Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1994, Qupperneq 32
44
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994
Hætt við skúrum
Bragi Rúnar Hilmarsson.
Hreinlega
stöppuðu á mér
„Viö vorum aö spjalla saman í
rólegheitunum þegar vinur
hnífstungumannsins kastaði
stórum þungum blómapotti á
borðstofuborðið sem hafnaði síð-
an á fæti systur minnar. Ég ákvað
að vísa þeim á dyr sem þeir voru
ekki sáttir við. Annar stóð þá upp
og ætlaði að rjúka í mig svo ég
sló hann í andlitið. Þá rauk hinn
inn í eldhús og náði í hnífinn og
síðan hjálpuðust þeir að við að
berja mig. Þeir sþörkuðu í mig
liggjandi á gólfmu, í andlitið,
þannig að ég missti meðvitund.
Þeir hreinlega stöppuðu á mér,“
sagði Bragi Rúnar Hilmarsson í
DV. Hann varð fyrir árás hníf-
stungumanns um helgina.
Ummæli
Góð líðan
„Líðanin er mjög góð. Ég get
ekki verið annaö en ánægð með
úrslitin. Mér brá auðvitað þegar
þau voru tilkynnt en mátti alveg
eins búast við þeim fyrst ég tók
þátt í keppninni á annað borð,“
sagði Margrét Skúladóttir, feg-
urðardrottning íslands.
í kartöflugarðinum
„Ég er mjög óhress að vinna
ekki en þetta var e.t.v. sann-
gjarnt. Annars er ekki hægt að
leika knattspymu við þessar að-
stæður og það er alls ekki hægt
að senda boltann í svona kart-
öflugarði," sagði Bjarni Svein-
bjömsson, fyrirliði Þórs á Akur-
eyri, eftir 0:0 jafntefli á heima-
velh gegn ÍBV.
Óeðlilegt rekstrarumhverfi
„Þetta er ekki eðlilegt rekstrar-
umhverfi og fólk má kalla þetta
uppgjöf ef það vill því þetta er jú
uppgjöf hvað það varðar að tapa
peningum," segir Sigurður
Gunnarsson, verslunarstjóri
Bónuss á Akureyri, sem nú hefur
lokað.
Lífræn rækt-
un matjurta
Fyrirlestur um lífræna ræktun
matjurta verður í HrímguUi,
Vitastlg 10, kL 20.30 i kvöld. Fyrir-
lesari er Guöfinnur Jakobsson.
Uppl. í síma 62 84 84.
Fall grunnskólanema
Helga Sigurjónsdóttir námsráð-
gjafi boðar til fundar kl. 20.30 í
kvöld í Menntaskólanum í Kópa-
Fundir
vogi um það hvers vegna fjórð-
ungur þjóðarinnar stenst ekki
lágmarkskröfur í venjulegu
skólanámi.
Misþroska börn
Almennur rabbfundur um mis-
þroska og/eða athyglisbrest með
ofvirkni verður haldinn á vegum
Foreldrafélags misþroska baraa
í Æfingadeild Kennaraháskóla
íslands kl. 20.30 í kvöld. Gengið
er inn í húsið frá Bólstaðarhlíð.
Óháði söfnuðurinn
Kvenfélag Óháða safhaðarins
heldur fund í kvöld 1 Kirkjubæ
kl. 20.
Fremur hægt breytileg átt verður á
landinu í dag. Yfirlétt léttskýjað
norðvestan til á landinu, annars
Veðrið í dag
skýjað að mestu og hætt við smá-
skúmm, einkum síðdegis. Á höfuð-
borgarsvæðinu veröur fremur hæg
norðlæg eða breytileg átt. Skýjað
með köflum og hætt viö smáskúrum,
einkum síðdegis. Hiti 5 til 11 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.09.
Sólarupprás á morgun: 3.39.
Síðdegisflóð í Reykjavík 18.37.
Árdegisflóð á morgun: 06.59.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyríléttskýjað 3
Egilsstaöir skýjað 3
Galtarviti skýjað 5
Kefla vikurflugvöllur skýjað 7
Kirkjubæjarklaustur alskýjað 6
Raufarhöfh alskýjað 4
Reykjavík skýjað 7
Vestmannaeyjar skýjað 7
Bergen hálfskýjað 6
Helsinki léttskýjað 10
Kaupmannáhöfn skýjað 11
Ósló skýjað 11
Stokkhólmur rigning 11
Þórshöfh hálfskýjað 6
Amsterdam rigning 12
Barcelona léttskýjað 17
Berlin rigning 13
Chicago skýjað 19
Feneyjar rigning 18
Frankfurt skýjað 15
Glasgow skýjað 7
Hamborg rigning 14
London alskýjað 10
LosAngeles alskýjað 17
Lúxemborg súld 11
Madríd skýjað 10
Maiaga skýjað 19
MaUorca léttskýjað 18
Montreal skúr 15
New York alskýjað 17
Nuuk skýjað 3
Orlando léttskýjað 22
París alskýjað 12
Róm þokumóða 19
Valencia skýjað 18
Vin rigning 17
Veftrið kl. 6 i morgun
Tómas Ingi Tómasson KR-ingur:
Hlakka til að vinna
„Við byrjuöum alla vega vel en
þetta er bara einn leikur af átján,“
segir KR-íngurinn Tómas Ingi
Tómasson um sigur KR-inga yfir
Breiðabliki í upphafi íslandsmóts-
ins í knattspymu. Tómas vann það
afrek að skora þrennu í leiknum.
