Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1985, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR15. MARS1985.
27
I textíl-
Haukur Hall-
dórsson
sýnir á
tveim stöðum
Haukur Halldórsson opnar sýningu
í Listamiöstöðinni við Hafnarstræti
(Lækjartorg) laugardaginn 16. mars
kl. 2 e.h. Sýningin stendur til 24.
þessa mánaðar.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
2—6 e.h. nema annað verði auglýst.
Á sýningunni verða 27 málverk
unnin með blandaðri tækni, olíu, kol
og sáldþrykk, myndefnið er flest sótt
í íslenskar þjóðsögur og goðafræði.
Einnig eru á sýningunni nokkrar
myndir sem Haukur hefur málaö á
postulín með þar til gerðum litum.
Jafnframt þessari sýningu Hauks í
Listamiöstööinni verður sýning á
myndum hans úr Islenskum
annálum 1400—1449 í veitingahúsinu
Ritu viö Nýbýlaveg 26 í Kópavogi,
þar veröur 21 mynd unnin í kol.
Veitingamaðurinn Stefán Olgeirs-
son hefur ákveöiö að veita 15% af-
slátt af mat hússins á meðan á
sýningu Hauks stendur í Lista-
miðstöðinni gegn framvísun boðs-
korta aö sýningunni hans.
Tónabær:
íslandsmeistara-
keppnin í „f ree-style"
Á laugardaginn fara fram í Tóna-
bæ úrslit í íslandsmeistarakeppninni
í „free-style” dansi. Forkeppni fór
fram á Egilsstööum, Akureyri, Vest-
mannaeyjum, Akranesi, Hafnarfirði
og Reykjavík fyrr í þessum mánuði
og þau sem komust í úrslit þar mæta
í Tónabæ á laugardagskvöldið.
Alls eru það tíu einstaklingar og tíu
hópar sem þar keppa um titilinn
Islandsmeistari unglinga 1985.
Glæsileg verðlaun veröa veitt,
m.a. sólarlandaferð til Rhodos frá
Samvinnuferðum-Landsýn, vöruút-
tekt frá tískuversluninni Goldie og
aðgöngumiðar á Litlu hryllings-
búöina o.fl.
Náttúrubörn
frá Nicaragua
Nú stendur yfir í Listasafni ASt
sýningin Náttúruböm frá
Nicaragua, alþýðumálarar frá
Solentiname. Á sýningunni er 41 olíu-
málverk eftir bændur á eyjunni
Solentiname.
Myndaflokkur þessa bændafólks,
Fagnaöarerindiö í Solentiname, hef-
ur víða veriö gefinn út í bökarformi
og hlotið heimsathygli.
Sýningin stendur til sunnudagsins
24. mars og er opin alla virka daga
nema mánudaga kl. 14—20 og um
helgarkl. 14—22.
Allar myndir á sýningunni eru til
sölu.
Uppákomaá Akranesi
Næstkomandi sunnudag, 17. mars
kl. 12.00—17.00, halda skátar á Akra-
nesi tívolískemmtun í íþróttahúsi
bæjarins. Alls verða 40 leiktæki á
boðstólum, lukkuhjól, skotbakkar,
þrautir og keppnir. Má meðal annars
nefna 2ja metra gíraffa, örkina hans
Nóa, Gosaparís, stóra teygjubyssu,
slökkt verður í sígarettunni og alls
staðar eru góð verðlaun í boði. Á
annað hundrað starfsmenn, trúðs-
klæddir, munu sjá um aö
skemmtunin fari vel fram. Á eftir
tívolíinu verður bingó með 10 glæsi-
legum vinningum, m.a. ferða-
vinningi, tölvu, vöruúttektum o.f 1.
Alltum H-moll
messu Bachs
nauðsynlegt að vita einhver deili á
verkinu fyrirfram.
Fyrir milligöngu Norræna hússins
mun stjómandi tónleikanna 21.
mars, Ingólfur Guðbrandsson,
minnast J.S. Bachs meðstuttuerindi
um ævi hans og verk og skýra form
og sögu H-moll messunnar. Jafn-
framt verða flutt tóndæmi af hljóm-
plötum og tónböndum með þekktum
flytjendum.
Gestum Norræna hússins á þessari
kynningu gefst kostur á að verða
stofnfélagar Bach-félagsins á
Islandi.
Sunnudaginn 17. mars kl. 17.00
gengst Norræna húsið fyrir kynningu
á H-moll messu J.S. Bachs um leiö og
300 ára afmælis tónskáldsins, 21.
mars, verðurminnst.
