Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1990, Qupperneq 2
18 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1990. Ef þú VÍlt Út að borða VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4. Hf.. sími 651693. American Style Skípholti 70, sími 686838. Argentína Barónsstígur 11 a. sími 19555. Arnarhóll Hverfisgötu 8-10. sími 18833. Asía Laugavegi 10. símí 626210 Askur Suöurlandsbraut 4. sími 38550 Suöurlandsbraut 14. sími 81344. Á alþingi Þönglabakka 6 (Mjóddin). s. 79911. Árberg Ármúla 21. sími 686022. Bandidos Hverfisgötu 56. sími 21630 Bæjarins besti fiskur Naustin. sími 1 8484 Café Hressó Austurstræti 18. sími 14353. Duus hús v/Fischersund. slmi 14446. Eldvagninn Laugavegi 73. sími 622631. Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjörukráin Strandgötu 55. sími 351 21 3. Fógetinn, Aðalstræti 10. sími 16323. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 11556. Gullni haninn Laugavegi 178. simi 34780 Hallargarðurinn Húsi verslunarinnar. sími 30400. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888 Hjá Kim Armúla 34. sími 31381. Hornið Hafnarstræti 1 5. sími 1 3340. Hótel Borg Pósthússtræti 11. sími 11440. Hótel Holt Bergstaðastræti 37. sími 25700 Hótel ísland v/Ármúla. simi 687111. Hótel Lind Rauðarárstíg 18. sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavlkurflugvelli. sími 22322 Hóteí Óöinsvé v/Öðinstorg. sími 25224 Hótel Saga Grilliö. sími 25033. Súlnasalur. sími 20221. Skrúður. sími 29900. Hrafninn, Skipholti 37. sími 685670. Ítalía Laugavegi 11. sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4—6. sími 15520 Kabarett, Matkrá Austurstræti 4. sími 10292. Kaffivagninn Grandagarði. sími 15932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. sími 45022. Kína-Húsið Lækjargötu 8. sími 11014 Kringlukráin Kringlunni 4. sími 680878. Krókurinn Nýbýlavegi 26. sími 46080. Lauga-ás, Suöurlandsbraut 2. sími 689509. Lækjarbrekka Bankastræti 2. sími 14430. Madonna Rauðarárstíg 27-29. sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 42166 Mandaríninn Tryggvagötu 26. sími 23950. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7. sími 688311 Myllan, kaffihús Kringlunni, sími -689040. Naustið Vesturgötu 6-8. sími 17759 Ópera Lækjargötu 2. simi 29499. Pétursklaustur Laugavegi 73. sími 23433. Pizzahúsið Grensásvegi 10, sími 39933. Pizzaramí Hringbraut 119. símí 21066. Pizzusmiðjan Smiðjuvegi 1 4 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22, sími 11 690. Punktur og pasta Amtmannsstíg 1, sími 13303. Rauöa Ijónið Eiðistorgi. sími 611414. Rauði sófinn Laugavegi 126. sími 16566. 612095 Samlokur og fiskur Hafnatstræti 5. sími 18484. Setriö Sigtúni 38. sími 689000. Siam, Skólavörðurstíg 22. sími 28208 Singapore ReyKjavikurvegi 68. sími 54999 Sjanghæ Laugavegi 28. sími 16513. Staupasteinn Smiðjuvegi 14 D. sfmi 607347 Svarta pannan Hafnárstræti 17. slmí 16480. Sælkerinn Austurstræti 22. sími 11633. Taj Mahal, Tandori og Sushi bar. Laugavegi 34a. sími 13088 Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45. sími 21255. Veitingahúsiö 22 Laugavegi 22. slmi 13628. Viö Tjörnina Templarasundi 3. sími 18666 Viva Strætó Lækjagötu 2. öikeldan Laugavegi 22. slmi 621036 Veitingahúsið Italía er með beztu veitingahúsum borgarinnar, gerólíkt þeim stælingum útlendra veitinga- húsa, sem í nokkur ár hafa verið í tízku á höfðuborgarsvæðinu. DV-mynd JAK Jónas Kristjánsson aftur tekinn til vid ad skrifa um veitingahús: Fullkomið heilagfiski hjá ítölskum kokki Veitingahúsið Ítalía heimsótt Um daginn fékk ég bezta heilag- fiski, sem ég hef fengið á ævinni. Það var betra en ég hef fengið það bezt heima hjá mér. Það var ekki þurrt og seigt eins og þessi feiti fisk- ur er oft í veitingahúsum, vegna þess að hann er of lengi eldaður. Þetta var hins vegar undurmeyr fiskur og bragðljúfur, greinilega rétt eldaður upp á sekúndu, frábær rétfur. Enda er kokkurinn ítalskur. Gerólíkt erlendum stælingum Þar sem einu sinni var sæluríkiö og kjaftabúlan Laugavegur 11 og síðan hafa verið fleiri veitingahús en hægt er að rekja, er nú komið skemmtilega ítalskt veitingahús, sem heitir einfaldlega Ítalía. Það er með beztu veitingahúsum borg- arinnar, gerólíkt