Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1990, Qupperneq 3
oerpöSfÚtoAQUlR 2: NTARS-Í990.
Dans-
staðir
Ártún
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir fóstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Bjórhöllin
Gerðubergi 1
Opið öll kvöld frá kl. 18-1 og um helg-
ar til kl. 3. Lifandi músík fimmtu-
dags-, fóstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Casablanca
Skúlagötu 30
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Danshöllin
Brautarholti 22, s. 23333
„Þjóðbjörg og Doddi bregða fyrir sig
betri fætinum", sýnt laugardags-
kvöld. Dansað föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Duus-hús
Fischersundi, simi 14446
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Fjörðurinn
Strandgötu 30, sími 50249
Hljómsveitin Rósin leikur fyrir dansi
fóstudags- og laugardagskvöld.
Danshúsið Glæsibær
Álfheimum, sími 686220
Danshijómsveitin leikur fyrir dansi
föstudags- og laugardagskvöld.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Lifandi tónlist um helgar.
Hollywood
Ármúla 5, Reykjavík
Lifandi tónlist um helgina.
Hótel Borg
Pósthússtræti 10, Reykjavík, simi
11440
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir fóstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl.
19-1.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Sýningin Rokkóperur fóstudags- og
laugardagskvöld. Hijómsveitin
Stjómin leikur bæði kvöldin.
Hótel Saga
Á laugardagskvöldið verður sýnd
skemmtidagskráin „Skemmtisigling
á þurrn landi“ í Súlnasal. Nokkrir
af fremstu skemmtikröftum landsins
hrifa gesti með sér í bráðhressandi
skemmtun. Hijómsveitin Einsdæmi
leikur fyrir dansi.
Keisarinn
v/Hlemmtorg
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld.
Sportklúbburinn
Borgartúni 22
Opið föstudags- og laugardagskvöld
Staupasteinn
Smiðjuvegi 14D, s. 670347
Hljómsveit leikur fyrir dansi fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
Tunglið og Bíókjallarinn
Lækjargötu 2, simi 627090
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Ölver
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Hljóm-
sveitin Hrím leikur um helgina.
' 1 19
Útivist
. um
helgina
Útivist býöur upp á tvær ferðir á
sunnudaginn, annars vegar um
Grændal - Reykjadal og hins vegar
skíöagöngu.
Grændalur - Reykjadalur
Ekið veröur austur í Hverageröi.
Síðan verður gengið upp í Grænd-
aiinn og niöur með Varmá. Brottför
verður kl. 13 frá Umferðarmiðstöð-
inni - bensínsölu. Stansaö verður
við Árbæjarsafnið. Verð í ferðina
er kr. 900.
Skíðaganga
Genginn léttur hringur á Hellis- ■
heiði. Byijendur geta bæst í hóp-
inn. Brottfór er kl. 13 frá Umferðar-
miðstöðinni - bensínsölu. Stansaö
verður við Árbæjarsafn og er verð-
ið kr. 800.
Ráðsfundir
ITC
Annað ráð ITC á íslandi er með
ráðsfundi um helgina. Verða þeir
haldnir í veitingahúsinu Gafl-Inn
aö Dalshrauni 13 í Hafnaríirði.
Á laugardagsfundinum, sem
hefst kl. 10.15, verður hin árlega
ræðukeppni milli deilda. Kemur þá
í ljós árangur þjálfunar sem félagar
hafa hlotið í ræðumennsku en stef
fundarins er Þjálfun og samstarf
er lykill að árangri.
Eftir hádegi mun Kristbjörg
Þórðardóttir, skólastjóri Sjúkra-
liðaskóla íslands, halda fyrirlestur
um slys á börnum á grunnskóla-
aldri.
Á fundinum á sunnudag verður
kosin ný stjórn ráðsins fyrir næsta
starfsár. Þá verður Guðrún Lilja
Norðdahl með fræðslu um kapp-
ræður og Páll Eiríksson geðlæknir
mun halda fyrirlestur um sorg og
sorgarviðbrögð. Stef sunnudags-
fundar er Sterkur er sá sem stefnir
hátt.
ITC eru þjálfunarsamtök, fjöl-
mennustu alþjóðasamtök sem
starfa eingöngu á fræðilegum
grundvelli. Þau starfa ekki að góö-
gerðarmálum eins og mörg önnur
samtök og sjóðir samtakanna eru
eingöngu ætlaðir til reksturs
þeirra. ITC veitir þjálfun í mann-
legum samskiptum og örvar for-
ystuhæfileika. Markmiðið með
starfmu í ITC er að félagar öðlist
andlegt jafnvægi og aukið sjálf-
straust. ITC starfar að vísu að góð-
gerðarmálum í þeim skilningi að
samtökin gera einstaklinginn hæf-
ari til að starfa að samfélagsmálum
og gera áhrif hans meiri, hvort sem
hann er óbreyttur félagi eða stjórn-
andi í félagi sem starfar að al-
mannaheill, hvort heldur í skóla-
nefnd, hefðbundnum stjómmála-
flokki eða annars staðar. Félags-
skapurinn er opinn bæði körlum
og konum og öllum þeim sem hafa
áhuga á er velkomið að vera með.
í öðru ráði eru átta deildir: ITC
Dögun, Vopnafirði; ITC Fluga, Mý-
vatnssveit; ITC Gerður, Garðabæ;
ITC Gná, Bolungarvík; ITC Irpa,
Reykjavík; ITC íris, Hafnarfirði;
ITC Kvistur, Reykjavík; og ITC
Mjöll, Akureyri. Forseti annars
ráðs er Alexía Gísladóttir.
