Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1989, Page 7
33
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989.
Bílar
Hulunni svipt
af BMW 850i
Tólf
strokka
-þrjú
hundruð
hestöfl
Mikið hefur verið rætt og ritað í
bílapressunni um nýjan sportlegan
bíl frá BMW: 850i sem vaentanlegur
væri í haust.
Nú hefur hulunni verið svipt af
þessum nýja bíl því í byrjun vikunn-
ar var send út svohljóðandi fréttatil-
kynning frá BMW:
Biðinni er lokið og þeir sem voru
í vafa geta tekið gleði sína: Nýr BMW
850i verður frumsýndur á alþjóðlegu
bílasýningunni í Frankfurt í haust.
Þessi nýi BMW er annar tólf strokka
þýski bíllinn sem kemur fram á síð-
ari tímum.
Helstu tölur: 300 hestöfl (220 kW),
þríhliða mengunarvöm (katalysat-
or) með súrefnisskynjunun. Hröðun,
0 til 100 km, minna en 7 sek. Hám-
arkshraði rafeindastýrður allt að 250
km/klst. Val á ýmist sex gíra bein-
skiptum gírkassa eða sjálfskiptingu
með rafeindastýrðri vökvstjómun og
þremur akstursprógrömmum.
Þessi nýi BMW kemur á almennan
markað á næsta ári.
Hyundai
ekki með
á bíla-
sýning-
unni í
Frankfurt
í haust
Stærsti bílaframleiðandi Suður-
Kóreu, Hyundai (Hondæ) verður
ekki með á bílasýningunni stóm í
Frankfurt í haust og hefur afturkall-
að pöntun sína á sýningarsvæðinu
sem hafði þegar verið pantað fyrir
haustið.
Reiknað var með að nýi toppbíllinn
frá Hyundai, Sonata, yrði meðal
þeirra bíla sem annars myndi vekja
mikla athygli í Frankfurt í haust.
Því er haldið fram að Hyundai hafi
lent í vandræðum meö framleiðslu-
afköst í kjölfar síendurtekinna verk-
falla í verksmiðjunum undanfariö og
vilji því forðast of miklar auglýsingar
og aukna eftirspurn í lengstu lög.
BMW 850i - frumsýndur í Frankfurt i haust.
AFMÆLISUTGAFA
AUKABUNAÐUR FYRIR KR. 35.000 - ÓKEYPIS
í tilefni 35 ára afmælis BIFREIÐA & LANDBÚNAÐAR-
VÉLA, gefur fyrirtækiö nú aukabúnað aö verömæti kr.
35.000, meö hverjum 5 dyra Lada Samara 1300.
Opið kl. 10-14 laugardag.
Aukabúnaöur: Stereo útvarps- og segulbandstæki,
_______ hátalarar, límrendur á hliöar,
-v. hjólkoppar, sportgrill,
xx hliöarlistar og fl.
\ Allt þetta ókeypis í
.afmælisútgáfunni.
- gódur kostur í bílakaupum
Bein lína i söludeild 312 36
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13 - 108 Reykjavik - s 681200
osarfslA