Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1989, Side 8
24
fc;,Hy i.....
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989.
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hiimar Karlsson
V
V,
Það eru heldur betur hræringar á
myndbandalistanum þessa vikuna
eftir ládeyðu undanfamar vikur.
Fjórar nýjar myndir koma inn á
listann og fer ein þeirra beint í
fyrsta sætið. Það er að sjálfsögðu
Cocktail með Tom Cruise í aðal-
hlutverki. Leikur hann barþjón
einn sem er mikil listamaður í sínu
starfi.
Hinar þrjár myndimar em allt
gamanmyndir. í fimmta sætið
skýst Overboard með Goldie Hawn
í aðalhlutverki. Leikur hún mold-
ríka stúlku sem missir minnið og
er látin trúa því að hún sé fátæk,
gift og margra barna móðir. Dudley
Moore endurtekur eitt þekktasta
hlutverk sitt, drykkjusvolann Art-
hur í Arthur II sem fer í áttunda
sætið og í tíunda sætið fer táninga-
myndin Plain Clothes.
DV-LISTINN
1. (-) Cocktail
2. (1) Young Guns
3.(3) The Presido
4. (2) Big Business
5. (-) Overboard
6.(4) Masquerade
7. (6) Stand and Deliver
8. (-) Arthur II
9.(5) Caddysack II
10. (-) Plain Clothes
Dans og tilfínningar
NIJINSKY
Útgefandi: Háskólabíó
Leikstjóri: Herbert Ross. Framleiöandi:
Harry Saltzman. Handrit: Hugh Wheel-
er. Aðalhlutverk: Alan Bates, Leslie
Brown, George De la Pena, Alan Badel
og Jeremy Irons
Bresk 1980. öllum leyfö. 125 min.
Hér er á ferðinni áferðarfalleg en
kraftlítil umfjöllun um ein ,fræg-
asta ballettdansara Rússa og bal-
lettstjóra hans. Diaghilev og Nijin-
sky áttu í stormasömu og umdeildu
ástarsambandi og myndin snýst
um átök þeirra í milli um leið og
brugðið er upp myndum af lista-
heiminum í upphafi aldarinnar.
Sögulega séð hefur myndin því
ýmislegt fram að færa.
Dansatriðin eru mörg hver vel
útfærð og auka án efa á gUdi mynd-
arinnar fyrir danssjúka. Fyrir hina
virkar þau hins vegar draumkennd
og langdregin.
Leikaralið er fjölskrúðugt með
Bates í farabroddi. Hann er samur
við sig en leikur af meiri krafti hér
en oft áður. Önnur hlutverk eru
Genius. Madman. Animal. Cod.
vel skipuð kunnu liði. Irons leikur
aukahlutverk sem býður ekki upp
á mikla möguleika.
Þó að myndin sé teygð um of á
langinn þá hefur hún margt fram
að færa og er snyrtilegur vitnis-
burður um fagmennsku Breta.
-SMJ
★★
Lögguoíbeldi
MANIAC COP
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: William Lustig. Handrit og
aöstoóarframleiöandi: Larry Cohen.
Framleiöandi: James Clickenhaus. Að-
alhlutverk: Tom Atkins, Bruce Campell,
Laurence Landon.
Bandarísk. Bönnuö yngri en 16 ára. 95
min.
Uppspretta löggumynda í Amer-
íku ætlar seint að þoma enda orðin
áratuga hefð fyrir slíkum frásögn-
um. Myndimar hafa á seinni árum
sveiflast á milli lögguofbeldis og
glæpa en inn á milli hefur mátt
finna eina og eina heiðarlega mynd.
Því er nú varla að heilsa hér en
myndin segir frá ógnvaldi einum
sem sprettur upp í New York borg
og drepur gesti og gangandi. Það
óhugnarlega er að hér virðist vera
um lögreglumann að ræða. Að
sjálfsögðu grípur mikil skelfing um
sig meðal lögreglunnar og al-
mennra borgara.
