Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1994, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
7
dv Sandkom
Sameining
Núeruað-
eínsþrírdagar
ti! kosmnga.
Spi'iinan mnuii-
iisKmvnisar
blöðrurgæta
sprungiðá
l|áúgáriiági:;;;i:í:i:£
kvóldib Jxigar ;
úrslitmfaraað
iiggjafyrir
Viðtðlvið
frambjóðendur
ogönnurum-
fjöllun um kosningantar hafa tröll-
riðið síðum blaðarina og dagskrá ij ós-
vakamiðlaaðimdanförnu. Eitthvað
virðistfóik veraorðið þreytt á urn-
tjölluninni og er farið að gantast með
kosnmgaioforðin. Þannigheyrðist
frá gárungum í því ágæta sveitarfé-
lagi Vogum á Suðurnesjum að ný
sameiningartillagaværi kominfram,
að Vogar sameinuðust Bolungarvík á
VestQörðum!
Á Btyndísi
Bæjarpólitík-
ínálsafirðihef-
urveriðmeð
Sórugasta nion
i gc.'num nð-
ina, ekki síst
undanfarið
kjörtímabilþar
semmeirihluti
bæjarstjórnar
hefurs.pruiinið
Ivisvnrsinn-
um.íVest-
firskafréíta-
...u.ji,... ™„gBæringssym.
bæjarfulltrúa Ð-lístans á ísafirði,
kaliaður Goggi, sem blaðið segir hafa
orðiö þess váldandi að Bryndís Frið-
geirsdóltir af G-lista Aiþýðubanda-
lagsins sprengdi síðari sprengjuna í
meiiihiuiasamstarfmu. Goggitók ;
þátt í sjóstangaveiðimóti á isafirði á
dögunum og það kom í hans hiut aö
róa á bátnum Bryndísi ÍS. Heldur tók
Goggi illa í þetta i fyrstu en þegar
hann kom í land var komið annað
ltljóð í strokkinn. Goggi kvað ákaf-
lega gott aö hafa verið á Bryndísi en
riðstöddum fannst hann heldur das-
aöur eftir dráttinn!
SegðuA!
Höldumokk-
uráframípóli-
tíkiimiá
Isafirði. i>ar
virðastiriun
skemmtilegri
hlutireigasér
staðentildæm-
is í Reykjavíi;
sem býður upp
áeinstaklega
litiausaog
húmorslausa
kosningabar-
áttu. Árni Sigfússon þeirra ísfirðinga
er Þorsteinn Jóhannesson, yfuiækn-
iráFjórðuitgssjúkrahúsinuá
ísafirði. Hann leiðir D-lista sjáifstæð-
ismanna fyrir kosningarnar á Iaugar-
daginn. Samkvæmt frásögn Vest-
firska fréttablaðsins er Þorsteinn
hætturað sinna hálshólgutiifellumá
spítalanum og vísar þeim annað. Að
sögn blaðsins á Þorsteinn í mestu
erfiðleikum með að biðja sjúklinga
sínaaðsegjaAaaaa...!
Belgjavísur
Frákosn-
ingaspaugiyfir
íannaðspaug.
ÁHúsavíker
starfandifor-
vitnilegurfé-
lagsskapur
þungavigtar-
mannaíbæn-
um semkailar
sigBelgi. Belg-
irnirhélduárs-
liatiöadógun-
umoghéldu
upp á þau fjölmörgu fitukiió sem láku
afBelgjunum í vetur Fráþessuer
sagt í Víkurblaðinu. í tileirii fitu-
brennslunnar orti hirðskáid Belgja,
Örn Jensson, nokkrarvísurumfé-
laga srna. Hér koma tvær þeirra:
Belgirnir héldu á Bakkanum teiti,
borðuðu þar af hjartans lyst,
sumir strax náöu að mestu leyti
þvi semþéir höfðu áður misst.
Ennþá iðkar Sæsí sund,
sagteraðhanrihafi •
sy nt á aðra klukkustund
sennilcgaíkaft.
Fréttir
Pétur Blöndal stærðfræðingur um aðgerðir ríkisstjómarinnar:
Flýtifyrning er
adeins frestun
- ef örva á þátttöku einstaklinga 1 atvinnurekstri þarf almennar breytingar
„Flýtifyming er viss liður í að
örva íjárfestingu en það eru fleiri
kostir sem þarf að huga að. Ef
menn vilja örva þátttöku einstakl-
inga í atvinnurekstri þarf að huga
að skattalögunum almennt. Flýti-
fyming kemnr aðeins þeim til góða
sem eru með hagnað af rekstri.
Þeir geta dregið aukna fyrningu frá
en það er í raun aðeins frestun á
skattlagningu hagnaðar hjá fyrir-
tækjum. Ef atvinnutæki er afskrif-
að hraðar en menn ætluðu og end-
ing tækisins er kemur hagnaður-
inn fram þegar tækið er selt. Af-
skriftir eiga að vera í samræmi við
endingartíma tækja, þannig verður
málið eðlilegast. Mildar flýtifym-
ingar eru því ekkert annað en frest-
un á skatti sem þó um leið örvar
til fjárfestingar því fyrirtækin fá
þar tækifæri til að fresta skattlagn-
ingu,“ segir Pétur Blöndal stærð-
fræðingur um þá ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að beita sér fyrir
lagabreytingu til að koma á flýti-
fyrningu í atvinnurekstri.
