Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1994, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
Lesendur_________________________
Á afmælisári:
Til hamingju med
afmælið, íslendingar
„Látum 50 ára afmælisárið vera árið sem markaði upphafið að raunveruleg-
um breytingum í aðgengismálum á íslandi," segir formaður Sjálfsbjargar.
Spumingin
Horfirðu mikið
á sjónvarp?
Fróði Steingrímsson: Já, mjög. Ég er
sjónvarpsfíkill.
Hjörvar Hafliðason: Já, sérstaklega á
Stöð 2.
Sonja Arnarsdóttir og Árni Þor-
steinsson: Já, svolítið.
Sigríður Guðmundsdóttir: Nei, bara
stundum.
Berglind Sigurðardóttir: Já.
Jóhann Pétur Sveinsson, formaður
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra skrifar:
Það hefur tæpast farið fram hjá
neinum aö í ár eigum við íslendingar
afmæli. Lýðveldið ísland er 50 ára.
Þetta eru merk tímamót og upp á
svona merkisafmæli verður að halda
með reisn. Ekki bara á sjálfan afmæl-
isdaginn, heldur allt afmælisárið.
í merkisafmælum eru gjarnan
haldnar miklar ræður um afmælis-
barnið og hvernig því hafi vegnað á
liðnum árum og víst verða margir til
þess á þessu afmæli. Þá eru afmælis-
barninu oftast færöar hina ýmsu
gjcifir og svo verður örugglega einnig
að þessu sinni.
Við, Sjálfsbjargarfélagar, óskum
hinu unga lýðveldi til hamingju á
afmælisárinu og þökkum samfylgd-
ina í áratugi. Við væntum þess að
okkur verði eins og öörum lands-
mönnum boðiö í afmælisveisluna og
að þar verði öllum þegnum þessa
lýðveldis búin jöfn aðstaða, hvað
snertir aðkomu og aðgengi og viður-
gjörning allan.
Okkar afmælisgjöf til lýðveldisins
verður sérstakt átak á afmælisárinu
til að vekja athygli á aðgengis- og
ferlimálum, hvað megi betur fara og
hvar sé vel á málum haldið. - Um
áratuga skeið höfum við barist fyrir
bættu aögengi, fyrir „þjóðfélagi án
þröskulda". Og víst hefur miðað þótt
okkur þyki stundum hafa miðað
nokkuð hægt.
Nú er hins vegar kjörið tækifæri
Páll Sigurðssón skrifar:
Stórt vandamál okkar íslendinga
eru hinir dreifðu markaðir okkar
nánast um allan heim og kostnaður-
inn við að koma vörum okkar á þessa
staði. Því hef ég lengi séð fyrir mér
þá lausn að þrengja markaðsstöð-
una, þótt undarlega hljómi, og stefna
að samningi við eitt sterkt markaðs-
svæði, austanhafs eða vestan, þar
sem afskipa mætti öllum okkar út-
flutningi og þá um leið aö kaupa sem
mest inn frá sama markaðssvæðinu.
Hingað til hefur verið litið til Evr-
ópu í þessu skyni. Þar eru þó veður
válynd og ekki útséð um hvort við
Karl Guðmundsson skrifar:
Ég er einn þeirra sem hef verið
mjög á móti því að vera að setja nið-
ur breiðar og miklar graseyjar milli
fjölfarinna akbrauta hér í Reykjavík.
Ég reikna með að hugsunin bak við
þessar framkvæmdir gegnum árin
hafi fyrst og fremst verið sú að gera
borgina hlýlegri og grænni ef svo
má að orði komast. Það er líka hið
besta mál þar sem það á við. - Græn
svæði og grösug eiga bara ekki heima
viö allra fjölfómustu götumar og
allra síst hér á landi þar sem gróður
á hvort eðermjög erfitt uppdráttar.
