Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Síða 4
MPrPAíTwu. <■ q’Tn/irrní.r)Tra r v '
4 DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984.
eitt þekktasta andlit í heimi. Hann
getur ekki gengiö um götur. Hvernig
tilvera helduröu aö þaö sé?” Jagger
hefur þurft aö ganga í gegnum ýmis-
legt á ferli sínum. Hann skildi viö
Biöncu 1979 og þaö gekk lengi í slúður-
dálkum dagblaöanna. Þegar hann
varö fjörutíu ára var talaö um hann í
blööum sem f jörgamlan mann. Frægö-
in getur veriö miöaldra rokkstirni
þungbær og Jagger langar til aö veröa
eitthvað annaö áöur en þaö er orðið of
seint. 1975 sór hann að hann myndi
ekki veröa syngjandi Satisfaction
þegar hann væri 40. Núna er hann
fertugur.
Þaö hve David Bowie hefur gengiö
vel aö skipta frá poppi í leikhús og
kvikmyndir ergir Jagger. Hann vildi
gjarnan gera eitthvaö svipaö. „Eg veit
að ég get leikið,” segir hann. „Þegar
ég var ungur geröi ég heimskulega
hluti. Ég lék ekki í þeim kvikmyndum
sem ég heföi átt aö leika í. Ég var
hrokafullur.”
Jagger vill einnig gjarnan skrifa
skáldsögur og sviösverk. Snemma á
síðasta ári skrifaöi hann upp á þriggja
milljóna króna samning um ævisögu-
gerö sína sem hann tekur mjög alvar-
lega. Hann langar einnig aö takast á
viö aörar tónlistarstefnur. Nýi CBS
samningurinn veitir honum rétt til aö
gera sólóplötur. „Hann langar til aö
taka þátt í gróðavænlegum viöskipta-
ævintýrum. Hann langar til aö hanna
föt. Hann vill veröa aðlaður. Hann
langar til að veröa forsætisráöherra!”
segir Peter Rudge, fyrrum hljómleika-
stjóri, og er ekki bara að grínast.
Þeir sem þekkja Jagger segja aö bak
við grímurnar sem hann hafi borið í
gegnum árin hafi hann verið sami miö-
stéttarstrákurinn óþolinmóði sem
tróð sér inn í London School of
Economics. „Ég er rekinn áfram,”
viöurkennir hann. „Þaö eru ekki leng-
ur peningarnir. Ég vissi alltaf aö ég
yröi ríkur. Ég var alltaf viss um aö ég
væri eitthvaö sérstakt.”
Mismunandi viðhorf
Jagger gefur sig alltaf allan í hverri
hljómleikaferö. Hann hefur áhyggjur
af hverri einustu plötu sem þeir gefa
út. Fer yfir útgjöld og gengur frá því
að hinir Steinarnir láti bólusetja sig
fyrir feröalög. Auk þess heldur hann
heilum her af starfsliði, lögfræöingum
og plötuútgefendum á mottunni.
„Hann minnir helst á formann ein-
hvers fyrirtækis sem heldur ekki fjár-
hagsáætlun,” segir einn gamall viö-
skiptafélagi hans sem vill ekki láta
nafns síns getið. „Hann vill fá aö vita
hvers vegna.”
Gagnvart ööriun í bransanum er
hann aðlaðandi en auösæranlegur og
tekur alla krítik persónulega. „Hann
töfrar alla í bransanum,” segir Peter
Rudge. „Hann getur fengiö þig til að
tala um allt milli himins og jaröar.”
En viðskiptafélagar eins og Rudge, er
tapaöi samningum sínum sem umboðs-
maöur eftir átta ár, eru aldrei vissir
um stöðu sína. Þegar höggiö er látiö
ríöa af heldur Jagger alltaf um skaftið.
Tryggir vinir, eins og Alan Dunn, sem
hefur starfaö meö hljómsveitinni frá
1967, verja Jágger. „Ég þekki þann
Miek sem ég vil þekkja,” segir Dunn.
Þaö segir nokkuö um manninn aö
það viröast engir tveir menn hafa
sama viðhorf til hans. Hinn siömennt-
aði, sveitalegi og vel lesni Jagger er
líka til. Gagnvart fótboltaáhangendum
í Nigtingale pöbbunum í London í
síöasta mánuöi var Jagger íþrótta-
áhugamaöurinn. Hann gaf öllum sem
hafa vildu eiginhandaráritun. Þaö er
meira aö segja til pabbinn Jagger sem
skoöaöi einkaskóla í New York, fór á
foreldrafundi og talaöi viö kennara
þegar kom aö því aö Jade, dóttir hans,
sem nú er 11 ára, þurfti aö fara aö
ganga í skóla.
Hinir
Á sinn hátt eru Steinarnir allir fjöl-
skyldumenn núna. Meökonur, fyrrver-
andi konur, börn, barnapíur, gæludýr
og óléttar vinkonur sem gera kröfur á
hendur þeim. Charlie Watts býr í
glæsilegu sveitasetri í Devon meö
SHirley, eiginkonu sinni og fimmtán
ára dóttur þeirra. Hann fær lífsfyllingu
út úr því aö hugsa um nokkra hesta og
leika í jasshljómsveit.
Bill Wyman er 47 og hinn þögli
Steinn. Hann hefur mest að gera. Hann
er búinn aö gera þrjár sólóplötur, kvik-
mynd, ævisögu og myndir í bók um
„Hálfa Saint—Emilion,” segir Mick.
