.
Dagskrá Grimmhjónanna.
Auk funda meö félagsmönnum og tilteknum
ORION
hópum verða eftirfarandi fundir Grimmhjón-
anna öllum opnir:
Miövikudagur 6. júli í Laugarneskrikju kl.
20J0. Föstudagur/Laugardagur 8.-9. júlí:
Helgarsamvera aö Bjarkarhlíð við Bústaða-
veg. Þessi samvera hefst kl. 13.00 á föstudag
og varir fram á laugardagskvöld. Efni
þessarar samveru byggist á bibliuskýringum
og umræðum, frásögnum af starfi samtak-
anna víða um heim og fyrirbæn. Sunnudagur
10. júli kk 10.00: Guösþjónusta á Land-
spítalanum. kl. 20.30: Samkoma hjá KFUM,
Amtmannstíg 2b.
Leiðrótting
I viðtali við Ottó Wathne Bjömsson, laugar-
daginn 2. júlí, slæddist villa. Ottó segir þar að
Jón Sigurbjörasson hafi skrifað upp á víxil
fyrir sig. Rétt nafn er hins vegar Jén Sigur-
geirsson.
Ný fyrirtæki
Stofnaö hefur veriö félagiö S. Sigurðs-
son hf. í Hafnarfiröi. Tilgangur félags-
ins er að annast ýmiss konar viðhald
fasteigna, bygging og rekstur fast-
eigna, innflutningur og framleiðsla
byggingarefnis, verslun meö vélbúnaö
ýmiss konar og lánastarfsemi. I stjórn
eru Sigurgeir Sigurösson, Strandgötu
83, Sigurður Sigurgeirsson, Hverfis-
götu 42, og Hólmfríöur Sigfúsdóttir,
Strandgötu 83. Stofnendur auk ofan-
greindra eru Jenný K. Jensdóttir,
Hverfisgötu 42, Hólmfríður Sigfúsdótt-
ir, Strandgötu 83 og Ingibjörg
Sigurðardóttir, Hverfisgötu 42, öll í
Hafnarfirði.
Kristbjörn Jónsson, Gunnarssundi 5,
Hafnaflrði, og Valgerður Jónsdóttir,
Seljabraut 42, Reykjavík, reka sam-
eignarfélag í Hafnafirði undir nafninu
Þóra Dal, auglýsingastofa sf. Til-
gangur félagsins er auglýsingagerð og
skyld starfsemi.
Ari Tryggvason, Smáratúni 34, Kefla-
vík og Sigurður J. Sigurðsson, Birki-
teigi 22, Keflavík reka í sameiningu
sameignarfélag að Fitjabraut 2, Ytri-
Njarðvík, undir firmanafninu Púst-
þjónustan sf. Tilgangur félagsins er
púströraviðgerðir og nýsmiði og sú
lánastarfsemi sem því fylgir.
Olafur Oskarsson og Kristný Lóa
Traustadóttir, bæði til heimilis að Dal-
braut 25 Akranesi og Magnús Öskars-
son og Jóna María örlaugsdóttir, bæði
til heimilis að Reynigrund 41, Akra-
nesi, hafa stofnað og reka sameignar-
félag undir nafninu Bílás sf. bílasala.
Tilgangur félagsins er hvers konar!
kaup og sala bifreiða, lánastarfsemi og
annað er tengjast kann rekstri bif-
reiðasölu.
Gulur angóru-
kettlingur er týndur
síðan á föstudaginn sl. frá heimili sinu, Lauf-
ásvegi 2a. Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja i sima 23611. Fundarlaun.
Ljósgrænn
páfagaukur
fiaug út um fiuggann á heimili sínu, Hof-
gerði 12a, fyrir rúmri viku. Hann er mjög
gæfur og mannelskur. Þeir sem einhverjar
upplýsingar geta veitt eru vinsamlegast
beðnir að hringja í síma 41079.
Happdrætti
Dregið úr gjafabréfum í
landssöfnun SÁÁ
Þann 22. júní sl. var dregið úr gjafabréfum í
landssöfnun SAA um 10 vinninga skv. skilmál-
um bréfanna og hljóðar hver þeirra á vöruút-
tekt að verðmæti kr. 100.000. Vinningsnúmer-.
ineruþessi:
503537
505127
513011
541636
561862
620323
627446
641412
655583
660072
Eigendur gjafabréfa með þessum númer-
um, sem gert haf skil á 1. afborgun fyrir 2. júlí
sl., geta vitjað þeirra á skrifstofu SAA gegn
framvísun greiðslukvittunar.
Ferðalög
Sumarferð Samtaka
gegn astma og ofnæmi
verður farin sunnudaginn 10. júlí. Lagt verður
af stað frá skrifstofunni, Suðurgötu 10, kl. 9.30
og Norðurbrún 1, kl. 10.00. Ekið verður að
Gullfossi, Geysi og víðar. Upplýsingar á skrif-
stofunni og í símum 22153,72495 og 42614.
Breiðfirðinga-
fólagið í Reykjavik
efnir til skemmtiferðar föstudaginn 8. júli kl.
20.00 frá Umferðamiðstöðinni. Farið verður í
Þórsmörk. Upplýsingar og sætapantanir í
simum 41531, 52373 og 50383. Pantanir þurfa
að hafa borist i síöasta lagi sunnudaginn 3.
ÍúH- Stjórnin.
Útivistarferðir
Mlðvikudagur 6. júlí kl. 20.00.
Strompahellar. Sérstæðar hellamyndanir.
Létt ganga. Hafið ljós með. Verð 150,- kr. Fritt
f. böm m. fuUorðnum. Brottför frá bensínsölu
BSL Sjáumst! Otivist.