Þann 21. mars mun Sinfóníu-
hljómsveit Islands og Pólýfónkórinn
ásamt fjórum einsöngvurum frá
Bretlandi og Itab'u flytja verkið
undir stjórn Ingólfs Guðbrands-
sonar. Til þess að njóta til fullnustu
stórverks á borð viö H-moll messu
Bachs, sem sumir telja „mesta tón-
skáldskap allra tíma”, er
Félagsvist og dans í
remplarahöllinni
Félagsvist verður spiluð í kvöld kl.
!1. Gömlu dansamir undir stjóm
íljómsveitarinnar Tígla hefjast kl.
12.30. Þeir sem aðeins vilja koma á
iansleikinn eru velkomnir.
Hin þjóðlega hljómsveit
kvikmyndaversins í Beijing
Dagana 11.—25. mars dvelst hér á
landi 10 manna hópur hljóðfæraleikara
úr Hinni þjóðlegu hljómsveit kvik-
myndaversins í Beijing (Peking).
Hljómsveitin er í tónleikaför um
Evrópu og hélt fyrstu tónleika sína á
ferðalaginu í Sjálfstæöishúsinu á Akur-
eyri miðvikudagskvöldið 13. mars. Þá
verða hljómleikar í Hafnarfjarðar-
kirkju sunnudaginn 17. mars kl. 17, á
Akranesi 18. mars, í Bústaðakirkju í
Reykjavík föstudaginn 22. mars kl.
20.30. Lokatónleikar hljómsveitar-
innar verða í sal Menntaskólans við
Hamrahlíð laugardaginn 23. mars og
hefjastkl. 14.
Hádegisverðarfundur
Kvenstúdentafélags tslands og Félag
islenskra háskólakvenna veröur laugar-
daginn 16. mars kl. 11.30 í Hallargarðinum,
Húsi verslunarinnar. Gestur fundarins veröur
Þuríður Pálsdöttir og ræðir hún um
breytingaskeið kvenna.
Stofnfundur Tónlistar-
bandalags íslands
verður haldinn á Hótel Esju
sunnudaginn 17. mars nk. kl. 14. öllum
áhugamönnum um tónlist og málefni
hennar er velkomiö að sækja þennan
fund og gerast stofnendur Tónbstar-
bandalagsins. Unnið hefur verið að
undirbúningi að stofnun heildar-
samtaka um málefni tónlistar í
landinu síðan í júní 1984. Um 25 félög
hafa þegar tilkynnt þátttöku sína á
stofnfundinn og gert ráð fyrir að enn
fleiri félög og einstakbngar bætist við.
Þess er vænst aö þátttakendur á stofn-
fundi Tónbstarbandalags Islands til-
kynni þátttöku sína milb kl. 14 og 17 í
síöasta lagi í dag, f östudag.
IMeskirkja — samverustund
aldraðra
verður á morgun, laugardag, kl. 15.
Guðmundur H. Garðarsson kynnir eitt
og annað í sjávarútvegi landsmanna
ogsýnirkvikmynd.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Skemmtun JC-Breiðholts
Sunnudaginn 17. mars nk. stendur
JC-Breiöholt fyrir skemmtun í Félags-
miðstöðinni Árseli í Árbæ og er hún
haldin fyrir þroskahefta og
aðstandendur þeirra. Hefst hún kl. 2.00
e.h. meö dansi. Inn á milU verður
brugðiö upp skemmtiatriðum og farið í
leiki. Aætlað er að þessu ljúki um kl. 17
e.h.
Leikfélag Siglufjarðar
sýnir „Fjölskylduna"
Leikfélag Siglufjaröar frumsýndi í
sl. viku leikritið „Fjölskyldan” eftir
Claes Anderson viö góðar undirtektir.
Leikstjóri er Hörður Torfason. Fyrir-'
huguð er leikferð með verkið næstu
helgar. Laugardagskvöldið 16. mars
sýna þau í Grimsey og viku seinna á
sæluvikunni á Sauðárkróki.
Tarkovsky-nefndin —
málþing
I tilefni af heimsókn sovéska kvik-
myndagerðarmannsins Andrej
Tarkovsky til Islands dagana 15. til 18.
mars nk. hefur Tarkovsky-nefndin á
Islandi skipulagt málþing nk.
laugardag 16. mars í hátíðarsal Há-
skóla Islands.
Málþing hefst kl. 10 f.h. og stendur til
kl. 13 e.h. sama dag. Þar mun Andrej
Tarkovsky flytja erindi um líf sitt og
starf, — svara spurningum og ræða við
þátttakendur eftir því sem tími leyfir.
Málþingið er öUum opið.
Málþing þriðja árs nema
í sálarfræði
Þriðja árs nemar í sálarfræði við
Háskóla Islands halda árlegt málþing
sitt laugardaginn 16. mars í hátíðarsal
skólans. Yfirskrift málþingsins er aö
þessusinni: „Hvað er afbrigðileg kyn-
hegðun?” Framsögumenn munu ræða
um efniö, hver út frá sinni fræði-
grein/sviði.