Ég var að aka nýlega eftir Bústaða-
veginum og þar gaf á að líta sjón sem
ég hef svo sem rekist á áður en þarna
keyrði um þverbak. Úti við kant
einnar graseyjunnar hefur verið
komið fyrir þökum í fyrra og nú em
þær allar orðnar trosnaðar og orpnar
og óhemju mikið lýti fyrir þá er fram
hjá fara. Skýringin er líklega sú að í
DV áskilur sér rétt
til aó stytta
aðsend lesendabréf.
fyrir sveitarfélögin, ríkisvaldiö og
fyrirtækin til að gera stórátak í að-
gengismálum og gefa íslenska lýð-
veldinu verðuga afmælisgjöf, gjöf
sem skiptir máli fyrir alla þegna
þess. ekki bara þá sem í dag em
hreyfihamlaðir. - Látum 50 ára af-
eigum nokkurn möguleika á inn-
göngu í það stóra markaðsbandalag
sem þar er orðið, ESB. Það er enda
ekki nærri því eins öruggt að ná góð-
um samningum við Evrópuríkin og
við Bandaríkin eða það stóra banda-
lag NAFTA sem nú er orðiö. Ég tel
að þar eigum við mesta möguleikana.
Þarf ekki líka að stefna að eins
mikilli fullvinnslu á hér á landi og
mögulegt er? Það er hið eina atvinnu-
skapandi tækifæri sem við eigum.
En hverjir kaupir allt af okkur? Hver
kaupir t.d. skreið af okkur aðrir en
Nígeríumenn eða aðrar suðrænar
þjóðir? Svarið er: Það á aö vinna
upphafi vom þökurnar langstaðnar
og illa skomar í upphafi og hafa aldr-
ei náð að rótfestast þarna. Afleiðing-
in er svo sú að allt verkið er unnið
fyrir gýg. - Ég ráðlegg blaöinu að
láta ljósmynda þetta fyrirbæri þótt
viöar megi sjá svipaða sjón.
Ég tel að þama hefði aldrei átt að
vera graseyja í upphafi, heldur að-
eins þriðja akreinin því ekki veitir
af. Graseyjamar em alls staðar van-
mælisárið vera áriö sem markaði
uphafið að raunverulegum breyting-
um í aðgengismálum á íslandi. Nú
skulum við hætta að tala um hlutina,
hugsa um hlutina og skrifa um hlut-
ina. - Nú skulum við láta verkin tala.
skreiðina hér heima t.d. í gæludýra-
fóður. Þekkinguna vantar en hana
fengjum við frá Bandaríkunum. Hrá-
efnið er hér og það yrði unnið hér
og pakkað og flutt út sem fullunnin
vara til Vesturheims. Á mörgum öðr-
um sviðum má líta til fullvinnslu hér
úr íslensku hráefni þegar þekkingin
er fengin. Því má líta á skreið sem
eina viðbótar vörategund sem selja
megi fullunna í Bandaríkjunum. -
En til þess þarf að gera samningana
haldgóðu og við enga þjóð er jafn
gott að seipja og einmitt Bandaríkin.
ræktar sem eðlilegt er þvi þetta er
heilmikið verk að halda við og auk
þess eyðileggja bílar og stórir jeppar
eyjamar að vetrinum þegar þeir aka
upp á þær til að taka fram úr öðrum
bílum. Svo ólöglegt og óskammfeilið
sem það er nú. - En þegar allt kemur
til alls eru allar graseyjamar óþarfar
og þær á að fjarlægja eins og borgin
er líka að byija að gera. - Þótt fyrr
hefði verið!
Fyrirspurntilyf-
irkjörstjórnar
Oddur Benediktsson skrifar:
Umboðsmönnum framboðslista
er heimilt að vera viðstaddir
kosningar á einstökum kjörstöð-
um samkvæmt lögum. - Ég spyr:
Með hvaöa heimild hafa umboðs-
mennimir kjörskrá undir hönd-
um og krossa kerfisbundiö við
þá sem kjósa og flytja þær upplýs-
ingar af kjörstað?