Sem gefur aö skilja er ofbeldið
hér í heiðri haft en sökum þess að
söguþráðurinn býður upp á þokka-
lega spennu verður ofbeldið ekki
fáránlegt. Nokkur eftirvænting
skapast í kringum ógnvaldinn og
þó frumleikanum sé ekki fyrir að
fara er ekkert kauðalegt við hand-
ritið. Þá er leikur bærilegur en ógn-
valdurinn er dálítið fáránlegur í
gervi sínu í lokin.
-SMJ
★★
Samrýnd hjónakom
OVERBOARD
Útgefandi: Arnarborg.
Leikstjóri: Garry Marshall. Handrit:
Leslie Dixon. Framleiðandi: Anthea Syl-
bert og Alexandra Rose. Aðalhlutverk:
Goldie Hawn, Kurt Russell, Edward
Herrmann og Katherine Helmond.
Bandarísk, 1987. 107 min. Öllum leyfö.
Það er ekki að efa að rómantíkin
hafi blónistrað hjá þeim Hawn og
Russell í þessari mynd en þau eru
sem kunnugt er gift. Það er siður
hjóna í Hollywood að smella sér
saman í eins og eina mynd á meðan
hjónabandið endist - svo ekki sé
talað um hve oft hjónabönd koma
til eftir myndir, en það er önnur
saga.
Russell er vissulega á mörkum
þess að geta talist frambærilegur
Hættulegar
martraðir
BAD DREAMS
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Andrew Flemming.
Aðalhlutverk: Jennifer Rubin, Richard
Lynch og Harris Yulin.
Bandarisk 1988 - sýningartími 80 min.
Bönnuó börnum innan 16 ára.
Bad Dreams er hryllingsmynd,
þar sem eini tilgangurinn með
myndinni er að spenna taugar
áhorfandans. Söguþráðurinn er
ófrumlegur og margnotaður. Er
sambland af hópsjálfsmorðum og
martröðunum á Elmstræti.
Aðalpersóna myndarinnar er
Cynthia sem ein lifði af mikla
sjálfsmorðsveislu hjá ofstækistrú-
flokki einum. Hún slasast mikið og
liggur í dái í þrettán ár.
Öllum til furðu vaknar hún til
lífsins. Hún man þó ekki neitt úr
fortíðinni. Á enduhæfingarstöð fer
hún að sjá sýnir sem fylla hana
hryllingi. Leiðtogi trúarhópsins
sem hvatt hafði alla til að drepa sig
birtist henni og segir að verk hans
sé ekki klárað fyrr en hún er dauð
og því fyrr sem hún bindi enda á
líf sitt því betra fyrir alla.
Til að leggja áherslu á orð sín
drepur hann aðra sjúklinga á
óhugnanlegan hátt og passar alltaf
upp á að Cynthia viti nákvæmlega
hvað muni gerast.
Bad Dreams er nokkuð vel gerð
kvikmynd. Óhugnaðurinn er mik-
ill og er öruggt að flestum ofbýður
sum atriðin sem eru alltof löng of-
beldisatriði og að mörgu leyti til-
gangslaus. Varla er betri leikari til
í hryllingsmyndir en Richard
Lynch. Hann þarf aðeins aö láta sjá
sig þá veit áhorfandinn að þar fer
sá vondi í myndinni. Jennifer Rub-
in í hlutverki Cynthiu þarf aðeins
að geta sýnt skelfingarsvip á and-
liti sem hún gerir ekki mjög sann-
færandi.
-HK
gamanleikari en Hawn hefur ein-
beitt sér að því að þróa týpuna „ein-
falda ljóshærða stúlkan“.
Myndin segir frá því er dek-
urdúkkan Hawn dettur í sjóinn og
missir minni. Russell ætlar að
hefna sín á henni fyrir ógreidda
reikninga og kveður hana vera
konu sína og fjögurra barna móð-
ur. Hann heldur henni síðan við
leik og störf í nokkum tíma þar til
ástin kviknar...
Hér er ekki á ferðinni áreynslu-
mikill söguþráður og fátt sem kem-
ur á óvart. Synimir era dálítið
skemmtilega andstyggilegir og allt-
af er nú eitthvað heillandi við
Hawn. Þá er Russell alls ekki svo
slæmur, eða þannig.