þeim stælingum útlendra veitingahúsa, einkum austrænna, sem í nokkur ár hafa verið í tízku á höfuðborgarsvæð- inu. ítalskur matur ber eins og gull af eiri af öðrum mat Miðjarðar- hafslanda. Má raunar telja furðu- legt, að Grikkir og Spánverjar skuli ekki hafa komið sér upp matar- gerðarlist, sem geti att kappi við hina ítölsku. ítölum er eins og Frökkum eðlilegt að elda góðan mat og við höfum dæmi um það í þessari matarholu neðst við Lauga- veginn. Oftast er þétt setinn bekkurinn á Ítalíu. Þótt staðurinn sé lítill, kom- ast um 60 manns í sæti. Staðurinn hefur vel heppnað ítalskt útlit. Hann er langur og mjór, hvítmálaö- ur, þröngur og suðrænn. Veggur í axlarhæð skiptir honum eftir endi- löngu og am ar slíkur skilur að skot við gluf gann úti að götunni. Þar úti við glugga er gott að drepa tímann við að horfa á vegfarendur, þegar veður er gott og þeir ekki of þjáningarlegir á svipinn, svo sem Islendingum er títt. Gamall ítalskur ísvagn er til skrauts frammi við dyr. Innst hanga ítalskar vínflöskur í bast- klæðum. Þar er pizzuofn mikill og eldhús staðarins. Á veggum er margvíslegt skraut, einkum málmstungur af 19. aldar atburð- um á Ítalíu úr brezka blaðinu Lon- don 7 lustrated. Grana-ostur á borðum Smíðajámsfætur em undir dúk- lögðum spónaplötum með gler- plötu ofan á. Kerti eru á boröum, þykkar diskamottur og grana-ostur í skondnum reiðhjólaskálum. Grana-ostur er það, sem ítalir setja út á allan mat og sumir íslendingar kannast við sem parmesan. Það er enskt orð, sem kémur frá þekktri tegund af grana-osti, sem heitir parmigiano. Einkennilegt var, að ekki voru ekta rauðvínsglös á borðum, held- ur vel þekkt þýzk hvítvínsglös með lituðum fæti. Það fannst mér dálítið út úr kortinu. Þá voru pappírs- þurrkur staðarins heldur efnisrýr- ar. Þjónusta staðarins er elskuleg og fumlaus. í bakgmnni heyrist traustvekjandi rödd kokksins, sem kallar á íslenzku með sönglandi ít- ölskum hreim. Smjör er borið fram mjúkt í kúlum, en ekki frosið í ál- pappír, sem orðið er einkennistákn íslenzkra veitingahúsa. Á vínlistanum eru sennilega öll ítölsk vín, sem fást í Ríkinu, nema Barbaresco, og ýmis frá öðrum löndum að auki. Miðað við aðstæð- ur er þetta frambærilegur listi, hvað rauðvín snertir. Því miður er Barolo-vínið frá Fontanafredda, sem er stórframleiðandi á daufum og hlutlausum vínum, er standa ekki undir nafninu Barolo. En Santa Cristina og Riserva Ducale eru ágæt Chianti-vín, sem standa undir nafni. Þá eru á listanum ítal- skir vermútar og bitterar í löngum bunum, svo og líkjörar og versta brennivín í heimi, Grappa, sem ít- alskur barþjónn svældi í mig með veömáli við Canal Grande endur fyrir löngu. Óvenjulega gott Tortellini Súpa dagsins var nokkuð gott grænmetisseyöi, sem batnaði við, að stráð var dálitlu af Grana út í. Hvítlauksristaður hörpufiskur í olíu-tómat-hvítlaukssósu var meyr og góöur, léttari undir tönn en stundum bregður fyrir í veitinga- húsum landsins. Sniglar í kássu voru líka meyrir og góðir. Bragð þeirra kom vel í gegn, þótt sósan væri sterk, sama sósan og með hörpufiskinum. Af pastaréttum prófaði ég La- sagna Bolognese með gráðosti, heitan og góðan rétt. Ennfremur Tortellini með skinku, sveppum og hvítlauki í rjómasósu. Tortellini eru örhtlir hveitisekkir, fylltir með kjöti, svo sem skinku, og öðru góð- gæti, svo sem Grana. Þeir voru óvenjulega góðir á bragðið og gáfu ekki eftir því bezta, sem fæst á ítal- íu af því tagi. Loks prófaði ég skel- dýra-spaghetti, þar sem boðið var upp á rækjur, hörpufisk og krækl- ing. Þetta var fremur gott pasta. Pizzusé'rfræðingar mínir segja, að pizzur staðarins hafi það helzt fram yfir aðrar pizzur bæjarins að vera stórar og matarmiklar, án þess að vera dýrari en annars stað- ar. Það er vel af sér vikið, því að Ítalía er fremur dýr staður að öðru leyti. Pizzubrauðið var hæfilega þunnt, en alls ekki of hart. Þótt maturinn væri allur góður og Tortellini mjög gott, bar heilag- fiskið svo af, að því verður seint gleymt. Ég þori ekki að panta slíkt aftur af ótta við áö verða fyrir von- brigðum. Það var borið fram með þunnri og hlutlausri sósu, hveiti- lausri. Ítalía er frægasta rjómaísland í heimi. ísinn í veitingahúsinu Ítalíu