Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1988, Page 6
30
FÖSTUDAGUR 18. MARS 1988.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Laugarasbíó
Allt látið flakka og
Alvin og félagar
Laugarásbíó frumsýnir tvær
myndir um helgina, gamanmynd-
ina Alít látið flakka (Amason
Women on the Moon) og barna-
myndina Alvin og félagar (The
Chipmunk Adventure). Það er
John Landis sem ber ábyrgðina á
Alvin og félagar lenda i mörgum
ævintýrum i samnefndri kvikmynd.
Allt latið flakka sem er farsakennd
ævintýramynd er gerist bæði á
jörðinni og tunglinu.
Gert er grín að athöfnum nútíma-
mannsins á miskunnarlausan hátt
og er ekkert undanskilið. Leikstjór-
ar eru fimm og eru þekktastir Joe
Dante og sjálfur John Landis.
Alvin og félagar er teiknimynd
byggð á þekktum teiknimyndaper-
sónum. Fjallar myndin um ferðalag
kringum jörðina á áttatíu dögum í
loftbelg. Alvin og félagar hans eru
sakleysið uppmálað og vara sig
ekki á skúrkum sem nota þá til aö
smygla demöntum.
Börnin fá ekki alltof mikið fyrir
sig í kvikmyndahúsum höfuðborg-
arinnar en hér er komin kvikmynd
sem er fyrst og fremst fyrir yngstu
áhorfendurna en öll fjölskyldan
getur skemmt sér yfír.
Þrir geimfarar í Allt látið flakka, Joey Travolta, Steve Forrest og Robert
Colbert.
Regnboginn
Síðasti keisarinn
Sú kvikmynd, er fær flestar tilnefningar til óskarsverðlauna þetta áriö,
er hin fallega kvikmynd Bernardos Bertolucci, Síðasti keisarinn (The
Last Emperor). í tjlefni af því hefur Regnboginn tekið myndina aftur til
sýninga og er það ábyggilega fagnaðarefni mörgum sem ekki sáu hana í
fyrstu umferð. Eins og kunnugt er fjallar myndin um ævi síðasta Kína-
keisara frá bamsaldri, þegar hann var talinn af guðum, til þess síðasta,
er hann endar ævi sína sem garðyrkjumaður í Peking. Það tók Ber-
tolucci langan tíma að fullgera stórmynd sína og er hún að öllu leyti tekin
í Kína. Það eru fleiri en einn leikari sem leika keisarann þó að mest mæði
á John Lone sem leikur hann á fullorðinsárum. Af öðrum leikurum má
nefna Peter O’Toole er leikur kennara keisarans.
Háskólabíó
Hættuleg kynni
Ein af þeim myndum, sem hafa verið tilnefndar til óskarsverðlauna
þetta árið, er Hættuleg kynni (Fatai Attraction), mögnuð spennumynd
undir stjóm Adrians Lynne. Michael Douglas leikur Don Gallagher sem
er hamingjusamlega giftur en fellur fyrir glæsilegri konu, Alex Forrest.
Eftir helgargaman vill hann ekki meira með hana hafa og heldur að þetta
stundargaman tilheyri fortíðinni en svo er nú aldeilis ekki. Michael Do-
uglas og Glenn Close sýna stjömuleik í erfiðum hlutverkum sem krefjast
mikiis af þeim. Hættuleg kynni er mynd sem unnendur spennumynda
ættu ekki aö láta fram hjá sér fara.
Óvanir börnum reyna þeir þremenningar, Tom Selleck, Steve Guttenberg og Ted Danson, að hugga sex
mánaða gamalt barn.
Bíóhöllin
Þrír menn og bam
Þremenningarnir Tom Selleck,
Steve Guttenberg og Ted Danson,
er leika aðalhlutverkin í Þrír
menn og barn (Three Men and a
Baby), verða heldur betur undr-
andi þegar þeir finna dag einn sex
mánaða gamalt bam fyrir utan
dymar hjá sér. Þeir hafa hingað til
lifað áhyggjulausu piparsveinalífi
og deilt með sér lúxusíbúð þar sem
ósjaldan er glaumur og gleði með
víni og vífum.