Knattspyman hefur átt hug hans
frá því að hann var smápolli. „Ætii
ég sé ekki búinn að sparka frá því
að ég byrjaði að labba,“ segir hann.
Fyrsta liðið sem hann gekk í var
Maðirrdagsms
Týr í Vestmannaeyjum. Sautján
ára gamall fór hann að spila með
meistaraflokki ÍBV. Það var svo í
fyrra sem hann skipti yfir í KR.
Tómas starfar nú viö auglýsinga-
söfnun híá Útgáfufélaginu en um
mánaöamótin fer hann að þjálfa
unga KR-inga. „Það leggst mjög vel
í mig. Það er frábært að fá að vera
úti í sumar og þaö er mjög gefandi
Tómas Ingi Tómasson.
og skemmtilegt að vinna með Hann kveðst þó hafá áhuga á
krökkunum." íþróttum almennt.
Að sögn Tómasar er lítiU tími til Unnusta Tómasar er Ingibjörg
aö stunda önnur áhugamál en Einarsdóttir og er hún við nám í
knattspymuna. Það sé aðeins um rekstrarfræði í Samvinnuháskól-
tveggja vikna frí frá henni á árinu. anum að Bifröst.
Myndgátan
Sammælast
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Fjórir
leikir í
fjórðu
deild
Fjórir leikir verða 1 fjórðu deild
karia í knattspyrau í kvöld. Ökkl-
inn leikur á móti Ægi á Leiknis-
velli, Neisti gegn Hvöt á Hofsósi,
Kormákur og Magni mætast á
íþróttir
Hvammstanga og HSÞB og Þrym-
ur i Aðaldal. Leikimir hefjast all-
ir kl. 20.
Skák
Frá minningarmótinu um dr. Max
Euwe í Amsterdam sem lauk í liöinni
viku. Nigel Short, sem hafði hvitt gegn
Jan Timman, fann skjótvirka vinnings-
leiö í þessu vænlega tafli.
8 w
7 t
,tv
5 1 A
4 3 &
2ÍL w&&
1 s
ABCDEFGH
31. Rd7 + ! Hxd7 32. Hc8+ og Timman
gafst upp. Ef kóngurinn víkur frá kemur
33. DÍ6 mát og ef 32. - Hd8 33. Hxd8 +
Dxd8 34. Rxe6+ og drottningin fellur.
Jón L. Árnason
Bridge
Alan Truscott heitir þekktur bridgespil-
ari i Bandaríkjunum sem skrifar bridge-
dálka í Herald Tribune. Hann skrifaöi
nýlega dálk í blaðið um hvemig verur
utan úr geimnum - búnar miklu betra
innsæi en mannskepnan - myndu spila
bridge. Spiladæmiö var þannig (úr sveita-
keppnisleik manna og geimvera), vestur
gjafari og NS á hættu:
♦ Á65
¥ 8764
♦ ÁD85
' + 63
♦ D74
¥ ÁDG1093
♦ G103
+ 2
♦ G109832
¥ 5
♦ 2
+ ÁKDGIO
¥ K2
♦ K9764
-1- nO'7C4
Vestur Noröur Austur Suður
2¥ Pass 3» 34
4¥ 4* 5¥ 5*
PAi
Vestur (mennsk vera) kom út með ein-
spiliö í laufi meö hótun um trompun og
sagnhafa, litilli gamalli grænni konu
tókst að vinna spilið á skemmtiiegan
hátt. Vanaleg íferð hefði veriö að spila
spaða á ás i öðrum slag og meiri spaða,
vestur hefði átt slaginn og spilað undan
hjartaásnum inn á kóng austurs sem
hefði síðan gefið félaga stungu í laufi. En
græna geimveran spilaði í öðrum slag
tígli á ásinn og síðan tíguldrottningu með
það fyrir augum að henda hjarta heima.
Austur var vakandi í vöminni, lagöi
kónginn á, geimveran trompaði, spilaði
spaða á ás, síðan tíguláttu og henti hjart-
anu heima. Vestur var inni, en gat nú
ekki lengur hnekkt spilinu þar sem búiö
var að klippa á samgang vamarinnar. Á
hinu borðinu var litill grænn geimvem-
kall ívörninni í vestur gegn sama samn-
ingi. Útspilið var það sama og mannveran
í suður ákvað að reyna sömu leið í úrspil-
inu. En þegar tígli var spilað á ás, setti
geimveran í vestur tígultíuna. Þegar tig-
uldrottningunni var spilað úr blindum
lagði austur kónginn á og vestur henti
tígulgosanum! Þannig tryggði litli græni
kallinn það að tígulnian hjá austri sá um
valdið í litnum fyrir vömina. Það er ekki
mennskt að eiga við svona vemr.
ísak Örn Sigurðsson