Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1992, Blaðsíða 4
20
15
ac
ht
B3
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 1992.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7, sími 673577
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk,
grafík og myndir. Opið virka daga kl.
12-18. Aðrir tímar eftir samkomulagi.
Ásgrímssafn
Bergsstaðastræti 74, sími 13644
í safni Ásgríms Jónssonar eru nú sýnd 26
verk. Mörg verkanna, sem bæði eru unnin
í olíu og með vatnslitum, eru frá árunum
1905-1930. Safnið er opið daglega nema
mánudaga kl. 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Sigtúni, sími 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina
Bókmenntirnar í list Ásmundar Sveinsson-
ar. Jafnframt hefur verið tekin í notkun
ný viðbygging við Ásmundarsafn. Safnið
er opið frá kl. 10-16 alla daga.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9, sími 24211
Opið daglega kl. 14-18.
Gallerí G15
Skólavörðustig 15
Sigurbjörn Jónsson sýnir smámyndir,
unnar með oliu á striga. Sýningin stendur
til 4. janúar og er opin alla virka daga frá
10-18.30 og á laugardögum frá 10-16.
Gallerí einn einn
Skólavöröustig 4, simi 11138
Guðlaugur Jónas Bjarnason með inní-
setningu (installation). Sýningin stendur
til áramóta. Opið daglega kl. 14-18.
Gallerí List
Skipholti, sími 814020
Samsýning 5 listamanna, blönduð sölu-
sýning. Sýningin stendur til áramóta. Opið
daglega kl. 10.30-18.
Gallerí 8
Austurstræti 8, sími 18080
Kristmundur Þórarinn Gíslason sýnir 30
landslagsmálverk og 2 blýantsteikningar.
Sýningin stendur til áramóta. Opið frá kl.
10-18 virka daga og kl. 13-18 um helgar.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9, sími 13470
Auður Svanhvít Sigurðardóttir sýnir hand-
gerða hatta. Sýningin stendur til 11. jan-
úar og er opin á verslunartíma frá kl. 9-18.
Gallerí Úmbra
Amtmannsstig 1, simi 28889
Leirlistarkonurnar Bryndis Jónsdóttir og
Guðný Magnúsdóttir eru með sýningu á
verkum sínum í Galleri Úmbru. Sýningin
er sölusýning. Galleriið er opið þriðjudaga
til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl.
10-14.
Gunnarssalur
Þernunesi 4, Arnarnesi, Garóabæ
Sýning á verkum Gunnars S. Magnússon-
ar stendur yfir í Gunnarssal. Sýningin er
opin á laugardögum og sunnudögum kl.
14-20.
Hafnarborg
Strandgötu 34, simi 50080
Opið frá klukkan 12-18 alla daga nema
þriðjudaga.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4, simi 814677
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið
frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga, föstudaga og laugardaga.
Katel
Laugavegi 20b, sími 18610
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlénda og erlenda
listamenn, málverk, grafík og leirmunir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún, sími 26131
Borghildur Óskarsdóttir sýnir í austursal
Kjarvalsstaða. i austurforsal er sýning á
Ijóðum eftir Þórarin Eldjárn og í vestursal
stendur yfir sýning ívars Valgarðssonar.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 10-18
og er veitingabúðin opin á sama tíma.
Listasafn
Einars Jónssonar
Njaröargötu. sími 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30—16. Lokað I desember og janúar.
Höggmyndagarðurinn er opinn daglega
Kl. 11-16.
Listinn
gallerí - innrömmun
Siöumúla 32, simi 679025
Uppsetningar eftir þekkta islenska málara.
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl.
10-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn
Háskóla íslands
í Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega
v kl. 14-18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Frikirkjuvegi 7, simi 621000
Listasafnið er opið alla daga nema mánu-
daga kl. 12-18 og er aðgangur ókeypis.
Leikfélagið Snúður og Snælda frumsýnir á morgun, laugardag, leikritið Fugl í búri eftir Iðunni og Kristínu Steins-
dætur. Félagar í leikfélaginu eru allir í Félagi eldri borgara. DV-mynd Brynjar Gauti
Leikfélagið Snúður og Snælda:
Fugl í búri
frumsýnt
Leikfélagið Snúður og Snælda
frumsýnir á morgun, laugardaginn
4. janúar, klukkan 17 í Risinu, Hverf-
isgötu 105, leikritið Fugl í búri eftir
Iöunni og Kristínu Steinsdætur.