Einn þeirra er faöir bamsins og
hefur móðirin' í örvæntingu skilið
það eftir hjá foðurnum í þeirri von
að hann taki það að sér. Það verður
snögg breyting á lífi þeirra. Allt í
einu þurfa þeir að hafa áhyggjur
af bleium og bamamat og barnið
spyr aö sjálfsögðu ekki hvort það
er dagur eða nótt þegar það vantar
eitthvað...
Þetta er byrjunin á einhverri vin-
sælustu kvikmynd vestanhafs á
síðasta ári. Þykir vel hafa tekist til
og þótt þessum ágætu leikurum
haíi verið hælt þá er það barnið
sem stelur senunni. í raun er hér
um tvíbura að ræða sem leika
stúlkubamiö. Vinsældir myndar-
innar eru auðskildar. Hér er á
ferðinni græskulaust grín og til-
ganginum er náö - að skemmta
áhorfandanum.
Tom Beringer og Mini Rogers í hlutverkum sinum í Einhver til að gæta
mín, nýjustu kvikmynd Ridley Scott.
Stjömubíó
Einhver til að gæta mín
Tom Beringer hlaut mikið hrós fyrir leik sinn í Platoon þar sem hann
lék frekar ógeðfellt hlutverk liðþjálfa. í Einhver til að gæta mín leikur
hann nokkru geðslegra hlutverk eða leynilögguna Mike Keegan sem feng-
inn er til að gæta konu sem hefur orðið vitni að morði. Þau laðast hvort
aö öðm þrátt fyrir að Keegan sé giftur og verður það til þess að eigin-
kona hans og sonur lenda í lífshættu...
Aðrir leikarar eru Mimi Rogers, Loraine Bracco og Jerry Orbach. Leik-
stjóri er enginn annar en Ridley Scott sem á að baki myndir eins og Alien
og Blade Runner svo einhveijar séu nefndar.
Bíóborgin
Nuts
Barbra Streisand er frekar sjald-
séð á hvíta tjaldinu enda jafnvel
þekktari söngkona en leikkona.
Hún er samt, eins og flestir vita,
ágæt leikkona eins og hún hefur
oft sannað. í nýjustu kvikmynd
sinni, Nuts, hefur hún ekki verri
mótleikara en Richard Dreyfuss og
mynda þau stórskemmtilegt par,
konu sem álitin er skrítin og lög-
fræðing sem fenginn er til að veija
hana fyrir rétti þegar hún er ákærð
fyrir morð.
Nokkrir ágætir karakterleikarar
eru einnig til staðar. Má þar nefna
Maureen Stapleton, Eli Wallach,
Robert Webber, James Whitmore
og Karl Malden. Leikstjóri er einn
af betri og reyndari leikstjórum
vestanhafs, Martin Ritt, sem á að
baki margar frábærar myndir eins
og Hud, Sounder, The Great White
Hope og Norma Rae. Nuts hefur
alls staðar fengið góða dóma og
þykir góð skemmtun.
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Gallerí Nes
Nýja Bæ v/Eiðistorg
Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur,
Gallerí Nes, í verslunarhúsnæði Nýja-
Bæjar við Eiðistorg, in. hæð. Opið er
virka daga kl. 16-19 og laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
„Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvisindahúsinu
er opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega
eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að-
gangur að safhinu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Safnið er opið alla daga kl. 11.30-16.30
nema laugardaga og sunnudaga er opið
.til kl. 19. Leiðsögn sérfræðings alla föstu-
daga kl. 13.30-13.45. Kaffistofa hússins er
opin á sama tima og safnið.