Þjónninn hraöar sér eftir flöskunni.
Þetta er hádegisveröur á Loire Valley
veitingastaönum og maturinn hefur
veriö glæsilegur. Góöur matur og
Napóleonskoníak á eftir. „C’est bon,
oui,” segir Mick þegar hann er búinn
aö reyna vínið. Fyrir utan er indverski
bílstjórinn hans í bronslituöum
Mercedesbílnum tilbúinn aö aka hon-
um til „La Fourchette”, 18. aldar
kastala sem hann er aö gera upp. „I
augnablikinu er ég hamingjusamur,”
segir Mick og demantsfyllingin í hægri
framtönn glitrar þegar hann brosir.
„Fyrir gamlan existensíalista er
góöur málsveröur, þar sem ekkert ýtir
á, allt sem máli skiptir.”
Mick þessi er auðvitað Mick Jagger.
Hann er fertugur og foringi í Rolling
Stones og ein virtasta persóna popps-
ins. Hann hefur veriö greindur og
rannsakaöur af óteljandi mönnum en
samt er enginn viss um hver hann er.
Hann er samsettur, breytilegur og
alltaf fullur mótsagna. Jagger er
orðinn miöaldra en ennþá í sífelidri
breytingu. Hann er greinilega sjálfum
sér jafnmikil ráögáta og öörum.
„Hann er ágætis hópur manna,” segir
gítaristinn Keith Richards sem er hrn
driffjöðrin sem hefur knúiö þetta götu-
strákaband sjöunda áratugarins í
gegnum kynlega tíma sem nú eru
ræddir yfir glasi af góöu víni.
Tuttugu ára
Síöasta ár var tuttugasta samstarfs-
ár Stones og vinsældir þeirra í dag,
eftir að illa gekk á miöjum sjöunda
áratugnum, eru nú meiri en nokkru
sinni fyrr. „Hljómleikar þeirra eru
meiriháttar viðburðir í hvaöa landi
sem er,” segir rokkumboösmaöurinn
Bill Graham. „Það er ekki lengur talaö
um The Rolling Stones á skemmtana-
síöum eöa slúöurdálkum. Þeir eru
forsíðuefni.”
Stones eiga líka aö baki mikla viö-
skiptasögu. Eftir tímabil mikillar
óstjórnar (ekki bara slæmra samninga
heldur líka ógoldinna slæmra samn-
inga, segir Jagger) er fjárhagsrekstur
hljómsveitarinnar nú til mikils sóma.
Þriggja mánað ferö þeirra 1981 sló öll
met. Á tónleika þeirra seldust nálægt
því 2,25 milljón miöar á 15 dollara
stykkiö. I New York var eftirspurnin
svo mikii aö hljómsveitin heföi getaö
spilaö í Madison Square Garden í sex
mánuöi í striklotu. Aö auki færöu viö-
skiptasamningar þeim, aö því er
áætlaö er, um 15 milljónir dollara.
Evrópuferö þeirra ’82 var álíka vel
heppnuö. Nýja platan þeirra,
Undercover, sem er framsækin en
'samt upprunanum trú, var pöntuö
íyrirfram í 1,2 milljónum eintaka. I
sumar geröu þeir samning viö CBS
sem hljóðar upp á 28 milljónir. Þar
skuldbinda Steinamir sig til aö halda
áfram aö gera plötur í aö minnsta kosti
fjögur ár í viöbót. Og þeir halda áfram
að vekja umtal. Nýlega bannaði BBC
nýja videoupptöku þeirra á þeim for-
sendum aö þaö væri of mikiö ofbeldi í
henni.
Árin hafa samt sem áður haft áhrif á
meðlimi hljómsveitarinnar. Nú sjást
ekki lengur forsíöur meö fyrirsögnum
eins og: Stones nema á brott konu for-
sætisráöherra eftir heróínleit, sem var
algengt á fyrri dögum. Brjálæöislegir
lifnaöarhættir meölima hljómsveitar-
innar hafa nú róast niður í aö þeir eru
orönir kunnáttusamir dýrkendur
fagurra hluta og glæsilegra lifnaöar-
hátta. Bassaleikarinn Bill Wyman
safnar nútímalist, trommarinn
Charlie Watts er mikið fyrir silfur.
Eigendur Savoy í London, Rihz í
París, Plaza í New York og Fairmont í
San Fransisco eru ekki lengur
áhyggjuf ullir þegar þeir vita af Rolling
Stones í bænum. Þeir eru nú orönir
uppáhaldsgestir og eru líklegir til aö
koma í glæsibifreiðum og í lögreglu-
fylgd. „Viö erum hættir að henda sjón-
vörpum út um gluggann,” segir
Wyman.
Þungbær frægð
Bak viö auðinn og velsældina virðist
Mick Jagger einkennilega tvístígandi.
„Þetta er listrænn ótti,” segir hann.
Kannski skynjar hann þaö aö brátt fari
aö halla undan fæti. „Ég geri meira á
sviöi núna en þegar ég var tvítugur,”
segir hann. „En ég get ekki haldiö
áfram endalaust.” „Hann er Mick
Jagger!” segir Bill Graham. „Hann er
Jagger er fertugur.
ROKKIÐ
w7iw ww w&rwi
wjmjmwM 9 Æ
Mynd úr bannaða vídeóþættinum.
\