Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1988, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1988.
LAUS STAÐA
Staöa lektors í tölvufræði við rekstrardeild Háskólans
á Akureyri er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og um
námsferil og fyrri störf, skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir
1. desember nk.
Menntamálaráðuneytið,
4. nóvember 1988
Sjávarréttir
í miklu úrvali
Tilboð vikunnar
er okkar rómaða
fiskfars
Verð kr. 249,- kg.
Sjávarréttasalan
Grímsbæ
v/Bústaðaveg
TILKYNNING FRÁ FISKVEIÐASJÓÐIÍSLANDS
Umsóknir um lán á árinu 1989 og endurnýjun eldri
umsókna. Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóði islands
á árinu 1989 hefur eftirfarandi verið ákveðið:
1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði:
Sjóðstjórn telur ekki þurfa aukna afkastagetu í
hefðbundnum vinnslugreinum og metur umsókn-
ir samkvæmt því. Eftir því sem fjármagn sjóðsins
hrekkur til verður lánað til bygginga, véla og tækja
og breytinga sem hafa í för með sér bætt gæði
og aukna framleiðni.
2. Vegna endurbóta á fiskiskipum:
Lánað verður til skipta á aflvél, til tækjakaupa og
endurbóta ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
3. Vegna nýsmíði og innflutnings á fiskiskipum:
Lán vegna nýsmíði og innflutnings á fiskiskipum
verða eingöngu veitt ef skip sambærilegrar stærð-
ar eru úrelt, seld úr landi eða strikuð út af skipa-
skrá af öðrum ástæðum. Gerðar verða strangar
kröfur um eigið fjárframlag. Engin lán verða veitt
vegna nýsmíði eða innflutnings báta undir 10
rúmlestum.
4. Endurnýjun umsókna:
Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að
endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvernig
þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur
verið veitt til.
5. Hækkun lánsloforða:
Mikilvægt er að lánsumsóknir séu nákvæmar og
verk tæmandi talin. Sérstök athygli er vakin á því
að lánsloforð verða ekki hækkuð vegna viðbótar-
framkvæmda, nema Ijóst sé að umsækjandi hafi
ekki getað séð hækkunina fyrir og hækkunin hafi
verið samþykkt af sjóðnum áður en viðþótarfram-
kvæmdir hófust.
6. Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til 31. desember 1988.
7. Almennt:
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir. Sérstök athygli er vak-
in á því að sjóðurinn getur synjað lánsumsókn,
þótt hún uppfylli almenn skilyrði. Umsóknum um
lán skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt
þeim gögnum og upplýsingum, sem þar er getið,
að öðrum kosti verður umsókn ekki tekin til greina
(eyðublöð fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs fslands,
Austurstræti 19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönk-
um og sparisjóðum utan Reykjavíkur). Umsóknir
er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest verða ekki
teknar til greina við lánveitingar á árinu 1989
nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp.
Reykjavík, 7. nóvember 1988
Fiskveiðasjóður íslands
Utiönd
ísraelskur arabi var handtekinn í gær er hann reyndi að koma i veg fyrir handtöku mótmælanda.
Simamynd Reuter
Palestínumenn
boða verkfall
Leiðtogar uppreisnarmanna á
vesturbakkanum og Gazasvæðinu
hafa boðað aUsherjarverkfall í dag
þegar nákvæmlega ellefu mánuðir
eru frá því að uppreisn Palestínu-
manna hófst.
Stjómmálamenn Likud-bandalags-
ins og Verkamannaflokksins í ísrael
héldu í gær áfram tilraunum sínum
til að mynda nýja stjóm. Eitt af
fyrstu verkum þeirrar stjómar mun
veröa að reyna að bæla niður upp-
reisnina sem krafist hefur á fjóröa
hundrað mannslífa. Hvorugur flokk-
anna vann hreinan meirihluta í
kosningunum þann 1. nóvember síö-
astliðinn og báðir reyna nú að fá
stuðning heittrúarflokka til hægri
sem eru í oddaaðstöðu á þingi. Leið-
togi helsta flokks þeirra segist ekki
ákveða fyrr en 1 vikulokin hvorn
flokksleiðtogann hann muni styðja,
Shamir forsætisráðherra, leiðtoga
Likud-bandalagsins, eöa Peres utan-
ríkisráöherra sem er formaður
Verkamannaflokksins.