Mokkakaffi
Skólavörðustíg
Helgi Sigurðsson sýnir blýantsteikningar
á Mokkakaffi. Sýningin, sem er sölusýn-
ing, stendur til 31. mars og er opin alla
daga kl. 10-23.30.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
Á morgun verður opnuð sýning á verkum
danska listmálarans Henrys Herrups í
Norræna húsinu. Sýnd verða olíumál-
verk, höggmyndir óg graflk í sýningar-
sölum en einnig verða grafíkmyndir í
anddyri. Sýningin verður opin daglega
kl. 14-19 fram til 3. apríl.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Á morgun verður opnuð sýning Sigrúnar
Harðardóttur í listasalnum Nýhöfn,
Hafnarstræti 18. Á sýningúnni eru mál-
verk og þurrkrítarmyndir sem unnar eru
á þessu og síðastliðnu ári. Sýningin er
opin virka daga kl. 10-18 og um helgar
kl. 14-18. Henni lýkur 6. apríl.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg
Einar Garibaldi Eiríksson sýnir málverk
í Nýlistasafninu. Þetta er fyrsta einka-
sýning Einars en áður hefur hann tekið
þátt í nokkrum samsýningum. Á sýning-
unni eru rúmlega tuttugu málverk og
annað eins af teikningum. Sýningin er
opin virka daga kl. 16-22 og um helgar
kl. 14-22. Henni lýkur sunnudaginn 27.
mars.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögmn kl. 14-16
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið í vetur laugardaga og sunnudaga
kl. 14-18. Skólafólk og hópar geta pantað
tima í síma 52502 alla daga vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Nýlega var opnuð sýning í forsal Þjóð-
minjasafns íslands á ýmsum munum sem
fúndust við fomleifarannsóknir á Bessa-
stöðum á sl. ári. Safnið er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga k). 13.30-16. Vegna mikillar
aðsóknar að farandsýningunni Gallabux-
ur - og gott betur, í forsal Þjóðminjasafns
íslands, sem ljúka átti' nú, 20. mars, hefur
verið ákveðið að framlengja hana til
sunnudagsins 27. mars.
Bókasafn Kópavogs
listastofa
Nú stendur yfir sýning á 18 ljósmyndum
eftir Svölu Sigurleifsdóttur í listastofu
Bókasafns Kópavogs. Ljósmyndirnár em
teknar á seinustu sex árum á ísafirði og
Homströndum. Myndefnið er fjöll, fugl-
ar, sjór og fiskar. Myndimar em svart/
hvítar, litaðar með olíulitum. Sýningin
er opin á sama tíma og bókasafnið, mánu-
daga til fóstudaga, kl. 9-21, laugardaga
kl. 11-14. Sýningin stendur til 15. apríl
og er aðgangur að henni ókeypis og öllum
heimill.
AKUREYRI
Gallerí Glugginn
Glerárgötu 34, Akureyri
Þar stendur yfir sýning á verkum þeim
sem Glugginn hefur í umboðssölu. Með
sýningu þessari vill Glugginn vekja at-
hygli á því að galleríið er ekki eingöngu
rekið sem sýningarsalur, þar er einnig
rekin umboðssala. Um er að ræða mál-
verk og vatnslitamyndir, grafik og
höggmyndir eftir fjölmarga valinkunna
listamenn. Sýnmgin stendur til 20. mars
og er opin daglega kl. 14-18 en lokað á
mánudögum.
ÍSAFJÖRÐUR
Slunkaríki
ísafirði
Sigríður Ásgeirsdóttir sýnir verk sín í
Slunkaríki á ísafirði. Verkin á sýning-
unni em unnin í gler og tré á sl. tveimur
árum. Þetta er önnur einkasýning Sigríð-
ar en hún hefur einnig tekið þátt í
samsýningum hér heima og erlendis.
Sýningin stendur til 27. mars og er opin
frá fimmtudegi tfi sunnudags kl. 16-18.
SAUÐÁRKRÓKUR
Safnahúsið
Sauðárkróki
Þorlákur Kristinsson, Tolli, sýnir mál-
verk í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Á
sýningunni verða 25 oliumálverk sem
máluð em á undanfömum þrem árum.
Sýningin verður opin sem hér segir: 18.
og 19. mars kl. 16-21 og 20. mars kl. 14-21.