Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1986, Blaðsíða 40
DESEMBER 1986.
Steingrímur Hermannsson: w a
Mér þykir ^
í
vænt um
þetta mat“
„Mér þykir vissulega vænt um þetta
mat, að fólk metur mín störf með þess-
um hætti. Þetta hvetur mann vissu-
lega til þess að reyna að gera enn
betur,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra, sigurvegarinn í
skoðanakönnun DV um óskaforsætis-
ráðherra.
„Aðalvandinn er auðvitað að valda
ekki vonbrigðum í svona starfi og ég
mun kappkosta að ljúka því með góð-
um árangri," sagði Steingrímur
ennfremur. En álítur hann að gott
samband hans við fjölmiðla hafi áhrif '
á þessa skoðun kjósenda? „Vafalaust
getur það verið. Ég lít ó það sem hluta
af mínu starfi að kynna þau málefni
sem ég fæst við og svara til um þau.
Annars segið þið bara einhverja bölv-
aða vitleysu.
Þú hefur að vísu setið í ýmsum öðr-
um ráðherraembættum, en myndirðu
taka að þér eitthvert af minni hóttar
ráðherraembættunum eftir þennan
feril nú? „Ég hef nú nákvæmlega ekk-
ert hugsað um það en ég myndi
áreiðanlega ekki taka að mér öðruvísi
ráðherraembætti en sem gæfi tilefiii |
til mikilla áhrifa,“ svaraði sigurvegar-
inn. -HERB
í
í
Þorsteinn Pálsson:
Sýnir viðhorfin
til ríkis-
í
„Ég hef svo sem ekki mikið um þetta
að segja," sagði Þorsteinn Pálsson
fjármálaráðherra í morgun þegar
hann var spurður álits ó niðurstöðum
skoðanakönnunar um það hvaða
stjómmálamann fólk vildi helst sem
forsætisráðherra.
„Það er vafalaust svo og kemur það
fram í þessum tölum að ríkisstjómin
nýtur mikils trausts meðal kjósenda
og byggist það á því að hún hefúr náð
miklum árangri. Ég hef ekkert um
mína útkomu að segja sérstaklega en
tel að þessi niðurstaða sýni fyrst og
fremst viðhorf fólks til ríkisstjómar-
innar," sagði Þorsteinn Pálsson. -ój
Konur vinna
að framboði
Jdn G. Hauksson, DV, Akureyri
„Við erum að vinna að framboði
Kvennalistans í Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Það skýrist fljótlega
hvort við hjóðum fram,“ sagði Elín
Antonsdóttir, kvennalistakona ó Ak-
ureyri.
Elín sagði að fundir heföu verið
haldnir og að konur víðsvegar úr kjör-
dæminu hist. „En þær konur, sem fram
að þessu hafa starfað hvað virkast, em
frá Akureyri og Húsavík."
„Við teljum að ekki sé grundvöllur
fyrir framboði nema konur um allt
kjördæmið séu virkar í starfinu og
hefur verið unnið að þvi að undan-
fömu,“ sagði Elín.
Kvennahstakonur tóku húsnæðið
að Gránufélagsgötu 4, 3. hæð, á leigu
1. desember og þar verður opið hús
öll fimmtudagskvöld fram að jólum.
Upp úr áramótum verður opnuð þar
skrifstofa.
Kvennalistinn fékk í kosningunum
23. apríl 1983 alls 791 atkvæði í kjör-
dæminu. Listinn kom ekki manni inn
en Málmfríður Sigurðardóttir hefur
setið á þingi sem varaþingmaður fyrir
kjördæmið.
Mikill snjór er nú í nágrenni Siglufjaröar þannig að illfært hefur verið landleiðina þangað um tíma. Á mynd-
inni sést er verið er að ryðja veginn til bæjarins en til þess eru notaðar stórvirkar vinnuvélar. Myndin er tekin
í Mánárskriöum. DV-mynd öm
Halldór Ásgríntsson:
Afgerandi
„Ég er út af fyrir sig þakklátur fyrir
það að til skuli vera fólk sem sýnir
mér þetta traust. En niðurstaðan er
fyrst og fremst afgerandi fyrir núver-
• -éridi forsætisróðherra,“ sagði Halldór
Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra og
varaformaður Framsóknarflokksins.