Hann sagði einnig að það sem
þyrfti að huga að sé hvernig menn
geta fengið meira nýtt fjármagn inn
í atvinnulífið.
„Það þarf að gera með þeim hætti
að skynsamlegt sé að fjárfesta í
atvinnurekstri. í dag er ekki skyn-
samlegt að fjárfesta í atvinnu-
rekstri á meðan ekki má greiða út
meira en 10 prósenta arð án þess
að báðir aðilar séu skattlagðir, fyr-
irtækið og hluthafamir. Ef menn
tapa á atvinnurekstri geta menn
ekki dregið það frá skatti en ef þeir
hagnast þá er það skattlagt. Það
verður að laga þetta skattaiega
misræmi á milli taps og hagnaðar.
Eins þarf aö laga þetta furðulega
ákvæði að fyrirtæki megi ekki
greiða hluthöfum meira en 10 pró-
senta arð. Það gerir það að verkum
að fyrirtækin geta aldrei borgað
hluthöfunum til baka hlutaféð.
Þess vegna era fyrirtæki að kaupa
bréf í öðrum fyrirtækjum. Þetta
ákvæði breytir í raun hlutafélögum
í hlutabréfasjóði. Ég tel að huga
þurfi betur að þessum atriðum í
stað þess að vera að fresta skattlag-
ingu á hagnaði fyrirtækja. Það get-
ur örvað fjárfestingar en ekki endi-
lega í skynsamlegum tilgangi,"
sagði Pétur Blöndal.
DV-mynd Ægir Már
Kristin Erla milli tveggja kaktusa í garði sínum.
Keflavlk:
Risakaktusar
Ægir Már Kárason, Suðumesjum:
„Þetta byrjaði á því að við fengum
pínulitla kaktusafleggjara. Settum
þá niður í gróðurhúsinu en þeir
stækkuðu svo hratt aö þeir voru að
sprengja gróðurskálann. Það kom
ekkert annað til greina en að setja
þá út hér við húsið. Þeir munu ömgg-
lega lifa það af í sumar en ekki í vet-
ur,“ sagði eigandi kaktusanna, Krist-
ín Erla Albertsdóttir sem búsett er í
Keflavík.
Kaktusarnir, sem hún hefur gróð-
ursett fyrir utan hús sitt, eru fjórir
og hver um sig tveir metrar á hæð.
Kristín Eria hefur gaman að dunda
í gróðurskálanum og er þar m.a. með
vínberjá- og tómatplöntur. Hún hefur
einnig ræktað melónur og agúrkur.
„Það finnst mörgum skrýtið að sjá
kaktusana hér við húsið - halda að
þetta séu gervikaktusar - og halda
örugglega að við séum léttgeggjuð,"
sagði Kristín Erla hress 1 bragði þeg-
ar fréttamaöur DV kom í heimsókn.
Hlutafélag um loðnubræðslu í Helguvlk:
Hefur gert tilboð
í norska loðnu-
verksmiðju
Hlutafélag um rekstur loðnu-
bræðslu í Helguvík var stofnað á
Suðumesjum fyrir helgina. Stofn-
endur em 31 aðili á svæðinu en þeir
lögðu til 56 milljónir í hlutafé en
heimild er fyrir að auka hlutafé allt
upp í 200 milljónir króna og fleiri
hluthafar gætu bæst við. Málið hefur
verið í undirbúningi frá því um ára-
mót. Félagið hlaut nafnið Helguvík-
urmjöl hf. og stærstu hluthafar eru
Fiskanes í Grindavík og Miðnes í
Sandgerði.
Aðstandendur Helguvíkurmjöls
áætla að heíja loðnubræðslu næsta
haust takist að fá bræöslutæki fyrir
þann tíma. Annars verður byrjaö að
taka á móti loðnu og koma henni til
verksmiðja sem fyrir em á Suður-
nesjum. Búið er að gera tilboð í
norska loðnuverksmiðju en stofn-
kostnaður bræðslunnar í Helguvík
er talinn vera í kringum 500 milljón-
ir króna. Leggja þarf í 200 milljóna
króna framkvæmd til að gera 150
metra langan viðlegukant og fylla að
honum. Búið er að fá grænt ljós frá
Vita- og hafnarmálastofnun um að
bjóða í verkið.
Byggja á 1.500 fermetra húsnæði í
Helguvík undir loðnuverksmiðjuna.
Að sögn Þorsteins Erlingssonar,
stjómarformanns Helguvíkurmjöls,
mun verksmiðjan koma til með að
skapa 20 ársstörf. Þorsteinn sagði í
samtali við DV að þegar búið væri
aö reka niður stálþil og fylla að þeim
væri Helguvík orðin einhver besta
höfn landsins og sú besta á Faxaflóa-
svæðinu.
„Hér á Suðumesjum ríkir mikili
áhugi á loönubræðslu á þessum stað.
Loðnukvótinn hefur ekki náðst und-
anfarin tvö ár þannig að grundvöllur
fyrir verksmiðjunni er góður,“ sagði
Þorsteinn.
GAFBSLÁTTUVÉLAR
lhvvi\-du t i itii iLtir ans suaoar :
Stórir ganösn - Litlin ganöan
Öflugin 4-5 HP mótonan - 48-52 cm sláttubneidd
ARMULA 11
SÍfVll BB150D