Heiti potturinn:
Tríó Ólafs
Stephensen
Sunnudagskvöldið 4. mars leikur
Tríó Ólafs Stephensen ásamt gest-
um í Heita pottinum í Duus-húsi
við Fischersund.
Ólafur var virkur í hljómlistarlífi
höfuöborgarinnar síðla á sjötta
áratugnum en gerði tónlistina ekki
að ævistarfi. Hann hefur þó oftlega
gripið í píanó eða harmóníku í ár-
anna rás og á Djasshátíð Austur-
lands á Egilsstöðum 1989 vakti
píanóleikur hans veröskuldaða at-
hygli.
Með Ólafi, sem spilar á píanó á
sunnudagskvöldið, leika Pétur
Grétarsson á trommur og Tómas
R. Einarsson á kontrabassa en auk
þeirra koma fram sérstakir gestir
Ólafs.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.30.
MÍR:
Kvikmyndir
Rostotskí
Næstu tvo sunnudaga verða tvær
af kvikmyndum hins kunna so-
véska kvikmyndaleikstjóra Stan-
islavs Rostotskí sýndar í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10.
Á sunnudaginn kemur, 4. mars,
kl. 16 verður sýnd mynd hans frá
árinu 1962, Vindarnir sjö, en þar
sækir Rostotskí efnið í atburði
styrjaldaráranna 1941-^15 eins og í
fleiri myndum sínum.
Hin mynd Stanislavs Rostotskí,
verðlaunamyndin Hvíti Bim
Eyrnablakkur, verður svo sýnd
sunnudaginn 11. mars.
Aðgangur að kvikmyndasýning-
um MÍR er ókeypis og öllum heim-
ill.
Skálafell:
Hallbjöm snýr aftur
Kántríkonungurinn Hallbjöm
Hjartarson hefur tekið upp þráðinn
á ný eftir nokkurt hlé og skemmtir
gestum Skálafells á Hótel Esju á
hverju laugardagskvöldi næstu
vikumar. Að auki verður stiginn
dans við undirleik hljómsveitar-
innar Kaskó sem leikur á Skála-
felli öll kvöld frá flmmtudegi fram
á sunnudag.
Hallbjörn leggur land undir fót í
viku hverri með gitar um öxl. Að
hætti góðra sveitasöngvara tekur
hann rútuna úr heimabyggö sinni
á Skagaströnd og heldur á vit höf-
uðborgarlífsins. Að loknu helg-
arstarfi sínu á Skálafelli heldur
hann á vit sveitarinnar á ný til að
safna orku og innblæstri til næstu
helgar.
Hallbjöm sýndi í vetur þegar
hann gaf út plötuna Kántrí 5 að
hann hefur engu gleymt. Vinsæl-
asta lagið þar, Hann er vúisæll og
veit af því, hefur hljómað á öldum
ljósvakans í vetur. Hallbjöm á
þetta og margt fleira í pokahominu
fyrir gesti Skálafells næstu laugar-
daga. Staðurinn verður opnaður
kl. 19.
Guðni Þ. Guðmundsson og Esther Helga Guðmundsdóttir halda tónleika í Hafnarborg á sunnudag.
Hafnarborg:
Lög úr söngleikjum
Sunnudaginn 4. mars nk. kl. 15.30
verða haldnir tónleikar í Hafnar-
borg á vegum Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar og Hafnarborgar. Hér er
um að ræða tónleika í tónleikaröð
sem þessir aðilar standa saman að
og em þetta aðrir tónleikamir en
hinir fyrstu þóttu takast mjög vel.
Á tónleikunum nk. sunnudag
koma fram þau Ester Helga Guð-
mundsdóttir sópran og Guðni Þ.
Guðmundsson, sem leikur á píanó,
og flytja nokkur lög úr vel þekktum
söngleikjum, m.a. Porgy og Bess,
Showboat, Sound and Music, Cats
o.fl.
Esther Helga Guðmundsdóttir
stundaði nám við Söngskólann í
Reykjavík og lauk þaðan prófi árið
1984. Á árunum 1985-88 var hún
við nám í Bandaríkjunum, í háskó-
lanum í Indiana. Áuk þess hefur
Esther sótt fjöldann allan af nám-
skeiðum, m.a. hjá Erik Werba og
Glendu Maurice. Esther Helga hef-
ur haldið fjölda tónleika bæði hér
heima og erlendis.
Guðni Þ. Guðmundsson stundaði
nám viö Tónlistarskólann í Reykja-
vík þar sem hann lauk tónmennta-
kennaraprófi en hélt síðan til
Kaupmannahafnar þar sem hann
var við orgelnám við Konservatorí-
ið og lauk þaðan A-prófi. Guðni,
sem er organisti við Bústaðakirkju,
hefur komið fram bæði sem kór-
stjóri og einleikari á fjölmörgum
tónleikum hér heima og erlendis.
Esther Helga og Guðni eru bæði
kennarar við Tónlistarskóla Hafn-
arfjarðar. Eins og fyrr greinir hefj-
ast tónleikamir kl. 15.30 og er að-
gangur ókeypis.
Hallbjörn Hjartarson mun skemmta gestum Skálafells næstu laugar-
dagskvöld.
7