sveik heldur ekki, mjög rétt blanda af ís og ýmsum söxuðum ávöxtum. Loks má ekki gleyma espresso- kaffi staðarins. í eitt skiptið varð ég fyrir vonbrigðum með það, en annars var það gott. Fremur dýrt veitingahús Ítalía er fremur dýr staður, ef frá eru taldar pizzur, pöstur og réttur dagsins. Miðjuverð fiögurra súpa var 493 krónur, fiögurra forrétta 750 krónur, átta pastarétta 895 krónur, sextán pizza 870 krónur, þriggja fiskrétta 810 krónur, fimm kjötrétta 1550 krónur og þriggja eftirrétta 495 krónur. Súpa dagsins var á 310 krónur og fiskur dagsins á 895 krónur. Expresso-kaífi kost- aði 160 krónur. Miðjuverð þriggja rétta veizlu með kaffi var 2.600 krónur, en auðvitað má komast af með miklu minna. Ítalía er ein af undantekningun- um frá þeirri reglu höfuðborgar- svæðisins, að veitingahús, sem kenna sig við fiarlæg lönd, séu foln- uð stæhng á raunveruleikanum. Ítalía er gott veitingahús, sem býð- ur góðar pöstur og beztu lúðu, sem ég hef fengið. Jónas Kristjánsson Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 1 4. sími 23939. Ölkjallarinn Pósthússtræti 1 7, sími 1 3344. Ölver v/Álfheima. sími 686220. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92. slmi 21818. Fiðlarinn. Skipagötu 14. sími 27100. Hlóðir Geislagötu 7. simi 22504 og 22600 Hótel KEA Hafnarstræti 87-89. sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85. sími 26366 Laxdalshús Aðalstræti 11, sími 26680. Sjallinn Geislagötu 1 4. sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3. sími 21818. Uppinn Ráöhústorgi 9. sími 24199 VESTMANNAEYJAR: Muninn Vestmannabraut 28. simi 11422 Skansinn/Gestgjafinn Heiöarvegi 1. sími 12577. Skútinn Kirkjuvegi 21. sími 11420. KEFLAVÍK: Edinborg Hafnargótu 30. sími 1 2000. Glaumberg/Sjávargull Vesturbraut 17. sími 14040. Glóðin Hafnargötu 62, sími 11777. Flughótelið Hafnargötu 57, sími 1 5222. Ráin Hafnargata 19 - sími 14601 SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótel Selfoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiðumörk 1. Hverag.. s. 34700. Inghóll Austurvegi 46. Self.. sími 21356. Skíðaskálinn, Hveradölum v/Suðurlandsveg, sími 98-34414. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Arnargrill Arnarbakka 2. sími 77540. Á næstu grösum Laugavegi 26. sími 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvagötu 18, sími 28060. Blásteinn Hraunbæ 102. sími 673311. Bleiki pardusinn Hjallahrauni 13. sími 652525. Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17. sími 15355. Chick King Suðurveri. Stigahlíð 45 47, s. 38890. Eikapíta Hverfisgötu 82. sími 25522. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A. sími 14248. Gafl-inn Dalshrauni 13. sími 54424. Gnoðagrill Gnoðavogi 44. sími 678555 Hér-inn Laugavegi 72. sími 19144. Höfðakaffi Vagnhöfða 10. sími 696075. Ingólfsbrunnur Aðalstræti 9. sími 1 3620. Jón bakan Nýbýlavegi 14. sími 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. sími 31 620. Lúxus kaffi Skipholti 50b. sími 83410. Marinós pizza Njálsgötu 26. sími 22610. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavörðustíg 3a. sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. sími 612030. Norræna húsið Hringbraut. sími 21522. Næturgrillið heimsendingarþj.. sími 77444. Óli prik Hamraborg 14. sími 40344. Pizzahúsið Öldugötu 29. sími 623833. Pizzaofninn Geröubergi, sími 7901 1. Pizza snögg-sneið Skólavörðustíg 2. sími 1 3320 Geröubergi. sími 7901 1 Pítan Skipholti 50 C. sími 6881 50. Seibitinn Eiðistorgi 13 15. sími 611070. Smáréttir Lækjargötu 2, sími 1 3480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 1 4d. sími 72177. Sprengisandur Bústaðavegi 1 53, sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn. sími 36320. Tíu dropar Laugavegi 27. sími 1 9380. Toppurinn Bíldshöfða 12. sími 672025. Uxinn Álfheimum 74. sími 685660. Veitingahöllin Húsi verslunarinnar. sími 30400. Vogakaffi Smiðjuvegi 50. sími 38533. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg. sími 667373. Winny’s Laugavegi 116. sími 25171. AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12. sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62. sími 14777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.