Halldór hafhaði í 5. sæti yfir þá menn
sem að mati almennings koma helst
til greina í sæti forsætisráðherra.
-KMU
Svavar Gestsson:
Steingrímur
með lítið
„Þetta sýnir að það er engin afger-
andi samstaða um einn fremur en
annan í þessum efhurn," sagði Svavar
•^testsson, formaður Alþýðubandalags-
ins, um álit fólks á því hver eigi að
vera forsætisráðherra. Svavar er í 4.
sæti.
„Þrátt fyrir þá miklu auglýsingaher-
ferð sem hefhr verið rekin fyrir ein-
staka menn að undanfomu þá em
menn með um og yfir einn tólfta af
heildinni. Forsætisráðherra er með lít-
ið. Forverar hans í starfi vom með
miklu hærri tölur, yfirleitt langt yfir
50%,“ sagði Svavar. -KMU
. Jón Baldvin:
Uni bæriiega
mínum hlut
„Ég uni bærilega minum hlut í
þessu," sagði Jón Baldvin Hannibals-
son þegar hann var spurður álits á
niðurstöðu skoðanakönnunar um það
hvem fólk vildi helst sem forsætisróð-
herra en þar lenti Jón Baldvin í öðm
sæti.
„Reyndar er ég sammóla lesendum
ykkar um það að Steingrímur Her-
mannsson hefur vaxið í þessu starfi
og hann hefúr reynst betri forsætisráð-
herra en sjávarútvegsráðherra. Hann
-^igði það líka sjálfur að það væri létt-
<±ra starf að vinna í forsætisróðuneyf>
inu. Þar að auki stóð hann sig
ágætlega á blaðamannafúndum vegna
heimsóknar Reagans og Gorbatsjovs,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
-ój
yyx
Leiðin liggurí
A1IKLAG4RÐ
LOKI
Er þetta ekki dæmalaust
með hann Denna?
FIMMTUDAGUR 11.
Strætó ók á girðingu
Stcætisvagn frá Landleiðum ók ó
girðingu við St. Jósepsspítalann í
Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í
nótt. Vagninn mun hafa runnið í
hálku og lent þess vegna á girðing-
unni við hom Hlíðarbrautar og
Hringbrautar.
Ekki munu hafa hlotist vemlegar
skemmdir af þessu óhappi. -SJ
Veðrið á morgun:
Rigning um
sunnanvert
landið
Á föstudaginn verður hvöss suð-
austanátt með rigningu um allt
sunnanvert landið en að mestu þurrt
fyrir norðan. Hiti verður 2-6 stig.
Borgarspítalanum tryggð sjáHsstjóm:
Góðurvarnarsigur
„Ég hef loforð formanns Sjálf-
stæðisflokksins og borgarstjóra um
að okkur verði tryggð sjólfestjóm í
eigin efnum þó svo rikið taki Borg-
arspítalann yfir. Við lítum á þetta
sem góðan vamarsigur,“ sagði Auð-
un Svavar Sigurðsson læknir,
talsmaður starfemanna Borgarspít-
alans í spítaladeilimni. „Við teljum
tryggt að Borgarspítalinn verði ekki
settur undir Ríkisspítalana hvað sem
eignaraðild líður.“
I gær fól þingflokkur sjálfetæðis-
- segir starfsfólk
manna þeim Þorsteini Pálssyni,
Ragnhildi Helgadóttur og Davíð
Oddssyni að leiða spítaladeiluna til
lykta og í morgun sagði formaður
flokksins: „Ég býst við að þessu fari
að ljúka, líklegast verður gengið frá
kaupunum í dag. Það verður gert
með þeim hætti að sjálfetæði spítal-
ans verði tryggt."
Auðun Svavar Sigurðsson læknir
sagði í samtali við DV að hann hti
svo á að Ragnhildur Helgadóttir
heilbrigðisróðherra heföi orðið undir
í þessu máli: „Ráðherrann hefúr
neyðst til að éta ofan í sig tillögur
sínar um að steypa spítulunum sam-
an í eina heild. Forysta Sjálfetæðis-
flokksins sveigði skynsamlega af
braut vegna eindreginna tilmæla frá
almennum flokksmönnum. Starfs-
fólk Borgarspítalans er ánægt með
þessar lyktir og sjálfúr ætla ég ekki
að segja mig úr flokknum."
-EIR/-ój
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIP
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritsljórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022