Meðlimir í leikfélaginu eru allir
félagar í Félagi eldri borgara og var
leikfélagið Snúður og Snælda stofnað
fyrir ári. Leikararnir, sem eru átta
talsins, eru allir áhugaleikarar.
Leikstjóri sýningarinnar er Sigríð-
ur Eyþórsdóttir. Ljósahönnuður er
Egill mgibergsson, Eyþór Amalds
sér um tónlist, Móeiður Júníusdóttir
sér um söng og tæknistjórn er í hönd-
um Sigurðar Guðmundssonar.
Leikritið er fyrir alla aldurshópa
og eru sýningamar opnar öllum.
Önnur sýning verður á sunnudaginn
klukkan 17, þriðja sýning miðviku-
daginn 8. janúar klukkan 21 og fjórða
sýning laugardaginn 11. janúar
klukkan 17.. Ef aðsókn verður góð
verður sýningum haldið áfram.
Nýhöfn:
Sýningu á verkum
Jóns Helgasonar lýkur
Sýning Árbæjarsafns á málverkum
og teikningum Jóns Helgasonar bisk-
ups (1866-1942) í listasalnum Nýhöfn
í Hafnarstræti hefur nú staöið yfir
frá 7. desember. Sýningin hefur verið
fjölsótt bg fer nú síðasta sýningar-
helgin í hönd.
Á sýningunni er úrval af ReyKja-
víkurmyndum Jóns úr eigu Árbæj-
arsafns en Reykjavíkurborg keypti
þær árið 1945. Myndirnar sýna
Reykjavík á árunum 1770-1905. Bæði
sýna þær því bæinn eins og hann
blasti við Jóni í hans eigin samtíma
og fortíðarmyndir sem hann málaði
og byggði á gömlum kortum, teikn-
ingum og ljósmyndum.
Eins og verið hefur undanfarna
laugardaga er sérstök leiðsögn um
sýninguna þá daga. Á morgun, laug-
ardaginn 4. janúar, mun Hrefna Ró-
bertsdóttir sagnfræðingur koma og
fræða gesti um sýninguna. Hún mun
Sýningu á verkum Jóns Helgasonar biskups i Nýhöfn lýkur nú um helgina.
ræða um myndir Jóns út frá sögu-
legu sjónarhomi og hvemig Jón
tengdi saman dráttlist og rannsóknir
á sögu Reykjavíkur.
Sýningin er opin til 5. janúar, virka
daga frá klukkan 12-18 og um helgar
frá 14-18. Aðgangur er ókeypis og
öllum opinn. Leiðsögn Hrefnu um
sýninguna hefst klukkan 15.
Útivist:
Nýárs- og kirkjuferð
Útivist gengst fyrir nýárs- og
kirkjuferð á sunnudaginn klukkan
10.30. Það verður Innri-Njarðvíkur-
kirkja sem verður skoðuð.
Gengið verður frá Ósabotnum og
fylgt gömlu þjóðleiðinni frá Höfnum
inn á Njarðvíkurfltjar og þaðan
áfram að Innri-Njarðvík. Þar verður
stutt kynning á sögu kirkjunnar og
kirkjugripum er lýkur svo með
stuttri helgistund. Síöan veröur
gengið áfram í átt að Stapanum fram
að Ijósaskiptum.
Brottför verður frá BSÍ, bensín-
sölu, en stansað verður á Kópavogs-
hálsi, við Ásgarð í Garðabæ, Sjó-
minjasafnið í Hafnarfirði og Fitjanesi
í Njarðvíkum. Verð er 1.200 krónur
en frítt er fyrir böm yngri en 15 ára.
Sýningar
Listasafn Sigurjóns
Laugarnesi, sími 32906
Farandsýningin Sigurjón Ólafsson - Dan-
mörk - Island 1991 - stendur yfir I lista-
safninu. Hér er um að ræða yfirlitssýn-
ingu. Sýningin er opin um helgar kl.
14-17.