DV hafði samband við Jón
Steinar Gunnlaugsson hrl., for-
mann yfirkjörstjómar, og er svar
hans eförfarandi: „í 33. gr. kosn-
ingalaga er skýrt kveðið á um
rétt umboðsmanna framboðslista
viö kosningar til að vera við-
staddir eða gefa öðram umboð til
að vera viðstaddir kosningar á
hinum einstöku kjörstöðum. -
Með þessum hætti er stuðlað að
réttarörygi við framkvæmd
kosningar, bæði gagnvart fram-
boðslistum og kjósendum al-
mennt. - Til réttar umboðsmanna
heyrir vitaskuld réttur til aö
fylgjast með að kosningaþátttaka
sé í samræmi við kjörskrá enda
teljast kosningar leynilegar þó að
fylgst sé með því hvort menn
neyti atkvæðaréttar síns eða
ekki. - Framkvæmd kosninga fer
eftir kosningalögum og á undir
kjörstjómir. Hún er þvi svo-
nefndri Tölvunefnd óviðkom-
andi.“
Gegndarlausar
kosningagreinar
Gísli Ólafsson hringdi:
Manni blöskrar hvernig fólk
ryður fr á sér greinum og pistlum
í landsblöðin vegna fyrirhugaðra
kosninga hinn 28. mai nk. Þetta
hefur yfirkeyrt blöðin svo hroða-
lega, einkum stærsta blað þjóðar-
innar, Morgunblaðið, að það hef-
ur ekki verið hæft til lestrar. -
Föstud. 20. mai sl. keyrir svo um
þverbak - þá era hvorki fleiri né
fáerri en 24 aðsendar greinar!
Hver les þessi ósköp?
Forsetaferðin
Benedikt Sigurðsson skrifar:
Mér fmnst ferð forseta okkar til
Tékklands og Slóvakíu vera of-
keyrð í sjónvarpsfréttum. Þetta
er enginn fréttamatur og þaö sem
þaö er snýst upp í braðlsýningu,
skraut og pjátur. Auövitað borg-
um við allt og einnig undir opin-
bera liöið sem er áhangandi for-
setanum. Við höfum engin slik
samskipti við þessar þjóðir að við
þurfum að eyða „penný“ í svona
ferðalög.
Ekkifleiriátök!
Sigr. Bjömsdóttir hringdi:
Eg og mitt fólk eram orðin afar
leið á þessum sífelldu „átökum“
sem veriö er að efna til. Látum
nú vera ef þau ganga fyrir sig án
fjáröflunar. En þegar verið er aö
senda gíróseðla, miða eða banka
upp á og selja merki þá er þetta
eitt það hvimleiðasta sem maður
er ónáðaður með daglega. Vin-
samlegast, ekki fleiri átök, takk,
eða a.m.k. verulegan niðurskurð.
Kjarabæturi
eingreiðslu!
Árni Bjarnason hringdi:
Ástandið er orðiö slæmt þegar
VSÍ og ASÍ láta undan þrýstingi
ríkisstjómarinnar um að greiöa
launafólki 6000 kr. i eingreiðslu
sem einhvers konar kjarabót.
Þetta era ekki neinar 6 þúsund
krónur, rétt rúmar 3000 kr. eftir
skatt - fyrir flesta. - Ég tel að rík-
iö hafi beinlínis skikkað VSÍ til
að samþykkja þessa greiöslu og
fá þar með tekjuskatt frá fyrir-
tækjunum í galtóman ríkiskass-
ann. Ástandið er nefnilega orðið
verulega slæmt
Skreið á Bandaríkjamarkað
Graseyjar vanræktar og óþarf ar
Sveinn Þormóösson, Ijösmyndari DV, fór á staðinn til aö festa umræddar
skemmdir á graseyjunni við Bústaðaveg á tilmu.