ísraelskir hermenn, sem voru á
eftirlitsferð á Gazasvæðinu í gær-
kvöldi, hvöttu íbúana til að hreinsa
veggjakrot þar sem hvatt var til
verkfalls og mótmæla. Hermenn
skutu á og særðu ellefu Palestínu-
menn á Gazasvæðinu í gær. Á vest-
urbakkanum særðu hermenn tvo
araba og ísraelsk kona meiddist er
gijóti var kastað á bifreið hennar.
Tuttugu bráðabirgðahejmili Palest-
ínumanna, sem sögð voru hafa verið
byggð ólöglega, vom eyðilögð í gær.
Sagt var að það hafi verið gert í
hefndarskyni fyrir morðið á ísra-
elska hermanninum sem stunginn
var til bana á mánudaginn.
Reuter
Erfiðrar stjórnarmyndun-
ar að vænta í Færeyjum
Færeyska stjómin, undir forystu aðarmannaflokkurinn, fengu nú 15 Framsóknarflokkurinn missti sinn
Atla Dams lögmanns, tapaði meiri- þingsæti en höfðu áður 17. eina þingmarm.
hluta sínum á þingi í kosningunum Jafnaðarmenn fengu 7 menn Fólkaflokkurinn vann eitt sæti
í gær. Taliö er aö stjómarmyndun kjöma en höfðu áöur 8. Þjóðveldis- og fékk 8 menn kjöma. Sambands-
geti orðið erflö. flokkurinn fékk 6 menn kjöma, flokkurinn hélt sínum sjö þing-
Stjómarflokkamlr, Sjálfstýri- jafnmarga og síðast Sjálfstýri- mönnum og Kristilegi fólkaflokk-
flokkurinn, Framsóknarflokkur- flokkurinn hlaut sömuleiöis jafn- urinn vann eitt þingsæti, fékk 2
inn, Þjóðveldisflokkurinn og Jafn- marga og síðast eða 2 þingmenn. menn kiöma nú.
Lahd sýnt banatilræði
Morðtilraunin á yfirmanni suður-
líbönsku hersveitanna, sem ísraels-
menn styðja, hefur vakið spumingar
um hemaðarhlutverk ísraelsmanna
í Líbanon. ísraelskir herforingjar
yfirheyra nú ballettkennarann Suha
Bshara, sem á mánudaginn skaut á
Antoine Lahd samkvæmt fyrirmæl-
um Kommúnistaflokks Líbanons.
Kommúnistaflokkurinn lýsti yfir
ábyrgð á banatilræðinu í gær.
Skæruliðar í Bekaadalnum, sem
hhðhollir em Sýrlendingum, em nú
í viðbragðsstöðu ef Israelsmenn
skyldu hyggja á hefndir. ísraelsmenn
hafa það sem af er þessu ári gert
tuttugu og þrjár loftárásir á Líbanon.
Heimildarmenn segja að morötil-
raunin á Lahd, sú þriðja síðan 1984,
hafi verið högg beitt gegn ísrael sem
háð er suður-líbönsku hersveitunum
til vamar gegn árásum skæruliða.
Þeir hafa að undanfómu hert sókn
sína gegn ísrael. Reuter
Antoine Lahd, yfirmaður suður-líbönsku hersveitanna, við komuna á ísra-
elskt sjúkrahús eftir aö honum var sýnt banatilræði af ungri líbanskri konu.
Hersveitir hans eru studdar af ísraelsmönnum. Símamynd Reuter