Listhúsið Snegla
Grettisgötu 7, simi 620426
Þar eru listmunir til sýnis og sölu, unnir
af 15 listakonum sem vinna í textil, keramik
og skúlptúr. Opiö mánudaga til föstudaga
kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-14.
Menntamálaráðuneytið
Hólmfríður Árnadóttir sýnir pappírsverk,
Guðrún Marinósdóttir textíllágmyndir og
Anna S. Gunnlaugsdóttir akrýlmálverk.
Sýningin stendur til 19. febrúar og er opin
virka daga frá 9-17.
Mílanó
Faxafeni 11, sími 678860
Hans Christiansen sýnir vatnslitamyndir.
Þetta er 21. einkasýning listamannsins og
sýnir hann nú um 20 myndir. Flestar
myndanna eru nýjar og eru allar til sölu.
Sýningin er opin alla virka daga kl. 9-19,
laugardaga kl. 9-18 og sunnudaga kl.
13-18.
MÍR-salurinn
Vatnsstíg 10, sími 17928
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg, slmi 21174
Á Mokkakaffi stendur yfir mjög sérstök
sýning á smámyndum („miniature").
Verkin á sýningunni eru ættuö frá Rajast-
han á Norðvestur-lndlandi og gerð ein-
hvern tíma laust fyrir síöustu áramót.
Myndimar, 33 að tölu, eru allar til sölu.
IMýhöfn
Hafnarstræti 18, sími 12230
Sýning á teikningum, vatnslitamyndum
og málverkum eftir Jón Helgason biskup
(1866-1942). Myndefnið er Reykjavik
1770-1905. Sýningin stendur til 5. janúar
og er opin virka daga frá klukkan 12-18
og um helgar frá klukkan 14-18.
Norræna húsið
v/Hringbraut, sími 17030
í anddyri sýnir Brian Pilkington teikningar
við söguna um Bakkabræður. Einnig
myndir af þekktum persónum úr barnasög-
um og ævintýrum. Sýningin stendur til
áramóta.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3B, sími 14350
Sýning í Gerðubergi,
sími 79166
Verkið „Mynd", skúlptúr eftir Sigurð Guð-
mundsson, er nýuppsett á Torginu við Gerðu-
berg. Þá stendur þar yfir sýningin'Gagn og
gaman, verk eftir börn, unnin í listasmiðju
Gagns og gamans í Gerðubergi.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Póst-
og símaminjasafnið
Austurgötu 11, sími 54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu 59, sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmynd-
ir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á
verslunartíma þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga og á laugardög-
um kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið,
I Bogasal Þjóðminjasafnsins stendur yfir sýn-
ingin „Stóra-Borg - fornleifarannsókn 1978-
1990". Þar er sögð saga fornleifarannsókna á
Stóru-Borg undir Eyjafjöllum, Rangárvalla-
sýslu. Safnið er opið alla daga nema mánu-
daga kl: 11-16.
Myndlistarsýning
í Spron
Nú stendur yfir sýning í útibúi SPRON við
Álfabakka 14 í Mjódd. Sýnd verða listaverk
eftir 9 myndlistarkonur sem eiga það sameig-
inlegt ásamt 6 öðrum konum að reka listhús
í miðborg Reykjavíkur, að Grettisgötu 7, og
nefnist það Listhús Sneglu. Sýningin stendur
til 18. janúar 1992 og verður opin frá kl.
9.15-16, þ.e. á afgreiðslutíma útibúsins.
Myndlistarsýning
Landssamtakanna
Þroskahjálpar
Landssamtökin Proskahjálp sýna grafíkmyndir
í húsnæði sínu að Suðurlandsbraut 22,
Reykjavík. Sýningin er haldin í tilefni af út-
komu happdrættisalmanaks Þroskahjálpar og
eru myndirnar á sýningunni þær sem prýða
almanakið 1992. Allar myndirnar á sýning-
unni eru til sölu. Sýningin er opin daglega til
áramóta kl. 15-17.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir
sýning á mannamyndum Hallgríms Einars-
sonar Ijósmyndara. Möppur með Ijós-
myndum liggja frammi og einnig eru til
sýnis munir og áhöld af Ijósmyndastofu
Hallgríms.