A málþinginu heldur dr. GísU
Guðjónsson sálfræðingur framsögu-
erindi, en honum var sérstaklega boðið
hingaö til lands fyrir þetta málþing.
Dr. Gísli starfa sem yfirréttar-
sálfræðingur við Institute of
Psychiatry viö háskólann í London.
Aðrir framsögumenn veröa Pétur
Guðgeirsson lögfræðingur, séra Sig-
finnur Þorleifsson, dr. Högni
Oskarsson geðlæknir og Jenný
Baldursdóttir frá samtökum um
kvennaathvarf. Fundarstjóri verður
Sigrún JúUusdóttir félagsráðgjafi.
Eftir framsöguerindi verða
veitingar og síðan almennar umræður
og fyrirspumir.
Málþingið hefst kl. 14, aðgangseyrir
er kr. 100 og er kaf fi og kökur innifaliö i
verði.
Attir sem áhuga hafa eru velkomnir.
Basar og flóamarkaður
Kattavinafélagsins
verður að Hallveigarstöðum laugar-
daginn 16. mars kl. 14. Þar verða á
boðstólum margt góðra muna, m.a.
f atnaður úr þekktum verslunum.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Spilum félagsvist næsta sunnudag, 17.
mars, kl. 16.00 að Skeifunni 17, Ford-
húsinu.
iiíUr veUiomnir. Góð verðlaun.
Stjórnandi Ingi Tryggvason.
Skemmtinefndin.
Hvað er á seyði
um helgina?
Kynningardagur Vélskólans
Árlegur kynningardagur Vélskóla
Islands, skrúfudagurinn, verður
laugardaginn 16. mars nk. Þann dag
er starfsemi skólans kynnt, aUir véla-
saUr opnir og kennarar og nemendur
reiðubúnir til að veita upplýsingar um
skólann og það starf sem þar fer f ram.
Á þessu ári eru Uöin sjötíu ár frá
stofnun Vélskólans. Er því vandað tU
skrúfudagsins venju fremur. M.a. er
efnt til sýningar á verkum Gunnars
Bjarnasonar, fyrrverandi skólastjóra,
sem nú er 84 ára gamall.
Þá sýna um tuttugu og fimm fyrir-
tæki ýmsar vörur og vélar sem
tengjast vélstjórastarfinu og öryggis-
búnaðiískipum.
AUir salir skólans verða opnaðir kl.
14.00 á laugardag en hátíöarfundur
hefst í hátíðasal skólans kl. 13.15.
Kvenfélagið Keðjan verður að vanda
með kaffisölu og um kvöldið veröur
árshátíð Vélskólans og Keöjunnar í
Þórskaffi.
AlUr sem áhuga hafa eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir. Aðgangseyrir er
150 kr. og rennur aUur ágóði til Þroska-
hjálpar.
Ráðstefna um
nútímakirkjubyggingar
Laugardaginn 16. mars verður hald-
in ráðstefna í Bústaðakirkju um
nútímakirkjubyggingar hér á landi á
vegum Kirkjuritsins og Kirkjulistar-
nefndar.
Tilgangurinn er aö gera eins konar
úttekt á stöðu málsins og hyggst rit-
stjóm Kirkjuritsins helga 2. hefti rits-
ins 1985 þessu máli.
Ráðstefna þessi er opin öllum sem
áhugahafa.
Dagskráin hefst kl. 13 og lýkur um
kl. 18.
Bústaðakirkja verður skoðuð í
kaffihléi.
Ráðstefnustjórar: Halldór Reynis-
son guðfræðingur og Jóhannes S.
Kjarval arkitekt.
Hole in one verðlaun
Á morgun, laugardag kl 16.00, verður
þeim golfmönnum sem unnu það afrek
á síðasta ári að fara „holu í höggi” á
golfveUinum afhent viðurkenning fyrir
afrekið.
Verður það í Skagfirðingasalnum,
Síðumúla 35. Viðurkenningin er veitt af
fyrirtækinu Vang h/f sem er umboðs-
aöUi fyrir Johnnie WaUcer hér á landi.
Þeir sem eiga rétt á viðurkenningu
eru beðnir um að mæta á tilsettum
tíma.
Sýningar
MYNDLISTARSKOLINN í Reykjavík,
Tryggvagötu 15. Laugardaginn 16.
mars er kynning á verkum nemenda
úr málardeUdum. Opið fyrir gesti kl.
14-18.
LISTASAFN ASÍ, Grensásvegi. „Nátt-
úruböm frá Nikaragua” er yfirskrift