Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1984, Blaðsíða 1
Skoðanakönnun öry ggismálanef ndar sýnir að 80 prósent kjésenda styð ja
HH aðildíslandsaðNATO: _
DV-KONNUN SYNDI
SÖMU NIÐURSTÖDU
Stuöningur íslenskra kjósenda við
meginþætti hinnar hefðbundnu utan-
ríkisstefnu er skýr. Mikill meirihluti
styður aðildina að Atlantshafsbanda-
laginu og veru Vamarliðsins hér-
lendis.
Þetta er helsta niðurstaða
rannsóknar sem Olafur Þ. Harðarson
stjómmálafræðingur hefur gert fyrir
öryggismálanefnd. Rannsóknin fór
þannig fram að um eitt þúsund
Islendingar vora spurðir um viðhorf
sín til öryggis- og utanríkismála.
Gagnaöflun fór fram eftir alþingis-
kosningamar í apríl í fyrra.
I könnun öryggismálanefndar
kemur fram að 80 prósent svarenda
era fylgjandi aðildinni að NATO en 20
prósent á móti. Þetta er nánast sama
niðurstaða og fékkst úr skoðana-
könnun DV um sama mál í október í
fyrra. 1 DV-könnuninni vora hlutföllin
79 prósent á móti 21 prósenti.
öryggismálanefnd fær einnig sömu
niðurstöðu og DV fékk í október-
könnuninni um afstöðuna til Kefla-
víkurstöðvarinnar. Niðurstaða beggja
aðila var sú að 64 prósent vora
fylgjandi vera Vamarliðsins á íslandi
en36prósentámóti.
sjábls.4-5
I skoðanakönnun sem Dagblaöið
gerði árið 1980 um herstöðina reyndust
hlutföllin einnig 64 á móti 36.1 könnun
Vísis árið 1968 voru hlutföllin nær því
sömu, 63 prósent fylgjandi en 37
prósent andvíg veru bandaríska
herliðsins.
Könnun öryggismálanefndar sýnir
að meirihluti aðspurðra styður gjald-
töku fyrir Keflavikurstöðina. Könnim
þessa blaðs hefur einnig sýnt veraleg-
an stuðning við aronskuna.
-KMU.
Við Hátetgsveglnn í gærkvötdi. ökumaður BMW-ins er grunaður um ötvun, skemmdi fjóra bila og hljóp sfðen 5 burtu. Hann skiidi konu eftír i btt
DV-myndir: S.
Ókáþrjábfía
og stakk síðan af
ökumaður, grunaður um ölvun,
ók bíl sínum, BMW, á ofsahraöa á
þrjá bíla við Háteigsveg um klukkan
hálfellefu í gærkvöldi. Eftir árekst-
urinn stakk maðurinn af. Hann
fannst ekki fyrr en um klukkan hálf-
eitt í nótt, er hann gaf sig fram. Kona
var með manninum í bílnum er hann
lenti í árekstrinúm.
Maðurinn ók bíl sínum á miklum
hraða suður eftir Rauðarárstígnum.
Hann beygði skyndilega upp Há-
teigsveginn. Ekki tókst beygjan bet-
ur en svo að hann ók á kyrrstæða
Mözdu. Hún skemmdist verulega.
Þetta dugði þó ekki til þess að
BMW-inn stöðvaðist og hélt hann
áfram upp Háteigsveginn og lenti
•þar á tveimur bílum. Þar með lauk
ökuferðinni.
Maðurinn stakk þegar af, hlaup-
andi. Hann gaf sig fram klukkan
hálfeitt í nótt. Kona var með mannin-
um í bílnum og var hún kyrr í honum
eftir áreksturinn.
Allir bílarnir eru skemmdir, bíll
mannsins, BMW, þó langmest. Má
heita gott ef hann er ekki ónýtur.1
Engin slys urðu á fólki í árekstrun-
um. -JGH.
Krafist gæsluvarðhalds yfir fimm ungmennum
vegna innbrota að undanförnu:
Gerð til að fjármagna
fíkniefnakaup?
„Við höfum krafist gæsluvarð-
halds yfir ungmennunum en dómari
hefur tekið sér frest þar til síðar i
dag að ákvarða þar um,” sagði Helgi
Daníelsson, yfirlögregluþjónn hjá
, Rannsóknarlögreglu ríkisins, í sam-
taliviðDVímorgun.
í gær voru fimm ungmenni um
tvltugt, þrjár stúlkur og tveir menn,
handtekin, vegna innbrota að undan-
förnu. Annar piltanna hefur játað að
hafa brotist inn i kirkju Öháða safn-
aðarins um síðustu helgi og í fyrir-
tæki viö Snorrabraut. Hin munu
tengjast þessum innbrotum og
fleiri sem RLR hefur verið að
rannsaka að undanfömu. Meöal ann-
ars er um að ræða innbrot í sænska
sendiráðið, hús við Vatnsholt, Osta-
og smjörsöluna og fleiri. Ungmennin
muna einkum hafa haft upp úr krafs-
inu skartgripi og sjónvarps- og út-
varpstæki. Er talið að innbrotin hafi
verið framin til að fjármagna fíkni-
efnakaup. Eitthvað af þýfinu er
komiðtilskila.
Ungmennin hafa áður komið við
sögu iögreglunnar bæöi fyrir innbrot
og vegna fíkniefnamála.
-KÞ.
Góð veiöií
Stóru-Laxá
— sjábls.11
Vikingaknörr
meðvél
— sjá bls. 2
VelurMondale
konu?
— sjábls.9
Deildumlokað
áVífílsstaöa-
spítala
— sjábls.2
Sigurdúfa
-sjábls.34
•
StriðíBurma
— sjá bls. 10
•
Maturog
hollusta
— sjábls.6
Vatnsfundirá
herbergilll
-sjábls.3
MUNIÐ SUMARMYNDAKEPPNIDV