-SMJ
OVERBOARD
Ást sem tortímir
DEADLY PASSION
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Michael Grant.
Aðalhlutverk: Sally Kellerman, Stephen
Lack og John Huston.
Bandarísk, 1980-sýningartími 98 mín.
Deadly Passion er í raun ekki
nafnið á þeirri kanadísku kvik-
mynd sem hér er til umfjöllunar,
þótt framan á myndbandskápunni
standi það nafn. Ekki er heldur
raunverulegt nafn myndarinnar
Fatal Atraction sem birtist áhorf-
andanum á sjónvarpsskerminum.
Upprunalega hét myndin Head On
og er gerð í Kanada 1980. Þegar
Bandaríkjamenn ákváðu að dreifa
myndinni 1985 nefndu þeir hana
Fatal Atraction. Ekki gekk hún vel
í kvikmyndahúsum. Þegar svo átti
að dreifa myndinni á myndbanda-
markaðinn var komin í kvik-
myndahús metaðsóknarmyndin
Fatal Atraction, með Glenn Close
og Michael Douglas, því sáu mynd-
bandsframleiðendur að ekki þýddi
að nota það nafn og úr varð Deadly
Passion sem aðeins er á kápunni
eins og fyrr segir.
Þessi smáútúrdúr sýnir hvernig
viðskiptin ganga í kvikmynda-
heiminum þegar um er að ræða
myndir sem oft era kallaðar upp-
fyllingarefni. Deadly Passion (við
höldum okkur við þetta nafn) er
dramatísk ástarsaga tveggja ein-
staklinga sem hittast af tilviljun og
tortíma hvora öðra í bijálæðisleg-
um leik sem hvoragt getur hætt.
Kvikmynd þessi á mun meiri sam-
leið með evrópskum kvikmyndum
en amerískum, enda er hér veriö
að flalla um samskipti kynjanna á
þann hátt sem hefur verið miðevr-
ópubúum einkar hugleikið við-
fangsefni í mörg ár.
Leikstjórinn Michael Grant nær
góðum tökum á söguþráðinum og
þrátt fyrir fáránleikann er áhorf-
andinn hugtekinn af þeim átökum
sem eiga sér stað milli háskóla-
kennarans og sálfræðingsins, átök-
um sem þau bæði eru á móti en
geta ekki verið án. Sally Kellerman
og Stephen Lack leika parið af
miklum krafti, stundum um of,
gætir ofleiks hjá báðum. John Hus-
ton bregður fyrir í litlu en bita-
stæðu hlutverki.
-HK
Áður gaman var
WINDY CITY
Útgelandi Steinar hf.
Leikstjóri: Ermyan Bernstein.
Aöalhlutverk: John Shea, Kate Capshaw
og John Mostel.
Bandarísk, 1984 - sýningartimi 102 mín.
Windy City minnir að hluta til á
The Big Chill, þótt líkingin sé að-
eins á yfirborðinu. Skólafélagar
hafa haldið hópinn og hittast viku-
lega og rifja upp minningamar um
gömlu góðu dagana þegar lifið var
leikur. Þegar myndin hefst liggur
einn þeirra fyrir dauðanum. Sá
hafði ávallt verið fjörkálfurinn í
hópnum og hafa þessi tíðindi mikil
áhrif á félaga hans.
Æðsta ósk þess veika hafði ávallt
verið að sigla á seglskipi á vit ævin-
týra. Sameinast vinimir um að láta
þennan draum rætast. Inn í sögu-
þráðinn fléttast svo samband eins
þeirra við sambýliskonu sem hann
hafði yfirgefið en dauðsér eftir.
Windy City er hugljúf mynd sem
Hvaft taka „hrefckjalómari’ tíf hntgfK, Jwgar
oldurian faiýst vRr oj; dnuonsjr dofna?
c»í mmxu. ra«$ ******
«a«r tfit -jqsh wsm
>™~ixtAMaœSMM MHUt KN&TOk
að vísu er nokkuð brokkgeng en
ætti að segja mönnnum að ekkert
er ómögulegt ef viljinn er fyrir
hendi. -HK